Dagblaðið - 08.07.1980, Side 10

Dagblaðið - 08.07.1980, Side 10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980. PMUBW frfáJst, úháð dagUað hf. Wc Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. c Haukur Holgason. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. ir Jóhannes Reykdal. r Sknonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. i. Hönnun: Hilmar Karisson. Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Dóra Stofánsdóttir, Elin Albortsdóttir, Ema V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, ÓMur Gairsson. Sigurður Sverrisson. Ljosmyndr Ami Pál Jóhannsson, Bjamlerfur Bjarnlorfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son. Svainw Þormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieif sson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreif ing- arstjóri: Már E.M. HaHdórsson. b 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. ser 27022 (10 linur). Hálfgildings hugljómun Skyndileg kúvending ríkisstjórnar- .jfS innar úr kvótakerfi landb'únaðar í fóðurbætisskatt felur í sér hugljómun, sem vonandi verður fordæmi víðtækari aðgerða, ekki aðeins í landbúnaði, heldur á ýmsum öðrum sviðum offram- leiðslu. Kvótakerfið var eins konar rýtingur í bak bænda. Áratugum saman höfðu þeir verið hvattir til sem mestrar framleiðslu. Til þess var beitt miklu kerfi styrkja og lána, samhliða sjálfvirkum niðurgreiðslum og útflutningsuppbótum. Að vísu var þetta offramleiðslukerfi byggt upp að kröfu samtaka landbúnaðarins.' Eigi að síður er ósið- legt að neita skyndilega að borga nema smámuni fyrir hluta af framleiðslu bænda, þegar greiðslugeta ríkis- sjóðs þverr. Ríkisvaldið ber ábyrgð á offramleiðslukerfi land- búnaðarins. Allir stjórnmálafl^kkar hafa staðið að vexti þess og viðgangi. Þess végna bera þessir aðilar töluverða ábyrgð á, hvernig komið er fyrir bændum um þessar mundir. Sumir bændur, bæði frumbýlingar og aðrir, hafa staðið í miklum framkvæmdum í skjóli styrkja- og lánakerfisins. Ef kvótakerfi kemur síðan og minnkar framleiðslu þeirra og tekjur, er hætt við, að þeir hengist í vöxtum og afborgunum. Auðvitað er þjóðinni lífsnauðsyn aðdragasem mest úr landbúnaði og miklu meira en nokkrum stjórnmála- flokki hefur enn dottið í hug. En það má ekki gera það með tilfinningasljóum aðferðum, sem valda persónu- legum harmleikjum. Kvótakerfið fór aftan að hlutunum. Með því var byrjað á endanum. Hinn nýi fóðurbætisskattur er hins vegar ein af mörgum leiðum, þar sem byrjað er á byrjuninni, komið framan að hlutunum. Því ber að fagna sinnaskiptunum. Fóðurbætisskatturinn er spor í rétta átt, þótt hann varði eingöngu mjólkurvöru. Hann veldur því, að bændur hugsa sig um tvisvar fyrr en þeir mundu hafa gert í kvótakerfi. Þeir reisa sér síður hurðarás um öxl. Samt verður hann framkvæmdabændum þungur í skauti. Enn betra hefði verið að leita alveg til upphafsins, hinnar óhóflegu fjárfestingar í landbúnaði. Það,sem raunverulega á að skera niður, er hið fullkomlega sjálfvirka kerfi styrkja og lána til framkvæmda. Hugljómun ríkisstjórnarinnar náði aðeins til fóður- bætisskattsins* enda er auðvelt að skilja hann og fylgja hugsuninni á leiðarenda. Hann hefur snögg áhrif og aflar fimm milljarða króna í útflutningsuppbætur. Niðurskurður styrkja og Iána til framkvæmda í landbúnaði er hins vegar aðferð, sem er hægfara í fyrstu. Til langs tíma er það þó mun öflugra tæki gegn offramleiðslunni. Og sú leið frelsar ekki síður milljarða. Sterklega kæmi til greina að beita í senn fóðurbætis- skatti og niðurskurði styrkja og lána. Með því mætti spara nægilegt fé til að gera leifar kvótakerfisins alveg óþarfar. Sú leið er í senn mannleg og hagkvæm. Auðvitað er ekki hægt að ætlast til, að stjórnmála- menn sjái allt ljósið í einu, enda hefur því aðeins verið haldið á lofti í áratug. Og þeir virðast hafa hug á að klúðra málinu, t.d. með því að láta skattinn leiða til hækkunar verðs á eggjum, svínakjöti og kjúklingum. Og svo væri einkar gott fyrir þjóðina, ef eitthvað af þessari hugljómun skini inn til hinna, sem ráða sjávar- útvegi og eru sannfærðir um,að sem flóknast kvóta- kerfi sé skárra en sala veiðileyfa. r y ......— Ólympíuleikarnir í Moskvu: Langur og strang- ur vegur fyrir ferðamennina — urmull lögreglumanna umhverf is gistihúsin Ólympíuleikarnir í Moskvu hefjast innan skamms þrátt fyrir að margar þjóðir heims hafi tekið þá á- kvörðun að senda ekki íþróttamenn sína þangað vegna innrásar Sovét- manna í Afganistan. Sovétmenn vilja auðvitað gjarnan koma vel fyrir í augum þeirra erlendu manna sem sækja landið heim vegna ólympíuleikanna. Misjöfnum sögum fer þó af því hvernig til hafi tekizt í þeim efnum hingað til. Fréttamaður frá brezka blaðinu The Guardian var á ferð í Moskvu fyrir nokkru og varð litt hrifinn. Auðvitað er ekki komin nein allsherjar reynsla á hvernig Sovétmönnum muni takast móttaka þess mikla fjölda gesta, sem þangað eru væntanlegir. Það verður ekki fyrr en að loknum ólympíuleikunum. Fréttamaður The Guardian segir að margt sé það sem setji ferðamann sem komi í heimsókn til Moskvu úr sambandi. Tekur hann dæmi um það þegar komið sé í nýja flughöfn sem byggð var með aðstoð Vestur-Þjóð- verja. Þar morar að sögn allt i öryggisaðgerðum, sem sumar hverjar virki hreint og beint fáránlegar. Flug- stöðin var opnuð fyrir aðeins tæpum mánuði. Þegar loksins hafi tekizt að komast í gegnum tolleftirlitið sé ferðamanninum skipað að setja far- angur sinn í gegnumlýsingartæki. Þau eru vestur-þýzk eins og flest tæki önnurí flugstöðinni. Tollverðirnir spurðu frétta- manninn hvort hann hefði erlend blöð meðferðis. Þau voru síðan skoðuðogflett í gegnum þau. Síðan fékkst ieyfi til að halda áfram. Þá var eftir að finna afgreiðslu þar sem hægt væri að skipta peningum. Vegvísar benda á leiðir til síma og snyrtiherbergja í flug- stöðinni en engir vísa á banka. — Ég spurðist fyrir um banka hjá Intourist sovézku ríkisferðaskrifstofunni, segir fréttamaðurinn. Uppi á næstu hæð svaraði afgreiðslustúlkan. Ég rogaðist með töskur mínar upp á næstu hæð og fann bankaafgreiðslu þar sem þrjár manneskjur sátu og spjölluðu saman í rólegheitum. í af- greiðslunni hékk hins vegar skilti þar sem stóð að væri lokað. Mér var bent á annan banka, sem var í um það bil fimmtíu metra fjarlægð. Þar var hins vegar aðeins hægt að skipta rúblum í erlendan gjaldeyri en ekki öfugt. Til allrar hamingju kom vingjarn- legur skrifstofumaður mér til hjálpar og gekk með mér niður á næstu hæð og vísaði mér á bankaafgreiðslu þar sem ég gat gengið frá mínum málum. Sú afgreiðsla var aðeins fáein skref frá Intourist skrifstofunni þar sem ég hafði verið skömmu áður. Siðan var haldið inn í Moskvu- Skrefatalning innanbæjarsímtala: Hvemig varð ákvörðunin til? Sú ákvörðun fyrrverandi sam- gönguráðherra, Ragnars Arnalds, að heimila kaup á tækjum til að mæla lengd innanbæjarsímtala í Reykja- vík, hefur verið mjög umdeild og ekki að ástæðulausu. t fyrsta lagi virðist hafa verið staðið einkennilega að ákvörðunartökunni og í öðru lagi eru forsendur ákvörðunarinnar væg- ast sagt hæpnar. Á tímum aukins umferðarþunga á götum höfuðborgarinnar, sívaxandi örðugleika við að gera næg bílastæði og stöðugt vaxandi orkukreppu, ber að stuðia að aukinni notkun fjar- skiptabúnaðar, svo sem síma, meðal annars til að minnka umferðina. Skrefatalning innanbæjarsímtala verkar þveröfugt og er aðgerð, sem vinnur gegn eðlilegri þróun i notkun síma. Simanum hefur verið komið upp til að nota hann og ber að stuðla að aukinni notkun hans en ekki minnkandi, að minnsta kosti á meðan símstöðvarnar eru langt frá því að vera oflestaðar. Athyglisvert er að íhuga, að í ummælum póst- og símamálastjóra hefur því aldrei verið haldið fram, að skrefatalningar væri þörf vegna oflestunar símstöðva. Ljóst er, að skrefatalning mundi fyrst og fremst bitna á þeim, sem eiga ekki heimangengt, þ.e. öldruðum, sjúkum og hreyfifötluðum. Þegar á þetta hafði verið bent, m.a. i fjöl- miðlum, var dregið nokkuð í land og er talað um að hafa talninguna ekki á kvöldin. I þessari ákvörðun felst að vísu viðurkenning á því, að skrefa- Kjallarinn GísliJónsson talning bitnar fyrst og fremst á þeim, sem eiga ekki heimangengt. Fyrir- huguð lausn er þó takmörkuð, því það er einmitt um miðjan daginn, sem einveran er erfiðust, það er þegar fjölskyldan er fjarverandi í vinnu eða skóla og ekkert sjónvarp. Hvernig varö ákvörðunin til? í viðtölum, sem birst hafa í dag- blöðum og útvarpi, hefur póst- og símamálastjóri hamrað á því, að ákvörðun um fyrirhugaða skrefataln- ingu sé að finna i þingsályktun, sem samþykkt var á Alþingi 28. mars 1974. Þingsályktun þessi hljóðaði svo: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að haga endurskoðun gjaldskrár landssímans þannig, að sem fyrst verði náð sem mestum jöfn- uði með landsmönnum í kostnaði við notkun símans og dreifbýli og höfuð- borgarsvæðið beri hlutfallslega sömu byrði hinna sameiginlegu heildar- símaútgjalda”. Það þarf meira en lilið hugmynda- flug til að finna út úr þingsályktun þessari þann vilja Alþingis, að koma á skrefatalningu á höfuðborgarsvæð- inu. Vilji Alþingis og hugmyndir að lausn á jöfnun símgjalda milli dreif- býlis og þéttbýlis kom hins vegar skýrt fram í umræðum um frumvarp að núgildandi lögum nr. 36 um stjóm og starfrækslu póst- og símamála, sem staðfest voru þremur árum eftir að fyrrgreind þingsályktun var sam- þykkt, eða nánar tiltekið 13. maí 1977. j 11. gr. þessara laga segir m.a.: „Stefnt verði aðþví við gjaldskrár- gerð, að sömu gjöld gildi innan hvers svæðisnúmers, ug skal ákveðið i reglugerð, hvenær framkvæmd þessa ákvæðis kemst á. Ráðherra er heimilt að ákveða, að sama gjald skuli krafið fyrir simtai við helstu stjórnsýslustofnanir ríkis- V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.