Dagblaðið - 13.06.1980, Page 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ1980.
Kvikmynd kvöldsins gcrist að miklu leyti i fangabúðum Þjóðverja i Frakklandi.
STAÐGENGILLINN - sjónvarp kl. 21,40:
Ástarsaga úr stríðinu
Ef marka má okkar ágætu kvik-
myndahandbók, þá er úrvalsbió-
mynd í sjónvarpinu í kvöld. Hún
nefnist Staðgengillinn og er ástarsaga
sem hefur heimsstyrjöldina síðari að
bakgrunni. Myndin er gerð árið 1946
og með aðalhlutverk fara Michael
Redgrave, Jack Warner og Basil Rad-
ford.
Vorið 1940 gerðu Þjóðverjar
innrás inn í Frakkland. Bretar sendu
her, Frökkum til hjálpar, en þann her
króuðu Þjóðverjar af og kom liðs-
aukinn því ekki að fullum notum.
Við Dunkirk komust flestir hermann-
anna í skip, en hluti þeirra lenti í
fangabúðum Þjóðverja. Myndin
scgir frá manni nokkrum frá Tékkó-
slóvakíu, sem þykist vera brezkur
liðsforingi, en sá féll í orrustu. Hann
skrifar konu liðsforingjans og í gegn-
um þær bréfaskriftir takast miklar
ástir með þeim. En sá galli er á gjöf
Njarðar, að hann er í fangabúðum og
á því erfitt með að ná fundum kon-
unnar.
-SA.
UTU BARNATÍMINN - útvarp
kl. 17,20:
UÓÐALEST-
UR, JURTA-
FRÆÐSLA 0G
ÞJÓDSAGA
Akureyri, holuðstaour ivuiuuiuinö, er aí sumum taiinn fegursti bær landsins,
en Litli barnatlminn i dag er tekinn upp þar nyröra.
Barnatiminn sem er á dagskrá út-
varpsins i dag kl. 17.20 er í umsjá
Nönnu 1. Jónsdóttur. Barnatíminn er
tekinn upp á Akureyri og því þykir
vel við hæfi að efni hans sé bundið
við Norðurland.
Fyrst les Katrin Pétursdóttir, sem
er 13 ára, úr ljóðum Matthíasar Joch-
umssonar og verða lesin tvö kvæði.
Þá er forstöðumaður Lystigarðsins
á Akureyri, Jóhann Pálsson tekinn
tali og fræðir hann hlustendur um
jurtina brenninetlu. Verður fjallað
um nytsemi hennar, vöxt og viðgang.
Að siðustu verður lesinn fyrri hluti
sögunnar Sigríður Eyjafjallasól.
Lestri hennar verður haldið áfram í
næsta barnatíma.
Barnatímar Nðnnu á Akureyri
verða á dagskrá útvarps út þennan
mánuð, en hvað svo verður hefur
ekki verið ákveðið. 'SA.
Prúðu leikararnir safnast saman til að horfa á nýjan þátt með sér. Ef myndin prentast
vel má sjá Jim Henson, skapara Prúðu leikaranna, inni f miðjum hópnum.
Okkar ágætu vinir og kunningjar,
Prúðu leikararnir, verða á skjánum í
kvöld, en gestur þeirra nú er söngvar-
inn Kenny Rogers.
Kenny Rogers sló heldur betur I gegn
í vetur með lagi sinu Coward of the
county. Þar er fjallað um bleyðuna
miklu sem sýnir er á reynir, að hann er
ekki hræddur við eitt eða neitt. Síðan
hefur Kenny baðað sig í stjörnuljóma.
Prúðu leikararnir verða áfram fasta-
gestir sjónvarps á föstudögum, en nú á
sjónvarpið 12 þætti með þeim. Ennþá
er verið að framleiða þætti um þessar
vinsælu verur, svo allt útlit er fyrir að
langur tími Iiði, unz þær hverfa af
skjánum.
-SA.
MIÐDEGISSAGAN - útvarp kl. 14,30:
Sjálfsævisaga skútu
,,Sagan er sjálfsævisaga skútu og er
bráðskemmtileg,”sagði ValgerðurBára
Guðmundsdóttir, en hún byrjar i dag
lestur nýrrar miðdegissögu. Höfundur
hennar er A.H. Rasmussen og sagan
ber nafnið Söngur hafsins. Þýðandi er
Guðmundur Jakobsson.
A.H. Rasmussen var Norðmaður og
skrifaði fjölda bóka, en hann þótti
einkanlega góður að lýsa sjóferðum.
Söngur hafsins segir frá skútu, sem
sökkt er, til að koma í veg fyrir að
Þjóðverjar geti haft not af henni. Hún
liggur síðan í leðju í mörg ár, þangað
til hún er keypt. Nýi eigandi hennar
gerir hana upp og notar hana til sigl-
inga, og sagan lýsir þeirra „samlífi”.
Endalok skútunnar urðu svo þau að
hún sökk í stórsjó, en eigandinn komst
naumlega af.
„Það eru víst orðnir einir sex mán-
uðir siðan ég las söguna inn á band, en
Hjörtur Pálsson hafði orð á því, að
hún væri svo vorleg og skemmtileg að
bezt væri að útvarpa henni þegar
sumarið væri gengið í garð,” sagði Val-
gerður Bára að lokum.
-SA.
Guðmundur Jakobsson þýddi nýju mið-
degissöguna, en dóttir hans, Valgerður
Bára, les hana.
PRÚÐU LEIKARARNIR—sjónvarp
kl. 20,40:
Kermit fær
Kenny Rogers
í heimsókn
Útvarp
Föstudagur
13. júní
12.00 Dagskráin. Tónlcikar. Tilkynningar.
I2 20 Frélíir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónlcikasyrpa. Dans og dægurlög og lóit
klassisk tónlisi.
14.30 MiódcBÍssagan: „.Söngur hafsins" eftir
A.H. Rasmusscn. Guðmundur Jakobsson
þýddi. Valgcróur BáraGuðmundsdóttirbyrýar
lcsturinn. *
15 00 Popp. Vignir Svcinvson kynnir
15.30 l.csin dagskrá na*stu viku. 16.15
Veóurfregnir.
16.20 Siódcgbtónlcikar. Halkiór Vithelmsson,
Söngsvcitin Fílharmónla og Sinfóníuhljóm
svcit Islands ílytja ..Grcntskóg", sinfómskan
þátt fyrir baritónrödd. blandaðan kív og
hljómsveit cftir Sigursvcin D. Krisiinsson:
Martcinn H. Friöriksson stj. / Jacques Abram
og hljómsvcitin Filharmonía lcikur Pianókon
scrt nr. 1 i DsJúr op. 13 cfiir Benjamin Brittcn:
Hcrbcrt Mengcsstj.
17.20 l.itli barnatiminn. Nanna I. Jónsdóttir
stjórnar barnatima á Akurcyri. M.a. vcrður
haldiö áfram að Jesa jjjódsöguna ..Sigriói Eyja
fjallasór.
17.40 Tónlcikar. Tilkynningar.
18 45 Veðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Frcttir. Víösjá. 19 45 Tilkynningar.
20.00 Þefta vil ég heyra. Áður útv. 8. Nm. Viðar
Alfreðsson hornleikari vclur sCr tónlist og
kemur fram i viðtali viðSigmar B. Hauksson.
21.15 Fararhcill. Þáttur um útivKt og ferðamál i
umsjá Birnu G. Bjamlcifsdóttur. — áður á
dagskrá 8. þ.m.
22.00 Kórsöngur: Madrigalakórinn I Klagenfurt
syngur austurrisk þjóólóg. Söngstjóri
GQnther Mittergradnegger.
22.15 Vcðurfrcgnir. Fréttir. Dagskrá morgun
dagsins.
22.35 Kvöldsagan: „Þáttur Slguróar málara”
cftir l-árus Sigurbjörnsson. Sigurður Eyþórs
son lcs 141.
23.00 Djass. Umsjónamtaður: Cicrard C'hinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
13. júní
20.00 Fríitir og vcóur.
20.30 Auglýsingarogdagskrá.
20.40 Prúdu lcikararnir. Gcstur i þessum þætti
er söngvarinn Kenny Rogcrs. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
2I.05 Forsctacmbarttió. Tveir lögvisindamenn.
Gunnar G. Schram prófcssor og Þór
Vilhjálmsson hæstaréttardómari. rscða og
fræða um embætti þjóðhöfðingja Islands.
Umsjónarmaður Hclgi E Helgason.
21.40 Staógcngillinn s/h (Captive Heartl. Brcsk
biómynd frá árínu I946. Aöalhlutverk
Michael Redgravc. Jack Warner og Basil
Radford. Myndin cr um hcrmenn, scm uröu
innlyksa eftir hina misheppnuðu innrás i
Frakkland árið I940 og höfnuðu I fanga
búðum Þjóðverja. Þýðandi Óskar Ingimars
son.
'23.20 Dagskrárlok.
_