Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
19
Nviar hfpkiw
Ný skáldsaga:
Sveindómur
eftir EgilEgiisson
Iðunn hcfur gefið út skáldsöguna Sveindóm eftir
Egil Egilsson. Þetta er önnur bók höfundar. Fyrir
tveim árum sendi hann frá sér skáldsöguna Karlmenn
tveggja tíma. Höfundur er eðlisfræðingur að mennt og
stundar nú kennslu við Háskólann.
Um hina nýju skáldsögu segir meðal annars í for-
lagskynningu: „Sveindómur er saga úr Reykjavík og
lýsir lífi drengs á unglingsaldri, heima og í skólanum.
Hver eru þau uppeldis- og þroskaskilyrði sem sam-
félagið býr honum? Hvemig er heimilislífi háttað i
streituþjökuðu samkeppnisþjóðfélagi? Hvernig snýst
skólinn við þeim einstaklingum sem eiga örðugt með
að aðlagast hegðunarkröfum hans, námi og námsefni,
oft viðsfjarri þeim veruleika sem nemendur hrærast í?
Sveindómur skiptist i tuttugu og níu kafla. Brian
Pilkington gerði káputeikningu. Prentrún sf. prentaði
bókina sem er 136 bls.
Margaret T rudeau
segir fró
Út er komin á vegum Iðunnar bókin MARGARET
‘TRUDEAU: I hreinskilni sagL Rekur þar fyrrverandi
ieiginkona Pierre Trudeau, áður forsætisráðherra
Kanada og foringja Frjálslynda flokksins, lífshlaup
sitt. Segir hún frá uppvaxtarárum sinum, lífi meöal
hippa, tilhugalifi sínu og forsætisráðherrans, hjóna-
bandi þeirra og embættisskyldum og ioks endalokum
sambúðar þeirra. í kynningu bókarinnar segir svo
meðal annars:
„Vegna stöðu sinnar fór Margaret Trudeau í
margar opinberar heimsóknir, kosningaferðalög,
:veizlur hjá þjóðhöfðingjum og stjómmálamönnum.
jEn formreglumar, öryggisráðstafanirnar, öll sýndar-
mennskan lagði höft á frelsisþrá hennar sem henni
fundust að lokum óbærileg.”
Caroline Moorhead skráði frásögn Margaretar og
skiptist hún i þrettán kafla, auk formála og eftirmála.
Fjöldi mynda er í bókinni. Þýðinguna gerði Bima
Ambjörnsdóttir, Prisma prentaði.
Undir kalstjömu
Sigurður A. Magnússon rithöfundur.
Mál og menning hefur sent frá sér nýja skáldsögu,
Undir kalstjörnu, eftir Sigurð A. Magnússon. Undir-
titill er Uppvaxtarsaga. Heiti bókarinnar er sótt til
kvasðis eftir Þorstein frá Hamri.
Undir kalstjörnu er veraldarsaga ungs drengs sem elzt;
upp á kreppuárunum í fátækra- og jaðarhverfum
Reykjavíkur, í Kleppsholti, við Suðurlandsbraut, i
Laugardal, Laugarnesi, Pólunum við öskjuhlíð. Lýst
er af mikilli nærfærni hvernig heimurinn verður til í
vitund bams og foreldra hans og umhverfi sér lesandi
bæði með næmum augum barnsins og með yfir-
veguðum skilningi sögumanns á fullorðins aldri.
í formála höfundar segir:
„Þessi saga rekur atvik sem gerðust i reyndinni en
getur þó ekki talist sannsöguleg vegna þess að hún
endurvekur og umskapar löngu liðna atburði sam-
kvæmt lögmálum sem eru ekki alténd virk í daglegu
lífi. Þeir einstaklingar sem við sögu koma eiga sér
flestir fyrirmyndir úr raunveruleikanum, þó öllum
nöfnum sé breytt, en þær fyrirmyndir verða meðengu
móti kallaðar til ábyrgðar á verkum eða viðhorfum
sögupersónanna sem eru rissaðar upp að geðþótta
höfundar. Hver sá lesandi sem þykist þekkja sjálfan
sig eða aðra á blöðum bókarinnar gerir það á eigin
ábyrgð.”
Undir kalstjörnu er 256. bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf.
raðqnE, wr-M&p, jswsoirt';
Viö bíöum eftir jólum
— Ný, íslenzk bamabók á
bamaðri
í þessari nýstárlegu bók Herdisar Egilsdóttur er hverj-
,um degi frá I.—24. desember ætlaður sérstakur kafli
*með sögum, myndum, gátum og föndurverkefnum.
Eins og nafnið bendir til er ætlazt til þess að bókin geti
stytt börnum stundir meðan þau bíða eftir jólunum og
hún er um leið jóladagatai. En hún getur að sjálfsögðu
átt viö hvaða tíma ársins sem er og er tilvalin jóla- og
tækifærisgjöf.
Bókin er 95 blaðsíður i stóru broti, útgefandi lsa-
foldarprentsmiðja hf.
íslandsleiðangur
Stanleys 1789
Fimmtudaginn 15. þessa mánaðar afhentu þeir
Steindór Steindórsson frá Hlöðum og örlygur Hálf-
danarson bókaútgefandi þeim dr. Finnboga Guö-
mundssyni landsbókaverði og Þór Magnússyni þjóð-
minjaverði fyrstu eintökin af einni vönduðustu og
glæsilegustu bók sem Bókaútgáfan öm og örlygur
'hefur enn gefíð út, ferðabókinni Islandsleiöangur
i Stanleys 1789 sem Steindór Steindórsson þýddi. í bók-
j inni eru um eitt hundrað pennateikningar og tuttugu
og þrjár litmyndir eftir vatnslitamyndum og oliumál-
verkum. Þá fylgja bókinni tvær sérprentaðar litmynd-
■ ir, önnur frá Rauðarárvík við Reykjavík en hin frá
bæjarhlaöi i grennd við Heklu. Þessar tvær sérprent-
anir eru ætlaðar til innrömmunar.
tslandsleiðangur Stanleys 1789 var annar í röðinni
erlendra leiðangra hingað til lands. Hinn fyrsti var
leiðangur Sir Joseph Banks 1772. Stanley var
kunnugur Sir Joseph Banks og mun Banks hafa hvatt
hann tii fararinnar. Stanley og félagar hans komu til
íslands aö nýafstöðnum hörmungum móðuharðind-
anna. Auk þess sem leiðangursmenn segja berum
orðum í dagbókum sínum má lesa margt á milli
linanna um hagi og ástand þjóðarinnar, einmitt þegar
hún er að byrja aö rétta við eftir hinar miklu hörm-
ungar, en engar aðrar lýsingar erlendra manna eru til
frá þeim árum og raunar harla fátt frá allri 18. öldinni.
Fylla dagbækurnar þvi i verulega cyðu, og allrar
virðingar verðar, bæði fyrir fræðimenn og aðra sem
áhuga hafa á sögu landsins.
Ferðabókin er prýdd fjölda mynda sem fæstar hafa
birzt áður á bók og er stórmikill menningarsögulegur
fengur að þeim. Þrír leiðangursmanna geröu fjölda-
margar teikningar hér á landi af landslagi, fólki og
mannvirkjum og þegar þeir komu aftur til Englands
voru fengnir tveir af fremstu málurum Breta til þess
að gera vatnslitamyndir og oliumálverk eftir teikning-
unum.
Ferðabókin er i litprentaðri öskju. Það er ein af
vatnslitámyndunum sem gerðar voru i Englandi og
Lífsfletir
j Það er ætíð vandasamt verk að skrifa ævisögu manna
j þannig að vel fari. Rithöfundurinn þarf að búa yfir
| hæfileikanum að geta sett sig inn í tilfinningalíf þess
sem um er skrifað. Þetta hefur Birni Haraldssyni
i tekizt mjög vel i ævisögu Árna Björnssonar tónskálds,
'nýrri bók frá Bókaforlagi Odds Bjömssonar sem ber
nafniðLifsfletir.
Árni Björnsson tónskáld er fæddur i Lóni í Keldu-
hverfi 23. desember 1905. Strax í ajsku kom í Ijós að
Árni var gasddur óvenjulegum tónlistarhæfileikum,
og frá því hann man fyrst eftir sér hefur tónlistin átt
hug hans ailan.Hann hefur samið mikinn fjöida
tónverka, allt frá dægurlögum til klassískra verka.
Árið 1952 varð Árni fyrir fólskulegri líkamsárás
jsem olii því að hann gat ekki helgað sig tónlistar-
‘starfinu eins og hann hafði ætlað sér. En þrátt fyrir
mikla sjúkdómserfiðleika semur hann ennþá tónverk.
Bókin er 160 blaðsiður auk 32 myndasíðna, prentuð
og bundin í Prentverki Odds Björnssonar hf. á
Akureyri. Káputeikningu gerði Guðbrandur Magnús-
mmim'
Mar
AUGA
Nálarauga
Bókaforlag Odds Björnssonar hefur gefið út bókina
I Náiarauga eftir Ken Follett.
Nálarauga er stórkostlega spennandi njósnasaga úr
siðustu heimsstyrjöld en jafnframt óvenjulegt ástar
ævintýri.
j Einkennisnafn njósnarans er Die Nadel. „Nálin"
en aðalvopn hans er flugbeittur rýtingur. Hann er út
valinn sendimaður Hitlers í Englandi, sérstakur
hæfileika og gáfumaður sem fer sínar eigin leiðir og
svifst einskis. Hann hefur haft aðsetur i London um
margra ára skeið, og nú hefur hann komizt á snoðir
um eitt mesta hernaðarleyndarmál stríðsáranna — og
íef honum tekst að skýra yfirboðurum sínum i Þý/ka
jlandi frá þvi, er innrás bandamanna á meginlandið
Ifyrirfram dæmd til að mistakast. En leyniþjónusta
Breta(M15) er á hælunum á Nálinni og cltinga
leikurinner hafinn.
Nálarauga hefur þegar verið kvikmynduð.
Bókin er 308 blaðsiður, prentuð í Prentverki Odds
Björnssonar hf. á Akureyri. Hersteinn Pálsson þýddi
bókina.
sýnir kirkjuna i Skálholti, leiðangursmenn, tjöld þeirra
og gesti.
Bókaútgáfan hefur vandað til ferðabókarinnar sem
mest hún mátti og er bókin hinn mesti kjörgripur.
Verð hennar með söluskatti er kr. 39.650,00. Sam-
hliða meginútgáfunni voru gefin út 89 eintök, tölusett
og árituð.
Af tæknilegum ástæðum mun forlagiö aðeins geta
afgreitt rúmlega 1100 eintök af bókinni fyrir næstu
áramót.
rir jólin
Ein? Tvær? Engin hola
■■■
í gærkvöldi voru hvorki meira né
minna en 38 auglýsingar i sjónvarp-
inu í tveimur auglýsingatímum. Það
er þó ekkert hjá því sem verður,
þegar nær dregur afmæli frelsarans.
Nær allar auglýsingarnar í gærkvöldi
voru tiltölulega nýjar af nálinni, utan
,,Ein? Tvær? Engin hola”. í guð-
anna bænum takið þessa bölv . . .
auglýsingu af skjánum! Þáskaut líka
ein eldgömul auglýsing í svarthvítu
upp kollinum, þegar Jóakim frændi
fékk martröðina. Það eru bæði til
verri og betri auglýsingar en sáust í
gærkvöldi. Heima hjá mér reynum
við smá Pollýönnuleik, þegar auglýs-
ingarnar eru i algleymingi. Við eigum
okkar uppáhaldsauglýsingar. Einum
finnt Hitachi auglýsingin bezt,
öðrum sú frá Sjóvá og enn einum
emmess auglýsingin úr barnaafmæl-
inu. Sú alversta er líklega auglýsingin
þar sem maðurinn segir okkur að við-
skiptavinirnir geti auðvitað valið
sjálfir áklæðið á eitthvert hundljótt
söfasett sem hann er búinn að bjóða
landsmönnum upp á frá upphafi
sjónvarpsins! Þegar nær dregur jól-
um og auglýsingatimarnir geta farið
upp í 10—15 mínútur, styttum við
okkur stundir heima hjá mér með því
að hafa smá getraun í gangi um hve
margar auglýsingarnar verða. Hver
má geta tvisvar í hvert sinn og borgar
fyrir. í fyrra var gjaldið 20 kr. eða 40
kr. á mann. Líklega verður það 50
kall í ár. Sá sem getur rétt fær pott-
inn. Þetta getur orðið spennandi ef
heimilismenn eru ekki of getspakir.
Potturinn komst einu sinni upp i 1300
kr.!
Það er nú annars meiri franska út-
salan sem sjónvarpsmenn hafa lent á.
Guði sé lof að hún var ekki rússnesk
eða finnsk. Að skaðlausu hefði mátt
hafa morðmyndina á undan fluginu.
Það er óþarfi að halda öllum lands-
lýð vakandi fram undir miðnætti
vegna fræðslumyndar, þótt hún væri
svosemágæt. -A.Bj.
J
Þjónusta
Þjónusta
Fyllingarefni - Gróðurmold
Heimkeyrt fyllingarefni og gróðurmold á hagstæðasta verði.
Tökum að okkur jarðvegsskipti og húsgrunna.
KAMBUR
Hafnarbraut 10, Kóp., slmi 43922.
Heimasími 81793 og 40086.
—
ER GEYMIRINN I OLAGI ?
HLÖDUM ENDURBYGGJUM GEYMA
Góft þjónusta • sanngjarnt verð 1
Kvöld og helgarþjónusta s 51271 -51030
RAFHIEDSIAN sf
ALFASKEID 31 SÍMI 51027
Húseigendur - Húsbyggjendur
Húsgagna- og byggingameistari getur bætt við sig verkefnum.
Vinnum alla trésmiðavinnu, svo sem mótauppslátt, glerlsetningar,
glugga- og hurðasmiði, innréttingar, klæðningar og milliveggi og
annað sem tilheyrir byggingunni. Önnumst einnig raflögn, pipulögn
og múrverk. Vönduð vinna, vanir fagmenn. Simi 82923.
Geymið auglýsinguna.