Dagblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980. 9 Hitaveita Reykjavíkur í fjármagnssvelti: Þegar er farið að hita ný íbúðarhús upp með olfu —Lýsi stríði á hendur þeim, sem ætla að halda rígfast f úrelt vísitölukerfi, segir Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður „Á sama tíma og menn sameinast í átaki til að útrýma olíu til húshitunar, er þannig búið að Hitaveitu Reykja- vikur, að kynda verður með olíu á hennar veitusvæöi. Það eru hreinar línur, að ég er ekki tilbúinn til að styðja ríkisstjórn sem stefnir að þvi að kynda Reykjavík með olíu. Slíkt væri þver- brot á öllum samþykktum Fram- sóknarflokksins og raunar rikisstjórn- arinnar. Ég lýsi þeim aðilum stríði á hendur, sem ætlá sér að halda rigfast í úrelt vísitölukerfi með þessum af- leiðingum.” Þetta segir Guðmundur G. Þórarins- C'tlit er fyrir aó húsbyggjendur i Brciðholti, þar sem þessi mynd er tckin, og Hafnarfirói, terói aó kynda nýju húsin sin meó oliu — fyrir rúmlega sjöfalt verö á vió það sem hitavcitunotcndur greióa. Kristján Benediktsson borgarráðsmaður: Borgarstjóm hefur gert allt sem í hennar valdi stendur „Borgarstjórn Reykjavíkur er búin að gera allt sem i hennar valdi stendur til að fá hækkaða gjaldskrá Hitaveit- unnar,” sagði Kristján Benediktsson borgarráðsmaður er vandamál Hita- veitunnar voru borin undir hann. „Við kynntum þetta mál rækilega i vetur og sögðum þá að með óbreyttu ástandi væri fyrirsjáanlegur verulegur niðurskurður á starfsemi fyrirtækisins. Afleiðingarnar eru nú að koma í ljós,” sagði Kristján ennfremur. — Hann var að því spurðurhvaðhann teldi til ráða. ,,Ég veit eiginlega ekki hvað skal segja. Ég tel óeðlilegt að Hitaveitan taki erlend lán til að fleyta sér áfram við stækkun dreifikerfisins. Það mál horfir öðruvísi við þegar um er að ræða stórframkvæmdir eins og fyrirhugaðar eru á Nesjavöllum við Þingvallavatn. Fyrirtækið hefur orðið að bjarga sér á þann hátt þegar um slíkar fram- kvæmdir hefur verið að ræða.” Hitaveita Reykjavíkur skuldar tals- vert fé erlendis. Á síðasta ári fóru um 6—700 milljónir króna í afborganir er- lendra lána. Ekki fer að grynnka al- mennilega á þeim skuldum fyrr en að ' fimm til sex árum liðnum. ,,Það er nú undir ríkisstjórninni komið hvað gerist í þessum málum,” sagði Kristján Benediktsson ennfrem- ur. „Þar er vafalaust fullur vilji til að greiða úr vanda Hitaveitunnar en það er einkennilegt fyrirkomulag að ef gjaldskrá Hitaveitunnar hækkar eða ef fargjöld strætisvagnanna hækka þá hækkar jafnframt upphæðin í launa- umslagi verkamannsins á Húsavík. Þessu veldur að vísitölufjölskyldan býr i Reykjavík, eins og sagt er.” - ÁT Formaður kjörstjórnar á Seltjamamesi: Engin geðþottaákvörðun mín — að merkjasala var bönnuð í Mýrarhúsaskóla á kjördag „Það er engri óskiljanlegri geð- þóttaákvörðun minni uni að kenna að Jóhanna Kristjónsdóttir fékk ekki að selja merki við Mýrarhúsaskóla daginn sem forsetakosningarnar fóru fram," sagði Sigurður Haraldsson formaður kjörstjórnar á Seltjarnar- nesi í samtali við DB. „Kjörstjórnin — þrír aðalmcnn og þrir varamenn — ákvað í heild sinni að banna alla merkjasölu og það gerðum við einnig fyrir alþingiskosningarnar í fyrra.” Dagblaðið skýrði frá þvi i frétt í síðustu viku að Jóhönnu Kristjóns- dóttur ritara Félags einstæðra for- eldra hefði vcrið meinað að selja mtrki félagsins við Mýrarhúsaskóla á kosningadag. Jóhanna taldi sig vera í fullum rétti með leyfi til sölunnar frá dómsmálaráðuneytinu. Hún var flutt af staðnum með lögregluvaldi. „Varðandi leyfi Félags einstæðra foreldra frá dómsmálaráðuneytinu,” sagði Sigurður, „þá kveður það ein- tingis á um sölu merkja í Reykjavik cn ekki á Seltjarnarnesi. — Bann okkar er einungis til komið vegna kvartana kjósenda sem kváðust hafa orðið fyrir ónæði merkjasölufólks þegar þeir komu að kjósa. Bæjaryfir- völdum á Seltjamarnesi var kunnugt unt það, svoogyfirkjörstjórn í Hafn- arfirði. Við visuðum öllu sölufólki þvi frá en Jóhanna var sú eina sem ekki gat fellt sig við það.” Siguröur Haraldsson sagði að cinnig hefði það verið misskilningur í fréttinni að Seltjarnarneslögreglan hefði neitað að fjarlægja Jóhönnu Kristjónsdóttur. Þarna hefðu kontið að ntenn úr Reykjavíkurlögreglunni, en búsettir á Seltjarnarnesi, og hefðu ætlað að kjósa. Aðeins einn lög- reglumaður er á vakt i einti á Sel- tjarnarnesi og sagði Sigurður hann hafa verið upptekinn i öðru starfi, þegar málið með Jóhönnu Kristjóns- dótlur kom upp. -ÁT son alþingismaður meðal annars í kjall- aragrein sinni i Dagblaðinu i gær. Fjár- mál Hitaveitu Reykajvíkur standa nú svo að fyrirtækið getur ekki klofið kostnaðinn við að leggja hitaveitu í á Timmta hundrað hús í Reykjavík og Hafnarfirði fyrir veturinn. Þar er um að ræða rúmlega þrjú hundruð íbúðir í Selja- og Hólahverfum i Breiðholti og um eitt hundraö íbúðir í Hvamma- hverfinu í Hafnarfirði. Þegar er flutt í nóWkrar ibúðir i Hvömmunum þar sem kyntermeð olíukatli. Ástæðan fyrir því að Hitaveita Reykjavíkur fær ekki gjaldskrárhækk- un er sú að ef af yrði þá hækkaði fram- færsluvísitalan. Það þýðir aftur á móti að þá hækkar kaup allra landsmanna. Guðmundur G. Þórarinsson setur dæmið upp þannig aö „ef Hitaveita Reykjavíkur fær hækkun gjaldskrár, þannig að tekjur hennar hækki um 2000 milljónir króna, þá hækka laun i landinu um nálægt 5000 milljónir króna.” Að sögn Jóhannesar Zoéga hita- veitustjóra vantar fyrirtækið nú um 1100 miUjónir króna til að bjarga brýn- ustu verkefnum sínum. Tvo milljarða vantar aftur á móti til að fyrirtækið geti fjármagnað allar framkvæmdir sínar á þessu ári. Kilóvattstundin kostar nú sam- kvæmt gjaldskrá Hitaveitunnar 3,21 krónur. Sé olía notuð til upphitunar- innar kostar stundin 24,45 kr. Guð- mundur G. Þórarinsson segir að íbúar í Reykjavík greiði nú um 6,1 milljarð króna á ári í upphitun. Ef þeir kyntu með olíu væri upphæðin 46,6 millj- arðar króna. Af framansögðu má sjá að vandinn er ærinn. Dagblaðið leitaði til nokk- urra manna til að fá álit þeirra á fjár- magnssvelti Hitaveitu Reykjavíkur. - ÁT Jóhaimes Zoega hitaveitustjóri: Heyrum ekk- ert frá ríkis- stjóminni „Hjá okkur gerist ekkert nema það hallar stöðugt á ógæfuhliðina,” sagði Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri í sam- tali við DB i gær. „Fyrir tveim til þrem vikum gekkst borgarstjórn fyrir fundi með forsætisráðherra en okkur hefur ekkert svar borizt ennþá. Við vitum ekki einu sinni hvort okkar mál hafa verið tekin upp hjá ríkisstjórninni." Hitaveitustjóri var spurður um or- sakir vandræða fyrirtækisins. „Frumorsökin er sú að vísitala og kaupgjald tengjast saman,” svaraði hann. „Þetta mun upphaflega hafa gerzt í samningum við verkalýðsfélögin en með svokölluöum Ólafslögum komst þetta í lög. í stuttu máli er vand- inn þannig til kominn að þegar breyt- ingar verða á kaupgjaldsvísitölunni breytist kaupið. Kaupgjaldsvísitalan er grundvölluð á framfærsluvísitölu og fundin út samkvæmt formúlu hjá Hag- stofunni. Þar eð meginhluti húsa í Reykjavík er hitaður upp með vatni reiknast gjaldskrá okkur inn í vísitöluna. Verð- breytingar á olíu hafa hins vegar ekki áhrif á hana. Það þýðir að þó að kynd- ingarkostnaður úti á landi hækki þá verða launagreiðslur samt óbreyttar.” Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri sagði að íbúðir þær sem fyrirtækið sæi sér ekki fært að tengja við hitaveitukerfið væru mislangt á veg komnar. „Í Hvammahverfi í Hafnarfirði eru byggingarframkvæmdirnar lengst komnar,” sagði hann. „Þar er mjög stutt í að flutt verði inn. í Breiðholti II og III og á Eiðsgranda eru íbúðirnar styttra á veg komnar og, að því er mér skilst, sums staðar ekki byrjað að byggja.” - ÁT Tómas Árnason viðskiptaráðherra: Engar ákvarðanir hafa verið tekn- ar í ríkisstjóm „Það var rætt um málefni Hitaveitu þann fund ekki en mér vitanlega voru Reykjavikur á fundi ríkisstjórnarinnar þar ekki teknar neinar ákvarðanir.” siðasta fimmtudag,” sagði Tómas Ráðherra kvaðst ekki vita hvenær Árnason viðskiptaráðherra er DB náði næst yrði fjallað um Hitaveituna á tali af honum síðdegis i gær. „Ég sat stjórnarfundi. . ÁT cmiirbrauðstofon 5TÍÖRNINN NiólsgÖtvi 49 __ 5in*i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.