Dagblaðið - 30.06.1980, Page 36
tPRKUDAGAR:'
29. JÚNÍ: 1513
Philips vekjaraklukka m útvarpi.
30. JÚNÍ: 419
Kodak Ektra 12 myndavél.
Vinningshafar hríngi
ishna 33622.
Mest spennandi kosninganótt í manna minnum
Fullyrða má að nóttin sem var að
líða hafi verið ein sú mest spennandi i
islenzkum kosningum fyrr og síðar.
Alll frá því fyrstu tölur komu úr
Reykjavík upp úr ellefu í gærkt/öldi og
fram á sjötta tímann i mörgun þegar
tölur komu úr Austurlandskjördæmi
má heita að fullkomin óvissa hafi ríkt
um úrslit.
Fáein hundruð atkvæði gátu á
hverri stundu gerbreytt niðurstöðum.
í rauninni gat eitt einasta atkvæði ijaft
úrslitaþýðingu. Um fjögur leytið í nótt
skildu t.d. aðeins tæplega eitt hundrað
atkvæði á milli Vigdísarog Alberts á
landinu í heild. En eftir því sem á nótt-
ina leið breikkaði bilið og öllum mátti
Ijóst vera að hverju stefndi: sigri Vig-
fisar Finnbogadóttur, sem var siðan
staðfestur snemma i morgun. -GM.
Albert Guðmundsson og frú Brynhildur:
Öska Vigdisi til hamingju, sagði Albert í
morgun. DB-mynd: Bj. Bj.
„Þjóðin sam-
emist um
forseta sinn”
— segirAlbert
„Ég þakka öllum, sem sýndu mér
það traust að kjósa mig,” sagði Albert
Guðmundsson, klukkan langt gengin i
fjögur í nótt. „Ekkr- síður þakka ég
þeim fjölmörgu, sem lagt hafa á sig
mikla vinnu fyrir mig í undirbúningi
kosninganna og í þeim sjálfum,” sagði
Albert. Hann bætti við:
,,Sá frambjóðandi sem fer með
sigur af hólmi, verður að sjálfsögðu
hinn nýi forseti. Ég óska honum til
hamingju og vænti þess að þjóðin beri
gæfu til aðsameinast um forsetasinn.”
-BS.
Talningin að fara I fullan gang I Reykjavik í gærkvöldi. Fremst er verið að hella saman atkvæðaseðlum, að ofan má sjá kjörstjórnarmenn ræða vafaatkvæði.
-DB-mynd Ragnar Th.
Umdeild auglýsing í Morgunblaðinu í gær:
„HELD AÐ ÞETTA HAFI
HAFT NEIKVÆÐ ÁHRIF’
—segir Óskar Magnússon, einn af kosningastjórum Guðlaugs, vegna
óundirritaðrar auglýsingar Guðlaugsmanna
Auglýsing sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær varð óðar umræðuefni
manna á meðal og síðan dundu yfir
landslýð auglýsingar í ríkisútvarpinu
vegna þessarar sömu auglýsingar. 1
auglýsingu þessari sagði: „Kjós-
endur, verum minnugir þess: Það er
sama hvar þú setur krossinn á kjör-
seðilinn, þú ert annaðhvort að styðja
Guðlaug eða Vigdísi”.
Engin undirskrift var við auglýs-
inguna þannig að ekki var vitað
hvaðan hún kom. í útvarpsauglýsing-
unum kom hið sanna í ljós. Hún var
frá stuðningsmönnum Guðlaugs.
Stuðningsmenn Vigdisar kepptust við
að sverja auglýsinguna af sér.
Auglýsing þessi varð síðan tilefni
nokkurra deilna þeirra Alberts Guð-
mundssonar og Guðlaugs Þorvalds-
sonar í sjónvarpssal. Margar sögur
komust á kreik i gær í framhaldi af
augýsingabirtingunni, m.a. sú, að
kosningastjóri Guðlaugs hefði sagt af
sér. Jafnframt bárust út þær fregnir
að mikið hefði verið um hringingar á
skrifstofu Guðlaugs, jafnvel skipu-
lagðar.
DB ræddi í nótt við Óskar
Magnússon, einn af kosningastjórum
Guðlaugs, um auglýsinguna og sim-
hringingarnar. „Það var ábyggilegt
að þessar símhringingar á skrifstofu
okkar voru skipulagðar,” sagði
Óskar. „Þær komu i ákveðinni röð
af landinu. En það er ekki gott að
segja frá hverjum þær komu, því þeir
sem hringdu kynntu sig ekki. Þessar
símhringingar fóru í gang um kl. 11 i
gærmorgun og stóðu yfir hádegið.
Það mögnuðust síðan sögur um að
kosningastjórinn hefði sagt af sér, en
það er ekki rétt. Auglýsing þessi var
samin af okkur á skrifstofunni. Það
voru siðan mistök á auglýsingadeild
Morgunblaðsins að hún var ekki
undirrituð. Auglýsingin var sett inn á
síðustu stundu og því e.t.v. fljóta-
skrift á henni. Hugmyndin var aldrei
að fela neitt, eða læða þessu inn.
Ég held að þetta hafi haft neikvæð
áhrif og sett i gang hringlanda á tíma-
bili. Öll umbrot eru til trafala. En
það hefur enginn sagt af sér, heldur
allir unnið sem heild, bæði i Reykja-
vik ogannarsstaðará landinu.” -JH
Skoðanakönnun
DB var nákvæm
Síðasta skoðanakönnun Dagblaðs-
ins var svo nálægt réttum úrslitum í
forsetakosningunum, að með ein-
dæmum er, hvar sem litið er. Aðeins
skakkaði að meðaltali 0,4 prósentu-
stigum að könnun DB segði nákvæm-
lega fyrir ujn fylgi frambjóðenda.
Vigdís varð efst í könnun DB og
fékk þar 34,0%. Hún hlaut i kosning-
unum 33,7%, svo að munaði 0,3 pró-
sentustigum. Könnun DB gaf Guð-
laugi 32,4%, en hann hlaut 32,3%,
svo að skakkaði 0,1 prósentustigi. j
könnuninni fékk Albert 20,2%, en i
kosningunum 19,9%, svo að þar
skakkaði 0,3 prósentustigum. Mestu
munaði bjá Pétri. Hann fékk sam-
kvæmt könnuninni 13,4%, en 14,1%
í kosningunum, svo að skakkaði 0,7
prósentustigum.
Könnun Visis var miklu lengra frá
hinu rétta. Hjá Vísi fékk Vigdis
30,0%, eða 3,7 prósentustigum
minna en í kosningunum. Guðlaugur
fékk i könnun Visis 31,4% eða 0,9
prósentustigum minna en í kosning-
unum, þótt hann væri efstur í könn-
un Vísis. Hjá Visi fékk Albert 20,4%
eða 0,5 prósentustigum meira en i
kosningunum. Pétur fékk í könnun
Vísis 18,3% eða 4,2 prósentustigum
meira en í kósningunum. Meðaltals-
skekkjan hjá Vísi varð því 2,3 pró-
— aðeins 0,4
prósentustigum
frá úrslitunum
— hjá Vísi skakkaði
2,3 prósentu-
stigum
sentustig á hvern frambjóðanda en
aðeins0,4prósentustig hjá DB. Rúm-
lega tveggja prósenta frávik telst þó
nokkuð gott miðað við skoðana-
kannanir erlendis, þótt sú niðurstaða
sé svona miklu lakari en hjá DB. í.
framangreindum úrslitatölum er að
sjálfsögðu miðað við hlutfall fram-
bjóðenda af atkvæðum, sem féliu á
frambjóðendur, en auðir og ógildir
seðiarteknirút. -HH
frfálst, úháð dagblad
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1980.
Pétur J. Thorsteinsson ræðir við
stuðningsmann i Sigtúni i nótt, þegar
fyrstu tölur höfðu borizt.
DB-mynd: Þorri.
„Vona að þjóð-
in sameinist
um Vigdísi”
— sagði Pétur
„Það er gremilegt orðið að ég verð
lægstur frambjöáendanna í heildarút-
komunni,” sagði Pétur J. Thorsteins-
son er DB náði i hann á heimili hans
kl. stundarfjórðung yfir þrjú í nótt.
„En ég endurtek það sem ég hef
áður sagt, að það er einlæg von mín, að
hver sem útkoman verður þá sameinist
þjóðin um forseta sinn,” sagði Pétur.
Hann kvaðst vilja þakka öllum þeim
mikla fjölda fólks sem lagt hefði fram
mikið og óeigingjarnt starf til stuðnings
við framboð hans. -A.St.