Dagblaðið - 30.06.1980, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980.
Moskva:
Sovétmenn vilja ná
árangri í viðraeðum
— Helmut Schmidt kanslari Vestur-þýzkalands kemur í dag til tveggja daga
f undar með Leónod Bréf snef f orseta Sovétríkjanna
Helmut Schmidt kanslari Vestur-
Þýzkalands kemur í dag til Moskvu
en þar mun hann ræða við Leóníd
Brésnef næstu tvo dagana. Komið
hefur fram að Sovétmenn hafa
mikinn httg á að einhverjar áþreif-
anlegar niðurstöður náist á fundinum
og að honum ljúki ekki með almennt
orðaðri tilkynningu i kansellistíl.
Þetta sjónarmið Sovétmanna kom
fram í tilkynningu sem háttsettur
starfsmaður í upplýsingadeild
sovézka kommúnistaflokksins gaf í
gær. Þar sagði að viðræðurnar
mundu meðal annars fjalla um ýmis
viðkvæm málefni, svosem tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar og
deilurnar um íhlutun Sovétmanna í
Afganistan.
Sagði hinn háttsetti starfsmaður
að almenningur i Evrópu bæri miklar
vonir vegna þessara viðræðna
þjóðarleiðtoganna og vænti þess að
þær enduðu ekki aðeins með form-
legri yfirlýsingu. — Ljóst væri aö
þarna væri ætlast til að rætt væri um
ýmsa þá atburði sent valdið hafa
versnandi sambúð á milli austurs og
vesturs á undanförnum mánuðum.
Við annan tón kveður í Bonn í
Vestur-Þýzkalandi. Þar er mest
áherzla á að viðræður þeirra
Schmidt kanslara og Brésnefs forseta
eigi að snúast um efnahagsmál og
Schmidt muni reyna að vinna að því
að viðræður ráðamanna í Banda-
ríkjunum og Sovétríkjunum hefjist.
Þó svo að ljóst sé að vestur-þýzka
ríkisstjómin leggi mikla áherzlu á að
viðræður og samband austurs og
vesturs sé sem bezt þá hafa þeir ekki
hug á að viðræður þjóðarleiðtoganna
séu túlkaðar sem allt sé í lukkunnar
velstandi í þeim efnum.
Erlendar
fréttir
REUTER
SYFJAÐUR RÁÐHERRA
Kurustumenn sjö mestu iðnríkja á ræðu þar á fundinum en Edmund
heims hittusl i Feneyjum á ítaliu í Muskie utanrikisráðherra hans þykir
fyrri viku. Myndin sýnir hvar Carter greinilega nóg um mælgina og
Bandaríkjaforseti hlýðir andaktugur geispar ógurlega.
IBM skákmótið í Amsterdam:
Larsen tapar
tveim fyrstu
Danski stórmeistarinn Bent Larsen
hefur tapað tveim fyrstu skákum sínum
á IBM skákmótinu i Amsterdam. Auk
Larsen eru þarna margir af sterkustu
skákmönnum heims með heimsmeist-
arann Karpov i broddi fylkingar.
í fyrstu umferðinni vann Hort,
Tékkóslóvakíu, Ribli frá Ungverja-
landi, Sergei Tolmatov alþjóðlegur
meistari frá Sovétríkjunum vann
Larsen.
í annarri umferð gerðu Timman og
Karpov jafntefli, Ribli vann Larsen.
Karpov vann biðskák sína gegn John
van der Wiel fráHollandi.
Staðan eftir tvær umferðir er þannig
að Hort og Karpov ertt efstir með 1,5
vinninga, þá kemur Dolmatov rneð
einn vinning og biðskák, Ribli,
Timman og Sosonko með einn
vinning, van der Wiel eina biðskák og
Larsen með engan vinning.
Egyptaland:
Keisarinn enn
undir hníf inn
Fyrrum íranskeisari bíður þess nú
að hópur lækna frá Egyptalandi,
Bandarikjunum og Frakklandi taki
ákvörðun um hvort hann hafi heilsu til
að gangast undir enn einn
uppskurðinn. Keisarinn þjáist af
krabbameini, sem haldið hefur verið
niðri með lyfjum, þar til hann fékk
lungnabólgu fyrir nokkrum dögpm.
Varð þá að hætta ly fjagjöf.
Búizt er við ákvörðun læknanna
innan fjörutíu og átta klukkustunda.
Að sögn er keisarinn fyrrverandi mjög
veikur og viðnámsþróttur hans stöðugt
minnkandi. Ekkert mun verða frekar
skýrt frá líðan keisarans, sem nú er
sextugur að aldri. Er það gert að kröfu
ættingja hans.
Anwar Sadat forseti Egyptalands,
sem heldur verndarhendi yfir keisar-
anum og fjölskyldu hans í útlegðinni
sagði í gær að heilsa hans hefði mjög
batnað frá því hann var lagður inn á
sjúkrahús fyrir fjórum dögum.
í haldi síðan á f immtudag:
Komu gangandi
yfir landamærin
Fjórir Vesturlandabúar, tveir starfs-
menn Rauða krossins og tveir banda-
rískir Ijósmyndarar, komu í gær gang-
andi yfir landamærin frá Kampútseu
yfir til Thailands. Þeir höfðu verið í
haldi hjá herliði Víetnama skammt inn-
an landamæra Kampútseu síðan á
fimmtudag.
Fjórmenningarnir, Bretinn Robert
Ashe og Pierre Perrin frá Frakklandi,
starfsmenn Alþjóða Rauða krossins og
bandarísku ljósmyndararnir George
Liennemann og Richard Franken sem
unnu fyrir Flóttamannastofnun Sam-
einuðu þjóðanna, sáust síðast í yfir-
gefnum fióttamannabúðum i Nong
Chan, þar sem þeir reyndu að fá leyfi
hjá víetnamska innrásarliðinu til að
leita að særðu flóttafólki eftir átökin á
landamærunum í siðustu viku.
Fjórmenningarnir sögðust fyrst hafa
verið í haldi i skógi við landamærin,
en síðar hafa verið fluttir lengra frá
landamærunum. I gær sást svo til
þeirra þar sem þeir komu gangandi yfir
brú sem liggur frá landamærabænum
Poipet i Kampútseu yfir til Aranya-
pratet í Thailandi, en þar eru aðal-
stöðvar Alþjóða Rauða krossins á
landamærunum. Þeir félagar sögðu að
farið hefði verið vel með þá í fangavist-
inni en bundið hefði verið fyrir augu
þeirra þegar þeir voru nálægt hernaðar-
mannvirkjum. Engar fréttir höfðu bor-
izt um að þeir yrðu látnir lausir, en
stjórnir Bretlands, Frakklands og
Bandaríkjanna höfðu borið fram mót-
mæli við stjórn Víetnams vegna töku
þeirra og einnig hafði talsmaður Al-
þjóða Rauða krossins komið á fram-
færi mótmælum við utanríkisráðherra
Bretinn Robert Ashe. Hann stjórnaði
flóttamannabúðunum i Nong Chan, en
þar í gegn hafa undanfarna mónuði
farið þúsundir lesta af matvælum á
uxakerrum og reiðhjólum til
norðvesturhluta Kampútseu. Elisabet
Bretadrottning sæmdi Robert Ashe
orðu Brezka heimsveldisins (MBE) fyrr
i þcssum mánuði fyrir störf hans i þágu
flóttamanna á landamærunum.
Víetnam, Nguyen Co Thach, en hann
var í opinberri heimsókn í Thailandi
fyrir helgina.
Syrgj-
andi
móðir
Indira Gandhi forsætisráðherra Ind-
lands ók í opnum vagni við útför
sonar sins, Sanjay, en hún fór fram í
Nýju Delhi i fyrri viku. Myndin sýnir
Indiru og mannfjölda sem tók þátt i
sorg hennar yfir sonarmissinum. Að
sögn hafði Indira ætlað syni sinum
að taka við af sér sem leiðtogi Kon-
gressflokks hennar og þjóðarleiðtogi
Indlands.