Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979. 7 Erlendar fréttir Thatcher boð- artilfundar um N-írland Ríkisstjórn Margrétar Thatcher í Bretlandi hefur boðað fulltrúa bæði kaþólskra og mótmælenda í Norður- írlandi til fundar í London. Er ætlunin að finna ráð til að endurreisa einhvers konar heimastjórn í þessum hluta Bretaveldis. Heimastjóm var afnumin og Norður-írlandi stjórnað beint frá London fyrir sjö árum, þegar mót- mælaaðgerðir kaþólskra virtust vera að breytast í borgarastyrjöld. Margrét Thatcher hefur sagt að hún muni ekki láta sér nægja loðin svör eða þver- móðsku einstakra hagsmunahópa í Norður-írlandi. Anthony Blunt:' Taldi kommún- ismann eina kostinn gegn nasismanum Mál Anthony Blunt, fyrrum listráðu- nautar drottningar og njósnara Sovét- ríkjanna, verður tekið til umræðu á brezka þinginu í dag. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði Blunt að hann hefði talið kommúnismann eina kostinn gegn nasisma og fasisma á fjórða áratug aldarinnar. Því hafi hann ákveðið að svíkja þjóð sína. Hann segir þó að hann viti nú að honum hafi skjátlazt. Blunt segir að hann hafi ekki stundað neinar njósnir fyrir Sovétríkin eftir 1945. Hann hafi aftur á móti aðstoðað vin sinn, Guy Burgess, við að flýja til Sovétríkjanna árið 1951. Frakkland: Ekkja de Gaulle látin Yvonne de Gaulle, ekkja fyrrum Frakklandsforseta, lézt hinn 8. þessa mánaðar. Voru þá Uðin nákvæmlega níu ár frá því að eiginmaður hennar lézt. Yvonne var ávaUt mjög lítið í sviðs- ljósinu og til dæmis er aðeins vitað til þess einu sinni að hún hafi komið fram opinberlega fyrir hönd eiginmanns síns. Var það við minningarguðsþjónustu í Notre Dame dómkirkjunni í París eftir dauða John F. Kennedy, forseta Banda- ríkjanna. Þá var de GauUe viðstaddur útförina í Washington. Yvonne var fædd aldamótaárið. Faðir hennar var efnaður iðjuhöldur i Calais. Hún gekk að eiga de Gaulle árið 1921, þoldi með honum súrt og sætt og fór til dæmis með honum í útlegðina i London á styrjaldarárunum siðari, er Þjóðverjar hernámu Frakkland. Þau hjón áttu fjögur börn. Eitt þeirraerlátið. CARTER HÓTAR HERNAÐ- ARAÐGERDUM GEGN ÍRAN í fyrsta skipti síðan bandaríska sendiráðið í Teheran var tekið hinn 4. þessa mánaðar lét Carter Bandaríkja- forseti þess getið í gær að stjórn hans kynni að grípa til vopna til að frelsa gíslana, sem þar eru í haldi. Sagði forsetinn að svo gæti farið nema þeim yrði sleppt úr haldi heilum á húfi. Tilkynnt var í Pentagon — her- málaráðuneyti Bandaríkjanna — að flugmóðurskipið Kitty Hawk væri á leið inn á Indlandshaf en þar er ann- að risaflugmóðurskip, Midway, fyrir ásamt fleiri bandarískum herskipum. Eru skipin sögð vera farin að nálgast Persaflóa. Bandarískir embættismenn vildu ekki í gær útiloka það að gripið yrði til hernaðaraðgerða gegn írönum til að frelsa gíslana. í Teheran var fyrirhuguð í morgun mikil stuðningsganga fylgismanna þeirra sem nú ráða ríkjum í sendiráði Bandaríkjanna í borginni. Var búizt við að hundruð þúsunda yrðu í göng- unni. Khomeiní trúarleiðtogi ávarp- aði fólk í gær og hvatti það til að taka þátt í göngunni. Sagði Khomeini að Carter Banda- ríkjaforseti væri geðveikur og auk þess umkringdur trúðum. Sönnur hefðu fundizt fyrir því að gíslarnir í sendiráðinu hefðu verið njósnarar og yrðu meðhöndlaðir sem slíkir. Hin opinbera fréttastofa í íran dró i morgun til baka tilkynningu tim að íranir muni hætta að taka við greiðslum fyrir olíu í dollurum. Tíu gislum var sleppt úr banda- ríska sendiráðinu í gær. Hefur þá verið sleppt þrettán alls. Átta svert- ingjum og fimm konum. transkir stúdentar hafa veríð iðnir við að brenna eftirmyndir Carters forseta. og með þvi lýst andstöðu sinni við stefnu hans. Zambía: ÞÚSUNDIR HÓPAST í HER LANDSINS Þúsundir landsmanna i Zambíu flykkjast nú til herstöðva i Zambíu í kjölfar almenns herútboðs sem Kenneth Kaunda forseti landsins boðaði til í gær. Er það vegna síendur- tekinna árása herliðs frá Zimbabwe/Ródesíu inn fyrir landa- mæri Zambíu undanfama daga. Hafa meðal annars verið sprengdar i loft upp nokkrar mikilvægar brýr á þjóðvegum. Talið er að Kaunda forseti vilji fara varlega í sakirnar og hafi því aðeins boðið út her landsins en ekki sagt Zim- babwe/Ródesíu stríð á hendur. Mun hann vilja komast hjá því að skæru- liðaðagerðir gegn stjórn Muzorewas biskups verði að meira vandamáli en orðið er. SOVÉTMENN BIÐJA r GISLUNUM GRIÐA Útvarpsstöð, sem er í Sovétrikjunum en sendur út á írönsku, hvatti til þess í gær að gíslarnir í bandaríska sendiráð- inu yrðu látnir lausir. Var þetta til- kynnt í Washington í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkt kemur opinberlega fram hjá Sovétmönnum. Sovézka útvarpsstöðin er í Baku í Azerbaijan og er nefnd Rödd írans. Var sagt að frelsun gíslanna væri bæði nauðsynleg af mannúðar- og stjórn- málaástæðum. Bandarísk stjórnvöld segja að með þessu hafi orðið afstöðubreyting af hálfu Sovétmanna og verið geti að það hafi áhrif á lausn deilunnar um gislana. Fyrir tæpum tveim vikum sá Banda- ríkjastjórn ástæðu til þess að mótmæla málflutningi þessarar sömu útvarps- stöðvar. Þá var málstaður þeirra, sem tóku sendiráðið bandariska og gislana studdur. TILKYNNING frá yfirkjörstjóm Vestfjarðakjördœmis. Við kosningar til Alþingis, sem fram eiga að fara 2. og 3. desember 1979, verða eflirtaldir framboðslistar í kjöri í Vestfjarðakjördæmi: A listi Alþýðuflokksins 1. Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra, Kriuhólum 2 Reykjavik 2. Karvel Pálmason, form. verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvfkur, Traðarstig 12 Bolungarvik 3. Gunnar R. Pétursson rafvirki, Hjöllum 13 PatreksGrði 4. Ægir Hafberg bankastarfsmaður, Flateyrí 5. Anna Helgadóttir húsmóðir, Hlfðarvegi 39 tsafirði 6. Bjarni Pálsson skólastjórí, Núpi Dýrafirði 7. Jóhann R. Simonarson skipstjórí, Sætúni 1 tsafirði 8. Hannes Halldórsson matreiðslumaður, Suðureyri Súgandafirði 9. Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, Eyrargötu 8 Ísafirði 10. Hannibal Valdimarsson bóndi, Selárdal Arnarfirði. B listi Framsóknarflokksins 1. Steingrímur Hermannsson, fyrrv. alþingismaður, Mávanesi 19 Garðabæ 2. Ólafur Þ. Þórðarson skólastjórí, Reykholti Mýrasýslu 3. Sigurgeir Bóasson skrífstofustjórí, Vitastig 11 Bolungarvik 4. Finnbogi Hermannsson kennari, Núpi Mýrahreppi 5. össur Guðbjartsson bóndi, Láganúpi Rauðasandshreppi 6. Magdalena Sigurðardóttir húsfrú, Seljalandsvegi 38 Ísafirði 7. Jósef Rósinkarson bóndi, Fjarðarhorni Bæjarhreppi 8. Sigurjón Hallgrímsson skipstjórí, Miðtúni 19 tsafirði 9. Gunnlaugur Finnsson bóndi og kennarí, Hvilft önundarfirði 10. Guðmundur Ingi Krístjánsson skáld, Kirkjubóli önundarfirði D listi Sjálfstæöisf lokksins 1. Matthfas Bjarnason, fyrrv. alþingismaður, tsafirði 2. Þorvaldur Garðar Krístjánsson, fyrrv. alþingismaður, Reykjavfk 3. Sigurlaug Bjarnadóttir kennarí, Reykjavik 4. Einar Kr. Guðfinnsson námsmaður, Bolungarvfk 5. Ólafur H. Guðbjartsson húsgagnasmiður, Patreksfirði 6. Þórir H. Einarsson skólastjóri, Drangsnesi 7. Krístfn Hálfdánardóttir skrífstofumaður, Ísafirði 8. Ágúst Glslason bóndi, Botni, N-ísafjarðarsýslu 9. Sigríður Pálsdóttir húsmóðir, Bfldudal 10. Ásgeir Guðbjartsson skipstjórí, Ísafirði. G listi Alþýðubandalagsins 1. Kjartan Ólafsson, fyrrv. alþingismaður, Álfheimum 68 Reykjavik 2. Aage Steinsson deildarstjóri, Seljalandsvegi 16 Ísafirði 3. Unnar Þór Böðvarsson skólastjóri, Stóra-Krossholti V-Barðastrandar- sýslu 4. Guðvarður Kjartansson skrifstofumaður, Ránargötu 8 Flateyri 5. Ingibjörg G. Guðmundsdóttir þjóðfélagsfræðingur, Silfurgötu 7 tsafirði 6. Pálmi Sigurðsson bóndi, Klúku Kaldraneshreppi, Strandasýslu 7. Krístinn H. Gunnarsson kennarí, Völusteinsstræti 24 Bolungarvik 8. Halldór G. Jónsson verkamaður, Lönguhlfð 22 Bfldudal 9. Halldóra Játvarðsdóttir bóndi, Miðjanesi Reykhólasveit, A-Barða- strandarsýslu 10. Guðmundur Fr. Magnússon sjómaður, Brekkugötu 8 Þingeyri. Aðsatur yfirkjörstjórnar Vestfjarðakjördæmis til kjördags verður á skrif- stofu bæjarfógeta á ísafirði, sími 3733. Talið verður í Gagnfræðaskólahúsinu á ísafirði þegar að kjörfundi loknum og verður nánar auglýst síðar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.