Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 8
VESTUR-
BARÐSTRENDINGAR
Fyrirhugaður stofnfundur Rauða kross-
deildar V-Barðastrandarsýslu verður
haldinn í félagsheimilinu Patreksfirði
fimmtudaginn 22. nóvember nk. kl. 20.30.
Allt áhugafólk um málefni Rauða krossins
er hvatt til að mæta.
Undirbúningsnefndin.
SKRIFSTOFU OG
VERZLUNARHÚSNÆÐI
Til leigu ca 100 ferm skrifstofu- og verzlunar-
húsnæði — hornhús — á jarðhæð við eina fjöl-
förnustu götu í gamla miðbænum. Nánari
upplýsingar í síma 26755. E.v. 31126.
Félagsfundur
hjá Félagi starfsfólks á veitingahúsum verður
haldinn að Óðinsgötu 7 fimmtudaginn 22.
nóvember kl. 20.
Fundarefni:
1. Uppsögn samninga.
2. Önnur mál.
Sýnum samstöðu og mætum öll.
Stjórnin.
Þvottavélar
GerðSL 128
Þessi nýja vél er með 18 valstillingum og
uppfyllir allar hugsanlegar þvottaþarfir.
Tveir þeytivinduhraðar eru á vélinni, 800
og 400 sn. pr. mín. S&puhólf er fjórskipt. Hægt er að velja um Iftið eða
mikið vatn við þvottinn til sparnaðar & orku.
Frystikista
Utanmál: H X B X D: 85 X 60 X 55 cm.
Orkuþðrt 3 kv 220/300volt.
í Austurveri, Háaieitisbraut 68,
sími 84445 og 86035.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
Einar Jónsson blaðar hér f gömlum úrklippum um fegurðarsamkeppnir sem haldnar hafa veríð hériendis.
DB-mynd: R.Th.
30áraafmæliFegurðarsamkeppniíslands — 25ársíðan
fyrsta stúlkan keppti erlendis:
Fegurdarsamkeppni
er ekki tízkusýning
eða gáfnapróf
—segir Einar Jónsson, sem starfað hef ur við f egurðarsam-
keppniríþrjátfuár
Einar Jónsson, forstöðumaður
fegurðarsamkeppna á íslandi, er
manna fróðastur um íslenzka fegurð
enda hefur hann starfað við
fegurðarsamkeppnir meira eða
minna í 30 ár F.inar var að því
spurður hvernig staðið hafi á því að
fegurðarsamkeppni var hér fyrst
haldin.
„Þetta byrjaði allt saman i Tívolí
árið 1949. Þar var haldin fjáröflun
fyrir Fegrunarfélag Reykjavíkur og
það þótti því tilheyra að velja
fegurstu stúlkuna i Reykjavík. Þávar
aðeins kosin Ungfrú Reykjavík.
í þá daga buðu stúlkurnar sig
sjálfar fram. Það kom alveg urmull
af stúlkum til viðtals, jafnvel þó þær
hefðu ekkert til að bera. Það var
geysilega erfitt að velja á milli allra
þessara stúlkna.
Þá þótti fegurðarsamkeppni mikill
viðburður og verðlaunin sem voru
ferð til útlanda þóttu geysileg. í þetta
skiptið var það ferð til Kaupmanna-
hafnar. Ég man nú ekki hvað hún hét
sú er sigraði en hún var ljóshærð og
voðalega sæt.
Á þessa fyrstu fegurðarsamkeppni
komu-U.000 manns og það var alveg
stórkostlegt á þessum tíma. Að
þessari fyrstu keppni stóðu ég og
Einar Pálsson. Það var síðan ekki
fyrr en fimm árum síðar að islenzk
stúlka fór í erlenda keppni. Það var
Arna Hjörleifsdóttir. Hún fór til
London 1954 til að taka þátt í Miss
World. Henni gekkalveg ágætlegaog
svaraði þannig fyrir sig að athygli
vakti.
Þá voru þær
skólaðar upp
Á þessum fyrstu árum íslenzkra
fegurðarsamkeppna var ekkert til
sparað. Stúlka sú er varð Ungfrú
ísland var sett í málaskóla og hún var
sett í tízkuskóla. Hún var sem sagt
skóluð upp í heilt ár áður en hún fór
utan til að taka þátt í keppni.
Þær stóðu sig líka vel, þessar
stúlkur. Það fór alltaf einhver með
þeim og á þeim erlendu slóðum sem
þær sóttu voru alltaf „mömmur”
sem önnuðust þær allan tímann
meðan þær dvöldu í landinu. Við
höfum líka átt stúlkur í flestum
sætum í öllum keppnum erlendis.
Á tímabili var Fegurðarsam-
keppnin i algjörri lægð hér á landi.
Ég hætti að skipta mér af fegurðar-
samkeppnum hér á landi 1965—6
nema ég hafði erlenda umboðið
áfram. Ég hef verið alþjóðadómari
siðan 1957. Það er 21 land sem
standa saman og hafa komið sér upp
lögum og reglum sem verður að fara
eftir þegar stúlka er send í keppni
erlendis. Það fer engin stúlka héðan í
keppni erlendis nema hún sé sam-
þykkt af mér. Ég sé um að hún hafi
100 dollara í veganesti, síðan kjól og
þjóðbúning.
Fyrir þremur árum kom þetta
gallabuxnastand upp. Þá var bara
ekki að finna vel klædda og snyrti-
lega stúiku. Nú er þetta að breytast
sem betur fer og stúlkur eru farnar að
gera sér grein fyrir þýðingu þess að
vera vel snyrtar og klæddar.
Fegurðarsamkeppnin breyttist
síðan aftur á betri veg þegar Guðni
Þórðarson tók við henni. Guðni hélt
rétt á hlutunum og gerði vel. Hann
fékk til dæmis alþjóðafegurðar-
drottningar til að koma hingað til
lands.
Sumar eru ekki
nógu sterkar
Þegar ég lít yfir farinn veg er ég
mjög ánægður. Það hafa aldrei
komið upp nein vandræði með stúlk-
urnar og þær hafa margar náð mjög
góðum árangri. Sumar stúlkur eru þó
ekki nógu sterkar til að bera þennan
titil og hann hefur stigið nokkrum
þeirra mjög til höfuðs. Það eru nú
samt til stúlkur sem hafa náð mjög
góðum árangri og þær hafa ekkert
breytzt við það, eins og t.d. Maria
Guðmundsdóttir og Guðrún Bjarna-
dóttir, svo að einhverjar séu nefndar.
Ég trúi því að þeir menn sem hafa
tekið að sér Fegurðarsamkeppni
íslands nú séu hæfir menn og eigi
eftir að gera þetta vel. Mér þykir
verst að keppnin skuli lenda í
kosningaveseni. Árið 1977 var
keppnin haldin á sjálfan kosninga-
daginn og samt sem áður var troð-
fullt hús. Ég er því ekkert smeykur
með þessa keppni.”
— Þarf ekki stúlka sem þátt tekur í
slíkri keppni að kunna eitthvað fyrir
sér í tungumálum?
,,Nei, fegurðarsamkeppni er
hvorki tizkusýning né gáfnapróf. Þar
ræður fegurðin úrslitum, þó fram-
koman skipti að sjálfsögðu mjög
miklu máli. Framkoma stúlkunnar
getur riðið baggamuninn.
Eg er hlynntur því að stúlkur taki
þátt í svona keppnum því það getur
gefið þeim ótal möguleika ef þær á
annað borð kunni að notfæra sér þá.
Fegurðarsamkeppni er stórviðburður
og fyrst og fremst landkynning.”
sagði Einar Jónsson að lokum
maðurinn sem í þrjátíu ár hefur að
meira eða minna leyti komið íslenzkri
fegurð á framfæri.
-EI,A.
Saltað í9700 tunnur
Síldarsöltun er senn lokið hér á Eski-
firði. Alls var saltað í tæplega 9700
tunnur. í fyrra var saltað í 12500
tunnur hérna. Hjá Friðþjófi hf. var
saltað í rúmlega 5000 tunnur, hjá Auð-
björgu hf. 3500 og Sæbergi hf 1100
tunnur.
Hér hafa verið eftirlitsmenn frá
Sildarútvegsnefnd að taka út síldina.
Fer sú síld næstu daga á Póllands-
markað.
Nú er verið að landa úr Hólmanesinu
95 tonn af blönduðum fiski eftir 9 daga
útivist.
630 tonn af loðnumjöli fóru fyrir
helgina. Ekkert hefur farið af loðnulýs-
inu.
-Regína, Eskifirði/-ARH