Dagblaðið - 21.07.1980, Síða 12

Dagblaðið - 21.07.1980, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. Litið við á sólarströnd: Meðtekinn innbakaður brúnn hörundslitur — því trauðla geta menn snuið fölir til baka Árlega streyma þúsundir íslendinga til svonefndra sólarlanda. Mörlandinn fer þangað fölur og fár, en kemur til baka sólbrúnn og sæl- legur og fullur af vítamínum. Vítamínin fást væntanlega úr sólinni og þau sem hún ekki veitir koma úr ísköldum bjórnum, rauðvíninu og stórsteikunum. Ráði fjárhagurinn ekki við stórsteikina má reyna eitthvað ódýrara, kjúkling, pizzu eða spaghettírétt. Hvftur, rauður eða brúnn Margir telja það himneska sælu að fá að liggja lon og don á ströndinni og meðtaka hinn innbakaða brúna hörundslit. En ekki hafa allir þolinmæði í slíkar legur og leita þvi í forsælu bjórstaðanna. Enn eru þeir ótaldir, sem hafa skinn þannig af' Guði gert, að það flagnar af við sólarljósið eða verður óguðlega rautt. Það er nefnilega ekki sama hvernig liturinn á sólarlandafaranum er. Hvítur litur er tabú. Þannig mega menn ekki snúa heim. Þá telja illar tungur að óreglan hafi náð yfir- höndinni. Rauði liturinn er ill- mögulegur, en þó örlítið skárri en sá hvíti. Hann sýnir þó að sólarlanda- farinn hefur gert heiðarlega tilraun til þess að ná hinum þvottekta kaffi- brúna sólarlit. Bjórrannsóknir og staðháttaskoðun En fleira er hægt að gera en liggja í gulum sandinum, eða á sundlaugar- bakka. Landinn er forvitinn að eðlis- fari og vill margt skoða í útlandinu. Þá er að koma sér í skipulagðar skoðunarferðir, eða ferðir á eigin spýtur út frá sólarströndinni. Blaða- maður DB komst á dögunum á sólar- strönd, nánar tiltekið Rimini á Ítalíu Og þar sem hann getur trauðla talizt sólartýpa, ef nota má þannig orð, þá fór tíminn frekar í bjórrannsóknir og skoðun á staðháttum. íslendinganýlendur Án þess að fyrir liggi sérþekking á sólarlandaferðum íslendinga til hinna ýmsu sólarlanda, þá læðist sá grunur að, að landinn sé fljótur að koma sér upp ákveðnum samastað, eða nokkurs konar nýlendu á hverjum stað. Svo var einnig á Rimini. Þar hittust landar daglega á götuveitingahúsi, sem heitir La Travíata. Þar ráða ríkjum bræðurnir Nerio og Maurizio og kona Nerios, sem er ensk að uppruna. Ensku- kunnátta þeirra hjálpar upp á sakirnar þannig að auðveldara er að velja sér réttina. Þá eru þeir bræður orðnir slark- færir í íslenzkum upphrópunum, sem gleðja gestina, auk þess sem mat- seðill staðarins liggur nú frammi á íslenzku. En myndir segja meira en mörg orð, þannig að bezt er að þær lýsi sólarlifinu. -JH. Orkusparnaúur I framkvæmd. Slíkir hjólabflar eru algeng sjón ng virðast hin þægilegustu farartæki. Fölir Islendingar stiga út úr flugvélinni á Riminiflugvelli, en á flugvallarsvölunum biður kafflbrúnn hópur á heimleið. Þeir brúnu eru berir að nfan, enda til litils að hafa náð þeim lit ef cnginn fær að sjá það. „Þetta er ævintýralöngun, við törum i minnsi eina sölarlandaferð á ári til að sýna nkkur ng sjá aðra, sögðu þær stöllur Klara Genrgsdóttir, Guðlaug Ragnarsdóttir og Sigurbjörg Sverrisdnttir, sem bjuggu saman i ibúð. Þvi ekki að skella sér i næturliflð, dans og aðskiljanleg skcmmtiatriði. Ilelgi K. Helgasnn sjnnvarpsfréttamaður var nýkominn til Rimini með konu sinni Ásdfsi Ásmundsdóttur. Þau verða væntan- lega brúnni þegar þau knma til baka. Með þcim cru synir þeirra Helgi og Ásmundur. Krakkarnir gcta dundað sér daglangt við hyggingar ng stiflugerðir i sandinum á ströndinni. Veitingahjónin, Nerio og Suz.y i tslendinganýlcndunni l.a Traviata. Nerío er gjarnan með islenzka fánann i hattinum. ^ DB-myndir Jónas llaraldssnn. JONAS HARALDSSON

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.