Dagblaðið - 08.07.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980.
Vestmannaeyjar:
VERBÚBIN TEKIN HERSKILM
Íbúar í verbúðum Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum gerðu , ,upp-
reisn” að kveldi fjórða júli sl. og
toku hluta verbúðanna herskildi til
morguns næsta dags. Ástæða hess
var sú að Vinnslustööin notar ver-
búðarloftið fyrir skreiðargeymslu og
var maðkur úr skreiðinni farinn að
gera sig heimakominn í vistarverum
verbúðarfólksins á næstu hæð fyrir
neðan. Skreið maðkurinn milli hæða
niður um sprungur og göt í veggjum
og lofti.
Megn óánægja hefur verið meðal
verbúðarbúa um lengri tima, m.a
hefur húsvörðurinn hleypt blaða-
mönnum Sjávarfrétta inn i vistar-
verur verbúðarinnar án þess að leita
samþykkis íbúa. Þegar hinir óboðnu
gestir, maðkarnir úr skreiðinni, voru
farnir að sækja á íbúana var mælir-
inn fullur svo þeir tóku verbúðina
herskildi næturlangt.
Fóru aðgerðir þessar allar friðsam-
lega fram og afhentu verbúðamenn
lyklana að verbúðunum eftir að hafa
haldið þeim þann tima er þeir ætluðu
sér.
Þykir farandverkamönnum seina-
gangur á ýmsum réttindamálum er
þeir hafa barizt fyrir og vildu þeir
auk þess með aðgerðinni vekja at-
hygli á hægagangi i sambandi við
ýmsar sjálfsagðar kröfur þeirra um
hreinlæti og hollustuhætti. - BH
Jón og Garðar á Ásmundarstöðum heimsóttir:
„AÐRIR BÆNDUR SKATTLEGGJA OKK-
UR TIL AÐ BJARGA SJÁLFUM SÉR”
„Við værum ekkert ósáttir við það
að ríkið legði á okkur 10—15 prósent
fóðurbætisskatt ef peninga vantaði í
kassann. En að leggja fóðurbætisskatt
á okkur til þess að aðrir bændur geti
haldið áfram að offramleiða þykir
okkur allt annar hlutur.” Það var
þungt í bræðrunum Jóni og Garðari
Jóhannssonum þegar við heimsóttum
þá að Ásmundarstöðum í Rangárvalla-
sýslu. Þeir reka þar mikið myndarbú
þrír bræður, Jón, Garðar og Gunnar,
sem var ekki heima er við litum inn.
Ásmundarstaðir eru eitt alstærsta
búið i hænsnarækt. Um 35 þúsund
hænur eru þar á fóðrum og eru 2
þúsund kjúklingar sendir frá búinu til
slátrunar á viku. Gripunum eru gefin
um 200 tonn af fóðurbæti á mánuði.
Þessar skepnur eru svo vandlátar á
fæði að þær vilja helzt útlendan fóður-
bæti. Hægt er að drýgja hann með
fiskimjöli og graskögglum en ekki
nema að vissu marki. Þá hætta skepn-
Jón .lóhannsson: „Skatturinn getur sett
fjölda búa á hausinn eóa komið þeim
mjög illa.”
urnar að éta. Það er erlendi fóðurbæt-
irinn sem búið er að leggja á 50% skatt.
Þetta þýðir margra milljóna auka-
kostnað á ári og hafa bændur í eggja-,
kjúklinga- og svínarækt rekið upp
mikið ramakvein. Það hefur löngum
verið sagt um bændur að enginn sé
góður búmaður nema hann kunni að
barma sér. Gildir þaðekki líka hérna?
Framboð og eftirspurn
ræður verði
„Búskapur eins og okkar hefur alltaf
byggzt á lögmálum framboðs og eftir-
spurnar. Rikið hefur aldrei styrkt
okkur eins og aðra bændur. Markaður-
inn ræður verðinu og undanfarið hefur
markaðsverð á eggjum verið í algjöru
lágmar'ki. Þessi hækkun getur þvi sett
fjölda búa á hausinn eða komið þeim
mjög illa. Það er kannski það sem ætl-
azt er til, þá fara menn aftur að borða
Garðar Jóhannsson: „200% skattur
kemur á alla þá vióhót, sem vió kaupum
af fóóurbæti frá því sem vió keyptum i
fyrra. Með því er verið að koma i veg
fv rir stækkun húanna."
Siglufjörður:
Bjartsýni á áf ram-
haldandi rekstur
„Mér virðist svo sem allar þessar
ráðstafanir dugi knappt en vonast nú
samt sem áður eftir því að geta opnað
aftur þegar sumarfríi lýkur,” sagði
Skúli Jónasson hjá frystihúsinu ísafold
á Siglufirði i samtali við DB. Fór starfs-
fólk ísafoldar í fri 19. júní sl. og kemur
likast til úr frii aftur um mánaðamótin
júli-ágúst, að sögn Skúla. Alls hafa um
50—60 manns verið i vinnu hjá ísafold,
flest fólkið með 4—5 vikna áunnið
sumarfri.
Hjá Þormóði ramma, frystihúsinu á
Siglufirði, varð Sæmundur Árelíusson
fyrir svörum. Kvað hann um 150
manns hafa farið i þriggja vikna
sumarfrí 1. júlí. Er sumarfríinu lyki,
um 20. júlí, vonaðist Sæmundur til
þess að geta hafið störf í frystihúsinu af
fullum krafti. Boðaðar voru ýmsar
ráðstafanir til hjálpar frystihúsunum
en Sæmundur óttaðist að þær dygðu
skammt. Ekki þýddi þó annað en vera
bjartsýnn og vonast til að búið yrði að
tryggja rekstrargrundvöll fyrir frysti-
húsin þegar að því kemur að starfsfólk
í frystihúsi Þormóðs ramma lýkur
sumarfrii. - BH
Gylta í svlnastiunni á Ásmundarstöðum. Hún er „kresin” á fóður, vill helzt ekkert nema útlendan, rándýran fóðurhæti.
DB-myndir Þorri.
kindakjöt í staðinn fyrir svín og kjúkl-
inga og þá eru slegnar tvær flugur í
einu höggi, dregið úr offramleiðslu og
eftirspurn aukin. Peningarnir sem
teknir eru af okkur eiga að notast til
þess að hjálpa öðrum bændum. Við
eigum að borga fyrir útflutninginn á
þeirra kjöti. Aðrir bændur eru að
skattleggja okkur til að bjarga sjálfum
sér.
Landbúnaðarráðherra sagði að nú
væri akkúrat rétti tíminn til að leggja á
skattinn því þá yrði aðlögunartími.
Þetta er rétt þegar aðrir bændur eiga í
hlut. Þeir byrja ekki að gefa kindum
fóðurbæti fyrr en um áramót og kúm
ekki fyrr en í haust. Við þurfum aftur
að gefa fóðurbæti allt árið.
Okkur þykir líka skjóta skökku við
að þeir sem stunda fiskirækt og minka-
eldi eiga ekki að borga neinn fóður-
bætisskatt. Það styrkir enn þann grun
okkar að þetta sé bein aðför að sam-
keppnisgreinum okkar við hefðbund-
inn landbúnað og afturför til miðalda í
neyzluvenjum. En við teljum ekki að
neytendur muni láta bjóða sér slíkt.
Fólk vill fá svínakjöt, kjúklinga og egg
á sanngjörnu verði og neytendur munu
örugglega ekki sitja þegjandi undir
þessu,” sögðu þeir bræður Jón og
Garðar.
- DS
Skódi
íklípu
Eins og lús á milli tveggja
nagla. Skóda-greyið varð
þarna illilega á milli tveggja
stcerri þegar Blazer bakkaði á
hann í Síðumúla. Skipti það
engum togum að hann
skutlaði Skódanum svo illilega
til hliðar að hann rakst utan í
nœsta bíl við hliðina. Veru-
legar skemmdir urðu á
Skódanum en báðir hinir
skemmdust mun minna — sá
vart á þeim.
DB-mynd Bjarnleifur.