Dagblaðið - 28.04.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
3
Hættunni boðið heim við Holtsgötu:
Leikvöllur smábam•
Spurning
Spilarðu í
happdrætti?
anna eruba götunm
Eg er léttust...
búin 800Wmótor
og 12 lítra rykpoka
(Made in USA)
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun, vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogslyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 litra, já 12 litra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig, svo létt er hún.
Ein mcð Ivö börn við Hollsgötu
skrifar:
Nú get ég ekki lengur orða bundizt.
Eftir að JC-menn vörpuðu fram
spurningunni: „Veiztu hvar barnið
þitt er?” hef ég ekki getað hugsað
um annað. Spurning JC-félaga átti
að beinast að unglingum og foreldr-
um, en ég vil spyrja i framhaldi af
henni: „Foreldrar. Vitið þið hvar
börnin ykkar, 2—5 ára, leika sér?”
Ástæðan til þess, að ég set fram
þessa spurningu er sú, að ég bý í
vesturbænum, nánar tiltekið við
Holtsgötuna þar sem gangstéttirnar
og gatan virðastéinu leiksvæðinéyrir
þennan aldurshóp.
Ekki í eitt einasta skipti hef ég séð
foreldra koma út og sækja barnið sitt
þegar það er að hoppa milli bílanna
og yfir götuna i einhverjum æsandi
leik. Hvað eruð þið foreldrar að
hugsa?
í gær leit ég út um gluggann hjá
mér, og þá sá ég Volkswagenbíl
standa skáhallt yfir götuna. Ungur
maður, blóðrauður af taugaspennu
rauk út úr bílnum til að athuga, hvort
hann hefði keyrt yfir eitt barnanna.
Þetta sama kom fyrir mig um dag-
inn. Samt „læddist” ég eftir götunni.
Skyndilega spratt upp u.þ.b. þriggja
ára drengur úti á götunni. Ég ætla
ekki að lýsa því, hvernig mér leið.
Þetta eru ekki einu skiptin sem ég
hef orðið vitni að slíku. Ég spyr:
Hverjum er það að kenna ef slys
verður, bílstjóranum eða foreldrun-,
um?
Ef ég ætti að dæma, þá mundi ég
dæma foreldrana seka.
Bréfritari varar við hættunni af leik barna á götum úti.
Hver saknar
reiðhjóls?
I.esandi hringdi og kvaðst hafa
undir höndum blátt reiðhjól, sem
einhver hefði skilið eftir í strætis-
vagnaskýlinu við Hjaltabakka I2.
Upplýsingar í síma 71008.
Raddir
lesenda
VERÐ KR.
HOOVER er heimilishjálp
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
/Pekking
/feynsla
1Þjonusta
LPTOFRA-
DISKURINN
Ryksugan sem svífur
Er lögregl-
an undan-
þegin
umferöar-
lögum?
Binni hringdi:
Mig langar til að beina þeirri
spurningu til lögreglusfjórans í
Reykjavik, hvort lögreglumönnum
leyfist að nota leiðir sem merktar eru:
Allur akstur bannaður nema S. V.R.
Til að gera langt mál stutt, þá sá
ég aðfaranótt sumardagsins fyrsta,
að lögreglubíll ók laust eftir kl. 4
niður götu við Breiðholtsskóla sem er
merkt á áðurnefndan hátt. Lögreglu-
billinn var ekki með blikkandi Ijós.
Til hvers er verið að kenna
umferðarreglur ef ekki er farið eftir
þeim?
Helga Bolladóttir, húsmóðir: Nei, ég
spila ekki i neinu happdrætti.
Lilja Hrönn Halldórsdóttir,
barnfóstra: Já, ég á einn miða i
Happdrætti Háskólans.
Guðrún Bryndis Hafsteinsdóttir, II
ára: Nei, ég hef aldrei spilað i
happdrætti.
Ásta Tómasdóttir, vinnur hjá I.ands-
virkjun: Nei, ég hef aldrei spilað í
happdrætti og mig langar ekki til þess.
Ólafur Skúlason, verzlunarstjóri: Já,
ég á einn Irompmiða í Happdrætti
Háskólans. Ég hef aldrei unnið neitt.
Þórarinn Hjaltason, verkfræðingur:
Nei, en ég spilaði einu sinni í
Happdrætti Háskólans.