Dagblaðið - 08.07.1980, Side 6

Dagblaðið - 08.07.1980, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980. Erlendar fréttir Seoul: Ungfrúalheimur frá Bandaríkjunum Shawn Weatherly 20 ára gömul fegurðardrottning Bandaríkjanna var kjörin ungfrú alheimur í Seoul í Suður- Kóreu í gærkvöldi. önnur í röðinni varð ungfrú Skotland og I þriðja sæti stúlka frá Nýja Sjálandi. Fjórða varð ungfrú Filippseyjar og Evar Anderson 20 ára ungfrú Svíþjóð varð í fimmta sæti. Japan: Skip með eiturefni sökk eftir árekstur —flutti „nitrous soda” í nægilegu magni til að verða 37 mill jónum að fjörtjóni Japanskt flutningaskip, sem flutti sjötíu og fimm tonn af efninu nitrous soda en það er að sögn nægilegt magn til að valda þrjátíu og sjö milljónum manna fjörtjóni, sökk undan borginni Kobe í Japan í morgun. Varö þetta eftir árekstur við annað japanskt skip en mikil þoka var á þessum slóðum þegar slysið varð. Japönsk yftrvöld sögðu i morgun að vonir stæðu þó til að efnið sem flutningaskipið flutti yrði skaðlaust, þegar það kæmist í samband við sjóinn. Nitrous soda er notað sem hráefni til að búa til ljósmynda- pappír. Skipið sem eiturefnið flutti hét Kimpuku Maru og var 159 tonn að stærð. Áhöfninni, tveim mönnum, var bjargað upp í hitt skipið, tæplega fimm hundruð tonna flutningaskip, sem aðeins varð fyrir óverulegum skemmdum við áreksturinn. Þetta er í annað sinn á tæpum sólarhring sem eiturefni fer i hafið á svipuðum slóðum við strendur Japans. í gær fóru tugir þúsunda lítra af mjög eldfimum efnavökva, parazylene, í hafið eftir árekstur japansks og suður-kóreansks skips. Hann varð einnig vegna mikillar þotu. Að sögn yfirvalda kom í ljós að efnin, sem ætluðeru til vefjariðnaðar og filmugerðar, höfðu blandazt sjón- um og voru orðin óskaðleg. Tel Aviv: Andersonræð- irviðleið- toga gyðinga John Anderson fulltrúadeildarþing- maður frá Illinois í Bandaríkjunum kemur til Tel Aviv i dag. Þar hyggst hann dvelja næstu þrjá daga til að ræða við forustumenn ísraels þar. Anderson er þriðji frambjóðandinn í komandi forsetakosningum í Banda- ríkjunum og býður sig fram sem óháður frambjóðandi utanflokka. Samkvæmt síðustu könnunum vestra nýtur Anderson fylgis 21 af hundraði kjósenda. Carter Bandaríkja- forseti, frambjóðandi demókrata, er talinn hafa fylgi 31% kjósenda en Ronald Reagan fyrrum ríkisstjóri í Kaliforníu og frambjóðandi repúblikana er talinn njóta fylgis 39% kjósenda. Erindi Andersons til ísraels er að reyna að tryggja sér fylgi bandarískra gyðinga í forsetakosningunum. Gyðingar i Bandaríkjunum eru fjölmennur og áhrifamikill hópur þar í kosningum. Þykja þeir hafa lag á að beina fylgi sins fólks inn á þær brautir sem óskað er, auk þess sem gyðingar vestra mæta vel á kjörstað. ísraelsmenn vilja margir nota tækifærið og krefja Bandaríkjamenn um aukna aðstoð og stuðning fyrir for- setakosningarnar vestra en allir fram- bjóðendurnir þrír leita nú eftir stuðningi leiðtoga gyðinga. Spánn: Sprengjuhót- un á bflferju Franskri bílferju var snúið aftur til hafnarinnar I Santander á Norður- Spáni í morgun eftir að óþekktur aðili hafði tilkynnt símleiðis um að sprengja væri um borð. Átti hún að sögn mannsins að springa klukkan fjögur i morgun. Um borð í ferjunni voru nokkrir flutningabílar, bifreiðarstjórar þeirra og áhöfnin, samtals fjörutíu manns. Ferðinni var heitið til Plymoth á Englandi. Texas: 180 hafa látizt í hitabyigjunni Nærri því eitt hundrað og áttatiu manns hafa látizt af völdum hitabylgju sem gengur yfir Texas í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hefur hitinn verið rúmlega fjörutíu stig á Celsíus þar undanfarnar vikur. Að sögn verðurfræðinga bendir ekkert til þess að breyting verði á veðri á þessum slóðum næstu vikurnar og óttast margir að hitabylgjan muni liggja yfir Texas og nær- liggjandi landsvæðum fram í ágústmánuð. Tjón hefur orðið á uppskeru og búsmala af völdunt hitans. Spáð er kaldara veðri en venjulega í Texas þegar kemur fram í september. Þegar ferjan kom aftur til Santand- er var henni lagt við festar á ytri höfninni og spænskir sprengjusér- fræöingar komu um borð og hófu leit aðsprengjum. Ekki var vitaö í morgun hvort hér væru á ferðinni hefndarverkamenn ETA hreyfingar Baska. Ef svo væri hafa þeir tekið upp nýjar baráttu- aðferðir. Áður hafa þeir eingöngu sprengt sprengjur sínar á ferðamanna- stöðum og hafa þær verið sex nú siöustu tvær vikurnar. Mikið er um ferjur, sem ganga frá Norður-Spáni og þá ýmist til Frakklands, írlands, eða suðurhluta Englands. Eru þær notaðar bæði af þúsundum ferðamanna sem fara með bifreiðir sinar og einnig af ökumönnum stórra flutningabifreiða. Bandaríkin: 24 kjarnorkustöðv- arprófi öryggiskerfi Stjórnendur tuttugu og fjögurra kjarnorkustöðva í Bandaríkjunum, sem nota kjarnaofna, kælda með vatnskerfi, hafa fengið fyrirskipun um að kanna öryggiskerfi sín. Er þetta gert vegna bilunar á sams konar kerfi i orkuveri í Alabamafylki í síðasta mánuði. Talsmaður þeirrar stofnunar sem á að hafa eftirlit með kjarnorkustöðvum vestra sagði að gera ætti.kannanir þess- ar á öryggiskerfunum á næstu vikum. Orkuver sem stöðvað hefðu starfsemi sina þyrftu að kanna kerfin áður en orkuvinnsla hæfist aftur. VERKALYÐSFORINGl I ERFIÐLEIKUM. Oánxgðir verkamenn i Milanó á Italiu létu bæði hendur og fxtur skipta, þegar þeir náðu tali af Giorgio Benvenuto einum af þarlcndum verkalýðsleiðtogum á dögunum. Þótti verkamönnunum leiðtoginn ekki hafa verið nægilega skeleggur I fjögurra klukkustunda skyndiverkfalli þar á dögunum. Verkfallið var boðað til að mótmxla öllum hugmyndum stjórnvalda I þá átt að draga úr verðbótum á laun I væntanlegum aðgerðum til að hemja verðbólguna. Konur kauplausar ef þær bera ekki andlitsblæjur tíu daga frestur sem Khomeiní gaf konum f opinberri þjónustu liðinn Konur í Iran sem vinna í opinberri þjónustu þurfa hér eftir að velja á milli þess að ganga í viðurkenndum klæðnaði eða fá laun sin ekki greidd. Viðurkenndur klæðnaður í fran er hér eftir að fyrirskipan Khomeinís trúarleiðtoga, víðar skikkjur, sem hylja alla lögun líkamans og algjört skilyrði er að konurnar hylji andlit sín meðblæju. Búizt er við því að langflestar konur í opinberum störfum muni fylgja fyrirskipun trúarleiðtogans. Sumar vegna þess að þær telja slíkt eðlilegan búning og aðrar eru skipuninni mótfallnar, en telja sig ekki eiga annars úrkosti. f morgun rann út sá frestur sem Khomeiní hafði sett þar til öllum siðum og venjum, sem teknar höfðu verið upp á tímum keisarans skyldi útrýmt af stjórnarskrifstofum og öðrum opinberum stofnunum. Er þá einnig átt við að öll opinber merki á skjölum frá tímum keisarans skuli af- máð. Tilkynnt var í gær að verið væri að útbúa staðlaðan klæðnað fyrir þær konur sem væru i þjónustu opinberra aðila. Af því gætu konurnar séð hvernig æskilegast væri að þær klæddust við störf sín. Um það bil tvö þúsund konur, bæði i opinberri þjónustu og aðrar, söfnuðust á laugardaginn saman fyrir framan skrifstofur Bani Sadr for- sætisráöherra írans í Teheran og mótmæltu hinum nýju reglum um klæðnað kvenna. Dagblöð sem eru gefin út af tryggum stuðnings- mönnum Khomeinís réðust harðlega að konum þessum og birtu af þeim myndir með ýmsum grófum athuga- semdum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.