Dagblaðið - 13.06.1980, Qupperneq 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1980.
17
(§
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Einn bezti spjót-
kastari heimsins
staddur hér á landi
Hér á landi er staddur um þessar mundir einn
bezti spjótkastari heimsins, Rcidar Lorentsen frá
Noregi. Hann hefur bezt kastað 87,32 m, sem mun
vera 17. bezti árangur á heimsafrekaskránni frá
upphafi.
Lorentsen mun dvelja hcr á landi um skeið og
mun taka þátt í 17. júni mótinu og e.t.v. einnig
Reykjavíkurleikunum. -GAJ.
Nú eraðná
lágmörkunum
— vilji menn vera með í hátíðar-
mótinu ífrjálsum íLaugardal
Hátióarmót í frjálsum íþróttum fcr fram á
iþróttahátið ÍSÍ dagana 28. og 29. júni. Eftirfarandi
lágmörk eru skilyrði fyrir þátltöku i mótinu:
Karlar:
100 m 11,4 sek., 200 m 23.8 sek., 400 m 53.0 sek.,
800 m 2:06.0 mín. 1500 m ekki lágm., 3000 m ekki
lág., 110 m grind 16.8 sek., hástökk 1.85 m.lang-
stökk 6.30 m, stangarstökk 3.70 m, kúluvarp 14.00
m, kringlukast 42.00 m, kringlukast 42.00 m, spjót-
kast 56.00 m.
Konur:
100 m, 12,9 sek., 200 m 26,8 sek., 400 m 61,0 sek.,
800 m ekki lágm., 100 m grind 17,4 sek., hástökk
1.50 m, langstökk 4,80 m, kúluvarp 9,50 m, kringlu-
kast 30.00 m, spjótkast 30.00 m.
Lágmörkum skulu keppendur hafa náð á sl. ári
eða í ár. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi
kr. 300 fyrir hverja grein skulu hafa borizt skrifstofu
FRÍ., íþróttamiðstöðinni í l.augardal, eða i póst-
hólf 1099, i síðasta lagi 19. júni nk. Tilkynningar
sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til
greina.
Hlaupið og stokkið
íallar áttir
Meistaramót yngstu aldursflokkanna í frjálsum
iþróttum fer fram á Laugardalsvelli dagana 27. —
29. júní sem liður í iþróttahátið ÍSÍ.
Keppt verður í þessum greinum:
Piltarf. '66—’67:
100 m, 800 m, 4x 100 m, langstökk, hástökk, kúlu-
varp, spjótkast.
Telpur f. '66—’67:
100 m, 800 m, 4x 100 m, langstökk, hástökk, kúlu-
varp, spjótkast.
Strákar f. '68 og síðar:
60 m, 800 m, 4x 100 m, langstökk, hástökk, kúlu-
varp, spjótkast.
Stelpur f. '68 og síðar:
60 m, 800 m, 4x 100 m, langstökk, hástökk, kúlu-
varp.
Hverju félagi er heimilt að senda allt að þrjá kepp-
endur í hverja grein. Þátttökutilkynningar ásamt
þátttökugjaldi, kr. 150 í einstaklingsgreinum og kr.
600 fyrir boðhlaupssveit, skulu hafa borizt skrif-
stofu FRÍ, íþróttamiðstöðinni i Laugardal, eða 1
pósthólf 1099, i siðasta lagi 18. júní. Tilkynningar
sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til
greina.
FRImeð
kosningagetraun
Frjálsíþróttasamband íslands hefur farið af stað
með kosningagetraun til styrktar starfsemi sinni.
Gelraunin snýst um það að geta sér til um úrslitin í
forsetakosningunum 29. júní nk., bæði hvað
varðar röð frambjóðenda og prósentutölu greiddra
atkvæða sem sigurvegarinn í kosningunum hlýtur.
Hver getraunaseðill kostar 1000 krónur og
vinningar nema 20% af heildarandvirði seldra miða
og falla á þá miða þar sem rétt er getið til um röð
frambjóðenda, og hve mörg prósent greiddra,
atkvæða, með einum aukastaf, sigurvegarinn hlýtur.
Berist engin rétt lausn falla vinningarnir á þá miða
þar sem röð er rétt og næst farið um prósentutölu
sigurvegarans. Vinningarnir geta flestir orðið 50.
Örn Kiðsson, formaður FRÍ, sagði á blaða-
mannafundi i gær, að fjárhagur Frjálsiþrótlasam-
bandsins væri slæmur og skuldahalinn a.m.k. 7—8
milljónir.
—GAJ.
,Ég skammast mín fyrir
að vera Englendingur’
—sagði Kevin Keegan um skrflslæti enskra áhorfenda
,,Eg skammast mín fyrir að vera
Englendingur,” sagði knattspyrnu-
maður Evrópu, Kevin Keegan, að
loknum leik Englendinga og Belga í
úrslitum Evrópukeppninnar i Tórinó t
gærkvöldi. Það var ekki leikur
Englendinganna sem Keegan
skammaðist sin fyrir, þvi leikurinn
þótti góður og honum lauk með jafn-
tefli 1—1. Enskir áhorfendur setlu
hins vegar mjög leiðinlegan svip á leik-
inn og varð dómarinn aö stöðva leikinn
um tfma vegna skrilsláta áhorfenda.
Lögreglan varð að beita táragasi til að
stilla til friðar á áhorfendapöllunum og
það leiddi siöar til þess að stöðva varð
leikinn þar sem táragasið hafði borizt
inn á völlinn og i augu leikmanna.
Ray Wilkins tók forystuna fyrir
England á 26. mínútu með mjög glæsi-
legu marki. Hann stöðvaði knöttinn á
brjóstinu eru Belgar hugðust hreinsa
íslandsmeistarar HK 1 öldungaflokki karla 1980: Fremri röð (talið frá vinstri):
Sigurður Steingrímsson, Sigvaldi H. Pétursson, Júllus Arnarson og Páll Ólafsson.
Aftari röð: Albert H. N. Valdimarsson, Tómas Tómasson, Stefán Tómasson, Anton
Bjarnason og Skjöldur Vatnar Björnsson.
íslandumeistarar HK I 1. flokki karla 1980: Fretnri röð (talið frá vinstri): Ingi E.
Erlingsson, Sigurður Steingrímsson, Július Arnarson, Albert H. N. Valdimarsson og
Páll Ólafsson, Aftari röð: Sigurður Gunnarsson, Stefán Tómasson, Anton Bjarnason,
Skjöldur Vatnar Björnsson Tómas Tómasson og Halldór Árnason. Á myndina vantar
Ómar Geirsson og Sigvalda H. Pétursson.
Íslandsmeistarar HKI 3. og 4. flokki kvenna 1980: Fremri röö (talið frá vinstri):
Berglind Jónsdóttir, Guðrún Lára Pálmadóttir, Valdis Steinarsdóttir, Ragnhildur
Þorsteinsdóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Aftari röð: Berglind H. Hrafnsdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir, Svava Dögg Gunnarsdóttir, Björg Erlingsdóttir, Kristin Lilja
Þorsteinsdóttir, Ingunn Mjöll Sigurðardóttir og Júlia Jóhannesdóttir. Á myndina
vantar: Arnheiði Skxringsdóttur, Berglindi Harðardóttur og Kristínu Gunnars-
dóttur.
frá marki, lyfti honum yfir tvo varnar-
menn og brauzt framhjá þeim og lyfti
hnettinum laglega yfir Jean-Marie
Pfaff í marki Belga, l—0.
Aðeins þremur mínútum siðar jöfn7
uðu Belgar. Þar var Ceulemans að
verki. Hann skoraði af stuttu færi upp
úr þvögu við enska markið. Áður hafði
Ray Clemence varið mjög glæsilega
þrumuskot frá Rene Vandereycken úr
aukaspyrnu af 25 metra færi.
Stöðva varð leikinn eftir 41 mínútu
og þegar hann var hafinn á ný varð
hann aldrei eins vel leikinn og í byrjun.
Á upphafskaflanum höfðu þeir Kevin
Keegan og hinn 35 ára gamli Belgi Wil-
fried van Moer sett mjög svip sinn á
leikinn meðgóðum töktum.
Bobby Charlton, einn af heimsmeist-
urum Englendinga frá I966, var miður
sín að loknum leiknum og sagði: ,,Ég
get ekki skilið fólk sem hagar sér
þannig.” Liðsstjóri Belganna, Guy
Th\s, var ánægður með úrslit en leiður
yfir þvi sem átti sér stað á áhorfenda-
pöllunum. „Dómarinn gerði rétt í að
stöðva leikinn,” sagði hann og bætti
við. ,,Ef Englendingar falla jafn oft í
rangstöðugildruna hjá Ítölum og gegn
okkur þá vinna þeir ekki.” Liðin voru
þannig skipuð. England: Clemence,
Neal, Tompson, Watson, Sansom,
Coppell, (varam. McDermott),
Wilkins, Keegan, Brooking, Johnson
(varam. Kennedy), Woodcosk. Belgía:
Pfaff, Gerets, Millecamps, Meeuws,
Renquin, Cools, Vandereycken, Van
Moer, (varam. Mommens), Van der
Elst, VanderBergh, Ceulemans.
Nafnabrengl
og fleira slíkt
Nafnabrengl og nafnaskortur er citt
af því sem oft skýtur upp kollinum hér
á iþróttasíðu af einni eða annarri
ástæðu. Um daginn sögðum við frá 6—
1 sigri Reynis á Árskógsströnd yfir Efl-
ingu. Þar höfðu orðið nokkur nafna-
brengl en talsmaður blaðsins á Akur-
eyri segir þau komin beint frá formanni
knattspyrnudeildar Reynis. Hverjum
sem um er að kenna þá birtum við hér
nöfnin aftur. Það var Björn Friðþjófs-
son en ekki Bjarni Freysson sem skor-
aði 2 marka Reynis. Þá skoraði Jens
Eyjólfsson sjötta markið en nafn hans
hafði eitthvað bæklazt í leiðinni.
Þá er rétt að taka það fram að Hörð-
ur Harðarson getur vart talizt á meðal
burðarása ÍK þar sem hann hefur að-
eins leikið einn leik. Um leið viljum við
birta fullt nafn eins af markaskorurum
ÍK um daginn. Við vissum jú að hann.
hét Hörður en föðurnafnið vantaði.
Það mun hins vegar Jóhannesson vera.
Reyndar er ekki við okkur að sakast
hér á iþróttasiðu því heimildarmaður
okkar hjá ÍK vissi ekki betur.
Ray Wilkins skoraði fyrir F.nglendinga
ígær.
Jafntefli It-
ala og Spán-
verja í slökum
leik ígær
Ítalir og Spánverjar skildu jafnir,
0—0, i leiðinlegum leik í úrslitum
F.vrópumeistarakeppni landsliða að
viðstöddum 55.000 áhorfendum í
Mílanó. Lítið var um hættuleg færi i
leiknum en mark var dæmt af Spán-
verjunum á 11. mínútu er Satrustegui,
bezti maður spánska liðsins, sendi
knöttinn í netið eflir fyrirgjöf
Alesanco.
Spánverjarnir átlu sízt minna í leikn-
um og kæfðu allar sagnir um að þeir
væru með veikasta liðið í 2. riðlinum.
Satrustegui var sterkasti maður liðsins
og hann réð stórum hluta miðjunnar og
vann öll návígi við ítölsku varnarmenn-
ina og eru þeir nú engir aumingjar.
ítalirnir fengu tvö góð færi og
einkum var það síðara hættulegt.
Franco Causio skaliaði þá firnafast að
marki Spánverjanna eftir fyrirgjöf
Bettega en Arconada, markvörður
Spánverjanna, varði meistaralega.
Úrslitin ollu miklum vonbrigðum á
Ítalíu og greinilega var að ítalska liðið
saknaði Paolo Rossi sárt, en hann er nú
í 3 ára leikbanni eftir að hafa verið
viðriðinn mútumálið mikla er upp
komst um fyrir skömmu.
I.iðin i gær voru þannig skipuð:
Ítalia: Zoff, Gentile, Cabrini (Benelti),
Oriale, Collovati, Scirea, Causio,
Tardelli, Graziani, Antognoni,
Bettega. Spánn: Arconada, Tendillo,
Gordillo, Migueli, Alesanco, Zamora,
Saura, Asensi, Satrustegui, Quini,
Dani (Juanito).
„Eg styrkist við þjóðsönginn”
—segir Janus Guðlaugsson, landsliðsmaður sem nú leikur sem atvinnumaður með Fortuna Köln
„Mér er það alltaf heiður að leika
með landsliðinu ef ég get komið því
við. Ég styrkist við þjóðsönginn,”
sagði Janus Guðlaugsson, landsliðs-
maðurinn góðkunni i samtali við DB i
gærkvöldi. Janus sem er atvinnumaður
í knattspymuiþróttinni leikur með vest-
ur-þýzka 2. deildarliðinu Fortuna
Köln. Hann er i hópi þeirra íþrólta-
manna sem hafa afrekað það að vera
valdir i landslið i tveimur iþróttagrein-
um. Janus hefur leikiö sjö landsleiki i
handknattleik og fimmtán landsleiki í
knattspyrnu, nú síðast gegn Wales.
Að lœra af
mistökunum
Janus var spurður, hvað farið hefði
úrskeiðis í leiknum gegn Wales, sem
tapaðist með engu marki gegn fjórum
eins og íþróttaunnendum er i fersku
minni. ,,Það sem fór úrskeiðis var fyrst
og fremst það, að menn sættu sig ekki
við mörkin,” segir Janus. „Menn voru
ekki tilbúnir að mæta þeirri pressu sem
fylgdi í kjölfar markanna sem Wales-
menn skoruðu. Við sköpuðum okkur
fleiri marktækifæri en þeir í fyrri hálf-
leik.
Menn verða að gera sér grein fyrir
mistökunum. Ef menn sætta sig við
mistökin á réttan hátt og læra af þeim
þá koma þau ekki fyrir aftur. Ef ekki
þá töpum við líka fyrir Finnum. Það
þarf að koma til hugarfarsbreyting, að
menn geri réttar kröfur til sín og leiks-
ins. Mér hefur fundizt að sumir leik-
menn séu óvissir um hvort þeir eigi
heima í landsliðinu. Þeir verða að
gleyma slíkum hugsunum. Ef þeir eru
valdir í liðið, þá eiga þeir heima þar, og
þeir eru valdir til að standa sig.”
Hugarfarið verður
að breytast
Aðspurður um, hvort þess væri að
vænta að íslenzka landsliðið næði betri
útkomu gagnvart öðrum knattspyrnu-
þjóðum í framtíðinni sagði Janus: ,,Ef
hugarfar leikmanna, áhorfenda og
íþróttafréttamanna er á þessu plani, þá
förum við ekki ofar.
Það verður að gera rétlar kröfur.
Þetta er bæði spurning um að gera rétt-
ar kröfur til leikmanna og að þeir
dæmi sjálfa sig rétt,” sagði Janus.
„Það er ekki nema gott um það að
segja ef menn bera rétt traust til hans,"
sagði hann aðspurður um islenzkan
landsliðsþjálfara. „Guðni Kjartansson
hefur það mikla reynslu, sérstaklega
sem spilari. Ég veit ekki, hvernig hann
sér leikinn frá þjálfunarlegu sjónar-
miði. Hann hefur þó komið nálægt
þjálfun áður. Hann lærir örugglega
heilmikið sjálfur og er þegar búinn að
viðurkenna ein mistök. Ég ber virðingu
fyrir því.”
Janus Guðlaugsson ásamt fimm ára gamalli dóttur sinni, Láru. „Maður verður að
sýna, að maður hafi eitthvað fram yfir aðra,” segir Janus um hinn harða heim atvinnu-
knattspyrnumannsins.
DB-mynd Bjarnleifur.
HK SIGURSÆLASTIBLAKINU
—f lokkar f élagsins sigruöu á 4 vígstöðvum í vetur
Fyrir ári vakti það verðskuldaða
athygli að blakdeild HK nældi sé i 4
íslandsmeistaratitla 1979. Þessi
velgengni deildarinnar var af mörgum
álitin slembilukka, þar sem deildinni
hafði aldrei áður auðnazt að vinna
íslandsmeistaratitil. En með sínum frá-
bæra árangri i ár hefur deildin hlotið
verðskuldaöan sess meðal aöila hlak-
íþróttarinnar hér á landi.
Árið 1976 ákvað stjórn blakdeildar
HK að leggja höfuðáherzlu á yngri
flokkana. Vegna skorts á æfingaað-
stöðu þýddi þessi ákvörðun í reynd að
HK varð að hætta þátttöku í meistara-
flokkum. Meistaraflokkar þurfa marga
æfingatíma og það er staðreynd að
yngri flokkarnir í flestum íþróttafélög-
um fá of fáa æfingatíma vegna þess að
meistaraflokkarnir eru látnir ganga
fyrir. Eftir að meistaraflokkur HK
lagðist niöur varð öldungaflokkur HK
til og síðar I. flokkur. Þessir flokkar
þeirra gömlu hafa ekki síður en börnin
staðið sig vel hjá blakdeild HK, þrátt
fyrir að þeir hafa ekki haft nema 2
fasta æfingatíma á viku af þeim 13 sem
deildin fékk í iþróttahúsum bæjarins
siðastliðinn vetur.
Velgengnin hjá blakdeild HK hófsl
árið 1978 meðþví aðdeildin hlaut tvenn
silfurverðlaun í íslandsmótum yngri
flokka, þ.e. i 3. og 4. flokki karla. Árið
1979 hlaut deildin hvorki meira né
minna en fjögur gull og eitt silfur i
fslandsmótum, þ.e. gull í 3. og 4.
flokki kvenna og 4. flokki og öldunga-
flokki karla, silfur í 2. flokki karla. Af
þessu er augljóst að yngri flokkarnir
hafa launað vel gott eldi hjá blakdeild
HK.
Það tókst vonum framar hjá blak-
deild HK að verja íslandsmeistaratitla
sína i ár. Einungis í 4. flokki karla
tapaðist titill. HK-piltarnir töpuðu
naumlega fyrir Þrótti í úrslitaleik, en i
aðalkeppninni urðu þessi félög efst og
jöfn að stigum. HK stúlkurnar svo og
öldungarnir vörðu sína titla af festu og
öryggi. Fjóra titilinn í ár hlaut blak-
deild HK í I. flokki karla eftir mikla og
tvisýna keppni.
1 ár hlaut blakdeild HK að auki
tvenn silfurverðlaun, þ.e. i 4. fiokki
karla eins og komið hefur fram svo og í
2. flokki karla eins og 1979.
Þessi frábæri árangur blakdeildar
HK er að sjálfsögðu mikil uppörvun
fyrir allt íþróttalíf i Kópavogi. Kópa-
vogur hefur reyndar verið mikill bkak-
bær um áraraðir, en fátt var um það
talað þar til Kópavogur eignaðist sina
fyrstu íslandsmeistara 1979. Til marks
um framgang blakíþróttarinnar í Kópa-
vogi má geta þess að þar eru tvær blak-
deildir starfandi. Aftur á móti eru
fjórar blakdeildir starfandi i Reykja-
vik, ein í Garðabæ og engin í Hafnar-
firði.
Auk blakdeildar HK hefur UBK
blakdeild innan sinna vébanda. Blak-
deild UBK vann sinn fyrsta íslands-
nteistaratitil nú i ár, þ.e. í 2. flokki
kvenna. Kópavogur er sem sagt stór-
veldi í blakíþróttinni hér á landi eins og
sést bezt á eftirfarandi töflu yfir
íslandsmeistara i blaki 1980.
Karlar:
Mfl. 1. deild — Laugdælir
Mfl. 2. deild — Völsungur
1. flokkur — HK
2. flokkur — Efling, S-Þing
3. flokkur — Völsungur
4. flokkur — Þróttur
Öldungar— HK
Konur:
Mfl. — Vikingur
2. flokkur — Breiðablik
3. flokkur — HK
4. flokkur — HK
Öldungar — Eikin, Akureyri
Þjóðverjarnir
kröfuharðir
Eins og áður segir leikur Janus nú
sem atvinnumaður með þýzka liðinu
Fortuna Köln og stundar jafnframt há-
skólanám í sinni grcin en hann er sem
kunnugt er íþróttakennari að mennt.
„Ég kann mjög vel við mig úti. Allar
aðstæður og umhverfi er ólíkt því sem
maður á að venjast hér heima. F.g æfi
tvisvar á dag og sá kraftur sem eftir er
frá æfingunum fer í námið,” segir
Janus.
Hann segir að Þjóðverjarnir geri
miklar kröfur. „Það er alls ekki hægt
að segja að ég hafi dottið inn í liðið.
Nær væri að segja að ég hafi skriðið
inn í það. Maður verður að berjast fyrir
sínu sæli og sínum snaga og sýna að
maður hafi eitthvað fram yfir aðra,”
segir Janus og bætir því við að e.t.v.
hafi það hjálpað sér að komast i liðið
að varnarleikur liðsins hafi yfirleitt
verið heldur slakur. „Ég leik sem varn-
armaður, annað hvort á miðjunni eða í
miðri öftustu vörninni.”
Janus átli við talsverð meiðsli að
stríða sl. vetur. Engu að síður segist
hann hafa leikið a.nt.k. fjörutiu leiki
með liðinu. Hann segir nú vera búinn
að aðlagast þýzku knattspyrnunni og
hafi unnið sér fastan sess í liðinu. Það
er ekki ntikið um útlendinga í þýzku
deildunum. Helzt eru það Júgóslavar
og Danir sem hafa náð þar fótfestu.
Miklar kröfur eru gerðar til leikmanna
íþröttir
Opin kvenna-
keppni hjá GR
Á sunnudag verður haldin opin
kvennakeppni hjá GR I Grafarholti.
Leiknar verða 18 holur með og án for-
gjafar. Keppnin hefst kl. 14 og geta
konur þær er áhuga hafa skráð sig til
þátttöku þar til keppnin hefst. Að sjálf-
sögðu er betra að þær verði fyrr á ferð-
inni helduren síðar.
og knattspyrnumenn frá S-Ameriku
hafa t.d. ekki náð að aðlagast þýzku
knattspyrnunni. Þýzki knattspyrnu-
markaðurinn er það sterkur að útlend-
ingar eiga þar í vök að verjast.
Þýzka knattspyrnan
bezt
Aðspurður segir Janus að árangur
þýzkra liða í Evrópukeppninni sýni að
þýzka knattspyrnan standi hæst,
a.m.k. hvað félagslið snertir. „Knatt-
spyrnan er opin og lifleg og mikið skor-
að af mörkunt, ólikt meira en í Eng-
landi,” segir Janus.
Urn Iaunakjörin vill hann sent rninnst
ræða. „Toppmenn í Hollandi, Belgiu
og Þýzkalandi eru vel launaðir. Það er
engin spurning. Topparnir eru hæstir í
Þýzkalandi og meiri fjöldi á toppnum.
Það segir sig sjálft þvi að þar eru fleiri
sterk félög. En Þjóðverjarnir vilja líka
fá eitthvað fyrir sinn snúð.”
Sumarfrí Janusar verður ekki langt.
Æfingar byrja aftur i lok þessa mánað-
ar. Sjálfur heldur hann sér í æfingu hér
heima. „Ég hleyp á fjöll má segja og
kíkiá nátlúruna,” segir hann.
Um ástæður þess, að íslenzkir knatl-
spyrnumenn leili svo mjög til útlanda
segir Janus að launakjörin spili vafa-
laust inn í í mörgum tilfellum. Margt
annað komi þó til eins og betri veðr-
átta, hentugri vinnutími og kannski
ævintýraþrá líka.
„Margir þessara leikmanna fara út
nteð ekki nægilega sterku hugarfari,
ekki nægilega ákveðnir í að slanda
sig. Ef menn halda að þeir komi heint
fljótt aftur þá koma þeir fijólt aflur."
Dusseldorf
sýnir áhuga
Sjálfur segist Janus ekkert hafa heint
nð sækja næstu 2—3 árin. Hins vegar
segist Itann staðráðinn i að koma aflur
heim. „Heima er bezl,” segir hann og
brosir.
Aðspurður segist hann reikna ntcð
að verða áfrant hjá Fortuna Köln eitt ár
í viðbót síðan vilji hann gjarnan brcyta
til. F.kki er að efa að Janus fær tæki-
færi til að breyta til þvi sterkari félags-
lið i Þýz.kalandi hafa komið auga á
hæfileika þessa sterka og baráttuglaða
íslenzka landsliðsmanns.
Þannig hefur i. deildarfélagið Fort-
una Ditsseldorf sett sig i samband við
lelag hans og spurz.t fyrir um Janus.
-GAJ.
Stefán er beztur f
fjórum greinum
Frjálsíþróltakappinn Slefán Hall-
grimsson, UÍA hefur náö bezlum
árangri íslendinga í fjórum greinum
frjálsra íþrótta í ár. Hér fer á eftir skrá
yfir bezta árangur íslendinga í karla-
greinum frjálsra iþrótta i ár. Skráin er
unnin af Ólafi Unnstcinssyni, frjáls-
íþróttaþjálfara.
3:.
100 m hlaup
Sigurður Sigurðsson, Árnt.
200 m hlaup
Þorvaldur Þórsson, ÍR
Oddur Sigurðsson, K A
400 m hlaup
Stefán Hallgrímsson, UÍA
800 m hlaup
Gunnar P. Jóakimsson, lR
1500 m hlaup
Jón Diðriksson, UMSB
10 km hlaup
Gunnar Snorrason,
UMSK 34
110 m grind.
Stefán Hallgrímsson, UÍA
400 m grind.
Slefán Hallgrímsson, UÍA
Háslökk
Unnar Vilhjálmsson, UÍ A
Langstökk
Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR
Þrístökk
Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR
Stangarstökk
Kristján Gissurarson, Árm.
10,7 sek.
22,2 sek.
22.2 sek.
49.3 sek.
51,1 ntín.
45,6 ntín.
12.3 min.
15,1 sek.
52,9 sek.
2,00 m.
7,05 m.
15,07 m.
4,27 m.
Stefán Hallgrímsson, UÍA hefur náð
beztum árangri íslendinga i ár i 110 m
og 400 m grindahlaupum, 400 m hlaupi
og tugþraut. Hann stefnir nú að
ólympíulágmarki i tugþraut.
Kúluvarp
Hreinn Halldórsson, KR 20,56 m.
Óskar Jakobsson, ÍR 20,21 m.
Kringlukast
Óskar Jakobsson, ÍR 62,54 m.
Spjótkast
Sigurður Einarsson, Árnt. 73,96 m.
Tugþraul
Stefán Hallgrimsson, UÍA 7385 slig.
Ekki hefur enn verið keppl i
nokkrum greinum, t.d. í 3 km og 5 km
hlaupum.
-GAJ.
Stefán til
Gautaborgar
— stefnir þarað
ólympíulágmarki í
tugþraut
Slefán Hallgrimsson UÍA er nú á
förum frá Bandarikjunum til Svíþjóðar
þar sem hann mun æfa með frjáls-
íþrótlafélagi i Gautaborg og freisla
þess að ná ólympiulágmarki í tugþraul.
Stefán hefur tvivegis náð yfir 7300
stigum á lugþrautarmótum og hefur
bælt sig talsvcrt í nokkrum greinum. í
öðrum greinum hefur hann hins vegar
verið nokkuð frá sinu bezta en ef hann
nær sínum fyrri árangri þar ætti hann
að eiga allnokkra möguleika á að ná
ólympiulágmarkinu sem er 7650 stig.
Eins og DB hefur áður greinl frá hefur
Elías Sveinsson FH einnig náð yfir 7300
stigum i Bandarikjunum og slefnir
einnig að ólympiulágmarki.
-GAJ.
Unnar sjöundi ís-
lendingurinn yfir
2,00 m í hástökki
Unnar Vilhjálmsson UIA stökk 2,00
metra i hástökki á innanfélagsmóti i
vikunni. Unnar, sem er sonur hins
kunna frjálsiþróttakappa Vilhjálms
Einarssonar, er sjöundi íslendingurinn
sem sigrast á þessari hæð frá upphafi.
Hér fer á eftir tiu beztu árangrar
íslendinga frá upphafi samkvæmt
afrekaskrá frjálsiþróttaþjálfarans
góðkunna, Ólafs Unnsteinssonar.
2,10 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 1965
2,10 Guðm. R. Guðmsson F'H 1979
2,01 Karl W. Fredriksen, UMSK 1974
2,00 Jón Pétursson, KR 1960
2,00 Elias Sveinsson, ÍR 1971
2,00 Stefán Friðleifsson, UÍA 1978
2,00 Unnar Vilhjálmsson, UÍA 1980
1,99 Þorsteinn Þórsson, UMSS 1978
1,98 Stefán Stefánsson, ÍR 1979
1,97 SkúliGuðmundsson, ÍR 1950
-GAJ.