Dagblaðið - 30.06.1980, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ1980.
Stóraukinn
saltsíldar-
útflutning-
ur til Sovét
— stefnt að minnkandi
viðskiptahalla með
nýjum samningum
Af verulegri aukningu á úiflutningi
til Sovétrikjanna næsta fimm ára
samningstímabi! ber langhæst ráð-
gerða sölu á allt að 200 þúsund
tunnum af saltsíld. Þá er gert ráð
fyrir aukningu i sölu lagmetis og ull-
arvara frá því sem verið hefur siðasta
samningstímabil, sem lýkur um
næstu áramól.
„Þcgar i fyrra óskuðu Sovétmenn
el'tir því i viðræðum um viðskipti
þjóðanna, að við legðum fram hug-
myndir um kvóta á islenzkum út-
flutningsvörum á nýja samningstima-
bilinu,” sagði Gunnar Flóvenz, for-
maður Sildarútvegsnefndar, i viðtali
við DB. Hann er einn íslenzku
nefndarmannanna i samningavið-
ræðum þeitn, scm lauk i gær um við-
skipti Sovétríkjanna og íslands.
„Tillögurnar voru afhentar i fyrra-
haust,” sagði Gunnar. „Varðandi
saltsildina var það ósk fulltrúa sildar-
saltenda, sjóntanna og útvcgsmanna i
Sildarútvegsnefnd að kvótinn yrði á
næsta ári 125 þús. tunnur og færi
hækkandi á tímabilinu eða upp i 225
þúsund tunnur i lok tímabilsins árið
1985.
Astæðurnar fyrir þessum óskum
voru þær að nteð því er reiknað að
síldveiöar við Ssland ntuni aukast á
þessu timabili. I öðru lagi hefur
neyzla saltsildar í Sovétrikjunum
verið meiri en í öllum öðrum mark-
aðslöndum okkar samanlagt.
Loks er fastlega búizt við að veiðar
verði leyfðar á ný I Norðursjónum
þegar á næsta ári. Þá má búast við
þvi aö tollaundanþágur á saltaðri sild
frá islandi verði afnumdar I löndum
Efnahagsbandalagsins. Þar eru gífur-
legir tollar á saltsíld en engir á ferskri
sild eða frystri.
Meðal annars af þessum ástæðum
eru hlutaðeigandi íslenzkir aðilar
sammála tim að reyna að auka sölu
til Sovétríkjanna. Það er þvi vissu-
lega ánægjulcgt, að Sovétmenn hafa
fallizt á tillögur okkar, ekki sízt þegar
á það er litið að í siðustu samnings-
gerð voru Sovétmenn ákaflega tregir
til að semja um saltsíldarkvóta,”
sagði Gunnar Flóvenz.,
„F.g vil sérstaklega taka fram að
hér er um viðmiðunarkvóta að ræða.
Ég vil á þessu stigi engu spá um
hvernig til lekst unt sjálfa hina end-
anlegu sölusamninga,” sagði Gunnar
að lokutn.
Ráð er gert fyrir þvi að allt að 25%
söluaukning verði á málningu til
Sovétrikjanna svo eitthvað sé nefnt,
sem horfir til aukins útflutnings
okkar til Sovétrikjanna.
1 Umtalsveröur samdráttur verður I ■
innflutningi á gasoliu frá Sovétrikj-
unum santkvæmt hinum nýja við-
skiptasamningi. Hins vegar veruleg
aukning i svartolíuinnflutningi eða
allt að 180 þúsund tonnum í stað 110
þúsund tonna i síðasta samningi.
Sérstök áhcrzla var á það lögð af
hálfti islenzku viðskiptanefndarinnar
aðauk.isölu á frcðfiskflökum á þessu
ári. Fékkst staðfest að heimiluð yröu
kaup á 5 þústtnd tonnum á þeim og
gætu samningar um það magn hafizt
fljótlega. Að öllum llkindum fara
fulllrúar Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeildar
Sambandsins til samninga um þaö
við Prodintorg í Moskvu á næstunni.
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóri vár formaður islenzku samn-
ingancfndarinnar. Aðrir i henni voru
Hat;aldur Kröyer, sendiherra, Atli
Freyr Guðmundsson, deildarstj.
viðskm., Jón ögmundur Þormóðs-
son, deildarstj. viðskrn., Þorsteinn
Ingólfson, deildarstj. utanrikism.,
Björn Tryggvason, aðstoðarseðla-
bankastj., Eyjólfur ísfeld Eyjólfs-
son, forstj. SH, Sigurður Markús-
son, frkvstj. sjávarafurðad. SfS,
Gunnar Flóvenz, frkvstj. Síldar-
útvn., Heimir Hannesson, varaform.
stj. Sölust. lagmetis, Magnús Heiga-
son, forstj. sem ftr. Verzlunarráös-
ins og Ártti Þorsteinsson, deildarstj.
Olíufélaginu, sem ftr. íslenzku olíu-
félaganna.
- BS
Heildarúrslit
fjóröu for-
setakosninga
lýðveldisins
Bessastaóir. DB-m,vnd: Þorri.
Landið
Albert Guðmundsson 25.567 19.8%
Guðlaugur Þorvaldsson 41.624 32.2%
Pétur J. Thorsteinsson 18.125 14.0%
Vigdís Finnbogadóttir 43.530 33.6%
Kosningaþátttaka á landinu öllu var rótt liðlega 90%. Auðir seðlar og 1 I ógildir á landinu öllu voru540 eða 0,4%.
llm fjögurleytið i nótt var spennan f talningunni f hámarki. Þá munaði aðeins 94 at-
kvæðum á Vigdfsi og Guðlaugi yfir landið allt. Myndin var tekin þá I Austurbæjar-
skólanum i Reykjavfk, þar sem menn fylgdust spenntir með kosningasjónvarpi.
-DB-mynd Ragnar Th.
Reykjavík
Albert Guðmundsson 12.519 24.7%
Guðlaugur Þorvaldsson 14.906 29.4%
Pétur J. Thorsteinsson 7.765 15.3%
Vigdís Finnbogadóttir 15.594 30.7%
Á kjörskrá voru 56.266. Atkvæði greiddu 50.784 eða 90.3%. Auðir 1 seðlar og ógildir 181.
Reykjanes
Albert Guðmundsson 6.052 22.4%
Guðlaugur Þorvaldsson 8.489 31.4%
Pétur J. Thorsteinsson 4.056 15.0%
Vigdís Finnbogadóttir 8.468 31.3%
Á kjörskrá voru 30.077. Atkvæðigreiddu 27.193 eða 90,4%. Auðir og ógildir seðlar voru 108.
Vesturland
Albert Guðmundsson 1.155 14.5%
Guðlaugur Þorvaldsson 2.822 35.4%
Pétur J. Thorsteinsson 1.093 13.7%
Vigdís Finnbogadóttir 2.864 35.9%
Á kjörskrá voru 8791 en atkvæði greiddu 7982 eða 90.8%. Auðir og ógildir seðlar voru 48.
Vestfirðir
Albert Guðmundsson 553 9.9%
Guðlaugur Þorvaldsson 1.905 34.0%
Pétur J. Thorsteinsson 1.002 17.9%
Vigdís Finnbogadóttir 2.106 37.6%
Á kjörskrá voru 6224. Atkvæði greiddu 5.597 eða 89.92%. Auðir og 1 I ógildir seðlar voru 31.
Norðurland vestra
Albert Guðmundsson 818 14.2%
Guðlaugur Þorvaldsson 2.126 36.9%
Pétur Thorsteinsson 638 11.1%
Vigdís Finnbogadóttir 2.186 37.9%
Á kjörskrá voru 6537. Atkvæði greiddu 5792 eða 88.6%. Auðir seðlar I I og ógildir 24.
Norðurland eystra
Albert Guðmundsson 1.519 10.9%
Guðlaugur Þorvaldsson 5.459 39.3%
Pétur J. Thorsteinsson 1.608 11.6%
Vigdís Finnbogadóttir 5.305 38.2%
Á kjörskrá voru 15.551. Atkvæði greiddu 13.953 eða 89.7%. Auðir | 1 seðlar og ógildir 62.
Austfirðir
Albert Guðmundsson 690 9.7%
Guðlaugur Þorvaldsson 2.365 33.4%
Pétur J. Thorsteinsson 768 10.8%
Vigdís Finnbogadóttir 3.223 45.5%
A kjörskrá voru 7849. Atkvæöi greiddu 7088 eöa 90.3%. AuÖir seöiar 1 I og ógiidir voru 42.
Suðurland
Albert Guðmundsson 2261 20.9%
Guðlaugur Þorvaldsson 3552 32.8%
Pétur J. Thorsteinsson 1194 11.0%
Vigdís Finnbogadóttir 3784 34.9%
Á kjörskrá voru 11.783 en atkvæði groiddu 10.835. Er kosningaþátt- I | takan 92.0%. Auðir seðlar og ógikfír voru 44 eða 0,4%.