Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 28
Meint auðg- unarbrot Toyota- bflaumboðsins RannsóKnarlögregla ríkisins rann- sakar nú meint auðgunarbrot Toyota-bílaumboðsins i Kópavogi. Rannsóknir hafa leitt í Ijós að mörg undandarin ár hefur umboðið tekið þinglýsingar- og stimpilgjald af veð- skuldabréfum bifreiðakaupenda án þess að þinglýsa eða stimpla bréfin. Greiðslur af hverjum bíl vegna þessa hafa numið 12—13 þúsundum króna á þessu ári og nemur upp- hæðin nokkrum milljónum króna undanfarin ár, sem hafa runnið beint til umboðsins. -JH. Allt ísóma við Kröflu: Engir skjálft- ar,engirfram- bjóðendur Allt er í friöi og spekt á Kröflu- svæðinu, 3ja daginn í röð. í nótt mældust aðeins 3 mjög veikir jarð- skjálftakippir. „Það er ómögulegt að segja hvað þessi rólegheit boða,” sagði Eysteinn Tryggvason á skjálftavaktinni i morgun. „Svona ástand í stuttan tima heföi áður boðað nýja umbrota- hrinu. En nú hafa rólegheitin staöið lengur en dæmi eru til áður.” „Nei, þaö hefur ekkert breytzt með gufuna hjá okkur eftir að um fór að hægjast,” sagði Gunnar Ingi Gunnarsson, staðarverkfræðingur i Kröfluvirkjun, i rnorgun. „Við erum ánægðir ef gufan minnkar ekki, en hitt væri auðvitað vel þegiö að við fengjum meira af gufunni.” ,,Hér er allt í sómanum, veður er gott og við biðum bara eftir kosning- um,” sagði Gunnar Ingi. „Við erum' orðnir dálítið leiðir á stjórnmála- mönnum, enda er það á þcirra ábyrgð að hér hefur ekkert verið gert síðan 1976. Nei, þeir hafa ekkert látið sjá sig hér, frambjóöendurnir. Ætli þeir séuekki feimnir?!” -ARH uu-myna: tiorour. „Óvitar”: Fullorðnir leika böm og öfugt Þœr biðu „slns tlma”, amman og frœnkan, l Þjáðleikhúsinu I gœrdag, þar sem fram fór œfing á nýju bamaleikriti eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikritið heitir Óvitar og vérður frumsýnt á laugardaginn kl. þrjú. Þar leika böm fullorðið fólk og fuUorðna fðlkið leikur böm. Það er kannski I stll við pólitlkina þessa dagana.... Soffanías og Bjöm áfrýja til Hæstaréttar: Okkar vöm ekki tekin til greina dómurinn ákveðinn fyrirfram „Ég og lögfræðingur minn erum nú búnir að sannprófa að okkar vörn var ekkert tekin til greina og að dómurinn hefur verið útbúinn áður en dómarinn kom og réttarhöldin hófust. Því höfum við nú ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar og krefjast nánari rannsóknar,” sagði Soffanías Cecilsson í Grundarfirði, sem í fyrradag var dæmdur til fjár- sekta fyrir skelfiskveiði og vinnslu án leyfa. „Til þess að sannprófa okkar framburð í réttinum hefði dómarinn þurft að yfirheyra þá menn í sjávar- útvegsráðuneytinu, sem ég og lög- fræðingur minn höfum talað við. Til þe's hafði dómarinn engan tíma á milli réttarhaldsins og dómsupp- kvaðningar,” sagði Soffanías. Soffanías sagðist ekki ætla að láta bát sinn róa meira á skelfisk að sinni, enda væri kvótinn í Breiðafirði brátt uppurinn. Hins vegar sagðist hann ætla að sækja um skelfiskleyfi og vinnsluleyfi næstu daga og ætti hann von á að geta hafið skelveiði eftir áramótin. „Annars bíð ég nú eftir þessu rækjuleyfi sem Kjartan ráð- herra og hreppsnefndin hér eru að lofa mér og ætla að skoða þann möguleika þegar þar að kemur,” sagði hann að lokum. -GS. Flokkakynning í sjónvavpi í gærkvöld: Minnihlutastiómir næst? íhuga verður alvarlega hvort ekki ætti að prófa timabil minnihluta- stjórna hér á landi eftir kosningar, eins og tíðkazt hefur á ýmsum öðrum Norðurlöndum, sagði Kjartan Jóhannsson (A) i kosningaþætti sjón- varpsins. Hann taldi, að vel mætti, vera að meiri árangur yrði af slíkum minnihlutastjómum en hefði verið af meirihlutastjómum að undanförnu. Fulltrúar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks sátu fyrir svörum i þættinum í gærkvöld. Hjá alþýðuflokksmönnum kom fram að Vilmundur Gylfason dóms- málaráðherra ynni að hugmyndum um sérstakan skattadómstól og hefði veitt því máli forgang. Ragnar Amalds (AB) sagði Magnús H. Magnússon ráðherra ranglega eigna sér „félagsmálapakk- ann”. Alþýðubandalagsmenn í ASÍ hefðu undirbúið flest þau mál og Magnús oftast aðeins átt eftir að skrifa undir. Ragnar kvaðst sem samgönguráðherra hafa gert það sem til stóð varöandi „félagsmálapakka” sjómanna. Aðeins hefði verið eftir eitt mál, lögskráning á fiskiskip. Svavar Gestsson (AB) kvað alþýðuflokksmenn hafa hlaupið frá góðum málum, sem ríkisstjórnar- flokkarnir hefðu ætlað að koma fram, svo sem úrbætur í húsnæðis- lánakerfinu og verðtryggðan lífeyris- sjóð fyrir alla landsmenn. Mesti vandinn 1 vinstri stjórninni hefði verið að Framsóknarforystan hefði verið í sárum eftir kosningaósigur og átt erfitt með að standa að sam- starfinu með heilindum. Hún hefði alltaf verið að reyna að sannfæra alþýðubandalagsmenn um að kaupránsstefna stjórnar Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokks hefði verið rétt. Kjartan Jóhannsson sagði, að „framsóknaráratugurinn” hefði einkennzt af bráðabirgðalausnum. Hann taldi hugmyndir sjálfstæðis- manna um 35 milljarða niðurskurð rikisútgjalda vera yfirboð. Jón Baldvin Hannibalsson (A) sagði, að þjóðin hefði tapað 400 milljörðum á verðbólgunni eða 2 milljónum á mann, sem komið hefði fram í verri kjörum. -HH frjúlst, úháð dagbJað MIÐVIKUDAGUR 21. NÓV. 1979. Missti fót við ökkla í vinnuslysi í gærdag féll stálhurð á birgða- geymslu varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli á fót manns sem þar starfar. Hafði maðurinn runnið til í bleytu er verið var að loka dyrum birgðageymslunnar. Níðþung hurð lenti á rist mannsins og mölbraut fótinn. Maðurinn var þegar fluttur i sjúkrahús flugvallarins og síðan til Reykjavíkur. Þar var fótur hans tekinn af við ökkla. Hinn slasaði er búsettur í Njarðvík og er um fertugt. -A.St. Femtáslysadeild eftirárekstur Hörkuárekstur varð á veginum á Bæjarhálsi á mótum Bæjarbrautar í Árbæjarhverfi í gær kl. 13.50. Bíl var ekið af Bæjarbrautinni rakleitt inn á Suðurlandsveginn og á bil sem þar fór um. í bílnum sem ekið var á var tvennt fullorðið og tvö börn. Skrámuðust þau öll eitthvað en ekki alvarlega. Öku- maður hins bílsins var ómeiddur. Bíl- arnir voru stórskemmdir. -A.St. Umferðarslys íKópavogi Ekið var á 55 ára gamlan fótgang- andi vegfaranda á Digranesvegi í Kópa- vogi í morgun. Meiddist hann nokkuð en ekki lífshættulega. Þá varð i gær hörkuárekstur á Digranesbrúnni yfir gjána. Engin meiðsl urðu á fólki en tveir utanbæjar- bílar eru mjög illa leiknir eftir. -A.St. Fleiri skoðanakannanir á Akureyri: Kratarefstir HjáPóstiogsfma Enn berast fréttir af skoðanakönn- unum um fylgi stjórnmálaflokkanna á Akureyri. Á skrifstofu Slippstöðvarinnar tóku 23 þátt í könnun. Úrslit urðu sem hér segir: Alþýðuflokkur 1 atkvæði Framsóknarflokkur 1 atkvæði Sjálfstæðisflokkur 7 atkvæði Alþýðubandalag 4 atkvæði Sólness-listinn 4 atkvæði. Auðir seðlar 6. Starfsmenn Pósts og síma í Hafnar- strætinu stóðu að annarri könnun. 75 manns tóku þátt í henni. Alþýðuflokkur 14atkvæði Framsóknarflokkur 9 atkvæði Sjálfstæðisflokkur lOatkvæði Alþýðubandalag 13 atkvæði Sólness-listinn 13 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar 16. 42af54 starfsmönnum hjá Bifreiða- stjórafélaginu Stefni tóku þátt i könnun. Úrslit urðu: Alþýðuflokkur 7 atkvæði Framsóknarflokkur lOatkvæði Sjálfstæðisflokkur 5 atkvæði Alþýðubandalag 3 atkvæði Sólness-listinn 12atkvæði. Auðir seðlar voru 3 og ógildir 2. -ARH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.