Dagblaðið - 08.07.1980, Page 24

Dagblaðið - 08.07.1980, Page 24
Tillögur sjömannanefndar BSRB: LÆGSTU LAUN HÆKKI UM 61-84 ÞÚSUND KR. —9-20% launahækkun auk kröf u um ýmsar félagslegar umbætur Kauphækkun frá 9—20% er nú krafa BSRB í samningaviðræðunum við ríkið. Sjö manna undirnefnd samninganefndarinnar vann að samningi tillagna um helgina og í þeim felst- m.a. að 1 .-10. launa- flokkur eigi að hækka um 20%, sem er 61 þús. kr. í 1. fl., 72 þús. kr. í 5. fl. og 84 þús. króna launahækkun i 10. launaflokki. Launahækkunin í 32. flokki (hæsta flokki) yrði 9% eða 72 þús. kr. Þessi tillaga var lögð fyrir samninganefnd BSRB seinnipartinn í gær og varö ekki útrædd. Mun samninganefndin halda áfram um- ræðum um tillögur sjö- mannanefndarinnar eftir hádegið, fyrir sáttafund, sem boðaður hefur verið með BSRB og ríkinu klukkan fjögur i dag. Má reikna fastlega með því að tillögur sjömannanefnd- arinnar verði samþykktar og BSRB verði tilbúið með gagntilboð fyrir sáttafundídag. Mun í gagntilboðinu auk fyrr- nefndra kaupkrafna felast krafa um ýmsar félagsmálakröfur sem fram hafa verið settar. Úr fyrstu kröfugerð BSRB hafa hins vegar verið strikaðar út holt og bolt ýmsar smærri almennar kröfur, s.s. krafa um aukið orlof. Krafan um vísitölubætur á laun er með öllu óbreytt, enn stendur krafan um hlutfallslegar vísitölubætur á alla launaflokka, þ.e. sama prósentuhækkun í öllum flokkum. -BH. frýálst, óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1980. Verðbólgu- hraðinn er nú 50 prósent — gætivaxið íhaust Verðbólgan þeysir um þessar mundir áfram með 50 prósent hraða á árs- grundvelli, að sögn eins sérfræðinga kerfísins í gær. Heldur hefur dregið úr hraðanum síðustu vikurnar. Hins vegar gæti svo farið að hraði verðbólgunnar ykist enn á hausti komanda. Sérfræðingurinn telur nú stefna í að verðhækkanir fyrir yfirstandandi þriggja mánaða tímabil, frá 1. maí til 1. ágúst verði 10—11 prósent. Verði sam- kvæmt því greiddar fullar verðbætur 1. september, ntundi stefna i 11 —12 prósent verðhækkanir á næsta 3ja mánaða timabili þar á eftir. -HH. Stigin í Sjóralli'80: Inga eykur forskotiö — litlu bátamir jafnir Keppnisstjórn Sjóralls '80 gaf í gær- kvöldi út formlega tilkynningu um stigastöðu bátanna í rallinu. Stigatalan var ranglega skýrð i DB í gær, því þar var gert ráð fyrir að leiðin Reykjavík — Eyjar væri einn keppnisleggur, en keppnisstjórn reiknar stig á leiðinni Reykjavík — Grindavík og önnur stig frá Grindavík til Eyja. Staðan í stærri bátaflokknum er því þannig, er til Neskaupstaðar var komið: IngaOó 40 st'S Gustur 02 26 stig Lára03 22 stig í minni flokknum eru Gáski og Spörri jafnir að stigum með 34 stig hvorbátur. -A.St. McC.rah og frú, J'rú Hillary öy Jr. Ilillary forseti írlands. DariA Scherintt Thosteinsson aúalkonsúll trlands ó Islandi o/> sonur DariAs, Maf-nús Thorsteinsson. riA komu forseta trlands til heimilis DarlAs I gœr. DB-mvnd: Sr. Þorm. Hillary írlandsforseti rennir fyrír lax hér „Forseti íslands, dr. Kristján Eldjám frétti af því af algjörri tilviljun að forseti frlands, Patric J. Hillary, væri að koma til landsins, í gærmorgun til þess að veiða hér lax í Laxá í Kjós. Hann bauð honum þegar í stað til há- degisverðar að Bessastöðum, sem var mér sérstakt ánægjuefni,” sagöi Davíð Scheving Thorsteinsson aðalkonsúll írlands á íslandi. Forseti írlands dvelur hér með konu sinni og einkavini McGrah og frú í vikutíma. Hillary varð forseti írlands árið 1976. Hann hefur aldrei komið hér áður, en McGrah er mikill laxveiði- maður og hefur oft komið hér og rennt fyrir lax í Laxá í Kjós, Norðurá og víðar. -EVI. Hringdiískakkt slökkvilið Hringt var í slökkvilið Reykjavíkur í gærkvöldi ki. 20.50 og tilkynnt um eld í bensíni að Lækjargötu 12 b. Slökkvi- liðið fór þegar á staðinn, en þar reynd- ist ekkert vera um að vera. Þegar betur var að gáð kom í ljós að tilkynningin kom frá Lækjargötu 12 b í Hafnarfirði en ekki í Reykjavík. Þar hafði kviknað í skellinörðu. Lögreglan í Hafnarfirði kom á staðinn og reyndist eldurinn vera smávægilegur. Varðstjóri hjá slökkviliðinu sagði í morgun að sem betur fer kæmi ekki oft fyrir að menn hringdu í skakkt slökkvilið en þó væru dæmi þess. -JH. Vestmannaeyjar: Ókuásteinvegg ogstórslösuðust Cortinabíl var ekið á mikilli ferð á steinvegg í Vestmanifaeyjum á sunnudagskvöld með þeim afleiðingum að tveir ungir menn slösuðust mikið. Slysið varð kl. 22.40 um kvöldið á mótum Hlíðarvegar og Illugagötu. Bíllinn kom á mikilli ferð í beygju og ók á horn á steinvegg. Mennirnir voru fluttir stórslasaðir á sjúkrahúsið i Eyjum, mikið brotnir. Þeir eru um tvítugt. Bíllinn er gerónýtur. Grunur leikur á að ölvun hafi verið í spilinu.JH. ÍURKUDAGAR:! 8.JÚLÍ 29839 Henson æfingargalli. Vinningshafar hríngi fsfma 33622. ' Skrefamæling símtala: Samþykktu þingmenn kaupin óafvitandi? —íf járlögum voru þau kölluð „Karlsonsbúnaður” Ýmislegt þykir nú benda til þess að sumir aiþingismanna, m.a. nefndar- menn í fjárveitinganefnd hafi ekki gert sér grein fyrir því að þeir voru að samþykkja kaup á skrefamælinga- tækjum fyrir Reykjavíkursvæðið er þeir afgreiddu siðustu fjárlög. Þá hefur og komið í ljós að ráðherra gaf á eigin spýtur heimild til kaupa á skrefamælingatækjunum fyrir 100 milljónir mörgum mánuðum áður en Alþingi veitti fé til kaupanna. Frá þessu skýrir Gisli Jónsson prófessor i kjallaragrein í DB í dag. Hann telur nokkuð ljóst að fjár- veitinganefnd hafi að minnsta kosti ekki verið gerð grein fyrir að með ein- faldri gjaldskrárbreytingu, sem kostaði aðeins brot af þvi sem tækja- búnaður til skrefatalningar á Reykja- víkursvæðinu kostar, hefði verið hægt að ná sama árangri fyrir Póst- og símamálastofnunina. Gísli fjallar um heimild þá sem ráðherra gaf til kaupa skrefa- talningartækjanna en sú heimild hans er dagsett 1. marz 1979. Það var svo ekki fyrr en á síðustu fjárlögum, sem afgreidd voru í febrúar sl., sem veitt var fjárhagsheimild til kaupanna. Og prófessor Gísli spyr: Hvað hefði gerzt ef alþingi hefði synjað um fjármagn til kaupa tækjanna. Og Gísli telur að einhverjir þing- menn hafi flotið sofandi að feigðar- ósi því í umræðum fjárveitinga- nefndar er hvergi getið um kaup skrefamælingartækja heldur rætt um kaup „Karlssons-búnaðar” fyrir símamálastjórnina. Þetta orðlag hafi platað ýmsa þingmenn til stuðnings við kaupin — og þar með hafi skrefa- mælingaráformin fengizt samþykkt. . -A.St.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.