Dagblaðið - 28.04.1980, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
13
Fí'lagarnir úr landflokki Björgunarsveltar Ingólfs samankomnir: Þeir eru spriklandi og prilandi upp um fjöll og fimindi svo
að segja um hverja helgi árið um kring til æfinga og þjálfunar. Sigið i Þrihnjúkagiginn var liður I xfingunum. Þeir eru reiðu-
búnir að bregðast við hvenær sem kallið kemur og einhverjir þurfa á hjálp að halda. Þá reynir á þjálfunina.
ég sá í kringum mig frá sjónarmiði
jarðfræðinnar. Auðviiað var sitthvað
forvitnilegt að skoða I berginu en því
'miður dálitið erfitt að einbeita hugan-
um að þvi. Og ofan á allt annað kom
svo það að sigbeltið var farið að
þjarma illilega að vissum likamshlut-
um. Mér þótti líklegt að ég yrði ekki til
stórræða við að fjölga mannkyninu úr
þessu þó svo ég slyppi lifandi. Þjóðin
myndi ekki a.m.k. úrkynjast af þeim
sökum.
Eilrfur flótti undan
hraunstraumi
I oksins, loksins fóru öðlingarnir að
draga. Eftir örskamma stund stóð ég
heill á húfi á gígbarminum og þóttist
góður að sleppa lifandi og óskaddaður
úr ferðinni. Fyrsta verkið var auðvitað
það að lýsa yfir að i bjargsig færi ég
helzt ekki aftur ótilneyddur! Og ég er
frekar áhugalítill um að skoða inn-
volsið i fleiri eldgigum í bili. Enda er
söguþráðurinn i uppáhaldsmarlröðinni
minni í svefni eitthvað á þá leið að ég
þykist sladdur í drungalegum göngum
og hellum niðri í jörðinni og vera á
.eilífum flótla undir vellandi hraun-
straumi. Þaðerdálitið vonlaus flótti.
Eitt er Ijóst og þess vert að það
komist á framfæri: Ef einhverjum
dcttur í hug að skoða hvernig Hekla
gamla lítur út að innan þá þýðir ekki að
bjóða mér. Eg myndi gera eins og
bóndinn í Selsundi forðum, leggjast
niður með ákafan höfuðverk og lara
hvergi.
- ARH
Kyndlar voru notaðir til að fá birtu niðri f gignum, Ólafur B. Thoroddsen heldur á tal-
stöðinni — sambandinu við umheiminn.
ógnarhraða að þó mér hefði flogið i
hug að fara með Faðirvorið, þá hefði
tíminn ekki enzt til að fara lengra en
aftur að daglegu brauði i þulunni. En
niður komst ég lifandi en afskaplega
máttfarinn i hnjáliðum.
Það var anzi merkileg upplifun að
standa á botni eldgígsins og sjá dags-
birtuna í gegnum gat langt fyrir ofan
hausinn á sér. Ég fann satt að segja til
svima þegar ég horfði á næsta mann
koma sigandi niður skömmu á eftir
mér. Við höfðum bæði logandi blys og
rafljós til að lýsa okkur i myrkrinu.
Reyndar þurfti miklu meira Ijósmagn
til að lýsa þennan gríðarstóra helli al-
mennilega upp. En við gátum skoðað
hann með sæmilegu móti og áttað
okkur á stærð hans og lögun. Hellirinn
er sporöskjulaga, u.þ.b. 60 metrar i
þvermál þar sem lengst er milli veggja.
Ekki gátum við fundið nein göng út frá
hellinum i fljótu bragði. Einhvem tima
hafði hrunið úr loftinu og „gólfið” var
því bæði stórgrýtt og erfitt yfirferðar.
Við bröltum yfir skriðurnar og reynd-
um að festa náttúrufyrirbærið á filmur.
Það reyndist erfitt bæði vegna þess að
móða setlisl á linsur á myndavélunum
og flasslampi leiddi út vegna raka.
Dráttarklárar
tóku sér hvfld
Upphaflega var gert ráð fyrir að allir
i hópnum, 10—12 manns, færu niður í
Einar, t.v., kominn niður. Oli lýsir
honum við að losa sig úr kaðlinum.
giginn. En það kom fljótlega i Ijós að
það útheimti mikið þrek og þol fyrir þá
sem uppi voru að láta menn síga og
draga þá upp aftur. Þegar Ólafur B.
Thoroddsen og Einar Pálsson voru
komnir niður, auk okkar Erlings, var
tekin ákvörðun um að fleiri færu ekki
niður í þetta sinn. Erlingur og Óli voru
fyrst dregnir upp. Það tók mörgum
sinnum lengri tíma að hala þá upp en
senda þá niður. „Dráttarklárarnir"
þurftu að taka sér hvíld á milli þess sem
þeir drógu af kappi. Á meðan hvildar-
slundirnar stóðu yfir voru þeir bræður
hangandi kyrrir í lausu lofti. Það er
ekki ákaflega uppörvandi að sjá þá
hanga þar og snúast hring eftir hring i
kaðlinum. Ég fékk i magann og það
bara töluvert. En við nánari umhugsun
kom í ljós að skárra var að láta hafa sig
i að hanga skíthræddur i kaðlinum og
fara upp en að tilkynna aðsetursskipti
og setjast að í gignum. Fyrstu 50
metrarnir á leiðinni upp voru bærilegir.
Síðan kom „pása” hjá dráttarklárun-
um í 3—4 minúlur og ég hringsnerist i
kaðlinum bjargarlaus. Svo var byrjað
að draga á nýjan leik og aftur var hlé í
fáeinar mínútur. Óskaplega voru þetta
langar mínútur. Enn var dregið og nú
fór ég alveg upp undir gígopið.
Sigbeltið þjarmaði
að vissum líkams-
hlutum
Þar staðnæmdist ég i meira en 100
metra hæð. Þeir sem höfðu líftaugina
mina í hendi sinni tóku sér langa, langa
hvild. Minúturnar sem ég hékk þarna
voru víst einar 7—8 og langar eftir þvi.
Ég fór að velta fyrir mér hvort mann-
fýlurnar væru búnar að binda lausa
endann við stein og farnir i kaffi. Eða
hvort þeir væru að ná sér i hnifkuta til
að rista niður dindilinn mig og losa
þjóðina við einn æsingamann úr blaða-
mannastétt. Ég sá mig i huganum
dúndra niður i grjóturðina fyrir neðan
og breytast með hraða Ijóssins í ham-
borgarahráefni. Svo datt mér i hug að
raula einhverja villta slagara uppháll
en hælti snarlega þegar ég sannfærðist
um að hljóðbylgjurnar sem söngurinn
framkallaði myndu setja af slað snjó-
hengjuna fyrir ofan hausinn á mér og
ef til vill stórkostlegt grjóthrun lika. Ég
gerði lika tilraunir til að kanna það sem
„Dráttarklárarnir” á bjargbrúninni höfðu lif þeirra sem fóru
niöur i hendi sinni.
»
Þeir hrugðust ekki, strákarnir!
Sfmi 39244
Rúðuísetningar & réttingar
Eigum fyrirliggjandi rúður í
flestar tegundir bifreiða.
H. ÓSKARSSON DUGGUVOGI21.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og hierrarl
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 29. apríl. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt jóga og megrandi
æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar i baki eða þjást af
vöðvabólgum.
Vigtun — mæling — sturtur — ljós — gufuböð — kaffi — nudd
Innritun og upplýsingar alla virka daga frá kl. 13—22 í síma 83295.
@ / JúdódeildÁrmanns
Ármúia 32.