Dagblaðið - 13.06.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
29. JÚNÍ
PÉTURJ.
THORSTE/NS
SON
★ ★
Aðalskrifstofa stuðninRsfólks Péturs
J. Thorsteinssonar i Reykjavík er á
Vesturgötu 17, símar
28170-28518
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SlMAR: 28171 Of. 29873.
* Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
* Skráning sjálfboðaliða.
* Tekið á móti framlögum i kosningasjóð.
Nú fylkir fólkið sér um Pétur
Stuðningsfólk Péturs.
InterRent
ÆTLIÐ ÞÉR í FERÐALAG ERLENDIS?
VÉR PÖNTUM BÍLINN FYRIR YÐUR,
HVAR SEM ER í HEIMINUM!
Ath.: Dr. Max Flake frá InterRent Hamborg, verður í
afgreiðslu vorri að Skeifunni 9 Reykjavík, laugardag-
inn 14. júní frá kl. 13—17 og aðstoðar gjarnan þá sem
hyggja á ferðalag eriendis á komandi sumri.
BÍLALEIGA AKUREYRAR
Reykjavík: Skeifan 9, Tel. 91—86915.
Akureyri: Tryggvabraut 14, Tel. 21715.
Washington:
Varízt samdrætti
með vaxtalækkun
—forvextir komnir niður í 11% éftir aðra lækkun
mánaðarins
Seðlabanki Bandaríkjanna hefur
nú ákveðið að lækka útlánsvexti til
viðskiptabankanna i annað sinn á
einum mánuði þar sem allar líkur
benda til vaxandi krepputilhneigingar
í bandarísku efnahagslífi.
Tilkynnti Seðlabankinn í gær að
vextir til viðskiptabankanna myndu
lækka úr 12% í 11%. Þetta er meðal
annars, og ekki hvað sízt, gert til þess
að lyfta lánaþakinu, sem verið hefur í
vaxandi tilhneigingu til að lækka.
Þegar verðbólgustigið náði há-
marki frá stríðslokum fyrr á árinu
allt að 18% þá voru settar hömlur á
útlán. Sem fyrr segir er þessari nýju
vaxtalækkun ætlað að örva útlán á
ný.
Þessi ráðstöfun Seðlabankans er
samstiga samþykkt Bandarikjaþings
á fyrstu alríkisfjárhagsáætlun sem
gerð hefur verið og náð samþykki í
undanfarin tólf ár. Samkvæmt henni
verður tekjuafgangur á fjárhagsáætl-
un'rHrii aðeins um 200 milljónir doll-
ara en heildarfjárhæð hennar 613,6
billjónir dollara.
Þessi sáralitli tekjuafgangur þykir
hins vegar benda til þess, að í raun
verði talsverður halli á alríkisfjárlög-
unum vegna versnandi efnahags-
ástands og beinna kreppueinkenna,
eins og ástandið er nú.
Ríkisstjórn Carters lýsir þvi yfir,
að viðfangsefni númer eitt sé barátt-
an við verðbólguna. Hún hefur á
síðustu vikum verið mæld um 12%.
Hins vegar hefur atvinnuleysi vaxið í
næstum 8%. viðbrögðum að gripið verði til skatta-
Vaxandi atvinnuleysi er talin veru- lækkunar, þrátt fyrir að því sé enn
leg ógnun við Carter á kósningaári. stöðugt neitað af efnahagsmálasér-
Margir hagfræðingar spá nú þeim' fræðingum ríkisstjórnarinnar.
Jimmy Carter Bandarikjaforseti reynir nú að hleypa lifi i efnahagslifið vestra með
vaxtalækkunum. Enda vissara þar sem horfurnar þykja ekki sem beztar fyrir
hann f væntanlegum forsetakosningum I nóvember næstkomandi.
STAN GETZ
Laugatdalshöll
laugardaginn
14. júní nk. k/. 20.30
Ef við bara gætum myndum við allir
vilja leika eins og hann, sagði
einhverju sinni ágætur tenórsaxófón-
leikari um Stan Getz og eftir Benny
Goodman hefur verið haft að Stan
Getz væri bezti tenórsaxófónleikari
sem nokkru sinni hefði stigið fæti á
þessa jörð. Slík ummæli gefa nokkra
hugmynd um álit þeirra er gerst
þekkja til á listamanninum Stan
Getz, sem löngu er orðinn goðsögn í
lifanda lífi, einn örfárra, sem enn eru
á lífi þeirra, sem á uppgangstímum
jazzins vestanhafs gerðu garðinn
frægan.
Kvintett Stans skipa: Stan Getz,
Andy Laverne, Harvey Swarte, Jack
Loeb og Mike Hyman.
Miðasa/a
í Gim/i v. Lækjargötu
fráki. 14.00-19.30
sími 28088.