Dagblaðið - 21.07.1980, Side 8

Dagblaðið - 21.07.1980, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JULI 1980. Þú ert aUtafmeð bilinn í toppstillingu efþúnotar electroniska kveikju, háspennukefii, sem gefur 50% meiri spennu en venjuiegt kefíi I SiHcone kveikjuþræðir sem endast Hftíma bílsins. Eyðslan er frá 5%—25% eftir stærð og gerð bíla. Auðveidísetning — Hagstœtt verð Einkaumboð á íslandi: STORMUR H/F Tryggvagötu 10 — Sími 27990 — kl. 1 —6. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir júnímánuð 1980 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4.75% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 15. júli 1980. Sparneytinn Ford til sýnis og sölu að Laugarnesvegi 118 í kvöld kl. 6 ti! 9 aðeins. Árg. 1978, 2ja dyra, sjálf- skiptur, milliblár, mjög glœsilegur. Betri gerð af Fair- mont. Tœkifœrisverð gegn staðgreiðslu. Sími36367. VANTAg,„ FRAMRÚÐU? fTT= Ath. hvort við getum aðstoðað. ,ng\\\ ísetningar á staðnum. BÍLRÚÐAN £££.. Sértilbod þessa viku Hjónarúm með dýnum frá 150 þúsund krónum. mm HÚSGÖGN Langholtsvegi 111 — Reykjavík. Símar 37010 og 37144 París: Fimm handteknir fyrír tilræöið við Bakthiar Fimm menn hafa verið handteknir i París og þegar formlega ákærðir um morð og morðtilraun i kjölfar til- ræðisins við Bakthiar, fyrrum for- sætisráðherra frans. Var það gert á föstudaginn var. Bakthiar var síðasti forsætisráðherrann í valdatíð fyrrum íranskeisara en varð að segja af sér eftir að Khomeiní trúarleiðtogi komst til valda. Lögreglumaður sem var á verði í ibúð hins fyrrverandi forsætisráð- herra og nágrannakona ráðherrans féllu fyrir kúlum tilræðismannanna. Bakthiar býr í úthverfi í París. Að sögn heimilda hjá frönsku lögregl- unni munu tveir fimmmenninganna vera íranir, tveir Palestínuarabar og sá fimmti, sem talinn er foringinn, er sagður líbanskur. Franski saksóknarinn sagði á blaðamannafundi í gær að mál þetta yrði rekið til enda. Ekki væri um að ræða að tilræðismennirnir yrðu send- ir úr landi sem einhvers konar sendi- menn erlendra ríkja. Engin beiðni hefði komið fram um slíkt og við því yrði heldur ekki orðið. Mennirnir eiga dauðadóm yfir höfði sér verði þeir fundnir sekir. Hreyfing sem nefnir sig gæzlumenn múhameðstrú- arinnar tilkynntu i Teheran í gær að félagar hennar hefðu staðið fyrir morðtilræðinu. Gagnrýndu þeir Sadeq Gotbzadeh utanríkisráðherra írans fyrir að fordæma verknaðinn. Ráðherrann sagði að tilræðið gegn Bakthiar hefði verið framið af stuðn- ingsmönnum keisarans fyrrverandi, sem vildu sverta byltingarstjórnina í fran. Nokkur þúsund konur I tran efndu til mótmælaaðgerða I Teheran I fyrri viku. Vildu þær mótmæla nýjum reglum um að konur beri andlitsblæjur. Að sögn munu margar konur i landinu vera þvi mjög mótfallnar að taka aftur upp forna múham- eðska siði i klæðaburði. Nýlega tafðist innanlandsflug i tran vegna deilna um klæðnað flugfreyjanna um borð. Kröfðust bvlt- ingarverðir þess að þær settu upp blæjur en þær neituðu. Urðu af þessu nokkurra klukkustunda tafir. Flug hófst aftur þegar samkomulag náðist um að deilunni yrði visað til yfirvalda f Teheran. Bandaríkin: ENGINN FÆR MEIRIHLUTA og fulltrúadeildin í Washington mun velja forseta segir Gerald Ford fyrrum Bandaríkjaforseti Gerald Ford fyrrum Bandaríkja- forseti telur að fulltrúadeild banda- ríska þingsins í Washington verði kvödd til að kjósa nýjan Bandaríkja- forseta. Ford telur að enginn hinna þriggja frambjóðenda sem í fram- boði eru í kosningunum, sem verða hinn 4. nóvember næstkomandi, muni fá nægilega marga kjörmenn til að hljóta löglega kosningu. f kosn- ingunum verða valdir 538 kjörmenn, sem síðan eiga að velja sjálfan forset- ann. Fái enginn hinna þriggja, þeirra Reagans, Carters og Andersons í það minnsta 270 kjörmenn verður að vísa málinu til fulltrúadeildarinnar. Að öllum líkindum mundi kjör forseta ekki fara fram þar fyrr en í janúar næstkomandi, þegar fulltrúadeildin kemur þá saman til nýrra funda. Þessi skoðun Fords kom fram í viðtali við hann í tímaritinu Us News and World Report. í sjónvarpsviðtali í gær sem átt var við John Anderson þingmann sem býður sig fram í forsetakosningunum sem óháður frambjóðandi kom fram að hann er ekki sammála Gerald Ford. Hann segir að fólk muni ekki kjósa sig nema þá að það telji að hann eigi einhverja möguleika á að sigra í kosningunum. Spáði hann því að baráttan mundi standa á milli sín og Reagans en Carter núverandi for- seti mundi verða i þriðja sæti. Bill Brock formaður Repúblikanaflokks- ins sagði í sjónvarpinu i gær að And- erson mundi ekki valda neinum rugl- ingi í kosningunum hinn 4. nóvember næstkomandi. Hann mundi ekki fá meirihluta í neinu ríki og þar með. ekki valda neinni misskiptingu kjör- manna.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.