Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979. WBIABID frfálst, úháð dagblað 'Útgafandi: Dagblaðið hf. Framkvaamdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kdstjénsson. RitstjómarfuRtrúi: Haukur Halgason. Fréttastjóri: ómar Valdimarsson. Skrtfstofustjóri ritstjómar: Jóhannas Raykdal. (þróttir: HaMur Sfcnonarson. Menning: Aðaktainn Ingótfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrfmur Páteson. Blaðamann: Anna Bjamason, Ásgsir Tómaason, Atli Rúnar Haldórsson, Atii Stainarsson, Bragi Sig- urðsson, Dóra Stafánsdóttir, Elfn Afcertsdóttir, Gtesur Slgurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Geirsson, Siguröur Sverrisson. Hönnun: Hilmer Karisson. Ljósmyndir: Ami Péll Jóhannsson, Bjamielfur Bjamletfsson, Hörður VHhjélmsson, Regnar Th. Sig- urðsson, Sveinn Þormóðsson. Skrtfstofustjóri: óiafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þréinn Þorielfsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjóri: Mér E. M. HaNdórsson. Ritstjóm Sfðumúla 12. Afgraiðsla, éskrtftadeild, auglýsingar og skrtf stofur Þverhohi 11. Aðabftni blaðsins er 27022 (10 Ifnur) Setrífng og umbrot: Dagbiaðið hf., Sfðumúla 12. Mynda- og plötugerð: HUmir hf., Sfðumúia 12. Prentun: Árvakur hf., Sketfunni 10. Áskrtftarverð á mánuöi kr. 4000. Verð í lausasölu kr. 200 eftitakið. Beintíæð Hagstæð úrbót felst í þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra, að hlutur fisk- vinnslunnar af lánum Fiskveiðasjóðs verði stóraukinn. Þjóðin mun hagnast á þeim breytingum, verði þær varanlegar, þar sem miklu meiri arð má fá af fjár- festingu i fiskvinnslu en fleiri fískiskip- um. Til þessa hafa fiskiskipin haft algeran forgang. Þess er að vænta, að ríkisstjórnir næstu ára muni fylgja fram þeirri breytingu, sem nú hefur verið gerð. Hingað til hefur Fiskveiðasjóður lánað nokkurn veg- inn í hlutföllunum 10—30 af hundraði til fiskvinnslu en 70—90 af hundraði til kaupa á fiskiskipum. Þetta kerfi virðist stjórnvöldum undanfarinna ára hafa þótt nokkuð gott, þótt sífellt yrði augljósara, að við höfum fjárfest of mikið í fiskiskipum. Fiskiskipastóllinn er orðinn alltof stór. Um það eru flestir á einu máli, en menn greinir að sjálfsögðu á um, hversu mikið hann er umfram þarfir. Sumir sérfróðir menn hafa talið, að skipastóllinn væri jafnvel helmingi of stór. Slíkar skoðanir mæta vaxandi skilningi, einnig ýmissa útvegsmanna. Menn vita, að hamla þarf gegn ofveiði, svo sem á þorski og loðnu, með hörðum friðunaraðgerðum. Flestir munu gera sér grein fyrir, að friðunaraðgerðir háfa gengið of skammt til þessa en ekki of langt. Hvaða vit hefur þá verið í því, að því fé, sem aflað er í Fiskveiðasjóð og nýta átti til hagsbóta fyrir þjóðar- heildina, skyldi hafa verið varið til fiskiskipa í hlutföll- unum 70—90 af hundraði? Á meðan þekkja menn, að útflutningstekjur okkar má auka stórlega með frekari úrvinnslu og bættum gæðum. Nú er stefnt að því, að útlánahlutfallið verði strax á næsta ári nokkuð jafnt milli fiskvinnslu og fiskiskipa. í náinni framtíð, segir sjávarútvegsráðherra, má búast við, að hlutfallið snúist alveg við, þannig að fisk- vinnslan fái yfirgnæfandi meirihluta lánanna. Nú á að lána til fjölbreyttari umbóta en áður og lengja greiðslufrest lána. Það hefur verið eftir öðru í þjóðfélaginu, að fisk- vinnslan hefur verið afskipt í lánafyrirgreiðslu úr Fisk- veiðasjóði. Þjóðin getur ekki byggt á sjávarútvegi í sama mæli og verið hefur, eigi lífskjör hér að batna á næstu árum. Uppbygging iðnaðar hefur dregizt svo úr hömlu, að við gjöldum seinagangsins nú þegar í verri kjörum. Þótt hlutur sjávarútvegs af framleiðslu þjóðarinnar ætti að minnka með því að aðrar greinar eflast, mun sjávarútvegur áfram verða mjög mikilvæg grein, sem ber að styðja á réttum sviðum. Tvímælalaust er fisk- vinnslan sá þáttur sjávarútvegs, sem efla ber jafnframt eflingu annars iðnaðar í landinu. Þetta hafa stjórnvöld seint séð. Höfundar frumvarps um bættan aðbúnað á vinnu- stöðum, sem flutt var á siðasta þingi en síðan svæft fyrir dugleysi stjórnmálamanna, bentu á, að aðbúnað- ur starfsfólks í helztu framleiðslugreinum þjóðarinnar er mjög víða langt fyrir neðan það, sem telja má mönn- um bjóðandi. Væntanlega mun talsverður hluti hins nýja fjár- magns, sem fiskiðnaðurinn fær, nýttur til að bæta að- búnað á vinnustað. Jafnframt fæst betri meðferð á framleiðslunni, sem getur mætt sívaxandi gæðakröfum þeirra þjóða, sem kaupa af okkur vöruna. Ekki var seinna vænna, að fiskvinnslan hlyti stuðninginn beint í æð. „Það verður að lækka laun f ram- leiðslustéttanna” Þessi demantur er ekki fyrir neina venjulega kaupendur. Þetta er Hope-demantunnn, sem er frægur viða um beim, vegur 45,5 karðt og er i eigu Smithsonian-stofnunarinnar f Washington i Bandaríkjunum. Enginn fæst til að gizka á verðgildi hans ef 4 frjáisum markaði væri. Demantar nýjasta vopniðgegn , verðbólgunni Peningarnir lækka stöðugt í verði og ekki aðeins hér í landi verðbólgu- sérfræðinganna heldur líka úti í hin- um stóra heimi. Hafa margir af þessu miklar áhyggjur eins og eðlilegt er. Þeir sem vilja leggja fyrir, hvort sem er i litlum eða miklum mæli, telja sér ekki fært að geyma fé sitt í formi peninga eða bankainnistæðna. Nú sem oftar er gripið til þess ráðs að kaupa gull, þennan nánast gagns- lausa málm sem þó er og hefur verið svo verðmætur vegna þess hve lítið er til af honum. Sagt er að guliæðið í heiminum nálgist nú jafnvel það sem var á timum gullnámsins í villta vestr- inu eða í Alaska fyrir nærri þvi einni öld. Munurinn er aðeins sá að nú á tímum kaupa menn gullið á alþjóð- legum mörkuðum í stað þess að grafa það úr jörðu í óbyggðunum. Gullið er ekki eitt um hituna nú fremur en endranær. Aðrir dýrir málmar og þá ekki síður steinar eru í háu verði, eins og til dæmis dem- antar. Mikil hreyfing er í demanta- viðskiptum um þessar mundir og í sí- vaxandi mæli eru demantar að verða sú trygging sem fólk af öllum stéttum og þjóðernum leitar í gegn verðbólg- unni. Evrópumenn, Japanir, arabar og Ameríkanar, allir eru æstir í demant- ana. Hér ýtir undir bæði áðurnefnd verðbólga og svo einnig pólitísk þróun i heiminum. Þegar ríki er á fallandi fæti og jafnvel verið að sparka ríkjandi þjóðhöfðingja kemst oft mikil hreyfing á viðskipti með dýra steina. Auðvitað er það misjafnt eftir því hve viðkomandi ríki eru auðug og þá valdhafarnir þar. Er slikt ástand ríkir komast gjarn- an nokkrir demantar á markaðinn, annaðhvort opinberlega eða undir borðið. Þannig var það líka þegar shahinn af íran varð að yfirgefa páfugls- hásætið. Áður en það varð voru dem- antakaupmenn og aðrir áhugamenn komnir í startholurnar og viðbúnir öllu. Öllum var kunnugt um að keis- arinn og fjölskylda hans áttu ógrynni af dýrmætum demöntum. Svo fór sem sérfræðingar spáðu, keisarinn féll og sá sér þann kost vænstan að selja mikið magn dem- anta. Þeir voru boðnir dl kaups í Sviss. Það voru steinar frá einu karati og þaðan af hærra. Þeir hrepptu hnossið sem snarastir voru í snúningum og höfðu mesta fjár- magnið. Hverjir voru það? Auðvitað arabarnir með allan olíugróðann. Annars eru það Bandaríkjamenn sem að sögn eru ákafastir. demanta- kaupenda. Þar er meira að segja hægt nú orðið að kaupa þá póst- leiðis. Heildarkaup hafa meira en tí- faldazt síðan 1970. Þá var salan um það bil 700 milljónir dollara en er nú að sögn ekki minni en tíu milljarðar dollaraáári. Árið 1975 kostaði eins karats dem- antur jafnvirði um það bil 1,4 milljóna íslenzkra króna. Nú mun verðið vera komið upp í 2,3 til 3,5 fyrir karatið. Nú þegar haustnætur gengu í garð boðuðu tvær andstæðar fylkingar til þinghalda. Atvinnurekendur í höfuðstöðvum sínum hér fyrir sunnan, en Verka- mannasambandið för norður til Akureyrar og þingaði þar. Ólík voru sjónarmið þessara fylkinga, annars- vegar hámarksgróði atvinnurekenda,, hinsvegar lífsafkoma verkafólks. Reiknimeistararnir úr palesandernum við Garðastræti fluttu alþjóð ennþá einu sinni boðskap atvinnurekenda. „Undirstöðuatvinnuvegir þjóðar- innar þola ekki þetta háa kaup.” Hinn sígildi 3. taxti Dagsbrúnar hljóðar upp á 212.931 á mánuði, nú ef fólk er svo heppið að vera búið að vinna í fjögur ár, er þessi taxti kominn í 219.862 á mánuði, hærra kemst hann ekki. Þetta er kaupið, sem atvinnurek- endur og forsvarsmenn þeirra telja stafa af óraunhæfum, og jafnvel nauðungarsamningum, sem atvinnu- rekendur haft orðið að gera við verkalýðshreyfinguna, og þetta sé kaupið sem verði að lækka, helst með því að afnema visitölu alveg, alla vega nota hana til kjaraskerðingar. Þeir ættu að prófa þessi laun á sjálfum sér og fjölskyldum sínum. Hver á að njóta gróðans? Þessi boðskapur er fluttur í sama mund og fyrrverandi forsætisráð- herra Ólafur Jóhannesson leggur fram á Alþingi á síðustu dögum frá- farandi rikisstjórnar skýrslu um þjóðhagsáætlun samda af Þjóðhags- stofnuninni, þar sem hagur atvinnu- veganna er rakinn. Þar er sagt um sjávarútveg, aðal- undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar: Horfur eru á að sjávarvörufram- leiðsla aukist um 5% á þessu ári. Verðmæti sjávarvöruframleiðslu verði 51% hærri en árið 1978. Hver á að njóta þessa gróða? Einvörðungu atvinnurekendur eða þeir sem með vinnuafli sínu skapa hann fyrst og fremst? Þetta er það, sem tekist'er á um í

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.