Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980. ---- -- -------r --— 7-- Klofinn persónuleiki og rottudýrkandi — f tveim einþáttungum eftir Þorvarð Helgason Í kvöld kl. 21.20 verða fluttir í út- varpi tveir einþáttungar eftir Þorvarð Helgason. Nefnist sá l'yrri Þrímenn- ingur. Höfundur leikstýrir sjálfur og með hlutverkin þrjú fer Karl Guð- mundsson. Þrímenningur segir frá skrifstofu- manni á fertugsaldri. Hann er í raun- inni klofinn i þrjá persónuleika. í fyrsta lagi er maðurinn sjálfur eins og hann kemur fyrir. í öðru lagi er maður- inn það sem hann vill vera, þurr og ró- legur áhorfandi sem gjarnan hlustar á Ijúfa tónlist. í þriðja lagi er maðurinn athafna- maður sem þráir að komast áfram og njóta lifsins í krafti frama síns. Þessi þrjú öfl toga manninn og teygja á milli sin, segja honum hvað hann eigi að gera og hvað ekki. Síðari einþáttungurinn nefnist Rottupabbi. Klemenz Jónsson leik- stýrir honum og með hlutverkin fara Rúrik Haraldsson og Jón Júlíusson. Rottupabbi er fyrrverandi sjómaður. Nafnið hefur hann hlotið vegna sérlegr- ar lagni sinnar í umgengni við rottur. Rottupabbi, sem er farinn að reskjast, hefur rotturnar í kjallaranum hjá sér og staupar þær jafnvel stöku sinnum. Ungur maður kemur í heimsókn til Rottupabba og það kemur i Ijós að þeir eiga ýmislegt sameiginlegt. Höfundurinn, Þorvarður Helgason er fæddur árið 1930 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi 1952. Síðar stundaði hann háskólanám í Flórens, Vínarborg og París. Þorvarður tók próf i leikstjórn, leik- listarfræðum og frönskum bókmennt- um i Vínarborg 1959. Dr. phil varð hann í leiklistarfræðum 1970. Eftir það varð hann menntaskólakennari i Reykjavík. Þorvarður var leikstjóri á vegum Bandalags isl. leikfélaga og siðar hjá Grímu. Var hann jafnframt einn af stofnendum þess leikfélags. Þorvarður hefur auk þess starfað sem gagnrýn- andi bæði hjá Morgunblaðinu og Visi. - F.I.A Rúrik Haraldsson. Karl Guflmundsson fer mefl þrjú hlul- verk sem klofinn persónuleiki í einþátl- ungnum Þrimennmgi. Jón Júlíusson. Útvarp D Fimmtudagur 24. janúar 12-00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfrcgnir. Tilkynningar. TónleikasyTpa. Léttklasslsk tónlist, dans- og dægurlög og lög leikin á ýmis hljóöfæri. 14.45 Til umhugsunar. Karl Helgason og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson fjalla um áfengismál. 15.00 Popp. Páll Pálsson kynnir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friöleifsson sér um tímann. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Hreinninn fót- frái” eftir Per Westerlnnd. Margrét Guö- mundsdóttir les (5). 17 00 Siddegistónleikar. Julian Bream, Robert Spencer og Monteverdi hljómsveitin leika Konsert i G-dúr fyrir tvær lútur og strcngi eftir Antonio Vivaldi. / Hljómsveitin Phil harmonía Hungarica leikur Sinfóníu nr. 50 i C-dúr eftir Josef Haydn; Antal Dorati stj. / Isaac Stcm og Flladelfiu-hljómsveitin leika FiÖlukonsert nr. 22 I a-rnoll eftir Battista Gio- vanni Viotti; Eugene Ormandy stj. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir.Tilkynningar. 19.35 Daglegt máL Árni Böðvarsson flytur þátt- inn. 19.40 tslenzkir einsöngvarar og kórar syngia. 20.10 Úr sonnettum Shakespeares. Hjörtur Pálsson les úr þýðingu Daníels Á. Daníels- sonar læknis. 20.25 Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar tslands 1 Háskólabiól. Stjórnandi: Urs Scbneider frá Sviss. Einieikarí: Ursuia Ingólfsson Fassbínd. Fyrri hluta efnisskrár útvarpaö beint: a. „Moldá”, kafli úr „Föðurlandi rnínu”, tón- verki eftir Bedrich Smetana. b. Planókonsert nr. 26 ID-dúr (K537) eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 21.20 Leikrit: Tveir einþáttungar eftir Þorvarö Helgason (frumflutningur). 1. „Þrímenn- ingur”. Leikstjóri: Höfundurinn. Karl Gu& mundsson fer meö hlutverkið, sem greinist í þrennt. 2. „Rottupabbi”. Lcikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og ieikendur: Rottupabbi..............Rúrik Haraldsson Ungur maður um þritugt......Jón Júlíusson 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun dagsins. 22.35 Reykjavikurpistill. Eggert Jónsson borgar- hagfraíðingur talar um breytingar i borginni. 23.00 Strengjakvartett nr. 15 i a-moll op. 132 eftir Beethoven. Búdapest kvartettinn leikur. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 25. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir.Tónlcikar. 710 LeikfimL 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.). Ðag- skrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Kristján Guö laugsson heldur áfram lcstri þýðingar sinnar „Veröldin er full af vinum” eftir Ingrid SjÖ- strand (5). 9.20 l.eikfimL 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 „tg man þaó enn”. Skeggi Ásbjamarson sér um þáttinn. fflEgffffgffiSl Föstudagur 25. janúar 20.00 Fréttir og veóur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir ný dægurlög. 21.10 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson. 22.10 Þráhyggja. Ný, frönsk sjónvarpskvik- mynd. Aðalhlutverk Francoise Brion og Jacqucs Francois. Lögfræðingur nokkur hefur fengið sig fullsaddan af ráðríki eiginkonu sinnar og hann einsetur sér að koma henni fyrir kattarnef. Þýðandi Ragna Ragnars 23.50 Dagskrárlok. BARNALEG OVISSA Sakamálaþátturinn Út i óvissuna var það sem ég, og líklega fleiri, beið eftir með mestri eftirvæntingu af sjónvarpsefni gærkvöldsins. Eftir þáttinn fannst mér þó sem ég hefði getað sparað mér nokkuð af henni. Þátturinn var mjög einfaldur að allri gerð, jafnvel barnalegur. Sum samtalanna, eins og t.d. samtal Elínar og Stewarts í Ásbyrgi, voru einnig barnaleg. En það sem land- anum hefur eflaust þótt gaman að að sjá var landslag á íslandi og „okkar” fólk. Ragnheiður Stéindórsdóttir skip- aði viðamesta hlutverk íslendinga og gerði það með stakri prýði. Á köflum var hún mun betri en mótleikari hennar frá Bretaveldi þó stundum þætti manni eins og jafnvel henni ofbyði barnaskapurinn i hlutverkinu. Aðrir Íslendingar sáust rétt i svip svo of snemmt er að dæma um frammi- stöðu þeirra. Af öðru efni rikisfjölmiðlanna má nefna að fréttir vöktu mesta athygli mína. Þar kom fram að sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum höfðu sjálfir talað í Hæstarétti. Útvarpið lofaði að segja frá þvi í hádegisfréttum i dag. Mjög skjót og góð þjónusta. Sjónvarpið sagði hins vegar rétt frá þvi að talað hefði verið en ekki um hvað. Vaka kynnti áhugaverða kvik- myndahátið en illa vantaði te\ta á móðurmálinu við þau brot úr myndum sem sýnd voru. -DS. 'Sl. BÆJARINS Friðríksson ■ og InzótturjfwLÆ. | %j HjörieifsSðír^faft kynning á þvíathyglis- verðasta sem kvikmyndahús ________ borgarinnarsýna Ljótur leikur (Foul Play) Sýningarstaður: Háskótabíó Leikstjóri og höfundur handríts: Colin Higgins Tónlist: Charles Fox Aðalhlutverk: Goidie Hawn, Chevy Chase og Burgess Meredith. Háskólabíó er með eina af skárri jólamyndunum i ár, Foul Play. I eikstjóri myndarinnar, C'olin Higgins, var einmilt á ferðinni i Há- skólabiói i lyrra með aðra ntynd i svipuðum stil, Silvcr Strcak, gamanntynd þar sem gert var grín að hinuni svokölluðu slórslysa- myndum. Ljölur leikur segir l'rá ungri og fallegri slúlku scm l'yrir tilviljun lendir inni i miðjum áætlunum glæpallokks scm ætlar sér að ráða af dögunt mjög háltsettan mann innan kirkjunnar. Það væri óráð að fara út í að rekja þann frumskóg sern er að finna i söguþræði ntyndarinnar enda myndi það spilla gamninu að ntiklu eyti. Higgins gerir mikið að þvi að gatiga i smiðju „hasarmynd- anna” cn tckst alltaf að hafa þar cndaskipti á öllu þannig að húm- orinn verður alltaf ofan á. í ánauð hjá indíánum (A Man called Horse) Regnboginn (A salurt: I ánauð hjá indlánum (A Man callad Horaa). Laikstjórí: Elliot Silvarstein. Endursýnd. Regnboginn endursýnir nú í A sal sínum „ekta” indíánamynd sem nefnist í ánauð hjá indiánum (A Man called Horse). Þessi mynd segir frá enskum heimshornaflakkara sem af einhverjum ástæðum þarf að vera aðalsmaður i þokkabót. Þessi Englend- ingaur, sem leikinn er af Richard Harris, lendir í klónum á indián- um þar sem hann endar að sjálfsögðu sem höfðingi. Myndin hyggist að miklu leyti upp á trúarathöfnum indíána sem eru nnz magnaðar og jafnvel óhugnanlegar. Myndin segir frá því hvernig afstaða Englendingsins til þeirra, og lífs indíánanna almennt, breytist og hann samlagast þeim. Þrátt fyrir að betur hefði mátt gera í umfjöll- un á lifsháttum indíánanna er hér á ferð ágæt mynd sem bregður Ijósi á hluti sem oftast eru mistúlkaðir eða látnir vera. Skyttan (Skytten) Sýningarstaður: Regnboginn Leikstjóri: Tom HedegArd Handrít Anders Bodelsen og Franz Emst Aðalhlutverk: Peter Steen, Jens Okking og Pia Maria Wohlert. Regnboginn sýnir nú sent eina af jólantyndum sinum, danskgn „þriller", Skyttuna. Myndin fjallar unt hluti sem nú eru mjög'i dciglunni i Danmörku, þ.e. hvort leyfaeigi byggingu kjarnorkuvera .þarflandi. Peter Sleen leikur blaðantann nokkurn, Niels Wintlier, sem lælur þessi mál ntjög til sin taka. I sjónvarpsumræðum sem hann tekur þátt i slær hann þvi frant að stundum gcti það verið nauðsynlegt að fórna lífi til að bjarga lífum. Þannig svarar hann spurningu um það hve langt hann mundíganga til að stöðva smiði kjarnorkuvers. Anuars staðar í Kaupmannahöfn hcyrir maður nokktir þessi orð lians og liann lætur ekki standa við orðin lónt -heldur Itefst handa. Þegar á myndina liður verður þetta frekar sptirning um það hvc lengi megi réttlæta ofbeldi og er það felll inn í „þrillerinn” með ntiklum ágætum. Ofurmenni á tímakaupi Loikstjóri: Clauda Zidi, Frönsk 1978. Sýningarstaður: Tónabió. Hér er a ferðinni þokkaleg frönsk gamanmynd. Myndin segir frá glæfrastaðgengli sem hefur frekar stopula vinnu. En dag einn fær hann stórt hlutverk sem staðgengill þekkts leikara, sem þjáist af narcissisma eða ást á sjálfum sér. Þá blandast inn í söguþráðinn flókin ástamál en allt fer þó vel að lokum. Jean-Paul Belmondo fer á kostum og Raquel Welch vinnur líklega sinn stærsta leiksigur. • Ánægjuleg afþreying og að lokum ber að þakka kvikmyndahúsinu fyrir að sýna myrulina mcð upprunalegu tali því ekkert er jafn hvimleitt og,, dubbaðar” kvikmyndir. Lofthræðsla Sýningarstaöur: Nýja bió Leikstjóri: Mel Brooks, gerfl í USA 1977 í l.ofthræðslu vellir Brooks scr upp úr gömlum Hilchcocks myndum. Fyrir þá sem þekkja kvikntyndir Hilchc(x:ks cr þcssi mynd rnjög fyndin. Brooks notar mörg þekktustu atriðin úr myndnm Hitchcocks og nær að Iroða þcim inn i sögnþráð sinn.. En myndin scgir frá geðlækni seitt tckur við slöðu yfirmauns á dular- fullu gcðveikrahæli. Brooks leikur sjálfur aðalhlulverkið. Myndin er cins og áður segir mjög fyndin og l.d. nuin bctri en sú þögla sem sýnd var i l'yrra á jólunum. Eftda notar Brooks áhorfendapróf sem felast í því að niyndinni er brcytt el tir þvi Itvorl þcir áhorfendur scm myndin cr prófuð á hlæja eða ekki. Bestu braudararnir eru samt ckki Hilchcócksalriði Iteldur þegar gcrt er grin að kvikmyndinni sjállri samanber lokaatriðið og þcgar tökuvcliii brýlur glugga. Þau alriði cru óborganleg. Lesendur eru hvattir til að senda kvik- myndadálki DB líríu, hafi þeir áhuga á ein* hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik- myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvik-_ myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.