Dagblaðið - 08.07.1980, Side 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1980.
13
D
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
jjLLLl/.
Aiftaki Dwyer lík-
ast til svertingi
í gærkvöld kom hingað til lands
körfuknattleikskappinn Roy John og
mun hann ræða við Valsmenn um
hugsanlega veru hans hér I vetur. Tim
Dwyer, sem hefur verið með Vals-
'mönnum sl. 2 ár mun næsta vetur
leika I Frakklandi með 2. deildarliðinu
Toulouse og þvi hafa Valsmenn leitað &
aðrar slóðir.
| Roy þessiJohn errúmir tveir metrar á
hæð og hefur það helzt til síns ágætis
að hafa leikið í NBA deildinni og það
hefur enginn þeirra kappa er hér hafa
dvalið afrekað. Lék hann m eð Golden
iState-liðinu við góðan orðstír.
Kappinn fór á létta æfingu hjá Vals-
mönnum i félagsheimilinu að Hlíðar-
enda í gærkvöld og var ekki annað að
sjá en þar færi lipur leikmaður. Hins
vegar hafa ferðalög og takmarkaðar
æfingar það í för með sér að hann er í
lítilli þjálfun. Það er þó atriði sem
kippa má í liðinn á skammri stundu.
Að því er DB hefur fregnað eru allar
líkur á að Valsmenn semji við John
innan skamms og hafa þá tvö úrvals-
,deildarfélög gengið frá leikmannaráðn-
lingum fyrir veturinn. Njarðvíkingar
jhafa tekið stefnuna á langþráðan titil
|með ráðningu Danny Shouse. Ekki
'hefur frétzt af högum annarra úrvals-
|deildarfélaga.
-emm/ SSv.
Wilkins þeytti krínglu
tæpa 70 m í gærkvöld
Mac Wilkins þeytti kringlunni 69,46
metra á frjálsíþróttamóti i Stokkhólmi
í gærkvöld. Hann sigraði með tals-
verðum yfirburðum en næstur á eftir
honum varð Luis Delis frá Kúbu með
68,04 metra. John Powell kastaði
65,98 metra og Juan Brito frá Kúbu
kastaði 65,48.
í 400 metra grindahlaupi sigraði
Edwin Moses á 49 sekúndum sléttum
en James King, landi hans, varð annar
á 50,05 sek. Þriðji varð Sviinn Christer
Gullstrand á 50,06 svo ekki hefur þar
munað miklu. John Akii Bua frá
Uganda varð fjórði á 50,63 sek.
Stanley Floyd frá Bandaríkjunum
vann 100 metrana á 10,28 sek. og skaut
m.a. Silvio Lconard aftur fyrir sig. í
miluhlaupinu sigraði Steve Scott frá
jBandarikjunum á 3:53,59 min. en
John Waiker frá Nýja-Sjálandi varð
annar á 3:53,68 sek. Steve Lacy frá
Bandaríkjunum varð þriðji með
tímann 3:54,84 mín.
Don Paige frá Bandaríkjunum vann
800 metrana á 1:45,0 og V-Þjóðverjinn
Harald Schmid varð annará 1:45,5.
lus Marteinsson liggur á jörðinni og hefur misst
hér að ofan hefur Jón Oddsson (sést ekki á
1 fagna. DB-myndir: Bjarnleifur.
istund
Lvöld!
HRAÐBATA
EIGENDUR - ÁHUGAMENN
LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT
fa galopnað 1. deildina
sér upp kantinn og gaf fasta þversendingu
fyrir á móts við vítateig. Sverrir Herbertsson
stökk yfir knöttinn og ruglaði vörn Fram í
ríminu. Elías kom þar aðvífandi og skoraði
gullfallegt mark af vítateigslínu. Það sem
meira var var að markið skoraði hann með
hægri fæti en hann er örvfættur.
Punktinn yFtr i-ið settu KR-ingar eða öliu
heldur Sverrir Herbertsson á 83. min. Júlíus
ætlaði þá að spyrna frá marki og skoppaði
knettinum niður. Sverrir var þarna vel vak-
and og krækti knettinum frá Júliusi. Sendi
síðan hnitmiðaða sendingu yftr hann og í
fjærhornið, 4—1.
Framarar áttu ekkert svar við þessum
sýningarmörkum KR-inga og leiktíminn leið
því út án þess aö verulega hætta skapaöist
við mörkin. KR-ingar fögnuðu að vonum
innilega í leikslok. Það skyldi þó aldrei fara
svo að Framliðið hryndi eins og eftir tapið
gegn KR í fyrra? Þessum tveimur leikjum má
á margan hátt likja saman. Framar voru þá í
fyrra taplausir eftir 8 leiki en KR-ingar sigr-
uðu 3—2. í kjölfarið fylgdu þrír ósigrar i röð
hjá Fram og allar titilvonir fóru út um þúfur.
KR-ingar héldu hins vegar sínu striki og
gerðu það gott. Fram til leiksins í gær voru
Framarar ósigraðir en fengu svo skell.
Gaman vtrður að sjá hvort sagan endurtekur
sig en Fram á erfiðan leik gegn Breiðabliki í
Kópavogi i næstu umferð.
Elías Guðmundsson, Sigurður Pétursson
og Jón Oddsson voru beztu menn KR í gær-
kvöld. Þá áttu Ottó Guðmundsson og
Sæbjörn góðan leik á meðan hans naut við.
Aðall liðsins var baráttan ogeftir að KR náði
forystu sýndi liðið oft á tiðum mjög góða
knattspyrnu — einhverja þá beztu er boðið
hefur verið upp á í sumar. Samleikur hefur
aukizt með tilkomu leikmanna á borð við
Elías, Hálfdán, Sæbjörn, Ágúst o.fl. og Jón
Oddsson er í mikilli framför. Eldfljótur sem
fyrr en hefur nú margfalt betri knatttækni en
áður.
Hjá Fram var fátt um fína drætti. Trausti
var langbeztur og Marteinn var traustur að
vanda. Kristinn Jör. var beztur miðjumann-
anna og Gunnar Bjarnason lék ágætlega
framan af. Pétur Ormslev og Guðmundur
Steinsson sáust vart.
Dómari var Arnþór Óskarsson og hafði
ekki nógu góð tök á leiknum. Bezta dæmið
um það var er hann sleppti Marteini Geirs-
syni við gult spjald fyrir ásetningsbrot á
Ágústi Jónssyni og þaðaftan frá. -SSv.
CATERPILLAR
CATERPILLAR 3208na 150hö 2400 sn mín
3208t 260hö 2800snmín
VIÐGERÐIR OG VARAHLUTAÞJÓNUSTA
HEKLA hf
Caterpillar. Cot.og ffl e<u ikrovett vorumerki
Laugavegi 170-172, — Simi 21240