Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 30.06.1980, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980. Hverjir f engu f Hólahverf i? Rukel Magnúsdótlir, Jórufelli 8, hringdi: Ég vildi gjarnan fá að vita hverjir það eru sem stjórna úthlutun á íbúðarhúsnæði því sem Fram- kvæmdanefnd byggingaráætlunar stendur að. Ég er öryrki og einstæð móðir. Leigi hjá bænum og bý uppi á fjóröu hæð sem kemur sér afar illa vegna fótaveiki minnar. Allir sögðu við mig að nú hlyti ég að fá íbúð, ég hef sótt um tvisvar áður, bæöi þegar úthlutað var við Rjúpufell og í Selja- hverfi. Ég er með nægilega stóra fjöl- skyldu en allt kemur fyrir ekki. Mig langar til að vita eftir hverju er eigin- lega farið þegar íbúðum þessum er úthlutað. Úthlutun alltaf hitamál DB setti sig í samband við Hús- næðismálastofnun ríkisins til að for- vitnast um hvernig að úthlutun i t.d. hinar síðustu þrjátíu íbúðir í parhús- um i Hólahverfi hefði verið úthlutað. Fyrir svörum varð Hilmar Þóris- son deildarstjóri hjá Húsnæðismála- stofnun. Kvað hann nú eins og við allar fyrri úthlutanir hefði verið út- hlutað eftir tillögum úthlutunar- nefndar. Þó svo Húsnæðismálastjórn hefði úrslitavald, þá hefði hún aldrei breytt frá tillögum úthlutunarnefnd- arinnar. í úthlutunarnefndinni eiga sæti Magnús L. Sveinsson, Verzl- unarmannafélagi Reykjavíkur, Guð- mundur J. Guðmundsson, Verka- mannafélaginu Dagsbrún og Sigfús Bjarnason, Sjómannafélagi Reykja- víkur sem er formaður nefndarinnar. Umsóknir um þær þrjátiu ibúðir sem síðast voru auglýstar voru á fjórða hundrað og fóru nefndar- mennirnir i gegnum þær allar. Komu þeir sér síðan niður á þrjátíu umsækj- endur sem þeir töldu rétt að mæla með sem íbúðarhöfum. Flestir uppfylla skilyrðin í greinargerð þremenninganna segja þeir meirihl. þeirra hundruða umsókna er bárust hafi uppfyllt þau skilyrði sem sett voru. Skilyrði um fjölskyldustærð og það að vera í þörf fyrir bætt húsnæði. Til upplýsingar fékk DB listann yfir þá er úthlutað fengu hjá Skúla Sigurðssyni, Hús- næðismálastofnun ríkisins, og fer hann hér á eftir: 1. Arnór Sveinss., Hjaltabakka 10 2. Bjarni Guðmundsson, Torfufelli 29 3. Björk Jónsdóttir, Torfufelli 21 4. Egill Stefánsson, Fannarfelli 10 5. Erna Magnúsdóttir, Smáraflöt 30, Garðabæ 6. Erna Þórarinsd., Kleppsvegi 74 7. Gísli Einarsson, írabakka 14 8. Guðm. Guðmundsson, Efstasundi 16 9. Guðrún Halldórsdóttir, Kleppsvegi 72 10. Gunnar Sigurgeirsson, Írabakka 16 11. HalldórÓlafss., Efstasundi 13 12. Hörður Þórðarson, Meistaravöllum 23 13. ísleifur Vilhjálmss., Unufelli 46 14. Jóhann Símonars., Gyðufelli 16 15. Jóhanna Kristjánsdóttir, Laugarnesvegi 42 16. Jóhannes Þorsteinsson, Klepps- vegi 72 17. Jón Björnsson, Kleppsvegi 72 18. Kristín Einarsdóttir, Bústaðavegi 61 19. Kristján Magnússon, Bröttugötu 6 20. Ólöf Sigvaldadóttir, Gnoðarvogi 82 21. Rósa Guðmundsdóttir, Vesturbergi 78 22. Rúnar Matthíass., Barmahlíð 7. 23. Sigriður Vilhjálmsdóttir, Iðufelli 6 24. Sigurður Bergsson, Yrsufelli 11 25. Sigurður Sveinbjarnarson, Jórufelli 2 26. Stefán Hallgrimsson, Kleppsvegi 72 27. Stefán Jónsson, Kötlufelli 3 28. Tómas Guðmundsson, Grýtubakka 22 29. Örlygur Pétursson, Jórufelli 4 30. Örn Ásgeirsson, Kleppsvegi 40. TapáListahatíð: Þegar sjálfskipaðir menningar- f römuðir eru í fararbroddi Skatlgreiðandi skrifar: Enn einu sinni er svokölluð „lista- hátíð” gengin yfir. Og enn einu sinni greiðum við skattgreiðendur (sem alltaf fækkar með hverju ári er líður vegna brottflutnings fólks af landinu) tapiðaf henni. En hvers vegna er tap svo milljónum króna skiptir? Aðalor- MYNDARLEGT SUMARFRl sökin er þessi. Hvers vegna skyldu menn vera að borga þúsundir króna fyrir að sjá annars ágæta listamenn eins og Stan Getz og Pavarotti, svo dæmi séu tekin, þegar menn geta notið listar þeirra í sjónvarpi í friði og ró heima hjá sér eftir að listahátið lýkur? Kunningl þess er þetta ritar sagði eftir að hann hafði farið á hljómleika Stan Getz og síðan séð þáttinn i sjónvarpi að hann hefði í raun séð eftir þvi að fara á hljómleikana sjálfa, því að sjónvarpið hefði náð miklu betur til áheyrenda og áhorf- enda. En hvernig á annað að vera en tap verði á svo viðamiklum samsetningi sem svokölluð listahátíð er þegar sjálfskipaðir „menningarfrömuðir” sem þeir sem fyrir henni stóðu eru í fararbroddi. Almenningur í þessu landi er ekkert yfir sig hrifínn af afskiptum þessara manna af Ustaskömmtun til skattgreiðenda. Þessir sömu menn stóðu fyrir lokun frjáls fjölmiðils sem auk þess var fólki að kostnaðar- lausu. Hér er átt við Keflavikur- sjónvarpið, sem þessir menn áttu sinn þátt í að krefjast lokunar á. Meðan enn eru til „menningar- frömuðir” er vilja láta loka fyrir fjölmiðla en troða upp á landsmenn sínum hugðarefnum, þá er ekki óeðlilegt að landsmenn hlaupi ekki á listahátíð þeirra. ísinn áSkalla frískar ALLSKONAR IS.GAMALDAGS IS, SHAKE OG BANANA-SPLIT.SÆLGÆTI, ÖL OG GOSDRYKKIR. I uosseugla g jss

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.