Dagblaðið - 08.07.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980— 152. TBl..
RITSTJÓRN SÍÐUMÓLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
þeim að finna þó örlögin séuþeim andsnúin. Hérþeytir Gustur sœlöórinufrá sér
áfullriferð.
PB-mynd: Sig. Þorri.
Það er ekkert smávegis sem hefur dunið yfir hjá þeim liaða Hinrikssyni
Ijj? Einari Val Kristjánssyni á Ísafjarðarhátnum Gusti I Sjóralli 'S0. Ikviknun
tvlvegis, netadræsa i skrúfu og vélarstimpill hráðinn. En það er engan hilbug á
Sjórall DB, Snarfara og FR:
Em tnnuta mffli Inguog Gusts
—vél Spörra stöðvaðist í Homafjarðarósi í gær en eftir viðgerð komust allir til
Neskaupstaðar fyrir miðnætti og fóru þaðan aftur í morgun
Þriðjudagsdagleiðin hjá sjóralls-
köppunum reyndist tiltölulega
auðveld, ef frá er skilið að vél Spörra
stöðvaðist í Hornafjarðarósi vegna
óhreininda í bensíni. Kom keppi-
nautur hans Gáski á vettvang og dró
Spörra aftur til Hafnar.
Stærri bátarnir þrir geystust út
fyrir ströndina og fór Inga í farar-
broddi en Gustur fylgdi fast á eftir.
Er komið var til Neskaupstaðar skildi
ein minúta bátana að. Inga kom kl.
19.49 en Gustur kl. 19.50. Er þetta
önnur dagleiðin sem Inga vinnur
Gust með mínútubili. Hin var frá
Eyjum til Hafnar.
Lára III fylgdi Ingu og Gusti í
fyrstu en dróst síðan aftur úr og kom
til Neskaupstaðar kl. 22.27. Þessir.
þrír lögðu frá Höfn kl. 16.02 í gær.
Gáski og Spörri lögðu öðru sinni
frá Höfn kl. 18.15 en þá hafði vél
Spörra verið hreinsuð. Þeir komu
síðan til Neskaupstaðar kl. 23.48 og
var Gáski sjónarmun á undan.
Óhreinindi i bensinleiðslum
Spörra eru rakin til bensíntöku í Eyj-
um. Er vélin stöðvaðist í Horna-
fjarðarósi í gær voru gruggkúlur
og leiðslur fullar af óhreinindum. Að
auki dró vélin loft með bensíninn-
taki.
Vegna óhreininda í bensíninu hefur
komið í ljós að vélin gekk ekki á
tveimur sílindrum á leið til Hafnar.
Þykir það vera skýringin á hinni
óhóflegu bensíneyðslu bátsins sem
leiddi aftur til næturdvalar við
Ingólfshöfða.
Ferðin til Neskaupstaðar gekk vel
hjá öllum. Smávegis þurfti þó að
laga. Eitthvaö hafði losnað í mæla-
borði ísafjarðarbátsins Gusts. Einnig
vöru þau Bjarni og Lára ekki ánægð
með gang Chryslervélarinnar í Láru
III. Var hún lítilega skoðuð í gær og
aftur tekið til við hana í morgun.
Ákveðið var að ræsa bátana sam-
kvæmt áætlun frá Neskaupstað kl.
10 í morgun. Hafa þá unnizt upp þær
tafir sem orðið hafa fram til þessa og
rallið fer fram samkvæmt fyrirfram
gerðri áætlun.
Næsti áfangi er til Kópaskers
þangaðsem bátannaer von fyrir kl. 18
að öilu forfallalausu.
í nótt og í morgun var þoka á Nes-
kaupstað en farið að létta til inni á
firði. Þó var ekki komið flugveður og
búast mátti við þéttari þoku utan
við ströndina.
-ASt/JR, Neskaupstað
— sjá einnig á bls. 5 og stigin á baksíðu
TVEIR
NAUÐG-
ARAR
í HALDI
Stúlka kærði tvo menn fyrir
nauðgun i heimahúsi í Reykjavík
aðfaranótt sunnudags. Stúlkan, sem
er 22 ára gömul hafði svarað aug-
lýsingu i einkamáladálki Dagblaðsins,
þar sem óskað var eftir kynnum við
konu á aldrinum 20—35 ára. Sú sem
hefði áhuga var beðin að hringja í síma
24962.
Stúlkan fór síðan á fund við aug-
lýsanda og reyndust þar vera tveir
karlmenn, rúmlega þritugir. Hún vildi
ekki þýðast þá, en þeir nauðguðu
henni. Annar hélt stúlkunni fastri á
meðan hinn fékk vilja sínum
framgengt.
Rannsóknarlögregla ríkisins hand-
tók mennina á sunnudagskvöld og voru
þeir úrskurðaðir í gæzluvarðhald og
jafnframt gert að sæta geðrannsókn.
Annar mannanna hefur játað að hafa
komið fram vilja sínum með valdi og
hinn að hafa aðstoðað hann.
Dagblaðið fór fram á það í morgun
við rannsóknarlögregluna að fá nöfn
mannanna til birtingar, en þvi var neit-
að að svo stöddu, þar sem ekki lægi
fyrir hvort mennirnir væru sakhæfir.
Hins vegar yrði það kannað hvort
þessir menn hefðu sett fleiri slíkar aug-
lýsingar í blöð.
Nafn auglýsendanna liggur ekki fyrir
á smáauglýsingadeild Dagblaðsins, þar
sem auglýsingin var staðgreidd. Síma-
númerið sem gefið er upp er skráð
leyninúmer og því ekki í götuskrá. -JH.
Tekið mið af aðgerðum
Norðurlandaþjóðaá
ólympíuleikunum:
Ekki ís-
lenzkt f rum-
kvæði að
mótmælum
íMoskvu
— segirSveinn
Bjömsson, forseti ÍSÍ
„Við höfum enga ákvörðun tekið
um að fylgja fordæmi Frakka” sagði
Sveinn Björnsson, forseti íþróttasam-
bands íslands, þegar DB spurði hann
hvort íslenzkir ólympíufarar hygðust
fara að fordæmi franskra íþrótta-
manna og hafa uppi mótmæli gegn
stefnu Sovétríkjnna á ólympíuleikun-
um.
„Fyrir síðustu helgi héldu Evrópu-
þjóðir fund í París þar sem þessi mál
voru til umræðu,” sgði Sveinn, ,,en við
höfðum ekki tök á að mæta þar vegna
íþróttaþings og fólum framkvæmda-
stjóra sænska íþróttasambandsins, sem
jafnframt er formaður Evrópusam-
bands ólympiunefnda, að fara með
okkar atkvæði. Skýrsla frá honum um
fundinn hefur enn ekki borizt, en
hlýtur að koma á hverri stundu. Fyrr
tökum við enga afstöðu í þessum
málum.”
Sveinn Björnsson kvað ÍSÍ hafa
borizt skeyti frá Frökkum þar sem
skýrt er frá fyrirhuguðum mótmælum
á leikunum. ,,En við höfum ákveðið að
fylgja Norðurlöndunum og ætlum
ekki að eiga frumkvæðl að slíku,”
sagði Sveinn. -GM.