Dagblaðið - 08.07.1980, Page 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JULl 1980.
2
TÖGGUR HF.
SAAB. Hinn scrstæcM bíll frá Svíþjóó umbook>
BILDSHOFÐA 16 SIMI 81530
Hvenær byrja Valsmenn
að leika á heimavelli?
Stöllurnar fjórar kvarta yfir auulýsingaskrumi »k lélegri þjónustu á Aski.
Stí»25P
skV
Enn einu sinni minna lesenda-
dúlkar DB alla þá, er hyggjast
senda þœttinum llnu, að láta fytgja
jiillt nafn, heimilisfang, slmanúmer
(ef um það er að rœða) og nafn-
númer. Þetta er lltil fyrirhöfn fyrir
! bréfritara okkar og til mikilla
1 þœgindafyrir DB.
\ Lesendur eru jafnframt minntir
á að bréf eiga að vera stutt og
skýr. Áskilinn er fullur réttur til að
stytta bréf og umorða til að spara
rúm og koma efni betur til sk.Ha.
Bréf œttu helzt ekki að vera lengri
en 200—300 orð.
Slmatlmi lesendadálka DB er
milli kL 13 og 15 frá mánudögum
tilföstudaga.
SNOGGUR
Valsari skrifar:
f rúmlega eitt ár hef ég beðið þess
með óþreyju að Valsmenn byrjuðu
að leika heimaleiki sina i 1. deild á
velli sínum að Hlíðarenda. Völlinn er
nú búið að girða af og mér sýnist
ekkert því til fyrirstöðu að þeir geti
leikið þar. Mig minnir að frá því hafi
verið skýrt í blöðum í fyrra, að Vals-
menn ætluðu að leika á heimavelli
sínum í sumar, enda þótt þeir hafi
ekki gert það enn. Hvenær áætla
Valsmenn, að þeir geti tekið völlinn í
notkun, eða er hann ekki ætlaður
fyrir deildakeppnina?
Knattspyrnudeild Vals svarar:
REYNT AÐ VÍGJA
VÖLLINN NÆSTA ÁR
Hjá knattspyrnudeild Vals fékk
DB þær upplýsingar að rétt væri að
til hefði staðið að taka völlinn i
notkun á þessu ári. Af því hefði þó
ekki orðið, en nú ætti að gera skurk í
máli þessu og reyna að ganga frá
vellinum fyrir næsta keppnistímabil.
Að vísu væri smámöguleiki á að
Valsmenn myndu leika á heimavelli
sinum undir lok þessa keppnistíma-
bils, en hann væri hverfandi lítill. Nú
vantar salernisaðstöðu á völlinn og
bílastæði eru ekki fullfrágengin. Þáá
eftir að koma fyrir miðasölu og öðru
í þeim dúr. Valsmenn eiga stóraf-
mæli á næsta ári og væri gaman ef
völlurinn yrði tilbúinn þá.
RASFASTUR
góðra og
Kvartaðyfir Aski:
Auglýsingin átti
sér ekki stoð f
raunveruleikanum
4312—5680 hringdi:
„ Við erum hérna fjórar stöllur sem
vinnum saman en komum hver úri
'sinni áttinni og okkur langar til að’
skora á matsölustaðinn Ask að eyða
minna í auglýsingaskrum, en reyna'
frekar að bæta mat og þjónustu.
Þannig er að i Helgarpóstinum í
dag er stór og litfögur opnuauglýsing
um hamborgara frá Aski. Við
keyptum okkur sllka, en þegar við
vorum komnar með þá heim kom í
Ijós að þeir voru allt öðru visi en i
auglýsingunni. Brauðið var svo lítið
að það datt af borgaranum, en
kjötið var hins vegar þykkara og
meira en maður á að venjast.
Agúrkur voru ekki til og heldur
enginn laukur eða sinnep. Við
fengum þó ost og smá tómat-
sósuslettu. Afgreiðslan var þar að
auki mjögléleg.”
Hver velt nema Valsmenn taki heimavöll sinn f notkun á næsta ári.
Skerum upp herör
gegn áfengisbölinu
Bindlndismaður skrifar:
Nú hafa frændur okkar Norðmenn
ákveðið að skera upp herör gegn
áfengisbölinu. í dagblaði fyrir stuttu
var frá því skýrt að norskir stjórn-
málaflokkar ætluðu að taka höndum
saman og hefja herferð gegn áfengis-
neyzlu í Noregi. Ekki er vafi á því að
áfengisneyzla er eitt mesta þjóðarböl
sem við íslendingar eigum við að
glíma. Ótal afbrot og glæpi má rekja.
beint eða óbeint til hennar og víst er
að við værum betur sett ef æxli þetta
væri skorið burt. Hvernig væri aðvið
fylgdum fordæmi Norðmanna og
allir stjórnmálaflokkar landsins sam-
einuðust um að berjast gegn áfengis-
bölinu? Ég efa ekki að sú herferð
hlyti stuðning allra
raunsærra íslendinga.
Bréfritari vill skera upp herör gegn áfengisbölinu.
Raddir
lesenda