Dagblaðið - 24.01.1980, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980.
DAGBLAÐSINS & VIKUNNAR 1979
Sverrir Ólafsson myndhöggvari hannar verdlaunagripina í ár
Atkvœðaseðlar í Vinsælda-
valinu streyma inn þessa dagana.
Samkvæmt þátttökunni er áhugi
á popptónlist á íslandi sízt minni
en I fyrra og hitteðfyrra þrátt
fyrir alls kyns óáran í „bransan-
um " og uppgang diskóteka.
Á fimmtudaginn var birtist
nokkurs konar tossalisti eða
minnisblað fyrir þá, sem enn
eiga eftir að greiða atkvæði. Þar
voru talin upp öll þau hundruð
nafna sem atkvæði höfðu hlotið
þá. Við lauslega skoðun á seðl-
unum, sem borizt hafa, virðist
atkvæðagreiðslan ætla að verða
mjög jöfn að þessu sinni. Og þó
svo að línur væru skýrar þá
getur atkvæðagreiðsla kvið-
dómsins gjörbreytt öllu. Sem
kunnugt er gilda niðurstöður
kviðdómsins helming á móti
seðlum lesenda.
Uppskeruhátið Vinsœlda-
valsins, Stjörnumessan, er nú
undirbúin af krafti. 29. janúar
rennur út skilafrestur á út-
boðum I hljóð, Ijós og skreyt-
ingar á messunni. Sverri Ólafs-
syni myndhöggvara hefur verið
falið að hanna verðlaunagripi
sigurvegaranna. Þeir verða að
öllum líkindum nokkuð frá-
brugðnir gripunum, sem
afhentir voru i fyrra og hitteð-
fyrra.
Þá er ekki annað eftir en að
minna kjósendur á að greiða at-
kvœði í Vinsældavalinu sem
fyrst. Skilafrestur seðlanna
rennur út um mánaðamótin og
hefst talning þá strax. Úrslitin
verða síðan kynnt á Hótel Sögu
14. febrúar og I Dagblaðinu
daginn eftir.
Seðlana á að senda til
Dagblaðið
„Vinsældaval"
Síðumúla 12,
105 Reykjavík.
Stjómendur v'insœlasta útvarpsþáttar ársins 1978, Guðmundur Árni Stefánsson og Hjátmar Árnason ásamt yfirmanni
slnum, Gunnvöru Braga Sigurðardóttur. I ár er ekki kosið um vinsœiustu útvarps- og sjónvarpsþœttina.
DB-myndir: Árni Páll.
Á Stjörnumessunni I fyrra sýndi ungur Bandartkjamaður, Ricky Villard, diskódans.
Hann kom hingað til lands á vegum veitingahússins Óðals og skemmti þar við góðar
undirtektir. Hér er hann úsamt Ragnhildi Gísladöttur söngkonu.
Vinsœldaval DBogVikunnar
InnXenáur Tónlistarmaður ársins 1. markadur Söngvari ársins 1. Vinsœldavaí Dagblaðsins og Vikunnar 1979 Nafn: Aldur: Heimili:
2. 2.
3. 3.
H1 jómsveit ársins 1. Söngkona ársins 1.
2. 2.
3. 3.
Hlfómplata ársins 1. Lag ársins 1. m mmww m mm Hlfómsveit ársins 1. Söngvari ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.
Lagahöfundur ársins 1. Textahöfundur ársins 1. Söngkona ársins 1. Hlfómplata ársins 1.
2. 2. 2. 2.
3. 3. 3. 3.