Dagblaðið - 13.06.1980, Side 11

Dagblaðið - 13.06.1980, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980. Þó svo aö Sovétríkin eigi fleiri eldflaugar en Vesturveldin þá verða þeir að beina þeim bæði til vesturs og einnig að fyrri bandamönnum f Kfna. til að kaupa allt í hernaðarþágu nema hrein og klár vopn. Þarna verður um firnamikil við- skipti að raeða á milli Bandaríkjanna og Kína þó ekki sé um beina vopna- sölu að ræða. Hvað varðar þau mál getur Kína snúið sér til annarra ríkja innan Atlantshafsbandalagins. Frakkar hafa til dæmis nýlega lofað að selja Kínverjum eldflaugar til varnar gegn bæði skriðdrekum og herþotum. Hægt en örugglega er bandalagið gegn Sovétríkjunum að verða að veruleika. Áróðursmenn fyrir auknum her- búnaði Bandarikjanna og banda- manna þeirra á Vesturlöndum hafa sannfært almenning um að kjarn- orkuvopnastyrkur Sovétmanna sé orðinn mun meiri en vestrænna ríkja. Hins vegar má einnig líta á málið frá sjónarhóli Sovétmanna og þá er ástandið ekki eins glæsilegt fyrir þá og kannski mundi sýnast. — Vegna núverandi stöðu, þá verðum við að beina þriðjungi kjarn- orkuvopna okkar í átt til Kina, þriðj- ungi til Bandaríkjanna og síðan getum við beint þriðjungi þangað sem i hverl sinn þykir mest ástæða. Áður fyrr var öllum kjarnorkueld- flaugunum beint gegn vesturveldun- um en nú er sem sagt nauðsynlegt fyrir þá að kippa nokkrum þeirra úr því hlutverki og beina þeim að Kína. Fyrir þremur árum kom ég með þá kenningu að heimurinn væri að sameinast gegn Sovétríkjunum. Átti ég þá við að stórveldin önnur en Sovétríkin væru að sameinast'gegn Moskvuvaldinu. Líkti ég þessari þróun við atburði sem urðu árið 1907. Í báðum tilvikum er um að ræða stórveldi með miklar útþenslutil- hneigingar. Árið 1907 var það Þýzka keisaraveldið en í dag Sovétríkin. i báiðum tilvikum hófu þessi ríki mikla útþenslustarfsemi vegna mikils hern- aðarmáttar. Bæði áttu þessi ríki við að stríða innri spennu og erfiðleika auk þess sem sjá mátti fram á horfur á minnkandi áhrifum á alþjóðavett- vangi er fram liðu stundir. Framferði Þýzkalands varð til þess að öll önnur þáverandi stórveldi sam- einuðust gegn því árið 1907. Sjö árum síðar hóf Þýzkaland styrjöld í örvæntingarfullri tilraun sinni til að losna úr þeirri klemmu sem sífellt þrengdi meir og meir að ríkinu. Ekki er rétt að taka samkvæmni ýmissa atburða í sögunni sem sönnun fyrir þvi að sagan endurtaki sig áfram. Ciott er þó að skoða söguna og rneð því að læra af reynslunni. í sögulegum skilningi er heimurinn ekki á árinu 1914, þegar fyrri heims- styrjöldin hófst. Hins vegar gæ't'| heimurinn verið á sama stigi og naim var árið 1910, ef miðað er við reynsl- una af því hvernig þróunin varð þá i samskiptum Þýzkalands og annarra stórvelda. Kina ræður nú yfir eldflaugum, sem náð geta til allra helztu svæða innan landamæra Varsjárbandalagsrikj- anna er að andstæðingar þeirra virðast allir vera að sameinast gegn þeim. í apríl hvatti annar æðsti hers- höfðingi kínverska hersins Japani til að tvöfalda herútgjöld sín til að mæta sovézku ógnuninni. í siðasta mánuði var Hua sjálfur formaður kínverska kommúnista- flokksins staddur i Japan. Þá lét hann opinskátt i ljós ánægju sina yfir aukinni hernaðarsamvinnu Japans við Bandarikin. A samri stundu var Geng Biao varnarmálaráðherra Kína staddur í Washington. Þar var hann að ganga frá viðskiptasamningum ',im kaup á ýmsum hernaðartækjum. Samkvæmt honum munu Kínverjar kaupa færanlegar ratsjár, herþyrlur, og flutningaþotur. Hafa þeir heimild Pravda segir að stefna Kínverja útiloki allar aðgerðir til að koma sambúð þessarar stærstu þjóðar heims og Sovétríkjanna i eðlilegt horf. Stjórnin i Washington hefur nánast aflétt öllum hömlum á sölu hernaðar- gagna til Kina, ef frá eru skilin beinlinis vopn. Kjallarinn VilmundurGylfason hefur verið, útflutningsbæturnar, niðurgreiðslurnar, báknið og forrétt- indin hafa gert almenn lífskjör á Ís- landi stórum lakari en þau þyrftu að vera. Gagnrýni á þetta stjórnlausa kerfi, sem Alþýðuflokkurinn hefur haldið á lofti, hefur verið kölluð fjandskapur við bændur. Slíkt er auðvitað fjarstæða. Málið er auðvit- að það að nokkur þúsund framleið- endur eru svo tryggilega verndaðir, og siðan viðskiptahagsmunirnir þar um kring, að neytendur í þéttbýli búa við stórum lakari lífskjör en þeir ann- ars gerðu. Þarna takast á sjónarmið Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. íhald og kommar dingla einhvers slaðar mitt á miili. Framsóknar- mennskan hefur ráðið ferðinni. Kjördæmamál. Það er líka viður- kennt að að ójöfnuður i kjördæma- málum er orðinn að óþolandi rang- læti, sem skekkt hefur alla efnahags- stefnu hér á undanförnum árum, stuðlað að óhagkvæmri fjárfestingu, og í skjóli ranglátrar kjördæmaskip- unar er meðal annars hinni vitlausu landbúnaðarstefnu haldið fram. Framsóknarflokkurinn hefur áratug- um saman verið þversum í kjör- dæmamálum, og er enn, hefur þótzt vera að verja „jafnvægi i byggð landsins”. lafn kosningaréttur allra einstaklinga, óháð búsetu, hefur hins vegar verið stefna Alþýðuflokksins, og enda er það lykilaðferð til þess að tryggja jöfnuð þegnanna, i efnahags- legum skilningi, með lýðræðis- og þingræðislegum hætti. ihald og kommar dingla einhvers staðar mitt á milli. Framsóknarmennskan hefur ráðið ferðinni nú um hríð. Nýting sjávarafla. Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra Alþýðuflokksins, tók þar upp nýja stefnu áætlunarbúskapar, stöðvaði innflutning á nýjum skipum, og vildi beita markvissúm áætlunum, þar sem annars vegar væri miðað við það veiðimagn sem sérfræðingar teldu leyfilegt að ná úr sjó, og miða síðan stærð skipastólsins við það. Stein- grímur Hermannsson hefur þegar snúið ofan af þessari stefnu og rekur þá fyrirgreiðslu- og brjóstsvitsstefnu, sem ríkt hafði árin þar á undan. Hvert mannsbarn veit þó, að þvi fleiri skipum, sem beitt er á hinn tak- markaða sjávarafla, þvi meir dragast lifskjörin i landinu niður. Efnahagsmál — vaxtamál. Fram- sóknarflokkurinn hefur verið varð- hundur hins sjálfvirka efnahagskerf- is, þar sem hagsmunir eins eru tengd- ir hagsmunum annars, hvað bundið öðru i hinni sjálfvirku vísitöluskrúfu. Þó hafa þeir gjarnan verið fúsir til þess að klippa á einn, en aðeins einn, þátt þessarar sjálfvirkni: Nefnilega vísitölukerfi launa. Auðvitað er það út af fyrir sig rétt að vísitölukerfi launa er fyrir löngu orðið úrelt og farið að vinna gegn upphaflegum til- gangi sínum: Að stuðla að betri lífs- kjörum. Þetta er vegna þess að vísi- tölukerfið er aðeins eitt hjól i hinni sjálfvirku uppskrúfunarvél. En málið er samt flóknara. Og meðan bókstaf- lega allir, bændur, útvegsmenn, iðn- rekendur, fá sjálfvirkar hækkanir yfir línuna, hvenær sem einhver hækkun verður einhvers staðar, þá er auðvitað skiljanlegt að launþegar einir verði ekki til þess að afsala sér sinum hækkunum. Þó svo bændur séu eðli málsins samkvæmt framleiðendur, þá eru tekjur þeirra reiknaðar sem þeir væru launþegar. Miðað er við svokallaðar viðmiðunarstéttir. Þess vegna er lekjuþörf bænda reiknuð, hvað sem þeir eru margir og hvað sem þeir framleiða, og búvöruverð síðan ákveðið rneð hliðsjón af þeirri út- komu. Meðan innflutningur á land- búnaðarafurðum er bannaður, verður þessi skekkja alvarlegri og al- varlegri með hverju árinu sem líður. Það er auðvitað tómt mál að tala um að sjálfvirknin i efnahagskerfinu, þar með talin visitölubinding launa, verði afnumin, fyrr en höggvið hefur verið á landbúnaðarhnútinn. En Fram- sóknarflokkurinn mun reyna að halda vörð um þetta kerfi, lika vegna þess að það tengist miklum viðskipta- hagsmunum. Sama gildir un> vaxtamálin. í rikis- stjórn Ólafs Jóhannessonar tókust Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag á um svokallaða raunvaxtastefnu. Framsóknarflokkur gekk að lokum i lið með Alþýðufiokki og raunvaxta- stefna var lögbundin. Sannleikur er þó sá, að þeir hafa aldrei trúað á framkvæmd slíkrar stefnu, og enda töluðu fjölmargir þingmenn flokks- ins, sem fyrst og fremst eru talsmenn mjög þröngra hagsmuna, gegn henni (t.d. Páll Pétursson). Þeir trúa því í raun, að vextir eigi að vera hluti af fyrirgreiðslukerfinu, vextir til land- búnaðar eigi að vera langt undir raunvirði og vextir í Byggðasjóði eigi að vera lágir. Og enda hafa þeir nú heykzt á framkvæmd slíkrar stefnu. Þarna slendur Alþýðufiokkurinn andspænis Framsóknarflokki, heil- brigð skynsemi andsprenis fyrir- greiðslusukkinu. Að vísu hafa komniar yfirboðið Framsókn með vitlausri vaxtastefnu, en ihaldið dinglar einhvers staðar mitt á milli. Afstaða til forréttinda stórfyrir- tækja. Þingmenn Alþýðuflokksins hafa á undanförnum árum fiutt frumvarp til laga um aukið lýðræði innan SÍS. Framsóknarflokkurinn hefur verið þversunt í því ntáli. Þing- ntenn Alþýðuflokksins hafa fiutt til- lögu um að úttekt verði gerð á skyldu fyrirtæki, þó svo rekstrarformið sé annað — íslenzkum aðalverktökum. Framsóknarfiokkurinn greiddi at- kvæði gegn. Þessi tvö stórfyrirtæki njóta margháttaðra forréttinda í landinu og i kerfinu, svo ekki sé nteira sagt. Enginn hefur lagt til að þessi fyrirtæki verði sett á hliðina, þess er aðeins krafizt að þau njóti sömu skilyrða og önnur fyrirtæki. Framsóknarflokkurinn er í raun varðhundur forréttinda þessara fyrir- tækja. Einnig þar stendur Alþýðu- flokkurinn andspænis Framsóknar- flokki. Hugtökin hægri og vinstri villandi Samkvæmt forneskjulegri hug- myndafræði, til dæmis þeirri sem prófessor Ólafur Ragnar Grímsson er sagður kenna i Háskóla íslands, þá eru Framsóknarflokkur og Alþýðu- flokkur báðir nálægt miðju í íslenzk- um stjórnmálum. Þetta sýnir auðvit- að það eitt, hvað slík hugmynda- fræði getur orðið ruglingsleg. í þeint málum, sem mestu hafa þótt skipta í ^ „Framsóknarflokkurinn er í raun varö- hundur forréttínda Sambandsins og ts- lenzkra aðalverktaka...” íslenzktim stjórnmálum á þessunt áratug er þessu þveröfugt farið.: Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur ntynda andstæður, aðrir sljórnmálafiokkar eru þar á milli. Þelta er meðal annars vegna þess að menn deila ekki lengur um sjálft rekslrarformið. Nær allir viðurkenna að ríkisrekstur, einkarekslur og sam- vinnurekstur eiga rétt á sér, hlið við lilið. Þaðer nú tekizt á um annað. Alþýðufiokkurinn helur krafizl þess, að Iramleiðslan sé sniðin eflir þörfum neytenda, og markaðslög- málum sé nteðal annars beitl i því skyni. Góður hagur framleiðenda á að verða til vegna þess, að hann framleiðir þá vöru, sem neytandinn vill, á þvi verði, sem nevlandinn vill gefa fyrir vöruna. Jafnframl hefur .Mþýðuflokkurinn krafizl þess að koíiingaréttur sé jafn, og að hag- stjórn mótist af almennum, skynsam- legum rcílum, þar sem hlulur allra sé iafn, en ekki af sértækum reglum, þar sem landshlutum, stéttum og fyrirtækjum sé stórlega mismunað. F.n það er einmitt framsóknar- mennska af verstu gerð. Slik stefna hcfur ráðið ríkjum á íslandi á þessum áratug. Árangurinn blasir alls staðar við: Mismunun, forréttindi, siaukin kröfugerð á hendur ríkisvaldinu, óviðráðanleg verðbólga og nú síðast landflótti. Bolnlaus fyrirgreiðslu- stefna hlýtur að leiða lil vandræða. Það er ekki lilviljun að Framsókn- arflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn allan þennan áratug. Það er út af fyrir sig ckki tilviljun að Alþýðu- bandalagið fáist til að reka ríkið með þeim upp á þessi býti. Og allra sízt er það tilviljun að Sjálfstæðisflokkur- inn útvegar þeim þann þingstyrk sem upp á vantar. Krafia var helduraldrei tilviljun. Þetta kerfi byggir inn i g siórar og smáar Kröflur. Gegii þessu kerfi hefur Alþýðuflokkurinn gerl uppreisn. Þannig slendur Alþýðu- fiokkurinn andspænis Framsóknar- kerfinu. Vilmundur Gylfason.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.