Dagblaðið - 21.07.1980, Síða 1
irjálst
úháð
dagblað
6. ÁRG. — MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980 — 163. TBL.
RITSTJÓRN StÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Um hrff’ina hufu dvalizt hérfimm Engiendingar, allir þekktir kujukíþrottuk ennarar. Knmu þeir hinnat)
til lands til að kenna Islendingum þessa vlðfrœgu Iþrótt, auk þess sem þeir sýndu Ustirsinar I Laugardals■
lauginni á laugardug. Kennslanfórfram I sundlauginni I Garðahœ. Átta Islendingar, sjö karlar og ein kona,
tóku þátt I námskeiöinu. Hafa þessir Islendingar nú stofnað með sérfélag sem þau nefna Kajakfélagið.
Að sögn Þorsteins Guðmundssonar formanns félagsins komu Englendingarnir hér við á ferðalagi og var
slðasti kennslutlminn / morgun. „Þetta eru snillingar sem hafa verið I þessu I tiu ár. Þeir hyrjuðu að kenna
okkur grundvallaratriði þessarar Iþróttar og hlóðu siðan utan á það, ” sagði Þorsteinn I samtali við DH i
morgun.
Þorri Ijósmyndari DB tók þessa mynd af einum snillingnum við kennslu I sundlauginni i Garðahte um
helgina. Eins og sjá má voru ýmis tilþrif notuð og var hátnum velt á allar hliðar — jafnvel á hvolf. ■ EI.A
lögregluvörður um hétel ráðstefnugesta í Brighton
„Þeir hafa verið hér fyrir utan
Greenpeace-mennirnir (allan morgun
veinandi og hrópandi,” sagði Ingi-
björg Skúladóttir, eiginkona Jóns
Jónssonar forstjóra Hafrannsókna-
stofnunarinnar, er DB rœddi við
hana á Hótel Metropol I Brighton i
morgun. „Lðgreglan hefur haft tals-
verðan viðbúnað vegna fundarins og
þeir staðið vörð við hótelið sl. viku,”
sagði Ingibjörg.
Fundur Alþjóðahvalveiöiráðsins
(IWQ hófst i Brighton á Suður-Eng-
landi í morgun og svo sem vænta
máiti láta „Grænfriðungar" sig ekki
vanta og nota tækifserið til að mót-
mæla hvaladrápi um viöa verðld. í
upphafi fundarins i morgun átti að
taka fyrir umsóknir nýrra aðildar-
landa að hvalveiðiráðinu, en ekki
fyrr en eftir það er Ijóst hverjir eiga
aöild að því með fullum tillðgu- og
atkvæðisrétti.
Verði samþykkt að veita fleiri
þjóðum aðild að ráöinu þýðir það að
likurnar á að tillaga Bandarikja-
manna um algjört bann við hval-
veiðum verði samþykkt. Hins vegar
gæti það þýtt að þær þjóðir sem hval-
veiöar stunda og aðild eiga að ráðinu
segi sig þá einfaldlega úr þvi og losa
sig þannig undan takmörkunum og
samþykktum þeim á hvaladrápi sem
.hvalveiðiráðið kann að samþykkja.
Við upphaf fundar i morgun var allt
óljóst um, hver framvinda mála yrði
og hvort upp væri runninn siðasti
ársfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins.
-BIl
Annir hjá Selfosslögreglu:
Sex bflveltur
r
í Arnessýslu — grunur um ölvun í öllum
tilfellum
í nógu var að snúast hjá lögregl-
unni í Árnessýslu um helgina. Alls
urðu sex bílveltur i sýslunni og var
grunur um ölvun í öllum tilfellunum.
Alvarlegasta tilfellið var skammt
vestan við Kárastaði á Mosfellsheiði
um kl. 22 í gærkvöldi. ökumaður
bifreiðarinnar var fluttur á gjör-
gæzludeild Borgarspitalans með
höfuðáverka. í öðrum tilfellum var
ekki um alvarleg slys á fólki að ræða.
Sautján ökumenn voru teknir í
sýslunni vegna gruns um ölvun við
akstur. Fjórir menn voru teknir
vegna þjófnaðar. Fjórir árekstrar
urðu og mikið var um kærur fyrir
ökulagabrot. Mjög gott veður var í
Árnessýslu um helgina eins og raunar
víðast hvar á Suðurlandi og að sögn
lögreglunnar á Selfossi voru það i
langflestum tilfellum aðkomumenn í
sýslunni sem komu við sögu í þeim
tilfellum, sem lögreglan þurfti að
hafa afskipti af. —GAJ.
Forsætisráöherra um Hitaveitu Reykjavíkur:
SKYLDUG TIL AÐ TENGJA
HÚS WÐ HÍTA VELTUNA
— ef húsbyggjendur óska þess
„Hitaveita Reykjavíkur er sið-
ferðilega og væntanlega lagalega
skyldug til að tengja hús á Reykja-
víkursvæðinu við hitaveitu, ef menn
óska þess. Yfirlýsingar um annað fá
ekki staðizt,” sagði Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra í viðtali við
Dagblaðið. Forsætisráðherra telur
þannig, að Hitaveitan komist ekki
undan því að iáta húsbyggjendur á
Reykjavíkursvæðinu fá aðgang að
hitaveitunni.
Forsætisráðherra sagði um þau hús
í Hafnarfirði sem ekki fá heitt vatn:
„Það mundi kosta 120—130
milljónir að tengja þessi hús. Húseig-
endur greiða i heimtaugargjöld til
Hitaveitunnar 70—80 milljónir. Þvi
er um að ræða um 50 milljónir, sem
við þarf að bæta. Hitaveitunni er í
lófa lagið að hafa fé til þeirra hluta í
margra milljarða veltu. Til dæmis er
unnt að fresta sumum framkvæmd-
um i staðinn.
Forsætisráðherra sagði, að Hita-
veitan hefði fengið 20% og síðan
10% hækkun á árinu. Nú krefðist
hún 60% hækkunar. Það þýddi, með
'uppsöfnunaráhrifum, að hækkunin
yrði yfir 100% á árinu. „Slik hækk-
un er úr öllu samræmi við aðra verð-
lagsþróun,” sagði forsætisráðherra.
Hann kvaðst telja sanngjarnast, að
Hitaveitan fengi nú um 9 prósent
hækkun, sem sé innan þeirra marka,
er nú eru almennt sett.
„Ég er alveg sammála Guðmundi
G. Þórarinssyni alþingismanni,”
sagði forsætisráðherra. „Ég mundi
heldur ekki styðja neina ríkisstjórn,
sem stefndi að því að setja upp olíu-
kyndingu á Reykjavíkursvæðinu.”
- HH
Sjá einnig kjallara-
grein Guðmundar G.
Þórarinssonar á bls.
10-11