Dagblaðið - 24.01.1980, Page 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980.
15
Iþróttir
Iþróttir
Bþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Spánn sigraði Holland
Spánverjar búa sig nú sem bezt undir
heimsmeistarakeppnina í knattsp.vrnu,
sem verður háð á Spáni 1982. í gær
léku þeir við Hollendinga í Vigo á
Spáni og sigruðu með eina markinu
sem skorað var í leiknum. I.eikurinn
verður þó minnisstæðastur fyrir það,
að flóðljósin urðu óvirk vegna raf-
magnsbilunar. í klukkustund biðu
áhorfendur og leikmenn eftir þvi að
leikurinn hæfist á ný.
Atvikið átti sér stað á 18. minútu —
og lengi vel var talið að við svo búið
yrði að standa. En það tókst að gera
við bilunina og franski dómarinn
flautaði til leiks á ný. Völlurinn var
erfiður vegna vatnselgs og áhorfendur
aðeins 15.000. Hollenzku leikmennirnir
virtust hafa meiri áhuga á þvi að sleppa
við meiðsli en á úr,slitum leiksins — en
flestir sterkustu leikmenn Hoilands
léku.
Spánn hafði yfirburði í f.h. án þess
að skora. Hinir smávöxnu leikmenn
liðsins aðlöguðu sig bctur aðstæðum en
hinir stóru Hollendingar. Það var ekki
fyrr en á 83. mín. að sigurmarkið var
skorað. Spánski framherjinn, Dani,
Hanni Wenzel, Lichtenstein, sigraði í
svigi heimsbikarsins i gær i Júgóslaviu
og jók enn forskot sitt í stigakeppninni
— hefur nú 42 stigum meir en Anna-
María Moser. Perrine Pclen, Frakk-
landi, varð önnur i gær, Anna-María
komst frír að marki Hollands —mark-
vörðurinn frægi, Piel Schrijvers, braut
á honum og vítaspyrna var dæmd.
Dani tók sjálfur spyrnuna og skoraði.
í Brussel sigraði Frakkland Belgiu í
gær 3—2 í UEFA-keppni unglinga-
landsliða — og Frakkar stefna nú i
úrslitakeppnina.
þriðja. Þetla var annar sigur Wenzel í
svigi heimsbikarsins i röð.
Hún hefur nú hlotið 282 stig. Anna-
María er næst með 240 stig og í þriðja
sæti er María-Theresa Nadig, Sviss,
með 170 stig.
Wenzel jók forustuna
Sigurður Ingvarsson sést hérna afhenda fyrirliða Keflavíkurverktaka, Einari Björnssyni, verðlaunabikarinn. Aörir á mynd-
inni eru, frá vinstri, Jón Jóhannsson, Grétar Magnússon og Freyr Sverrisson, DB-mynd emm.
Gamlar kempur sigruðu
Innanhússmót i knattspyrnu er orðin
algeng fjáröflunarleið margra félaga til
að afla tekna tii starfseminnar. Kitl
slíkt mól var haldið í Njarðvíkunum,
sl. tvær helgar, á vegum Víðis í Garði.
24 lið frá hinum ýmsu stofnunum á
Suðurnesjum og Reykjavikursvæðinu
tóku þátt i mótinu. Sigurvegarar urðu
Keflavíkurverktakar, sem sigruðu Tré-
borg, Garði í úrslitaleik, 6—4. Hlutu
þeir að launum fagran bikar, en auk
þess voru veittir gull og silfurpeningar
fyrir fyrsta og annað sætið.
í liði sigurvegaranna voru gamlar
kempur eins og Jón Jóhannsson og
Grétar Magnússon, sem sögðust ekki
hafa átt von á því að vinna gullverð-
laun á elliárunum, — saml var
engin ellimörk að sjá á Ieik þeirra.
-emm.
Fæðing stráksins breytti engu
— Irena Rodnina og Alexander Zaitsev enn sigurvegarar í listhlaupi á skautum
Frægasta skautapar heims, sovézku
hjónin Irena Rodnina og Alexander
Zaitsev, sigruðu með miklum yfir-
burðum á Evrópumeistaramótinu í list-
hlaupi á skautum í Gautaborg í gær-
kvöld. Þau hafa ekki tekið þátt í
keppni frá 1978 — frúin ól myndar-
strák fyrir 12 mánuðum en í skauta-
höllinni i Gautaborg kom vel í Ijós, að
það hafði ekki haft nein áhrif á hina
þrítugu Irenu. Aðrar stúlkur í keppn-
inni féllu í skuggann fyrir þessari giæsi-
legu konu, sem unnið hefur fleiri
meistaratitla en nokkur annar skauta-
maður. Það með tveimur eiginmönn-
um.
Rodnina og Zaitsev voru i sérflokki
hlutu 147,42 stig en eitthvað var rætt
um að dómarar hefðu verið þeim hlið-
hollir. í öðru sæti urðu Maria Cherka-
sova og Sergei Shakrai, Sovétrikjun-
um, Evrópumeistarar í fyrra, með
143,02 stig. í þriðja sæti enn eitt sovézkt
par — Marina Pestova og Stanislav
Leonovich með 139,24 stig. 1 fjórum
næstu sætum voru þýzk pör — þrjú frá
Austur-Þýzkalandi og eitt frá Vestur-
Þýzkalandi, sem varð í sjötta sæti.
í keppni i listdansi voru Evrópu-
meistararnir Natalia Linichuk og
Gennandi Karponosov, Sovétríkjun-
um, með örugga forustu eftir tvær
keppnisgreinar. Þau eru einnig heims-
meistarar.
I listhlaupi karla, sem lýkur í dag,
var keppni mjög hörð milli þriggja
efstu manna. Vladimir Kovalev, Sovét-
ríkjunum, var beztur með 83,24 stig.
Þá kom Evrópumeistarinn Jan Hoff-
mann, Austur-Þýzkalandi, með 82,96
stig og þriðji var Robin Cousins, Bret-
landi, með 82,00 stig. Langt var í
fjórða keppandann. Igor Bobrib,
Sovétríkjunum, var með 77,88 stig.
Þjálfari Bretans Cousins —- Banda-
rikjamaðurinn Fassi, sem er af ilölsk-
um ættum — var æfur út i sinn mann
cflir keppnina i gær. Skammaðisl mjög
og kallaði Cousins hugleysingja.
Cousins reyndi ekki að taka erfitt ,,þrí-
stökk” eins og þeir höfðu komið sér
saman um en lét sér tvöfalt nægja.
Heppnað þrístökk hefði getað fært
honum forustu í stigakeppninni.
Drott vann
Valsmenn leika við sænska liðið
Drotl í Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik í Halmstad á sunnudag.
I 14. umferðinni i Allsvenskan lapaði
Drotl mjög óvænt á heimavelli fyrir
Kristianstad, liðinu sem Stefán Hali-
dórsson leikur með. Úrslil 28—30.
Þrátt fyrir tapið er Drolt efst með 21
slig. Heim cr í öðru sæti með 20 stig —
síðan koma Vikingarna og Ystad með
19 stig og Lugi með 18.
4.tbl. 42. árg. 24. jan. 1980
Verð kr. 1200
Skíðaráð ísafjarðar:
Til umhugsunar fyrir
Skíðasamband íslands
Sá háttur hefur verið hafður á
undanfarin ár, að íþróttablaðið til-
nefnir „íþróttamenn ársins” í hinum
ýmsu iþróttagreinum. Valið hefur farið
þannig fram, að sérsambönd hverrar
íþróttagreinar hefur verið beðið að lil-
nefna „íþróttamann ársins” i sinni
prein. Þannig hefur Skíðasamband
Islands tilnefnt skíðamann ársins í
þetta val. Skiðaráði ísafjarðar hefur
fundist val S.K.Í. stjórnarinnar vera
með undarlegum hætti, nú tvö s.l. ár.
Þegar S.K.Í. valdi „skíðamann
ársins 1978”, urðu margir undrandi,
og meira að segja íþróttafréttaritarar
deildu á valið og kváðu síðan upp sinn
dóm og var hann á allt annan _veg.
Skíðaráð ísafjarðar deildi harl á stjórn
S.K.Í. á s.l. skíðaþingi, fyrir það
hvernig staðið var að þessu vali, en
þeir hafa lítið lært af þeirri ádeilu. Þess
vegna er þessi grein rituð, i þeirri von,
að hún víkki sjóndeilarhring þessara
manna. Þannig er málum háttað að i
stjórn S.K.Í. eru 9 menn. 5 þessara
manna búa i Reykjavík, en hinir 4 búa
á Akureyri, Siglufirði, Húsavik og Ísa-
firði. Stjórnarmennirnir sem búa i
Reykjavik fara með daglega stjórn, cn
ætlast er til að haft sé samráð við þá
sljórnarmenn, sem búa úti á landi, í
meirihátlar málum.
Þegar „skíðamaður ársins 1978”
var valinn, voru 4 stjórnarmenn mættir
á fund, en einn sat hjá. Ekki var hafl
neitt samband við þá stjórnarmenn sem
búa úti á landi. Það sama skeði nú
þegar „skiðamaður ársins 1979” var
valinn. Þá voru 4 menn á fundi, en
ekkert samráð haft við þá stjórnar-
menn sem búa úti á landi.
Þar sem skiðaíþróttin er stunduð
með miklum krafti úti á landsbyggð-
inni og þaðan hafa komið langflestir
landsliðsmenn.hlýlurþað að vera krafa
að Reykjavikurarmur S.K.Í. sé ekki
einráður um allar gerðir sambandsins.
Sæmundur Óskarsson, formaður
S.K.Í., sagði í Dagblaðinu nú fyrir
stuttu, að skiðaráðin mættu vera
duglegri við að afia fjár fyrir S.K.Í.,
má það vel vera, þó að skiðaráðin sjálf
þurfi að standa straum af gífurlegum
kostnaði við að þjálfa það skíðafólk
upp sem er í þeirra héraði, en þaðan
kemur það skiðafólk sem skipar lands-
liðin. En skyldi Reykjavíkurarmi
S.K.Í. nokkuð detta það i hug, að betri
samvinna yrði við skiðaráðin, ef hann
léti af einræði sínu. Þeir treystu ekki
alpagreinanefnd til þess að velja lands-
lið alpagreina, heldur völdu þeir sjálfir
á annan veg en alpagreinanefnd hafði
lagt til. Þeir treysta ekki stjórnarmönn-
um S.K.Í. sem búa úti á landi, til þess
að vera með í vali „skiðamanns
ársins”.
Reykjavikurarmur S.K.Í. ætti að
hugleiða þessi mál áður en hann
einangrast algjörlega.
ísafirði, 17.janúar, 1980.
Skiðaráð ísafjarðar.
ÞjáKari óskast
Ungmennafélagið Einherji Vopnafirði
auglýsir eftir knattspyrnuþjálfara fyrir
komandi sumar.
Upplýsingar næstu daga milli kl. 19 og.21 í síma
77578, Rvík.
Vetrarólympíuleikarnir — hinir 13. í röö-
ínni — fara fram í Lake Placid í næsta mánuði.
Nánar tiltekið dagana 12.—24. febrúar. ísland
verður þar meðal þátttökuþjóða. í tilefni af
þessari miklu íþróttahátíð hefur dr. Ingimar
Jónsson skrifað greinaflokk um vetrarleikana
frá upphafí fyrir Dagblaðið. Slík heildargrein
Dr. Ingimar Jónsson
hefur aldrei áður birzt í íslenzku blaði — eða
bókum — og er því að henni mikill fengur. Dr.
Ingimar nefnir greinaflokk sinn „Saga vetrar-
ólympfuleikanna” og fyrsta grein hans fer
hér á leftir. Greinaflokknum mun ljúka áður
en 13. leikarnir hefjast í Lake Placid í New
York fylki i Bandaríkjunum.
1. grein
SAGAVETRAR-
ÓLYMPÍULQKA
F'yrstu ólympiuleikar nútímans voru
haldnir í Aþenu árið 1896. Tveimur.árum
áður höfðu fulltrúar á alþjóðlegu þingi i
Paris, sem Pierre de Coubertin kallaði
saman, samþykkt að efna til ólympíulcika
að nýju og i anda leikanna fornu í Olympiu
i Grikklandi. Á þessum sama fundi var
settur saman listi yfir íþróttagrcinar sem
keppa ætti i á ólympíuleikunum eða æski-
legar þóttu sem keppnisgrcinar á ólympíu-
leikum framtiðarinnar. Á þennan lista
komst aðcins ein íþróttágrein sem telst til
velrariþrótta. Það var listhlaup á skautum.
Sú íþróttagrein hafði á þessum árum náð
mikium vinsældum sem sjá má af þvi að
l'yrsta heimsmeistarakeppnin i henni fór
fram árið 1896.
London1908
Listskautahlaupið var tekið á dagskrá 4.
ólympíuleikanna í London árið 1908.
Keppt var i myndarlegri skautahöll að við-
stöddum mörgum áhorfendum. Sigurveg-
ari i karlaflokki og um leið fyrsti ólympiu-
sigurvegarinn í vetrariþróttagrcin varð Svi-
inn Ulrich Salehow, sem talinn hefur verið
cinn mesti listskautahlaupari allra tima.
Raunar voru sigurvegararnir i listskaula-
hlaupi karla tveir þvi keppt var sérstaklcga
i séræfingum. Þar sigraði Rússinn Nikolai
Panin. í kvennaflokki sigraði Madge Syers
frá Bretlandi og parakeppnina unnu Anna
Húbler og Heinrich Burger frá Þýzkalandi.
Antwerpen 1920
Tólf árum siðar, i Antwerpen árið 1920,
var lislskautahlaupið aftur á dagskrá
ólympíuleikanna ásamt annarri vetrar-
íþróttagrein: íshokki. í karlaflokki bar Sví-
inn Gillis Grafström sigur úr býtum og i
kvennaflokki Magda Julin, cinnig frá Sví-
þjóð. Finnska parið l.usowika og Walter
Jakobsson vann parakeppnina.
Kanadamenn unnu ishokkikeppnina
með miklum yfirburðum. í úrslitaleiknum
sigruðu þeir Svía með 12 mörkum gegn
einu. Sigurlið Kanada var skipað leik-
mönnum úr félagi sem kallaðist „Fálk-
arnir”. Flestir þeirra voru af íslenzkum
uppruna. Liðstjóri þeirra var Guðmundur
Hofdal Sigurjónsson, kunnur glimumaður.
Hann var m.a. i hópi islenzkra glínut-
manna sem sýndi glimu á ólympíuleikun-
um 1908 i London.
Barátta um
vetrarólympíuleika
Keppnin í listskautahlaupinu og íshokki
á leikunum í Antwerpen jók áhuga manna
á þvi að koma á sérstökum ólympiuleikum
Anna Hiibler og Heinrich Burger 1908.
Dr. Ingimar Jónsson. DB-mynd Hörður.
þar sem eingöngu væri keppt i vetrar-
iþróttagreinum. Þvi máli hafði reyndar
verið hreyft löngu áður, t.d. á ólympiuráð-
stefnu Alþjóðaólympiunefndarinnar árið
1914. En hugmyndin mætti mótspyrnu
fulltrúa nokkurra landa. Og svo undarlegt
sem það virðist voru það aðallega iþrótta-
frömuðir frá Norðurlöndunum, sem lögð-
ust gegn því að slikum leikum yrði komið
á. Skýringin á því er sú að þeir óttuðust að
norræn skiðamót eins og t.d. Hofmen-
kollenkeppnin, sem þegar voru orðin hel'ð,
myndu falla i skugga ólympiuleika og líða
undir lok. Þessi ótti þeirra reyndist þó al-
veg ástæðulaus eins og raun ber vitni um.
Á árinu 1922 náðist loks samkomulag um
að efna til alþjóðamóts í vetraríþróttum í
tilraunaskyni. Á fundi sínum í Prag 1922
gerði Alþjóðaólympiuenfndin svo sam-
þykkt þar um og boðaði til „Alþjóðlegrar
vctraríþróttaviku” i Chamonix i Frakk-
landi árið 1924. Það var svo ekki fyrr en
tveimur árum síðar að nefndin viður-
kenndi þessa vetraríþróttaviku sem fyrstu
vetrarólympiuleika sögunnar. Árið áður
hafði hún tekið þá ákvörðun að halda
framvegis vetrarólympiuleika á fjögurra
ára fresti og jafnan sama árið og sumar-
leikarnir fara fram.
Vetrarólympíuleikarnir
íChamonix 1924
Chamonix var og er þekktur velrar-
iþróttamaður. Bærinn stendur í þröngum
dal við rætur Mont Blanc-tindsins í Alpa-
fjöllum. Þar voru hinar beztu aðstæður til
keppni, góðar skiðabrekkur, 50 m skiða-
stökkbraut og stórt skautasvell. Leikarnir
hófust 24. janúar og stóðu lil 4. febrúar.
Keppendur voru tæplega 300 frá I6 þjóð-
Hetja leikanna:
Torleif Haug
Hetja leikanna i Chamonix var Torlcif
Haug, 29 ára gamall Norðmaður. Hann
byrjaði á því að sigra i 50 km göngu, þar
sem hann lagði 23. af stað en kom þriðji í
mark. Þremur dögum síðar gekk hann 24
keppendur uppi i 18 km göngunni og vann
léttilega. Þriðju gullverðlaunin vann hann
svo i norrænu tvikeppninni. I.oks tókst
honum að hreppa bronsverðlaun í skiða-
stökkinu. Þar varð hann að lúta i lægra
haldi fyrir landa sinum Tullin-Thams. Eftir
sjálfa skíðastökkskeppnina vann Thams
annað sögulegt afrek. Hann fékk að reyna
stökk með lengsta aðrennsli og stökk þá
58,5 m en svo langt hafði engum stökkvara
í Evrópu tekizt að stökkva. Fregnir höfðu
hins vegar borizt al'þvi að Bandarikjamenn
hefðu stokkið yfir 60 m i stökkbrautinni i
Steamboat Springs en þeim tiðindum trúðu
menn mátulega i Evrópu.
Clas Thunberg
hlaut fimm verðlaun
í skautahlaupinu varð Clas Thunberg frá
Finnlandi langsigursælastur. Hann hlaut
hvorki meira né minna en þrenn gullverð-
laun, ein silfurverðlaun og ein bronsverð-
laun. Hann vann 1500 m og 5000 m en varð
annar i 10000 m og þriðji í 500 m. Loks
hlaut hann gullverðlaun í fjórþraut en i
henni var keppt i þetta eina sinn á ólympíu-
Ieikunum.
Síðust en vinsælust
í listskautahlaupi karla sigraði Gillis
Grafström i annað sinn á ólympiuleikum.
Tveimur árum áður hafði hann unnið
heimsmeistaratitilinn i fyrsta sinn. í
kvennaflokki sigraði Herma Planck-Szabo
frá Austurriki en i keppninni vakti 11 ára
stúlka mesta athygli. Hún varð að visu að
sætta sig við siðasta sætið en i staðinn
ávann hún sér hylli áhorfenda með æfing-
um sinum. Siðar átti þessi stúlka eftir að
koma mjög við sögu vetrarólympíuleik-
anna þvi þetta var engin önnur en Sonja
Henie frá Noregi. Árið eftir varð hún
norskur meistari í fyrsta sinn.
Kanadamenn höfðu
yfirburði í íshokkí
Kanadamenn unnu öðru sinni gullverð-
laun í ishokki á ólympiuleikum og höfðu
sem fyrr mikla yfirburði yfir mótherja
sína. I fyrsta leiknum unnu þeir Tékka
30:0, i öðrum leiknum Svia 22:0, þá Breta
19:2 og loks Bandarikjamenn 6:1. Þeir
skoruðu 19,2 mörk að meðaltali i fjórum
leikjum cn fengu ásig 3.
í stigakeppninni hlutu Norðmenn lang-
flest slig. Næstir þeim komu Finnar og
þriðju urðu Bandaríkjamenn.
Clas Thunberg, Finnlandi.