Dagblaðið - 13.06.1980, Side 4

Dagblaðið - 13.06.1980, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980. ERNA V. INGOLFSDÓTTIR V Hvað a að gera við blom- = in í sumarleyf inu? Indriði Hafliðason sagði að gott væri að sctja sand i kassa (án gata), bala eða annað og vökva síðan plönturnar mjög vel. Þ.e.a.s. þær plöntur sem þurfa mikið vatn eins og köllubróðirinn hér i miðið. DB-myndir Bj. Bj. mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmimm—mmmmimmmmmi—— Sumarleyfistíminn er byrjaður og þá koma upp alls konar vandamál. Þeir sem eru með lítil börn reyna oft að koma þeim fyrir, ef um lengri ferðalög er að ræða, en margir taka þau með í styttri ferðir. Ungbörnum ætti heldur ekkerl að vera meint af því að sofa i tjaldi, ef þau eru vel búin. En, hvað með blómin okkar? Ekki förum við að burðast með þau með okkur i ferðalag og kannski eru engir nálægir til þess að vökva þau. Við ræddum við Indriða Hafliðason garðyrkjumann í Valsgarði um þetta vandamál. Indriði sagði að með flest blóm væri nóg að setja þau á dimman stað í ibúðinni og lækka hitastigið á ofn- inum. Ef ferðalagið stæði ekki nema í viku til tiu daga væri ágætt að hitinn væru um 15 gráður en minni ef feröa- lagið færi upp i þrjár vikur. Síðan þyrfti að vökva vel áður en farið væri af stað. Baðkatið er tilvalinn staður fyrir blómin. Auðvitað má tappinn ekki vera í því aldrei er að vita hvort eitthvað bilar i vatnskerfinu. Flest blóm drepast hjá fólki frekar af of mikilli vökvun heldur en að þau séu of þurr. Það er svo annað mál þegar kemur að umönnun þeirra blóma, sem mikla vökvun þurfa eins og t.d. hortensía (hindúablóm) og gloxinía (islenzkt sumargull). Þá sagði Indriði að bezta ráðið væri að fá sér kassa, bala eða eitthvað sem hendi er næst, setja i botninn skeljasand eða hvaöa sand sem er, síðan er blómsturpottunum raðað í og vökvað alveg upp að börm' um blómsturpottanna. Gæta verður þess að sandurinn sé ekki saltur. Einnig er gotl ráð að hafa blómin þar sem sirennandi vatn leikur stöðugl um þau. Óskemmtilegur aðskotahlutur f mat: fíngurhlíf ípylsu Oft heyrir Neytendasíðan um all- ógeðfellda aðskotahluti í matvælum. En einn sá svæsnasti var hlutur sem Svavar Bjarnason kom með á rit- stjórnina á dögunum. Þarna á ferð- inni var fingurhlíf úr gúmmii til þess að hlífa sári á fingri, sem fylgt hafði með í vínarpylsu frá Sláturfélagi Suðurlands. Kona Svavars varð fyrir þvi í grandaleysi er hún borðaði af þessari umræddu pylsu að hún fékk fingur- hlifina upp í sig með einum bitanum. Hún var fljót að skyrpa öllu út úr sér og þau hjónin langar ekki í pylsur á næstunni. Þarna er auðvitað á ferðinni sóða- skapur sem ekki ælti að koma til greina nokkurs staðar nálægt mat- vælaiðnaði. Fingurhlífar af þessu tagi eru ekki settar upp nema sár sé á fingrinum og ekki er að vita hvers kyns ófögnuð fólk getur fengið i sig með neyzlu slíkra sárahlífa. Þar sem fingurhlífin var í heilu lagi uppgötv- aðist hún í pylsunni en hefði hún t.d. lent með hráefni pylsunnar í hakka-; vél værum við líklega mörg hver að neyta hennar í smáskömmtum í mestasakleysi. Geir M. Jónsson verksmiðjustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands sagði um þennan óskemmtilega aðskotahlut, að hann væri ekki kominn í pylsuna fyrir neitt annað en kæruleyti starfs- manns sem ynni við pylsugerðina. Það kæmi fyrir stöku sinnum að fólk fengi smáskeinur á fingur sér við vinnu sina og væri sárið hreint fengi það slíkar hlífar til þess að hindra snertingu sársins við matvælin. Mikið af ungu fólki vinnur við pylsu- gerðina og er sumt nokkuð kæru- laust. Þó reynt sé að fylgjast með pylsugerðinni á hverju stigi hennar er það erfitt nema hafa auga á hverjum fingri. Geir sagði að það ætti ekki að vera nein veruleg sýkingarhættaaf þessum aðskotahlut. Fólk með igerð i sárum væri aldrei látið vinna við matvæla- gerðina heldur sæju læknar um að það færi þegar i stað í frí. Eftir að fingurhlifin komst i pylsuna var hún soðin og reykt og sagði Geir það hægja mjög alla þróun sýkla sem í henni gætu leynzt því vitanlega stöðvaðist hún ekki alveg. -DS. Pylsan ásamt fingurhlifinni sem fylgdi í kaupbæti. DB-mynd Þorri. 4 Hann Stefán Daði Hafliðason sýnir okkur hér sverðburkna á 1100 kr., rússavfnvið á 900 kr. og svo dýrari plöntu eða hatvairós á 3.100 kr., allt ungplöntur sem eiga eftir að taka út vöxtinn. Fyrst við erum þá búin að taka blómin úr gluggunum og færa þau á góðan stað getum við farið áhyggju- laus af stað, að minnsta kosti þeirra vegna. -KVI. Vatnsmálningin hvarf með notkun grænsápu Hin gamla góða grænsápa reynist alltaf jafnvel. Það er ótrúlegt en satt, að með henni er hægt að ná úr vatns- málningarblettum. Blettirnir sem hér er um rætt voru vikugamlir og voru i gallabuxum úr 100% bómull. Galdurinn er í þvi fólginn að bux- urnar eiga að vera rakar og á hvern blett er makað góðu lagi af græn- sápu. Síðan eru buxurnar látnar liggja yfir nótt og svo settar i þvotta- vélina i suðu. Fyrirhafnarminnsta aðferðin við að ná úr vatnsmálningu er vitanlega sú að þvo hana strax úr með vatni. Ekki þola allar flíkur suðu. Galla- buxurnar i umræddu tilfelli urðu líka ofurlitið snjáðar, en ekkert að ráði. Merkingin sagði til um að þær ætli að þvo við 40 gráða hita. -EVI. Hjá Valsgarði eru nú til einar 30 teg- undir af ungplöntum. Algengt verð er 9—11 hundruð krónur. Með hverri plöntu er skrifað stórum stöfum hvernig hirða á um hana.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.