Dagblaðið - 21.11.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
5
Póstsendum um land allt.
micléMS |
HVERAGERÐI
SIMI9M499
Ráðherrar vilja ekki
hækka kaupið sitt:
Benedikt
færáfram
1,4 milljónir
íumslaginu
„Ráðherrar Alþýðuflokksins hafa
ákveðið að taka ekki við verðbóta-
hækkunum 1. desember. Með því
viljum við benda á þær ógöngur sem-
sjálfvirkt vísitölukerfi er komið í,”
sagði Benedikt Gröndal forsætisráð-
herra í gær.
Kaup forsætisráðherrans er nú 1,4
milljónir og hefði hækkað í 1,6
milljónir 1. desember, erl3,2% verð
bótahækkun hefði bætzt við.
Aðrir ráðherrar fá i kaup 1,3 millj-
ónir, en hefðu fengið fúmlega 1,5
milljónir með verðbótunum. -ARP
Smekkbuxur, flauel, á 1—
16 ára.
Blússur og mussur í miklu
úrvali.
Tuttugu milljarða skuld Rarík:
„Höfum fengið vilyrði
fyrir lausn vandans”
—segir KHstján Jónsson, rafmagnsveitustjóri
Tropicana vinning-
urinn loks f undinn
Nú er loks kominn botn í sölu-
happdrættismál fyrirtækisins Sólar
hf., er framleiðir appelsínudrykkinn
Tropicana. Fyrir um það bil mánuði
setti fyrirtækið strimil rtieð sérstakri
áletrun i eina fernuna og var þeim er
strimilinn fyndi heitið hálfri milljón
króna í verðlaun.
Síðan var málið auglýst upp til að
hvetja söluna, og því haldið áfram
eftir að kona á Blönduósi hringdi til
fyrirtækisins og sagðist vera sú
heppna. Að sögn forstjórans var aug-
lýsingunum haldið áfram þar sem
strimillinn hafði ekki borizt fyrirtæk-
inu og því ekki gengið úr skugga um
að þar væri sá eini rétti. Einnig sagði
hann annan mann hafa hringt og til-
kynnt um hann.
En nú er konan frá Blönduósi
komin í bæinn og búið er að ganga úr
skugga um að um réttan strimil er að
ræða. Fær hún hálfu milljónina í
dag.
- GS
Framkvæmdum við Heilsuvemdarstöð
Kópavogs á að Ijúka á 4-5 mánuðum
Loforð hefur fengizt fyrir 40
milljón kr. fjárupphæð úr rikissjóði
til þess að ljúka uppbyggingu Heilsu-
gæzlustöðvar Kópavogs. Miðað er
við að ljúka framkvæmdum við
heilsugæzlustöðina á 4—5 mánuð-
um.
Á síðasta fundi stjórnar heilsu-
gæzlustöðvarinnar kom fram að
endurskoða þarf áhaldaþörf og gera
nýja kostnaðaráætlun vegna tækja-
kaupa. Innkaupastofnun rikisins var
falið að panta þau tæki sem á vantar.
Þá var og samþykkt að sækja til heil-
brigðisráðuneytis um ráðningu
starfsfólks, lækna og hjúkrunar-
fræðinga.
- JH
„Við höfum átt viðræður við fjár-
málaráðuneytið að undanförnu og
höfum fengið vilyrði fyrir að fá þá
fjárupphæð sem þarf til að leysa okk-
ar bráðasta fjárhagsvanda á þessu
ári,” sagði Kristján Jónsson raf-
magnsveitustjóri i samtali við DB í
gær.
„Eitthvað af þeim 1 1/2 milljarði
sem nefndur hefur verið í fjölmiðlum
færist fram í janúar á næsta ári vegna
þess að efniskomu seinkar. Það
verður eitthvað innan við milljarð
sem við fáum. Hitt færist fram í
janúar.”
Kristján sagði að núna hefði aðeins
verið rætt um þennan bráðasta fjár-
hagsvanda. Áður hefðu átt sér stað
miklar viðræður Rarik við fjármála-
og iðnaðarráðuneyti um vandamálið
í heild sinni. Árangur þeirra við-
ræðna hefði orðið sá að nú væri
komið inn í fjárlagafrumvarpið
ákvæði um lausn á málinu sem fælist
í því að ríkissjóður tæki að sér
greiðslur fyrir félagslegar fram-
kvæmdir. Kristján sagði að þar með
væri komin viðurkenning á því sem
Rarik hefði lagt til. Eftir væri síðan
að sjá hvort ákvæði héldist í nýrri
gerð fjárlagafrumvarpsins.
-GAJ
,,Það var óhjákvæmilegt að veita
láglaunafólkinu leiðréttingu og hækka
kaup þess meira,” sagði Benedikt
Gröndal forsætisráðherra þegar hann
kynnti bráðabirgðalög um 2°7o hækkun
lægstu launa hinn 1. desember nk.
Bráðabirgðalögin voru samþykkt á
fundi ríkisstjórnarinnar i gærmorgun.
Að öllu óbreyttu hefði kaup, sem var
lægra en 263 þús. kr. á mánuði fyrir
dagvinnu nú í nóvember, hækkað 2%
minna en hærra kaup 1. desember. Um
mánaðamótin kemur til framkvæmda
frádráttur frá verðbótum vegna við-
skiptakjararýrnunar sem frestað var
frá 1. júní í vor með bráðabirgða-
ákvæðum í lögum frá í apríl sl. um
stjórn efnahagsmála. Viðskiptakjara-
frádrátturinn var upphaflega ákveðinn
þegar við því var búizt að úr verðbólgu
drægi á árinu. Sú hefur ekki orðið
raunin og því eru sett umrædd bráða-
birgðalög um hækkun lægstu kaup-
taxta um 2% frá og með 1. descmber.
Allt kaup hækkar um 13.2% um
mánaðamótin. Benedikt Gröndal sagði
að heildarupphæð alls kaups, sem
borgað er i landinu á ári, væri nú um
500 milljarðar króna. 1. des.-hækkunin
lyftir þeirri tölu um 66 milljarða miðað
við heilt ár.
- ARH
Loftíistar
Loftíistar
í MÖRGUM
BREIDDUM
Mðlarabúðin
Vesturgötu 21
Sími 21600
Mktos á afmæli.
Mtdas býður 10% afslátt
á öllum vörum verzlunar-
innar, í eina viku. Geysi-
fjölbreytt úrval affatnaði
á alla fjölskylduna. Þetta
einstæða tækifœri býðst
frá 21.—28. nóvember.
Frð Þoriékshöfn
*
Frf Seffossi Frf Rvík
Ti MÍDASBa 1
4- EDEN Austurmörk
jj j
Opið laugardag tilkl. 16,
HVERAGERÐI
SÍM199-4499.