Dagblaðið - 13.06.1980, Síða 9

Dagblaðið - 13.06.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980. 9 Veljum VIGDÍSl skrífstofa VIGDISAR FINNBOGADÓTTUR Laugavegi 17 s:26114 -26590 utankjörstaðasími 26774 „Návígið er stundum býsna óvægið og miskunnarlaust” — sjö menn fluttu ræður á kosningafundi Guðlaugs Þorvaldssonar íStana ,,Ég hef orðið þess vör upp á sið- kastið að margir segja sem svo, að ekki sé að undra þótt Guðlaugur Þor- valdsson eigi mikið fylgi í Grindavík, þar sem hann er fæddur og uppalinn. Við sem búum í smærri byggðar- lögum vitum að þessi fullyrðing er í meira lagi hæpin. Því eins og fjar- lægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, getur návígið stundum verið býsna óvægið og miskunnarlaust. Við slíkar aðstæður vilja gjarnan fjúka af mönnum fallegustu fjaðrirn- ar, jafnvel við minnsta goluþyt,” sagði Hildur Júlíusdóttir m.a. á kosningafundi Guðlaugs Þorvalds- sonar í Stapa í Njarðvík á þriðjudags- kvöldið. Stapi var þéttsetinn þetta kvöld og sjö menn komu þar fram og fluttu ræður. „Reynslan hefur sannað okkur að heppilegt er að hafa sérstakan for- seta, sameiningartákn þjóðarinnar, mann sem er yfir alla flokkadrætti hafinn, mann sem hefur víðsýni og dug til þess að stýra stjórnarmyndun- um þegar á þarf að halda og ekki er svo sjaldan,” sagði Jóhann Einvarðs- son alþingismaður m.a. í stuðnings- mannaræðu sinni á kosningafundin- um. Þá kom fram Halla Tómasdóttir og sagði m.a. ,,Ef við viljum forseta sem á rætur að rekja til hins óbreytta en kjarkmikla stofns þjóðarinnar, sem hefur þá hæftleika til málamiðl- unar sem embættið krefst og sem hefur ótvíræðan skilning á vanda- málum unga fólksins, þá kjósum við Guðlaug Þorvaldsson.” ,,Ég sá Guðlaug Þorvaldsson fyrst i Þórsmörk fyrir mörgum árum. Þá lék hann við syni sína unga, leik sem kallaðist höfrungahlaup. Menn bar að og án ytri hvatningar gerðust þeir þátttakendur. Brátt mátti sjá fjölda fólks á ýmsum aldri stunda leikinn af sannri gleði. Guðlaugur var þá hvorki háskólarektor, ríkissáttasemj- ari né forsetaframbjóðandi — heldur góður sonur islenzkrar náttúru sem kenndi börnum sínum holla og Guörún Ólafsdóttir ávarpar fundarmenn i Stapa: Guðlaugur hefur góða innsýn l lif og kjör launafólks. DB-mynd: Bj. Bj. þroskavænlega umgengni við móður jörð — og laðaði aðra að,” sagði Jón Böðvarsson skólameistari i ræðu sinni. ,,Af- þeim fjórum frambjóðendum sem í framboði eru til þessa háa emb- ættis var mér Guðlaugur hugstæðast- ur, þar sem ég hef kynnzt honum i starfi sem kennara minum i Verzlun- arskóla Islands. Á þeim tima var ég frekar erfiður nemandi, enda hugur- inn bundinn við sjóinn og hafði ég lit- inn áhuga á verzlunarfræðum. Ég reikna með að Guðlaugi hafi ekki þótt mikill leggur í þessum nemanda sínum. Þessa útúrdúrs er aðeins getið hér vegna þess að svo tókst Guðlaugi að sía námsefnið inn í huga minn að útkoman á prófi varð þolanleg,” sagði Gunnar Jónsson sveitarstjóri m.a. i sinni ræðu. Guðrún Ólafsdóttir flutti næstu ræðu og sagði m.a.: ,,Ég tel að Guðlaugur hafi góða innsýn í það líf og þau kjör sem hinn venjulegi launa- maður lifir, hann skilur erfiðleika einstaklingsins og þjóðarinnar.” Páll Jónsson flutti síðustu ræðuna og sagði hann m.a. „Okkur íslend- ingum þykir mikið til þess koma að hjá okkur er engin stéttaskipting og þannig viljum við að það sé — hér hafa múrarar og bændur komizt í ráðherrastóla, vegna eigin dugnaðar. Guðlaugur er úr þessum dugnaðar- hópi, Grindvíkingur sem brauzt til mennta og hefur síðan notað sér menntunina og lifsins skóla á þann veg, að líklegt má telja að hann verði verðskuldaður okkur næsti forseti.” Eftir klófaklapp og ræðu Guðlaugs sjálfs, flutli frændi hans Guðmundur Finnbogason honum Ijóð. Söngvari ætlaði að koma fram, en forfallaðist á siðustu stundu. Þess í stað söng salurinn ásamt forseta- frambjóðandanum ísland ögrum skorið, i lok fundarins. -EI.A. ON RAFSUÐUVELAR DANSKAR- FRÁBÆRAR Verð með söluskatti: 250 amp. 160 amp 3 fasa 160 amp. 1 fasa Kr. 480.000.- Kr. 409.000.- Kr. 434.000.- REYNSLA MANNA EINS OG ÁRNA GÍSLASONAR, SEM HAFT HEFUR ÞESSAR VÉLAR FRÁ 1972 Á VERK- STÆÐI SÍNU, SANNAR ÁGÆTI ÞESSARA VÉLA. GERIÐ VEROSAMANBURÐ laugardaga Ó. Engilbeitsson h/f Auðbrekku 51 Kóp. — Sími 45640 X

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.