Dagblaðið - 30.06.1980, Síða 12

Dagblaðið - 30.06.1980, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980. Á kosningaskemmtun Vigdísar Finnbogadóttur: Dagur dætra okkar og mæðra —og einnig feðra okkar og sona, sagði Svanhildur Halldórsdóttir kosningastjóri „Þctta er dagur dætra okkar og mæðra,” sagði Svanhildur Halldórs- dóltir kosningastjóri Vigdísar Finnbogadóttur á kosninga- skemmtun stuðningsmanna Vigdísar í Klúbbnum í nótt. ,,Það má raunar bæta þvi við að þetta er einnig dagur feðra okkar og sona, sagði Svanhildur. „Arið 1980 verður mjög merkt ár- tal i íslandssögunni og mannkyns- sögunni og guði sé lof fyrir þá sem eiga erfitt með að muna ártöl, þá cndar þetta á tug.” Stemmningin var mikil i Klúbbnum, enda sýndu tölur i sjón- varpi og útvarpi að Vigdis var á toppnum, þótt ekki munaði miklu á henni og Guðlaugi Þorvaldssyni. Fylgzt var með sjónvarpinu og var létt yfir mönnum og þeir vongóðir. ,,Sá, sem hefur góðan málstað, hefur alltaf von,” sagði Svanhildur kosningastjóri og gleðskapurinn hélt áframþótt úrslit lægju ekki fyrir. í anddyrinu var Vigdís sjálf en hún hafði komið til þess að heilsa upp á stuðningsmenn sína. Hún vildi litið segja á því augnabliki, því úrslit lágu ekki fyrir, en auðséð var á stuðnings- mönnum allt i kringum hana, að þeir sáu fyrir sér Bessastaðaboð. -JH. <c Sigurreifar baráttukonur á kosninga- skemmtun Vigdísar: Svala Thorlacius, Svanhildur Halldórs- dóttir kosningastjóri og Gerður Steinþórsdóttir. -DB-mynd Ragnar Th. ENG SET CRS ff cmnPUDriiisE ÍMP _LLL1_1 J 1 J 1.1 i l 1 1J.............L...J.. COMPUCRUISE er lítil tölvasem ætluö er til raf- eindastýringa og gæslu á fjölda aðgerða í bifreið þinni. • sjálfvirk hraðastýring • mæling á eldsneytisnýtingu og eyðslu • hvenær fer síðasti bensíndropinn • kvarts klukka • hitastigsmælingar, s.s. útihiti, kælivatnshití • rafgeymis- hleðsluspenna • nákvæm rafeindahraðamæling ® áfangastaðar útreikningar, • leiða útreikningar Sparið eldsneyti, akið af meira öryggi og þægindum. Góður leiðarvísir á íslensku. Viðhalds og ísetningarþjónusta. _ Hreyfilshúsinu V/Grensásveg S:82980 Á kosningaskemmtun Guðlaugs Þorvaldssonar: Við erum með hnút í maganum það er ekki fyrir hvítan mann að þola spennuna, sagði Oskar Magnússon „Við erum með hnút í maganum,” sagði Óskar Magnússon, einn af frammámönnum Guðlaugs Þorvalds- sonar, á Hótel Sögu í nótt. Þar héldu stuðningsmenn Guðlaugs kosninga- skemmtun eftir slaginn í gærdag. Óhætt er að fullyrða það að mikil spenna var í loftinu og menn fylgdust gjörla með sjónvarpi er birtar voru nýjar tölur. Guðlaugur og Vigdís voru svo gott sem hnífjöfn, þó var Vigdís heldur á undan. Það voru því mikil fagnaðarlæti i sainum er tölur bárust úr kjördæmum þar sem Guðlaugur skauzl fram úr. ,,Það er ekki fyrir hvítan mann að þola þetta,” bætti Óskar við og talaði greinilega fyrir munn samherja sinna. Loft var lævi blandið og spennan gífur- lcg. Munurinn milli þeirra V'igdísar og Guðlaugs var aðeins brot úr prósenti og alll gal gerzt. Menn gálu sér ekki einu sinni tíma til að dansa heldur söfnuðust saman við borð og bari og ræddu málin og horfurnar. -JH Oskar Magnússon. Spennan leynir sér ekki í stip stuóningsmanna Guðlaugs Þortaldssonar. DB-myndir Ragnar Th. Isafjörður: í steininn fyrir að rífa niður borða Kosningamorgunninn rann upp bjartur og fagur á Isafírði og kom þá í Ijós að nokkrir næturhrafnar höfðu neitaö að hlýða eðlilegum næturlög- málum. Voru fimm slíkir á ferli um kl. 7 um morguninn. í Hafnarstræti fóru borðar á kosningaskrifstofum stuðningsmanna Péturs og Alberts eitthvað í taugarnar á þeim og gengu fjórir þeirra til og rifu þá niður. Lögreglan greip þegar í taumana og fjórmenningarnir voru settir inn, enda töluvert ölvaðir og svefns þurfi. Er runnin var af þeim viman var sú lausn fundin á málinu að þeim var gert að fara á skrifstofur stuðnings- manna áðurnefndra frambjóðenda og biðjast afsökunar á tiltæki sinu. Lyktaði þannig ölvunartiltæki hinna ísfirzku víkinga. -A.SI. JONAS HARALDSSON

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.