Dagblaðið - 21.07.1980, Page 14

Dagblaðið - 21.07.1980, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. (I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D Engir botnliðstaktar hjá FH er Valsmenn lágu í Kaplakrika — óvæntustu úrslit sumarsins er FH vann Val sanngjamt 2-1 í Hafnarfirði í gær FH-ingar unnu óvæntasta sigur íslandsmótsins i sumar er þeir lögðu Valsmenn að velli, 2—1, á Kaplakrika- velli I gærdag. Þó sigurinn hafi komið mönnum mjög á óvart var hann fylli- lega verðskuldaður og Valsmenn hljóta nú að velta fyrir sér hvað sé að gerast i þeirra herbúðum. Leikur liðsins er ákaflega ósannfærandi þessar siðustu vikur og ef ekki hefði komið til hin góða byrjun liðsins væri það ekki i toppbaráttunni. Þessi sigur FH kemur á mjög góðum tima fyrir liðið því fram- undan eru leikir sem FH ætti að geta unnið. Allt annað var nú að sjá til FH- inganna en áður. Baráttan i góðu lagi og greinilegt var að það kom Vals- mönnum illilega á óvart. Þeir höfðu komið til leiks með því hugarfari að leikurinn væri þegar unninn. A.m.k. var ekki að sjá á lcikmönnum að þeir gerðu sér grein fyrir því að þeir voru að tapa 2—0. Það var ekki fyrr en Dýri Guðmundsson skoraði gegn sinum gömlu félögum 5 min. fyrir leikslok að Valsliðið vaknaði. En leikmenn voru einfaldlega of „syfjaðir” eftir 85 mínútna „svefn” og tókst ekki að jafna. Fyrri hálfleikurinn var óttalega tíð- idnalitill. Liðin sköpuðu sér varla nein færi og Valsframlínan má heldur betur taka sig á. Það var aðeins einu sinni í fyrri háifleik að mark FH komst í hættu. Á 29. mínútu bjargaði Guðjón Guðmundsson á marklínu og síðar á sömu mínútu bjargaði Atli Alexanders- son marki með tilþrifum. Þetta var ein- asta fjörbrot Valsmanna. FH-ingar sköpuðu sér heldur ekki nema eitt færi að heitið gat og úr því skoruðu þeir. Helgi Ragnarsson sneri þá laglega á Grím Sæmundsen og gaf vel fyrir markið. Þar var Pálmi Jóns- son fyrir sallarólegur að vanda. Hann tók knöttinn á brjóstið og skoraði síðan með fallegu skoti alveg úti við stöng — nákvæmlega eins og gegn í A í bikarnum fyrir skömmu. Á 51. mínútu skoraði FH siðara mark sitt. Magnús Teitsson brauzt þá i gegnum vömina og skoraði framhjá Ólafi Magnússyni, sem kom hlaupandi á móti honum. Tveimur mínútum síðar átti Helgi Ragnarsson hörkuskot rétt framhjá og á þessu tímabili var vörn Vals ekki upp á marga fiska. Minnti reyndar á gatasigti. Valsmenn tóku síðan góðan kipp í stutta stund. Fyrst varði Friðrik Jónsson mjög laglega hörkuneglingu frá Sævari Jónssyni eftir aukaspyrnu á 57. mínútu og mín. síöar átti Matthías Hallgrímsson hörkuskot í hliðarnetið. Magnús Bergs og Jón Einarsson komu inn á fyrir Hermann Gunnarsson og Guðmund Þorbjörnsson á 63. mínútu og við komu þeirra lifnaði nokkuð yfir Valsmönnum. Einkum var það Jón sem skapaði usla með hraða sínum en réði oft ekki við knöttinn í öllum látun- um. Á 74. minútu skallaði hann ofan á þverslá og yfir eftir hornspyrnu og á 85. mín. tók hann eina slíka, sem leiddi til marks Valsmanna. Dýri Guðmunds- son stökk þá hærra en allir á markteig og hamraði knöttinn í netið, 2—1. Lokakaflann gekk heilmikið á en Vals- menn fengu ekki færi á að jafna enda hefði það ekki verið sanngjarnt. FH-ingar unnu því þarna sinn annan sigur í sumar — hinn var gegn Akur- nesingum. Það er hins vegar óstöðug- leikinn, sem hefur verið vandamál FH í sumar. FH hefur eitt allra 1. deildarlið- anna fengið á sig mark eða mörk i öll- um sínum leikjum. Þessi leikur ætti að vera vendipunkturinn hjá liðinu og með þessum sigri hefndu FH-ingar 0— 4 taps fyrir Val í fyrstu umferðinni. Viðar átti góðan leik i vörninni svo og Valþór og þá voru Pálmi og sérstaklega Valur sprækir. Valur hefur verið að þvæiast í bakvarðarstöðu eða einhvers staðar annars staðar en í framlínunni í sumar og lítið komið út úr honum. Þarna var hann hins vegar á réttum stað og skilaði sinu vel. Hjá Val var ákafiega fátt um fína drætti. Magni átti góðan fyrri hálfleik og Dýri var sterkur allan tímann. Albert var mikið með boltann en skil- aði honum ekki að sama skapi vel. Kom fram undir lokin og hristi vel upp í vörn FH. Valsmenn eiga erfiðan leik gegn KR fyrir höndum og síðan Blikana í Kópavogi. Með því að leika eins og í gær er hæpið að mörg stig fáist úr þeim viðureignum. - SSv. Dýri Guðmundsson hefur hér skorað eina mark Valsmanna. DB-mynd Þorri. Blikamir vom einfaldlega betri — unnu Eyjamenn 2-0 í Kópavogi á laugardag Hafi Eyjamenn haldið að titilvonir þeirra væru að engu orðnar eftir 0—2 tap fyrir Blikunum i Kópavogi á laug- Þeir félagar Siguróur Grétarsson og Ólafur Björnsson hal'a hér hetur i haráttunni »ió Ómar .lóhannsson í leiknum á laugar- dag. Þeir Sigurður og Ólafur skoruóu mörk Blikanna. DB-mynd Sig. Þorri. ardag geta þeir tekið gleði sína á ný því efsta lið deildarinnar, Valur, tapaði nefnilega i gær og allt getur þvi gerzt ennþá. Sigur Blikanna á laugardag var afar sanngjarn og er furðulegt að liðið skuli ekki vera enn ofar en raun ber vitni. Leikur liðanna var ekki neitt sér- stakt augnayndi þrátt fyrir blíðuveður — reyndar nokkurn hliðarstrekking — og langtímum saman notuðu t.d. Eyja- menn ekki kantana — létu sem þeir væru ekki til. Útkoman varð þröngt spil fram og aftur miðjuna án nokkurs sýnilegs árangurs. Blikarnir notuðu vallarbreiddina betur og tókst fyrir vikið að næla sér i bæði sligin. Framan af var heldur tíðindalitið og það var ekki fyrr en á 15. mínútu að eitthvað gerðist en þá skaut Valdimar Valdimarsson framhjá af vítateig. Skömmu síðar máttu Blikarnir þó prísa sig sæla að fá ekki á sig vítaspyrnu er Sigurlási virtist vera brugðið innan vítateigs. Magnús Pétursson, sem oft hefur átt betri dag, sá ekkert athuga- vert í þetta skipti. Sigurlás var óheppinn á 40. mínútu er góður skalli hans hafnaði ofan á þverslánni og þaðan aftur fyrir enda- mörk. Upp úr útsparki Guðmundar Ásgeirssonar skoruðu Blikarnir fyrra mark sitt og var einkar glæsilega að því staðið. Heigi Bentsson náði knettinum miðja vegu milli miðju og vítateigs og tók á rás í átt að markinu. Þrir varnar- menn Eyjamanna lágu i valnum áður en Helgi hleypti af á markteig. Hörku- skot hans small í þverslánni og þaðan barst knötturinn fyrir fætur Sigurðar • Grétarssonar, sem skoraði örugglega af stuttu færi. Síðari hálfleikurinn var aðeins 7 min- útna gamall er ekki munaði nema hárs- breidd að Blikarnir skoruðu aftur. Eftir mikinn darraðardans tókst Páli Pálmasyni að bjarga á marklínu svo þar mátti ekki tæpara standa. Átta mínútum síðar skapaðist aftur mikil hætta við Eyjamarkið en Helgi Bents- son skaut framhjá úr mjög þröngu færi eftir laglegan undirbúning Ólafs Björnssonar. Eyjamenn spiluðu oft prýðilega úti á vellinum en þegar nær dró markinu virtist eins og herzlumuninn vantaði. Það var helzt að „litli bróðir”, Kári Þorleifsson, sýndi góð tilþrif og marg- sinnis lék hann varnarmenn Blikanna grátt. Litið kom þó út úr sprettum hans oft á tíðum því samherjarnir voru ein- faldlega ekki til staðar til að gefa á. Eyjamenn notuðu því mikið langspyrn- ur til að reyna að hrella Guðmund í markinu en fæst skotanna voru þess eðlis að þau vektu ugg hjá Blikavörn- inni. Er leið á leikinn þyngdist sókn Blik- anna til muna og spurningin var aðeins hvort þeim tækist að bæta við marki ' eður ei. Það tókst þeim á endanum en ekki voru nema 5 min. til leiksloka þegar Ólafur Björnsson stakk sér í gegnum vörnina og skoraði laglega þrátt fyrir góða tilburði Páls Pálma- sonar í markinu. Þessi leikur skilur ekki mikið eftir sig hjá tæplega 900 áhorfendum nema hvað taktar ungu mannanna á vellin- um, þeirra Sigurðar Grétarssonar og Helga Bentssonar hjá Blikunum og Kára Þorleifssonar og Sighvatar Bjarnasonar hjá ÍBV vöktu verðskuld- aða athygli. Allir geysilega efnilegir leikmenn og Sigurður er tvímælalaust einhver bezti knattspyrnumaður lands- ins þótt ungur sé. Þarf ekki aðgera því skóna að hann yrði fljótt nappaður af njósnurum erlendra liða ef þeir vissu af honum. Af öðrum leikmönnum má nefna Vigni Baldursson hjá Blikunum, sem hefur náð sér á strik á ný eftir lægð svo og Pál Pálmason í marki Eyja- manna, sem stóð vel fyrir sínu. Þá átti kollegi hans, Guðmundur Ásgeirsson, góðan Ieik. -SSv.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.