Dagblaðið - 13.06.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
9
Veljum
VIGDÍSl
skrífstofa VIGDISAR
FINNBOGADÓTTUR
Laugavegi 17 s:26114 -26590
utankjörstaðasími 26774
„Návígið er stundum býsna
óvægið og miskunnarlaust”
— sjö menn fluttu ræður á kosningafundi Guðlaugs Þorvaldssonar íStana
,,Ég hef orðið þess vör upp á sið-
kastið að margir segja sem svo, að
ekki sé að undra þótt Guðlaugur Þor-
valdsson eigi mikið fylgi í Grindavík,
þar sem hann er fæddur og uppalinn.
Við sem búum í smærri byggðar-
lögum vitum að þessi fullyrðing er í
meira lagi hæpin. Því eins og fjar-
lægðin gerir fjöllin blá og mennina
mikla, getur návígið stundum verið
býsna óvægið og miskunnarlaust.
Við slíkar aðstæður vilja gjarnan
fjúka af mönnum fallegustu fjaðrirn-
ar, jafnvel við minnsta goluþyt,”
sagði Hildur Júlíusdóttir m.a. á
kosningafundi Guðlaugs Þorvalds-
sonar í Stapa í Njarðvík á þriðjudags-
kvöldið. Stapi var þéttsetinn þetta
kvöld og sjö menn komu þar fram og
fluttu ræður.
„Reynslan hefur sannað okkur að
heppilegt er að hafa sérstakan for-
seta, sameiningartákn þjóðarinnar,
mann sem er yfir alla flokkadrætti
hafinn, mann sem hefur víðsýni og
dug til þess að stýra stjórnarmyndun-
um þegar á þarf að halda og ekki er
svo sjaldan,” sagði Jóhann Einvarðs-
son alþingismaður m.a. í stuðnings-
mannaræðu sinni á kosningafundin-
um. Þá kom fram Halla Tómasdóttir
og sagði m.a. ,,Ef við viljum forseta
sem á rætur að rekja til hins óbreytta
en kjarkmikla stofns þjóðarinnar,
sem hefur þá hæftleika til málamiðl-
unar sem embættið krefst og sem
hefur ótvíræðan skilning á vanda-
málum unga fólksins, þá kjósum við
Guðlaug Þorvaldsson.”
,,Ég sá Guðlaug Þorvaldsson fyrst
i Þórsmörk fyrir mörgum árum. Þá
lék hann við syni sína unga, leik sem
kallaðist höfrungahlaup. Menn bar
að og án ytri hvatningar gerðust þeir
þátttakendur. Brátt mátti sjá fjölda
fólks á ýmsum aldri stunda leikinn af
sannri gleði. Guðlaugur var þá
hvorki háskólarektor, ríkissáttasemj-
ari né forsetaframbjóðandi — heldur
góður sonur islenzkrar náttúru sem
kenndi börnum sínum holla og
Guörún Ólafsdóttir ávarpar fundarmenn i Stapa: Guðlaugur hefur góða innsýn l
lif og kjör launafólks. DB-mynd: Bj. Bj.
þroskavænlega umgengni við móður
jörð — og laðaði aðra að,” sagði Jón
Böðvarsson skólameistari i ræðu
sinni.
,,Af- þeim fjórum frambjóðendum
sem í framboði eru til þessa háa emb-
ættis var mér Guðlaugur hugstæðast-
ur, þar sem ég hef kynnzt honum i
starfi sem kennara minum i Verzlun-
arskóla Islands. Á þeim tima var ég
frekar erfiður nemandi, enda hugur-
inn bundinn við sjóinn og hafði ég lit-
inn áhuga á verzlunarfræðum. Ég
reikna með að Guðlaugi hafi ekki
þótt mikill leggur í þessum nemanda
sínum. Þessa útúrdúrs er aðeins getið
hér vegna þess að svo tókst Guðlaugi
að sía námsefnið inn í huga minn að
útkoman á prófi varð þolanleg,”
sagði Gunnar Jónsson sveitarstjóri
m.a. i sinni ræðu.
Guðrún Ólafsdóttir flutti næstu
ræðu og sagði m.a.: ,,Ég tel að
Guðlaugur hafi góða innsýn í það líf
og þau kjör sem hinn venjulegi launa-
maður lifir, hann skilur erfiðleika
einstaklingsins og þjóðarinnar.”
Páll Jónsson flutti síðustu ræðuna
og sagði hann m.a. „Okkur íslend-
ingum þykir mikið til þess koma að
hjá okkur er engin stéttaskipting og
þannig viljum við að það sé — hér
hafa múrarar og bændur komizt í
ráðherrastóla, vegna eigin dugnaðar.
Guðlaugur er úr þessum dugnaðar-
hópi, Grindvíkingur sem brauzt til
mennta og hefur síðan notað sér
menntunina og lifsins skóla á þann
veg, að líklegt má telja að hann verði
verðskuldaður okkur næsti forseti.”
Eftir klófaklapp og ræðu
Guðlaugs sjálfs, flutli frændi hans
Guðmundur Finnbogason honum
Ijóð. Söngvari ætlaði að koma fram,
en forfallaðist á siðustu stundu. Þess
í stað söng salurinn ásamt forseta-
frambjóðandanum ísland ögrum
skorið, i lok fundarins. -EI.A.
ON
RAFSUÐUVELAR
DANSKAR-
FRÁBÆRAR
Verð með söluskatti:
250 amp.
160 amp 3 fasa
160 amp. 1 fasa
Kr. 480.000.-
Kr. 409.000.-
Kr. 434.000.-
REYNSLA MANNA EINS OG ÁRNA GÍSLASONAR,
SEM HAFT HEFUR ÞESSAR VÉLAR FRÁ 1972 Á VERK-
STÆÐI SÍNU, SANNAR ÁGÆTI ÞESSARA VÉLA.
GERIÐ VEROSAMANBURÐ
laugardaga Ó. Engilbeitsson h/f
Auðbrekku 51 Kóp. — Sími 45640
X