Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 28
Mosfellingar sjá hilla undir nýju símstöðina: KOSTNAÐURINN EIN MILUÓN A NÚMER „Þetta er óðum að styttast og við gerum ráð fyrir símanum einhvern tíma í marz, þó ekki sé búið að fast- setja daginn,” sagði Marta Guðmundsdóttir simstöðvarstjóri á Varmá i Mosfellssveit. Ný simstöð er nú langt komin og má ekki seinna vera áð dómi margra Mosfellinga. Um 200 manns eru á biðlista eftir síma, auk 70 manna sem ennþá nota handvirkl kerfi. Sumir hafa beðið eftir sima frá því haustið 1977. „Upphaflega var gert ráð fyrir að nýja símstöðin yrði tekin i notkun um mánaðamótin marz-apríl en að sögn Mörtu hafa framkvæmdir gengið það vel að búast má við henni eitthvað l'yrr. „Reikningar verða með opnun nýju simstöðvarinnar á gjaldskrá Reykjavikur. Ég veit ekki hverju munar fyrir meðal heimili en ég hygg að á flestum heimilum fari símreikn- ingar í um 50 þúsund krónur á tveggja mánaða fresti. Miðað við að fjölskyldan tali í tíu mínútur á hverj- um degi til Reykjavíkur og hafi þurft að borga 10 skref sparast auðvitað mikið þegar ekki þarf að borga nema eitl skref. Hvert skref kostar 25 krónur með söluskatti,” sagði Marta. Hún sagðist ekki vita nákvæmlega hvað stöðin kostaði en í upphafi hafi verið áætlað að kostnaðurinn yrði nokkur hundruð þúsund á hvert númer. Kvað hún ekki fjarri lagi að áætla að sá kostnaður væri nú kominn upp í um milljón á hvert númer. -DS. Ólafur Jóhannesson í forsetaframboð? „Ekki nein ákvörðun” „Það er ekki nein ákvörðun unt það t'rá tninni hendi,” sagði Ólafur Johannesson, alþingismaður og fyrr- verandi forsætisráðherra, er Dag- blaðið spurði Itann í morgun hvort hann hefði gcrt upp hug sinn til for- selaframboðs. Ólafur sagðist ekki hafa nefnt það að l'yrra bragði við nokkurn mann að hann hygði á l'ramboð. Aðspurður um, hvort ckki hefði verið orðað við hann að gefa kost á sér. sagði Olaftir það eilt, að nal'n sitt hcfið verið ncfnt í fjölmiðlum i þessu sambandi. -GAJ Kvótar í kjölfar fiskverðs Stjórnvöld og hagstnunaaðilar i fiskveiðum hal'a ckki enn komið sér saman um fyrirkomulag þorskveiða á þcssu ári. Að sögn Björns Dagbjartssonar aðstoðarmanns sjávarútvegsráðherra í morgun cr rúnt vika síðan að httg- myndum ráðuneytis var drcift til Itagsmunaaðilanna. Sameiginlegur fundtir þeirra og ráðuneyiismanna hefur hins vegar drcgi/l lengur en ætlað var, m.a. þar sent margir frammámenn i Itags- iminasamtökunum hafa verið önnum kafnir við að konta santan nýju fisk- vcrði. - GS Með bílspeglana upp úr vasanum Ungur maður fór i nótt um götur i austurhlula Reykjavíkur i illu skapi og skemntdarverkahug. Fékk lögregl- an á hónunt góða lýsingu oger hugað var að honum fannst hann litlu siðar. Stóðti þá tveir bilspeglar upp úr vös- iim Itans og sá þriðji fannst i fötuni hans. Fleira hafði hann skemntt nteð spörktmi, m.a. garðhús á einunt stað. Pillurinn var ölvaður en viðtir- kenndi sekl sina. -A.Sl. Norðangarrínn ríkir áf ram Norðangarrínn verður áfram i dag og kœlir okkur 'enn frekar. Frostið, þó það sé ekki mikið, virðist nísta merg og bein og eins gott er að vera vel klæddur. Hún hafði vaðið fyrir neðan sig þessi kona sem Hörður hitti á leið sinni, og klæddist kápu úr sauðargæru og rósavettiingum. En noróangarrinn fann sérsamt leið inn undir höfuðklútinn. - DS/DB-mynd Hörður. Tillögur Benedikts: Verðbólgan verði 30% — Alþýðubandalagið fljótt út úr myndinni — „Lúðvik tekur við bréfinu,” segja alþýðubandalagsmenn Verðbólgan á að fara í 30 prósent i ár samkvæmt þeim „málamiðlunar- tillögum” sem Benedikt Gröndal leggur fyrir flokkana í dag. Tillögurnar byggjast á svipuðum aðferðum og tillögur Alþýðu- l'lokks og Framsóknar i vinstri viðræðunum. Verðbætur verða skertar, annaðhvort með þvi að hafa þær fasta prósentutölu eða stefna að „niðurþrepun”. í niðurþrepun felst að verðbótaprósentan fer lækkandi, eftir þvi sem á líður árið. Hugmyndin er að bæta lægstu launin með kauptryggingu. Tillögurnar ganga út frá svipuðu aðhaldi i fjármálum rikis og peninga- málum og fyrri tillögur Alþýðu- flokks. Alþýðubandalagið mun sennilega detta fljótt út úr viðræðunum. „Lúðvík tekur við bréfinu,” sagði einn forystumanna Alþýðubanda- lagsins í morgun um viðtökur Alþýðubandalagsins við tillögum Benedikts. „Mér sýnist Benedikt vera að reyna að finna flöt lil að losna við Alþýðubandalagið,” sagði þessi forystumaður. Hann taldi að tillög- urnar yrðu ekki að skapi Alþýðu- bandalagsins. Margir stjórnmálamenn spáðu í gær og i morgun, að útkoman yrði „Stefania”, það er samsteypustjórn Sjálfstæðis-, Alþýðu- og Framsóknarflokks. -HH. Irfáist, áháð dagblað FIMMTUDAGUR 24. JAN. 1980. Fiskverð væntanlegt í dag: Kostar 3% gengissig Um þrjú prósent gengissig þarf til að rétta hag fiskvinnslunnar, eða halda henni á núlli, eftir að nýtt fiskverð verður væntanlega ákveðið i dag. Skv. upplýsingum DB verður það sennilega 15 til 16% að frádregnu 9% olíugjaldi þannig að nettóhækkun frá sjónarhjóli fiskvinnslunnar verður 6 til 7%. 10 til 11% hækkunarinnar koma til skipta sjómanna og útgerðar og er talið víst að olíugjald verði 5%, sem útgerðin fær beint. -GS. Magnús hætt- ir í Kredit- kortum hf. Magnús G. Jónsson byggingameist- ari hefur óskað þess við stjórn hluta- félagsins Kreditkorta að hann verði leystur frá störfum og auk þess að hlutabréf hans í fyrirtækinu verði boðin til sölu. Hefur stjórnin samþykkt beiðni Magnúsar. Er þetta samkvæmt yfirlýsingu ofangreindra aðila í fram- haldi af skrifum um málefni Magnúsar G. Jónssonar, þar sem hann lelur að vegið hafi verið að mannorði sínu með brÍL'zlum aðósekju. Stjórn Kreditkorta hf. hefur í yfirlýsingu „harrnað þann róg og dylgjur, sem fram hafa verið bornar að Magnúsi.” -óí;. Lyfjakassa mb. Steina- ness stolið Rannsóknarlögreglan hefur nú til rannsóknar innbrot og þjófnað i mb. Steinanes frá Bíldudal, en báturinn er til viðgerðar í Slippnum í Reykjavík. Er skipstjóri kom um borð i gær blasti við honum ófögur sjón. Brotizt hafði verið inn i brú skipsins með þvi að brjóta og bramla meira og minna tvær hurðir. Ekki virtist annað horfið en lyfjakassi skipsins sem var i ibúð skipstjóra. í kassanum var m.a. morfin og fleiri lyf sem í slikum kössum eru. Skemmdirnar á skipinu eru umtals- verðar og ljót aðkoman í brúnni eftir umrót þjófs eða þjófa. - A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.