Dagblaðið - 13.06.1980, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
Vigdis er hreinskilin og drengileg i hvi-
vetna, segir bréfritari.
Vigdís
fremst
meðal
jafn-
ingja
4122—6196 skrifar:
Margt er það í stórri borg sem
gleður gests augað. Ekki er ég frá þvi
að hinn blygðunarlausi strípalingur
Tanaka hafi yljað mörgu meyjar-
hjarta með yfirvegaðri hæfni síns
kviknakta austurlenzka líkama. Því
langar mig til að beina þeirri spurn-
ingu til forráðamanna listahátiðar,
þeirr sem áhuga hafa á hinu gagn-
stæða kyni, hvort að við karlbiækur
gætum ekki notið fulltingis á þessu
sviði og fengið svo sem eina kvik-
nakta jafnvægisdís t.d. héðan úr
Reykjavík eða frá Norðurlöndum.
Hún þyrfti varla að koma með einka-
þotu aðég tel.
Með fyllstu virðingu fyrir naktri
list.
BJÖLLULAUSIR KETTIR
Tanaka þar sem hann kemur inn um
dyrnar á Laugardalshöllinni.
DB-mynd Þorri
Ingibjörg Vigfúsdóttir, skrifar:
Hinn 29. júní gengur þjóðin að
kjörborði og velur sér leiðtoga. Hinir
fjórir frambjóðendur sem um er að
velja eru allir hinir hæfustu rnenn. Þó
tel ég tvímælalaust, að þar sé Vigdís
Finnbogadóttir fremst meðal jafn-
ingja. Hún hefur unnið mikið starf
að menningarmálum þjóðarinnar og
hvergi brugðizt því trausti sem henni
hefur verið sýnt. Málflutningur
hennar er hreinskilinn og drengilegur
i hvívetna. Ég skora á frjálshuga
menn og konur að sýna samstöðu í
kjörklefanum 29. júní. Veljum Vig-
dísi.
Líney Jóhannesdóttir hringdi:
Ég er hrci nt eyðilögð yfir þvi að
Dagblaðið sé að birta greinar eins og
þessa sem fjallaði um bjöllulausa
ketti. Þetta er svo ranglátt gagnvart
börnum, þar eð þetta getur haft svo
slæm áhrif á þau. Dagblaðið verður
að gæta þess að birta alls ekki bréf
sem á nokkurn hátt geta talizt mann-
skemmandi.
Góðan, heiðarlegan
og réttsýnan forseta
— segirSiggiflug
er ekki alls kostar rétt, því í raun og
veru stöndum við saman sem einn
maður þegar nauðsyn krefur.
Á fundi með stuðningsmönnum
Alberts og Brynhildar og þeim sjálf-
um, sem haldinn var á Hótel Sögu
nýlega, kom þetta bezt í ijós. Hönd í
hönd stóðu upp fulltrúar a.m.k. 3—4
stjórnmálaflokka og héldu ræður um
ágæti þeirra hjóna. Meira að segja
einnig Guðmundur J. Guðmundsson,
sem kallar ekki allt ömmu sína. Lýsti
hann á fagran hátt þeirri reynslu sem
hann hefur af A.G. og í sama streng
tóku Alfreð Þorsteinsson fv. borgar-
fulltrúi framsóknar og Jóhanna Sig-
urðardóttir alþm. Alþýðuflokksins.
Allt stóð þetta fólk saman, sem
einn maður um framboð Alberts
Guðmundssonar, auk þess fjölmenna
skara sem sótti fundinn. Þetta sýnir
og sannar, að þegar mikið liggur við,
dragast menn ekki í dilka, heldur
kjósa samkvæmt sannfæringu sinni.
Það eru því konur og menn úr
'öllum flokkum sem bundizt hafa
samtökum um, að kjósa ALBERT
GUÐMUNDSSON sem næsta for-
seta íslands sakir hinna miklu mann-
kosta hans fyrst og fremst.
Enginn, að öðrum ólöstuðum,
hefur á síðari árum unnið eins mikið
að málum aldraðra t.d., og eins fyrir
þá, sem af einhverjum ástæðum eiga
í erfiðleikum, og geta ekki lifað lífi
sínu eins og flest fólk.
> Kjósum ALBERT GUÐMUNDS-
SON sem forseta.
VERKIN TALA — spyrjið þá sem
notið hafa.
Mér datt þetta (svona) í hug.
SIGGI flug. 7877-8083.
íslendingar kjósa nú forseta sinn i
4. sinn í þessum mánuði, en fyrsta
forsetann kaus þjóðin á Þingvöllum
árið 1944.
íslenzka þjóðin hefur litla reynslu í
þessum efnum og er að sumu leyti
nokkur vorkunn. Aðrar þjóðir sem
Albert Guðmundsson, I kosningabaráttu hans er barizt af heiðarleika og réttsýni i
öllum tilvikum, segir bréfritari.
DB-mynd Hörður.
Ekki var Jón Sigurðsson háskóla-
genginn maður og EKKI VAR
SKARPHÉÐINN STÚDENT, eins
og maðurinn sagði.
Lifsins skóli hefur löngu veriö álit-
inn allnotadrjúgt vegarnesti, og það
hefur frambjóöandinn Albert Guö-
mundsson i rikum mæli.
Þaö hefur oft verið sagt að íslend-
ingar séu sundurleitur hópur, en það
ar.
Mergurinn málsins er sá, að forset-
inn þarf fyrst og fremst að vera
góður, heiðarlegur og réttsýnn maður
sem þjóðin hefur reynt af mannkost-
um, og treystir til þess að fara með
þetta virðulega embætti.
í kosningabaráttu Alberts Guð-
mundssonar er barizt af heiðarleik
og réttsýni i öllum tilvikum. Það
hefur verið fundið að því að Alberl
Guðmundsson sé ekki nógu vel
menntaður maður. Þvílík lágkúra!
Við höfum um nokkurt árabil búið
við svo að segja eintómt embættis-
mannavald, og erum búin að fá nóg
af því um hríð a.m.k. Það væri því
viss léttir ef þessu embættismanna-
fargani yrði létt af þjóðinni um sinn.
kjósa þjóðhöfðingja, stórar þjóðir,
langtum stærri helduren Íslendingar,
hafa í gegnum langa reynslu lært að
kjósa forseta. í kosningum úti í heimi
er allt stjórnmálavafstur langtum
ópersónulegra en hér á landi, og vill
því ýmislegt verða dregið fram í dags-
Ijósið sem mætti kyrrt liggja.
Nú eru aðeins 19 dagar til stefnu,
og hefur kosningaslagurinn farið
harðnandi, sem að likum lætur, og-
ekki allt grandskoðað sem sagt er um
andstæðingana.
Ég hef reynt eftir mætti að fylgjast
með þessum kosningaundirbúningi,
og þvi miður finnst mér sumt ekki
allskostar fallegt nú orðið, en hér er
um að ræða kosningu til æðsta og
virðingarmesta embættis þjóðarinn-
Kviknakta dansara
af báðum kynjum