Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 21.11.1979, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MlÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979. 16 r Allir f rambjóðendur á Austurlandi höfðu lausn á verðbólguvandanum en enginn þá sömu: LQFTURSOKN, „MJUKA” LEKMN, HÆGFARA LAUSN EDA VfGGfflÐING UM VERD6ÓLGU Það var helzt Sverrir sem kom fólki til að hlæja. Hér skemmta Reyðfirðingar sér vel. Sviðsmynd Ar stjörnmálasirkusinum. Myndin er teldn á Reyðarfirði en heldur rýmra var á sviðinu á EgUsstöðum. Bjarni er i ræðustól. er okkur bar inn í Valaskjálf og þrumaði: „Vinstri stjórnirnar 1956, 1974 og 1978 voru myndaðar eftir kosningasigra Alþýðubandalagsins og þær verða aldrei myndaðar nema Alþbl. komi sterkt út úr kosningum. Framsókn hefur hlaupið úr þessum V-stjórnum og nú síðast Alþýðu- flokkurinn. Aldrei hefði Alþbl. hvik- að, alltaf staðið ábyrgt, með lands- byggðarpólitík, með félagslegum átökum og barizt fyrir auknum trygg- ingabótum aldraðra og fatlaðra.” Helgi sagði að, sjálfstæðismenn hefðu sakað Alþýðuflokkinn um það í siðustu kosningum að stela öllum sinum tillögum. Nú bættu sjálf- stæðismenn um betur og kæmu fram með „leiftursóknarhugmyndina”. í henni væri kjarninn afnám vísitölu- bóta, frjáls álagning á vörur, ger- breyting vinnulöggjafar í þágu at- vinnurekenda, erlend stóriðja, lækk- un niðurgreiðslna og niðurskurðar- stefna varðandi opinberar fram- kvæmdir. í öllum þessum málaflokk- um tónaði Framsókn undir og hefði m.a. staðið að lagasetningu með íhaldinu um t.d. frjálsa álagningu, sem tekizt hefði að fresta í síðustu stjórn en ekki fella úr gildi. Fram- sókn hefði við stjórnarmyndun viljað 22% niðurskurð opinberra framkvæmda en hefði af Alþbl. verið pind niðurí 16% niðurskurð. „Nei, framsóknarmönnumerekki eins leitt og þeir láta í þessum efnum. Formaður Framsóknar segir: Helzt vildi ég V-stjórn, en ég afskrifa engan möguleika. Og Sjálfstæðis- flokkurinn telur Framsókn mun betri flokk en tætingslið A-listans,” sagði Helgi. 5-falt raforkuverð hér á við Noreg Erling Garðar Jónasson (A-10) kvað V-stjórnina síðustu ekki hafa fallið vegna stjórnarandstöðunnar, heldur vegna dáðlausrar verkstjórnar Ólafs Jóh. ,deilna Alþýðuflokks og Alþbl. og sjúklegrar afbrýðisemi Framsóknar og Alþbl. vegna kosn- ingasigurs Alþýðuflokksins í síðustu kosningum. Erling kvað Alþýðubandalagið nærast á úreltum stéttarhaturshug- myndum og skrumi og því vera verra en gagnslaust. Framsókn væri henti- stefnuflokkur, sem þyrfti að gefa duglegt spark, svo langt sem hann væri kominn frá félagshyggjunni sem hann hefði verið grundvallaður á. Síðan ræddi Erling Garðar af þekkingu um raforkumálin. Hann kvað rafmagn i sveitum vera fimm- falt dýrara á íslandi en gerðist í Noregi og í borgum hér væri það nær tvöfalt dýrara en í Osló. Ástæðan væri fjármagnskostnaður Rafmagns- veitna ríkisins sem ekki fengju að sækja á sömu mið í lánamálum og Landsvirkjun og fjármagnskostn- aður Rarik kæmist því allt upp í 47% af kostnaðarverði. Þýddi þetta 1500 milljónir kr. ef kippt væri í lag og fengið eitt langtímalán á sömu kjör- um og Landsvirkjun fær. Lúövfk og Sighvatur ætíð í stjórnarandstöðu Tómas Árnason lýsti ábyrgð þing- rofs krata á hendur krötum og sjálf- stæðismönnum. I það værí látið skína að kratar hefðu unnið kapp- hlaup við Alþbl. um að hlaupa úr ríkisstjórninní. Veilur hefðu komið fram í stjórnarsamstarfinu þegar i upphafi og stjómarandstaöa mynd- azt í stjórnarliðinu á þingi. Þar hefðu Lúðvík og Olafur Ragnar staðið að í Alþbl. og Sighvatur, Vilmundur o.fl. i Alþýðuflokknum. Lúðvik lagði ætið áherzlu á skammtímastjórn og hönd var oft á lofti móti stjómar- fmmvörpum ásamt höndum sjálf- stæðismanna. Lúðvík þvældist fyrir öllu sem hann gat svo lengi sem hann gat. Þetta gróf undan stjóminni bæði á þingi og með þjóðinni og auðveld- aði Alþýðuflokknum brotthlaupið. Alþýðubandalagsmenn heföi í raun reynzt pólitiskir hugleysingjar og þreklausir með öllu. Tómas hældi sér af því að lækka söluskatt á almennum matvörum um 5 milljaröa. Hjörleifur greip fram í og kvaö það hafa gerzt að tillögu Alþýðubandalagsins. Tómas hældi framsóknarmönnum fyrir að endur- greiða bændum, þrátt fyrir mótbárur A-flokkanna, 1300 milljónir króna fyrir árslok 1978 og þar með gert það ár að þezta ári bænda i íslandssög- unni. „Á úslitastundum hefur Fram- Hjörleifur lék allan tímann I vörninni. En hann var að vanda bezt klæddi maður liðsins. sókn aldrei brugðizt málefnum bænda og nú ættu bændur að koma Framsókn til fyrri áhrifa,” sagði Tómas. Tómas kvað Sjálfstæðisflokkinn í orði tala um „báknið burt”. Á viðreisnarárunum hefði verið sett met i eflingu báknsins og í ríkisstjórn Geirs bætt um betur. M.a. hefði þá allt verið tvöfaldað i fjármálaráðu- neytinu. Þeir töluðu um lækkun skatta, en enginn flokkur hefði fundið upp fleiri skatta og nefndi til söluskatt, vörugjald, gúmmígjald og flugvallaskatt. Verðbólguverk Tómasar ekki komin í Ijós Sverrir Hermannsson kvað síðustu rikisstjórn einsdæmi um gjörvalla heimsbyggðina. Og nú ætlaði hún aö kenna krötum um óðaverðbólguna. Það er hryggilegt, sagði Sverrir, að ávöxtur starfa Tómasar og Hjörleifs heldur áfram að koma í ljós. Hann endar ekki með 81% verðbólgu, árangur starfa þeirra verður frekar 181% veröbólga. Samt eru öll ríkis- fyrirtæki rekin með bullandi tapi. Það vantar milljarða á milljarða ofan til að ná endum saman. Haldið þiö að það þurfi ekki að borga þetta? Og hver á að borga? Og svo tala menn um að taka á öllu þessu meö mýkt. Sverrir kvaö skyndiáhlaup gegn verðbólgu hafa heppnazt 1960. I faðmlögum við framsóknardrósina 1974—78 féllst Sjálfstæðisflokkur á að beita mýktinni. Við brennum okkurekki á sama soðinu aftur. Að lokast inni í klæðaskáp Sverrir vék að tali um framboðs- raunir Sjálfstæðisflokksins. Hann kvaðst ekki orðlengja um Jón Sólnes. Það er of hryggilegt dæmi til þess að Ekki verður með neinum sanni sagt að ættjörðin og jafnvel ekki einu sinni Austurlandskjördæmi sé nokkuð nær stund frelsunarinnar eftir sameiginlega fundi frambjóð- enda á Egilsstöðum og á Reyðarfirði á sunnudaginn. Fundarsókn var talin góð á báðum stöðum og sumt fólk langt að komið á fundinum í Vala- skjálf á Egilsstöðum. En fólk fór tæplega miklu fróðara af fundinum en það kom, og vart er þess að vænta að orðaflaumur-þeirra frambjóðenda er til máls tóku hafi sannfært nokk- urn mann um hvaða flokk hann eigi að krossa við í aðventukosningunum. Á frambjóðendum sjálfum var það helzt að heyra að þeir gerðu ráð fyrir að Framsókn og Alþýðubandalag fengju tvo menn kjörna og Sjálf- stæðisflokkurinn einn. Baráttan sem þeir eygðu í kjördæminu var því um hugsanleg uppbótarþingsæti, hvort það eða þau féllu Framsókn, krötum eða Alþýðubandalagi í skaut og Sverrir Hermannsson lýsti þeirri bjartsýni sinni að með í þeim slag væri Egill Jónsson á Seljavöllum (D- 2) og brostu þá ýmsir fundarmenn í kampinn en enginn hló upphátt. Frambjóðendur höfðu ekki meira við en svo að sömu ræðurnar voru fluttar nær óbreyttar á báðum fundunum — og var okkur Dag- blaðsmönnum tjáð að svo hefði einnig verið á tveim fundum nyrzt i kjördæminu sem frambjóðendur sóttu með harðræði í sameiginlegum rútubil og um borð i varðskipi. Gekk þetta meira að segja svo langt að sömu mótframbjóðendur komu með sömu innskot eða frammí- grip á báðum fundum — svo full- komlega var platan leikin. Og það brá við á síðari fundinum vegna breyttrar röðunar ræðumanna að svar kom frá ræðumönnum áður en ástæða var til að svara en þess þá getið að fullyrðingin sem svarað var yrði sögð síðar á fundinum. Og allt stóð það heima. Frambjóðendurnir voru eiginlega ekki sammála nema um eitt atriði; að kosningarnar snerust um efna- hagsmál. Þessi staðreynd kom vist ekki flatt upp á neinn fundarmanna. En að frambjóðendur væru sammála um leiðir til úrlausnar var öðru nær. Allir skömmuðu alla fyrir hvernig komið væri og allir höfðu leiðir til lausnar þó engin leiðanna væri eins. Sverrir & Co réttlættu leiftursóknina, Tómas & Co bentu á hægfara lausn, prófessor Bjarni vildi „mjúku” leiðina og félagarnir í Alþýðubanda- laginu fóru eins og kettir í kringum heitan graut um það er kalla mætti „víggirðingu um verðbólguna og opinberar framkvæmdir”. Engin V-stjórn án Alþýðubandalags Helgi Seljan (G-l) stóð í pontunni Frambjóðendur til alþingiskosninga í Austurlandskjördœmi 1.—2. desember 1979: A 1. Bjarní Guönason prófessor, Reykjavlk 2. Hallsteinn Friöþjófsson, form. Verkalfél. Fram, Seyðisf. 3. Guömundur Sigurðsson læknir, Egilsstööum 4. Siguröur Hjartarson bakari, Höfn 5. Bjöm Björnsson rafvirkjameistari, Norðfirði 6. Jóna Halldórsdóttir húsfrú, Eskifiröi 7. EgillGuðlaugsson framkvæmdastj., Fáskrúðsfirði' 8. Ingi Einarsson sjómaður, Höfn 9. Bragi Dýrfjörð umboösmaður, Vopnafirði 10. Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri, Egilsstöðum D 1. Sverrír Hermannsson, fv. alþingismaður 2. Egill Jónsson bóndi, SeljavöUum 3. Tryggvi Gunnarsson skipstjóri, Vopnaftrði 4. Þráinn Jónsson framkvæmdastjóri, Fellahreppi Jt Júlíus Þórðarson bóndi, Skorrastað, Norðfirði 6. Jóhann D. Jónsson umdæmissijóri, Egilsstöðum 7. Ásmundur Ásmundsson framkvstj., Reyðarfirði 8. Albert Kemp vélvirki, Fáskrúðsfirði 9. Herdís Hermóðsdóttir húsmóðir, Eskifiröi 10. Pétur Blönda) framkvæmdastjóri, Seyðisfirði B 1. Tómas Árnason, fv. ráðherra / 2. Halldór Ásgrímsson, fv. alþingism. 3. Guðm. Gislason kaupfélagstj., Stöðvarf. 4. Jón Kristjánsson fuUtr., Bgilsstöðum 5. Alrún Kristmannsd. húsmóðir, Eskifirði 6. Kristján Magnússon sveitarstj., Vopnafirði 7. Berta Einarsdóttir húsfreyja, Kálfafellsstað 8. SveinnGuðmundss. bóndi,Sellandi 9. Friðjón Skúlas., húsasmiðam., Neskaupstað 10. Þórdis Bergsd. bæjarftr., Seyðisfirði G 1. Helgí Seljan, fv. alþmaður 2. HjörleifurGuttormsson, fv. ráðherra 3. Sveinn Jónsson vérkfræöingur, Egilsstöðum 4. Þorbjörg Arnórsdóttir, Hala, Suðursv. 5. Ágústa Þorkelsd., Refstað, Vopnaf. 6. Guðjón Sveinsson rithöf., Breiðdalsvik 7. Guðjon Björnsson kennari, Eskif. 8. Birgir Stefánsson kennari, Fáskrúðsf. 9. Pétur Eiðsson bóndi, Snotruncsi 10. Baldur Sveinbjörnsson sjómaður, Seyðjsfirði i v *

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.