Dagblaðið - 08.07.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980.
5
Sjórall '80:
Flestir önnum kafnir við
viðgerðir í Homafirði
Allar áhaf nir hressar og glaðar og engan bilbug á neinum að finna
Það varð engum, hvorki á Láru né
Spörra, meint af næturvistinni i krik-
anum vestan Ingólfshöfða i fyrrinótt.
Það fór tiltölulega vel um hjónin um
borð í Láru og ungu Grundfirðingana
um borð i Spörra en bátarnir voru
saman í skjólinu þarna skammt undan
ströndinni og biðu bensínsins sem
færabáturinn Vigdís (það nafn er vin-
sælt þessa dagana) færði þeim frá
Höfn.
Bátarnir sigldu síðan svo til samferða
til Hafnar og var fjöldi fólks að taka á
móti þeim erda kaffitimi í frystihúsinu
svo fólk dreif að. Þá var klukkan
10.30. Það var klappað er Lára III
lagði að.
Hugað að vél Láru
Þeir Magnús og Þröstur á Spörra
gengu beini til hvílu en hjónin Bjarni
og Lára fengu sér sturtubað og máls-
verð og tóku síðan að huga að vélinni i
Láru III sem þau höfðu talsverðar
áhyggjuraf.
Skipt var um kveikjulok á vél Láru
og vélin stillt og eftir þá meðferð
malaði hún eins og köttur öllum til
sannrar ánægju.
Óhreinindi
í bensíni
í Ijós kom að einhverra hluta vegna
voru óhreinindi í bensíninu sem þeir á
Spörra fengu í Vestmannaeyjum. Átti
það á einhvern hátt, að mati þeirra tví-
menninga, þátt í þvi að bensinbirgðir
þeirra þraut vestan Ingólfshöfða. Þeir
höfðu siðan ekki bitið úr nálinni að
fullu með óhreinindin í bensíninu þvi
skömmu eftir brottför frá Höfn stöðv-
aðist vélin og fengu þeir aðstoð frá
Gáska til að láta draga Spörra til hafn-
ar. Frá því er nánar sagt i útsiðufrétt í
dag.
Talstöðvarbilun
Auk vélartruflananna sem fram
komu í vél Láru III gaf hljóðnemi tal-
stöðvar bátsins sig. Án þess tækis hefði
Lára sennilega ekki haldið áfram. En
Þeir gela haft hendur I viisum þegar Inga er bundin í hiifn. þeir Bjarni Sveinssnn ng
Óli Skagvik. En þegar rásmerki hefur verið gefið eru hendur þeirra á nðrum stnðum
ng hvergi gefið eftir. Fnrystunni hafa þeir haldið frá byrjun.
ey fékk hann nllu erfiðara hlutverk. Þá knm netadræsa i skrúfuna ng F.inar fðr gall-
aður i sjóinn ng sargaði netið úr skrúfunni með járnsng. Það er ekki nfsngum sagt af
þvi að F.inar er hnrkutnl.
80
m
Þeir sem koma að hjónunum l.áru Magnúsdóttur og Bjarna Björgvinssyni við hát þeirra mæta aldrei nema brosi. Við hátinn
kunna þau sýnilega be/t við sig og fátt fær truflað þau.
DB-myndir RagnarTh.
þegar neyðin var stærst var hjálpin
næst. Á vettvang kom Svanur Aðal-
steinsson, FR-maðurinn með kallmerk-
ið 1412, sá er verið hafði næturlangt á
FR-vaktinni i fjallshlíð ofan Hnappa-
valla. Hann hafði fá umsvif en léði
hjónunum Bjarna og Láru hljóðnema
sinnar talstöðvar og hjónin héldu glöð
og ánægð í næsta áfanga — sem liggur
eiginlega til núverandi heimabyggðar
þeirra, Eskifjarðar.
Ekki þarf að því að spyrja að áhafnir
bátanna þriggja, sem komu til Hafnar
frá miðnætti til kl. 2 I fyrrinótt, voru
orðnar hressar þegar i gærmorgun.
Nokkur tími fór enn í viðgerðir, m.a.
hjá þeim forystugörpunum Bjarna
Sveinssyni og Óla Skagvík, en hjá þeim
brotnaði radarspegill og kompás bilaði
eins og sagt var frá í blaðinu í gær.
Kvaddir með virktum
Aftur var létt yftr mannskapnum á
Höfn er bátarnir voru ræstir í næsta
legg kl. 16.02 i nær FR menn voru
komnir á sinn stað að venju. Ragnar
Imsland, stjórnandi FR-svæðisins
umhverfis Höfn, var kominn út á
Hvalsnes til að fylgjast með bátunum
og bera boð til næstu síöðvar á Djúpa-
vogi.
- ASt. / JR, Höfn.
DB-menn elta sjórallskappana bæði á bil og flugvél. Hér er Finnur Torfi fyrrum al-
þingismaður I dyrum flugvélar sinnar en hann flytur Ásgeir l.ong kvikmyndatöku-
mann vitt um landið til myndatöku af rallinu. Ragnar Th. Sig. (t.v.) fær að fljóta með
svo DB-lesendur fái góðar myndir snarlega frá keppninni.
■
Bianm, <
Hér er yngsta áhöfn Sjóralls '80, þeir Magnús Snffaniasson ng Þröstur l.índal á Spörra.