Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 3
Hættum að ofsækja landbúnað S. J. iiringdi: Núna, þegar ljósl er orðið að landið er að verða samgöngulaust við útlönd, held ég að timi sé til kominn fyrir ráðamenn að gera sér grein fyrir mikilvægi landbúnaðarins. Það hefur verið að koma í ljós síðustu vikur og mánuði að flugsam- göngur okkar við útlönd geta brugðizt þá og þegar, jafnvel þótt langt sé liðið á 20. öldina. Það er því möguleiki að íslenzka þjóðin geti að meira eða minna leyti einangrazt án þess að til styrjaldar komi. Á hitt er líka að líta að það er allt annað en friðvænlegt í heiminum um þessar mundir. Þetta ætti að sýna okkur fram á ntikilvægi þess að við getum verið sjálfum okkur nóg i fæðuöflun. Við skyldum þvi hætta ofsóknum á hendur landbúnaðinum og reyna frekar að styðja við bakið á þessum þýðingarmikla atvinnuvegi. Bréfritari ræðir um mikilvægi landbúnaðarins. _ # Bryndis og brandarabankastjórinn. Raddir lesenda Stundin okkar og Bryndís Schram: Gagnrýnin byggist á afbrýöisemi ,,F,inn af mörgum aðdáendum Bryn- disar Schram" hringdi: Það hafa nokkrir verið að setja út á barnatímann í sjónvarpinu og sagt að hann væri aðeins orðinn fyrir pabbana. Ég vil nota tækifærið og þakka Bryndjsi Schram fyrir hvað henni tekst að hafa mikla fjölbreytni í barnatímunum og gæða þá miklu lifi. Á mínu heimili voru börn og full- orðnir að mestu hætt að fylgjast með barnatímanum. Það var oftast sami grautur í sömu skál. Í dag er Stundin okkar orðin eitt vinsælasta efnið sem sjónvarpið býður upp á. Er nokkuð athugavert við að Bryn- dísi hafi tekizt með sinni töfrandi framkomu að fá pabbana til að setj- ast við hliðina á börnunum? Það leynir sér ekki, að börnin fá flest eitt- hvað við sitt hæfi. Ég á þá ekki við börn sem eru nýfarin að skriða. Þessi gagnrýni sem hefur komið fram byggist fyrst og fremst á því að það eru einstakar konur sem eru fullar af afbrýðisemi út í Bryndisi fyrir hvað hún er „sexi” og þær geta ekki unnt okkur pöbbunum að njóta þess að horfa á hana. Kvikmyndahúsin: 0f lítið eftirlit Margrét Sigurðardóttir hringdi og kvaðst vilja taka undir það sem sagl var í lesendabréfi i DB á mánudaginn um skrílslæti unglinga í kvikmynda- húsum. „Erlendis er þessu öðruvisi farið. Þar er þeim sem er með ólæti eða drukkinn umsvifalaust visað á dyr. Hérna er alltof litið eftirlit.” Neskaup- Al ' staður: Uhr6lllt I pokahominu? Pélur Óskarsson, Neskaupstað, hringdi: Ég ætla að vekja athygli lands- manna á því að á sama tíma og ein- staklingar þurfa að standa skil á sínum gjöldum til rikis og bæja þá heldur bæjarstjórinn á Neskaupstað eftir af launum fólksins sem vinnur hjá honum. Hann heldur því eftir sem fólkið á að borga til fógeta og hann virðist komast upp með að skila því ekki. Það er staðfestur grunur minn að hann skuldi tæpar 6 milljónir til fógeta. Þá langar mig að beina þeirri spurningu til verðlagsyfirvalda hvernig standi á því að umboðs- niaður Ölgerðar Egils Skallagríms- sonar á Austurlandi komist upp með að selja hvern kassa af öli 300 kr. dýrari en aðrir. Umræddur umboðs- maður er formaður Verkalýðsfélags Norðfjarðar og hann stundar það að vera með óhóflega hátt verð á gos-; drykkjum. Stundin okkar: 11 árakominn ípabbahópinn Fríða hringdi og sagði að sér þætti gagnrýnin á Bryndísi Schram hafa gengið út í öfgar. „Væri æskilegra að þeir sem stjórnuðu sjónvarpsþáttum litu illa út og hefðu slæma fram- komu? Ég á 11 ára strák sem er mjög hrifinn af Stundinni okkar. Kannski er hann kominn í pabbahópinn. Mér finnst stjórn Bryndísar á Stundinni vera mjög góð og hefur þátturinn verið mjög fjölbreytilegur og fyrir ýmsa aldurshópa. Eg held að fólk öfundi hana bara.” Alhugasemd DB: Fleiri aðilar hafa hringt og hrósýð Stundinni okkar undir stjórn Bryn- disar. Að gefnu tilefni vill DB taka fram að Guðrún Guðlaugsdóttir, sem skrifaði um Stundina okkar í DB 17. janúar og kallaði hana pabbatíma, er ekki Guðrún Guðlaugsdóttir dag- skrárfulltrúi útvarpsins. Leiðrétting Nafn Jónasar Gunnarssonar, for- manns Félags matvörukaupmanna, misritaðist á lesendasíðu DB sl. þriðjudag. Þar er hann sagður Guð- mundsson sem er rangt. Er Jónas beðinn velvirðingar á mistökunum. Stutt og skýrbref á o0 bréf eiga að vera stutt ug skýr. Áskitinn er fuilur réttur til u<) stytta hréf og umorða til að spara rtim og koma efni betur til skila. Bréf cettu helzt ekki að vera lengri cn 200—300 orð. Simatími lesendadólka DU er milli kl. 13 og 15 frá mánudögum til fóstudaga. Enn einu sinni minna lesenda- dálkar DB alla þá, er hyggjast senda þœttinum línu, að láta fylgja fullt nafn, heimilisfang, símanúmer (ef um það er að ræða) og nafnnúm- er. Þetta er lítil fyrirhöfn fyrir bréf ritara okkar og til mikilla þæginda fyrir DB. Lesendur eru jafnframt minntir ✓ Spurning dagsins Spilarðu bridge? Viktor Guðmtindsson, nemi i Verzl- unarskólanum: Nei, það geri ég ekki. Ég kann ekki bridge, það er aldrei spilað á heimilinu. Ásgeir Ingólfsson íþróttakennari: Svona örlilið. Mér finnst spilið skemmtilegt og ég hef kcppt i því öðru hvoru. Þuríður Jónsdótlir húsmóðir: Nei, ég kann það ekki. Ég þekki þó nokkuð marga sent kunna bridge en ég held ekki að mér standi neitt til boða að læra hjá þeim. Hafsteinn Jósepsson bifvélavirki: Nei, ég spila ekki bridge. Ég kann ekki spilið og hef aldrei spilað það. En vel getur verið að ég skelli ntér úl í að læra það. Geslur Hjallason, vinnur i Hagkaupi: Nei. Ég veit svona rétt um hvað spilið snýst cn ég hef ekki dottið i að læra það cnn. Sverrir Gunnarsson, vinnur i Hag- kaupi: Nei, ég kann það ekki. Áhuginn er takmarkaður en aldrei að vita nema hann kvikni og maður læri þetta.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.