Dagblaðið - 28.04.1980, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980.
19
Kjör landpósta bætt
eftir mikið óréttlæti
■— segirAlfreð
Björnsson
landpóstur
Alfreð Björnsson landpóstur tekur nú póstinn fyrir Kjalnesinga á pósthúsinu að Varmá, Mosfellssveit. Póthúsið að Klébergi
Kjalarnesi hefur verið lagt niður. Þeir Engilbert Sigurðsson og Jakob Tryggvason, fulltrúi, starfsmennPósts og síma, setluðu
að leggja land undir fót og mxla hina nýju leið, sem Alfreð þarf nú að fara. -DB-mynd: Bj. Bj.
Félag islenzkra landpósta FÍL er
nýstofnað og sagði Alfreð Björnsson
landpóstur að ekki hefði nú veitt af.
Áður fyrr hefðu þeir verið i Póst-
mannafélaginu og þar með verið
ríkisstarfsmenn en nú væru þeir sjálf-
stæðir atvinnurekendur nreð eigin
bil, sem þeir legðu til við starfið.
Alfreð byrjaði sem landpóstur
árið 1976 og hefur það raunar sem
aukastarf. „Jú ég á víst að heita
bóndi. Á nokkrar rolluskjátur og bý í
Útkoti á Kjalarnesi,” sagði hann
okkur, þegar við hittum hann í
hinum glæsilegum húsakynnum
Pósts og síma að Varmá. Hann
fræddi okkur á því að nú væri búið
að leggja niður pósthúsið á Klébergi á
Kjalarnesi og myndi hann nú taka
póstinn upp á Kjalarnes frá Varmá.
Þegar við ræddum við Alfreð voru
einmitt staddir á staðnum fulltrúar
Pósts og sima að mæla upp leiðina,
sem Alfreð átti að fara.
Liðin er sú tíð þegar land-
pósturinn kom ríðandi á fák sínum
og færði lýðnum langþráðar fréttir
hvaðanæva að. Voru menn þá oft
langeygir eftir að sjá til ferða hans, ef
eitthvað dróst að hann kæmf á
venjulegum tima. Ekki var það
óalgengt að hann kæmi i sveitir einu
sinni í viku.
Nú er öldin önnur. Alfreð land-
póstur fer um Kjalarnesið þrisvar i
viku en fannst að ekki væru launir
við verkið til þess að hrópa húrra
fyrir. Þegar landpóstar hefðu byrjað
ferðir sínar á jeppum hefðu þeir
jafnvel getað endurnýjað bil sinn á
tveggja ára fresti. Svo mikið hefðu
þeir borið úr býtum.
Fyrir árið 1978 fengu landpóstar í
bilastyrk álika og leigubílstjórar
höfðu. Þá var styrkurinn hækkaður
eftir því sem bensínið steig upp á við
og virkaði hækkunin aftur fyrir sig.
Bflastyrkur
ekki í samræmi
við bensín-
hækkanir
„Hins vegar síðan 1978 og allt
fram á þennan dag hefur styrkurinn
verið endurskoðaður tvisvar á ári og
þótt bensinið hækkaði stöðugt var
ekkert verið að hugsa um að bæta
okkur það upp eftir á.” sagði Alfreð.
„Síðustu hækkun fengum við 1.
marz. Nú er bílastyrkurinn kominn
langt niður fyrir styrk leigubilstjóra,
sem hafa um kr. 200 fyrir hvern
ekinn km. Við fáum 150 kr.”
Alfreð sagði að kaupið sem hann
hefði haft í marz væri kr. 160.900.
Þar af fastakaup kr. 72.900 en bíla-
styrkur kr. 98 þús. Alfreð ekur 50 km
á dag og stoppar u.þ.b. 45 sinnum á
leiðinni.
Nú hefur FÍL þegar fengið þvi
áorkað að samgönguráðherra hefur
lýst sig reiðubúinn til þess að
leiðrétta kjör landpósta, og sjá til
þess að greitt verði fyrir bíl skv.
taxta opinberra starfsmanna og 65%
ofan á það fyrir manninn. Bíla-
styrkur opinberra starfsmanna fyrir
hvern ekinn km á malarvegi var kr.
149 þ. I. marz. Ætti hann því með
hækkun að verða kr. 246.
Sagði Alfreð að þessu gælu félög
áorkað. Aldrei myndi hafa verið
farið eftir kvörtunum eins manns.
-EVI.
Jón G. Sólnes og Óli Jóhannsson við opnun Listhússins á Akureyri um síðustu
heigj. DB-mynd: G.Sv., Akureyri.
Sólnes sýnir
og selur list
Jón G. Sólnes fyrrverandi alþingis-
maður, er ekki aldeilis setztur i helgan
stein þótt hann hafi yfirgefið Alþingi.
Fyrir skömmu bárust fregnir um að
hann hefði sótt um leyfi til
uppboðshalds og sl. laugardag (19.
apríl), opnuðu þeir Jón og Óli G.
Jóhannsson, listmálari Listhúsið.
Helstu verkefni þess fyrirtækis eru að
halda sýningar og uppboð á
málverkum, höggmyndum, bókum og
alls konar safngripum.
Listhúsið hóf starfsemi sina með
sýningu á verkum feðginanna Steindórs
M. Gunnarssonar og Sigrúnar Stein-
dórsdóttur Eggen, en hún var áður i
FÍM salnum í Reykjavík. Samkvæmt
upplýsingum Óla G. Jóhannssonar
mun fyrsta uppboðið fara fram 8. maí
og hefur Listhúsinu þegar borizt
nokkurt magn listmuna. Listhúsið er
annars opið frá kl. 20—22 virka daga
og 16—22 um helgar.
-AI/GS, Akureyri.
SAFNA FÉ TIL LÍKN ARMÁLA
MEÐ SKEYTASENDINGUM
Lionsklúbbur Eskifjarðar hefur
komið mörgu góðu til leiðar á staðnum
en aðalverksvið klúbbsins er á sviði
líknarmála þó að ýmsu öðru sé hugað.
Eskfirðingum til gagns.
í fyrra seldu klúbbfélagar
reykskynjara, sem nú eru í velflestum
húsum í bænum. Nú selja þeir
fermingarskeyti og hafa margir rómað
þá þjónustu um leið og klúbburinn
aflar sér fjár til annarra verkefna.
Klúbbfélagar ganga í hús með nöfn
fermingarbarna og heimilisfólk krossar
við nöfn þeirra barna sem það vill
sendaskeytiá fermingardaginn. Lions-
menn sækja svo listana tveimur dögum
fyrir fermingu. Taka þeir 1000 kr.
fyrir hvert skeyti, en sjá svo um að
koma því til viðtakanda. Fólki hér
finnst þetta góð og ódýr þjónusta. Á
skeytaeyðublöðum er litmynd af
Eskifirði sem Geir Hólm tók. Svona
hafa þeir annazt um sendingu um 700
skeyta og bjóða fólki þetta við öll
tækifæri.
SLINGERLANDS TROMMUKJUÐAR
VORUM AÐ TAKA UPP NÝJA SENDINGU
AF TROMMUKJUÐUM.
Hljómbœr sf. — Hverfisgötu 108 — sími 24610.
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
MÁNAÐARIT
MÁLGAGN
MÓT ORSPORT
ÁHUGAMANNA
■¥■■¥■■¥■■¥■■¥■
KOMIÐÁ
BLAÐSÖLUSTAÐI
ÁSKRIFTAR OG AUGLÝSINGASÍMI34351
Kl. 3 — 6 VIRKA DAGA
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
1 IBL 1 ARG - Apnl/mai 1980- Vorö kr 1300 -
MÓTORSPORT
-Regína/A.St.