Dagblaðið - 28.04.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — MÁNIJDAGUR 28. APRÍL 1980. — 96. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
KREFJAST AFSAGNAR
STJÓRNAR LAUNASJÓÐS
- fyrír ad úthluta hæstu starfsmannalaunum eftir fíokkspólitísku sjónatmiði
—sjábaksíðu
Aðalf undur Flugleiða
ídag:
Kyrrtáyfir-
borðinu
— engarmeiri háttar
breytingartillögur
liggjafyrir
. Aðalfundur Flugleiða 1980 verður
haldinn í dag kl. 13.30 á Hótel Loft-
leiðum og verður hann með hefð-
bundnu sniði. Afgreidd verða venjuleg
aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og
kosning 4 manna í 9 manna stjórn.
Þessir fjórir eiga að ganga úr, en eftir
þvi sem næst verður komizt verða
sömu menn og setið hafa í stjórn
endurkosnir.
Til þess að mál verði tekin fyrir á
aðalfundi, án þess að undanþága komi
til, þarf að leggja fram tillögu með 7
daga fyrirvara. Engar tillögur í stefnu-
mótandi málum hafa verið lagðar
fram, eftir því sem næst verður komizt.
Geta má þess að skv. nýju hlutafjár-
Iögunum verður við kosningar i stjórn
beitl atkvæðagreiðslu með svokölluð-
um margföldunaráhrifum atkvæða.
Þau eru m.a. fólgin í því að þar sem nú
á að kjósa fjóra menn í stjórn þá getur
hver hluthafi kosið einn mann og fær
hann þá 4 atkvæði fyrir hvern hlut.
Kjósi maður aftur á móti 4 menn, þ.e.
þann fjölda sem kjósa á, þá fær hver
maður 1 atkvæði. Með öðrum orðum
má segja að handhafar 25% hlutafjár
geti með nýrri aðferð tryggt I mann af
4 sem k jósa ber.
Á næsta aðalfundi, þ.e. 1981, eiga 5
nienn að ganga úr aðalstjórn. Þá gætu
handhafar 20% hlutafjár tryggt I
mann í stjórn með því að nota marg-
feldisáhrif atkvæðaseðla.
Svo sem kunnugt er hafa Flugleiðir
átt í miklum fjárhagsörðugleikum
undanfarið ár. Á yfirborðinu er þó sátt
að sjá, en engu að síður má búast við
gagnrýni undir liðnum önnur mál á
aðalfundinum.
í stjórn Flugleiða eru nú: Alfreð
Elíasson, Bergur Gíslason, Grétar B.
Kristjánsson, Halldór H. Jónsson,
KrLstínn Ólsen, Óttarr Möller, Sigurður
Helgason forstjóri, Sigurgeir Jónsson
og Örn Ó. Johnson formaður stjórnar.
Þeir sem eiga að ganga úr stjórn eru
Bergur, Grétar, Halldór og Kristinn, en
sem áður sagði er talið að þeir verði
allir endurkosnir.
-BS/JH
„Vonlausasti
valkosturinn af
fimmvartekinn”
— sjáíþróttiríopnu
Ungfrú Akureyri 1980, Svanfríður Birgisdóttir, 18 ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri.
DB-mynd Guðmundur Svansson.
Fegurdarsamkeppni Islands 1980:
„Égersvo ofsalega forvitinn
— sagði ungfrú Akureyri, Svanfríður Birgisdóttir, eftir krýninguna
Svanfríður Birgisdóttir, 18 ára
nemi við Menntaskólann á Akureyri,
var kosin ungfrú Akureyri í Sjálf-
stæðishúsinu á föstudagskvöldið.
Hefur hún þar með unnið sér sólar-
landaferð með Úrval og er orðin ein
af þeim tólf sem kcppa um titilinn
ungfrú ísland 1980, 23. maí nk.
Aðaláhugamál Svanfríðar er að
komast áskiði sem hún segist reyndar
gera á hverjum degi og að synda. „Á
sumrin hef ég unnið í Útvegsbank-
anuni en á veturna stefni ég í
stúdentspróf. Eftir það hef ég hugsað
mér að fara i hjúkrunarnám.
Mamma er hjúkrunarkona og ég hef
mikin áhuga fyrir þvi starfi. Á
sumrin reyni ég lika að spila golf.
Auk alls þessa hef ég áhuga á að
verða flugfreyja,” sagði Svanfríður í
samtali við DB eftir krýninguna.
„Ég er svo ofsalega forvitin og er
til i að prófa allt, þess vegna tók ég
þátt í þessari keppni. Mig langar til
að vita hvernig þetta allt gengur fyrir
sig. Ég var ekkert farin að hugsa út I
úrslitin, bara það að ég er búin að
vera að drepast i tánum í allt kvöld,”
sagði Svanfríður Birgisdóttir, ungfrú
Akureyri 1980. Svanfríður er 1.62 cm
á hæð, fædd og uppalin á Akureyri.
Ungfrú Akureyri 1979, Björg G'tsla-
dóttir, krýndi Svanfriði en Björg
mun taka þátt i Miss World keppn-
inni i Lundúnum á þessu ári.
-F.LA.
Haraldur Sigurðsson rannsóknarlög-
reglumaður dregur pokann með helgi-
gripum Fríkirkjunnar í Reykjavík upp
úröskutunnunni á Norðurstígnum.
DB-mynd: Ómar Valdimarsson.
Alltaf á vaktinni:
DBfann
helgigripina
— eftirábendingufrá
óþekktum manni
Munirnir, sem stolið var úr Frikirkj-
unni í Reykjavík aðfaranótt sumar-
dagsins fyrsta komu í leitirnar siðdegis
á laugardaginn. Þá hringdi ungur
maður, sem ekki sagði til nafns, á rit-
stjórn Dagblaðsins þar sem útlitsteikn-
ari blaðsins var við störf sín og sagði
munina falda i öskutunnu á Norðurstíg
i Reykjavik.
Fréttamaður DB fór á staðinn, fann í
einni tunnunni plastpoka með hinum
stolnu munum og tilkynnti siðan lög-
reglunni um fundinn. Rannsóknarlög-
reglumaður kom síðan á staðinn og tók
munina í sína vörzlu. Þeim var skilað
til f íkirkjuprests siðar um daginn og
voru óskemmdir.
Í plastpokanum voru tveir höklar,
tvö rykkilín, prestshempa, kertastjaki
og kross, sem fríkirkjuprestur ber við
hempuna.
Þetta er i þriðja skipti á tiltölulega
skömmum tíma að stolnir gripir
komast aftur til réttra eigenda með
milligöngu Dagblaðsins. Jafnan hefur
verið hringt á ritstjórn blaðsins, til-
kynnt um hvar hina stolnu gripi væri
að finna og síðan lagt á. DB hefur að
sjálfsögðu sinnt sinni borgaralegu
skvldu og látið yfirvöld vita eftir að
hafa gengið úr skugga um að rétt væri
með farið.
í vetur kom DB þannig til réttra eig-
enda skildi sem stolið var af byggingu
Menntaskólans i Reykjavík og fannst á
ieiði Jóns Sigurðssonar i gamla kirkju-
garðinum. Snemma í vor fundu DB-
menn bjöllu sem stolið var úr sölum Al-
þingis og nú síðast á laugardaginn
hafði blaðið milligöngu um að koma
helgigripum Frikirkjunnar aftur á sinn
stað.
-ÓV
A