Dagblaðið - 08.07.1980, Side 3

Dagblaðið - 08.07.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980. 3 Sigrún kvartar yfir því að græna Ijósið logi stutt fyrir u'gfarvndur á Ivió yfir Miklubraut. Græna Ijósið logaði stutt Sigrún hringdi: Um daginn var ég á göngu og kom að gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Þar eru umferðarljós og mig langar til að kvarta yfir því hve græna ljósið logar stutt fyrir gangandi vegfarendur á leið yfir Miklubrautina. Ég varð samferða tveimur stúlkum með barnavagn yfir götuna og þótt við hlypum af stað, jafnskjótt og ljósið kom, þá náðum við ekki nema út á eyjuna á miðri götunni. Þar urðum við að bíða unz grænt Ijós kom aftur. Mér finnst þetta anzi hart, því græna Ijósið log- aði miklu lengur hjá bílunum. fyrirtækinu? Páll hringdi: Ég las það i Dagblaðinu í dag (1. júlí) að Albert Guðmundsson ætli að halda áfram störfum sínum „við mitt fyrirtæki og i borgarmálefnum”. Ég man ekki betur en að Aibert hafi full- yrt oftar en einu sinni í kosningabar- áttunni að synir hans hefðu tekið við fyrirtæki hans þegar honum var veitt „högg undir beltisstað”, er hann sat fyrir svörum í sjónvarpi vegna spurn- ingar um hvernig innflytjandi áfengis gætí jafnframt verið framámaður í Samtökum áhugamanna um áfengis- mál (SÁÁ), réttlætti hann tvískinn- unginn einmitt með þvi að synirnir væru teknir við fyrirtækinu. Hvernig getur staðið á þessu mis- ræmi? Ásdis Steingrímsdóttir: Nei, ég hef eng- an áhuga á henni. Thom SUPER-SUGAN SVAR VIÐ DYRTIÐINNI Tveimur Ijóð- línum stolið Pálmi Sleingrimsson hringdi: í DB á miðvikudag var birt kvæði eftir Hjalta Friðgeirsson, sem mér finnst ástæða til að gera athugasemd við. Þar fer Hjalti víða inn í kvæði Þorsteins Erlingssonar, Jörundur hundadagakonungur, og tekur tvær ljóðlínur beint upp úr því. Kvæði Hjalta hefst á þessari vísu: „Loks er nú þessu þrekvirki náð þjóðin gaf Vigdísi svar en þessu var aldrei um Álftanes spáð að ættjörðin frelsaðist þar.” En á bls. 214 í I. riti kvæðasafns Þorsteins Erlingssonar er þessi vísa: „Það njósnaðist bráðum um nes á laun að nú yrði að Jörundi hert og hvarvetna þótti það hamingjuraun og hraustlega ráðið og gert. En skringilegt sýndist þeim skaparans ráð þeir skildu ekki hvernig það var því þessu var aldrei um Álftanes spáð að ættjörðin frelsaðist þar.” Hundar spæna upp garðinn Ingibjörg Bjarnardótlir hringdi: Oft hef ég furðað mig á því að ef einhver kvartar yfir hundum eða köttum fær sá hinn sami óspart að heyra það að hann sé grimmur, haldinn kvalalosta, eða sé hræddur við hunda. En er ekki til í dæminu að þetta fólk hafi rétt fyrir sér og sé eins og fólk er fiest? Hundar flaðra ekki upp um þann sem hænir þá ekki að sér, segir orðskviðurinn. Það kemur mér þó spánskt fyrir sjónir, því þeir flaðra upp um mig, sem er meinilla við þá, þvi að ég hef ofnæmi fyrir hunda- hárum. Undanfarin ár hef ég reynt að sá i matjurtargarð, en hundar og kettir hafa spænt það allt upp. Þetta gengur mér erfiðlega að skilja, því bannað erað hafa hunda lausa. SOGAR NÁIMAST HVAÐ SEM ER MEÐAL ANNARS: VATN. MÖL 0G SAND - HENTUG FYRIR ALLAR GERÐIR AF TEPPUM. BIÐJIÐ UM MYNDALISTA Model 840 POSTSENDUM ASTRA ÁRMÚLA 42 - SÍMI 32030 Fyrír: Jyrírtœki, hót- el, byggingar- verktaka, stofn- anir, verk- stœði og heimili. Forðist gengishrap! VERÐ: 34LÍTRA KR. 154.900.- 43 LÍTRA KR. 176.900.- 51 LÍTRA KR. 220.600, GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Árs ábyrgö Úlfar Pálsson: Nei, það hef ég ckki gert og hef ekki hugsað mér það. Kristin Ólafsdóttir: Ég hef nú ekki fylgzt með henni sérstaklega en heyrl um þetta í útvarpinu. Louisa Svansted: Ég hef ekki fylgzt með henni en hef áhuga á þvi. Fylgist þú með sjóþeysu DB og Snarfara? Voru synir Alberts ekki teknir við Guðmundur Friðvinsson: Já, en það er nú takmarkað. Ég hlustaði á fréttir um hana i útvarpinu i gærkvöldi. Hjálmar Flosason: Nei, ég hef ekki gert það. Það hefur farizt fyrir. Bréfritara verður tiðrætt um tviskinnung Alberts Guðmundssonar. Spurning dagsins

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.