Dagblaðið - 21.07.1980, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótti
Svíi með
beztan tíma
Sviinn Michael Söderlund náöi bezt-I
um tima i riðlakeppninni i 100 m bak-
sundi karla 6 ólympiuleikunum í gær.
Synti vegalengdina á 57,75 sek. Vladi-
mir Dolgov, Sovétrikjunum kom næst-
ur á 57,87 sek. Romulo Duncan Arant-i
es, Brasiliu, synti á 57,90 sek. Síðan
kom Ungverjinn Zoltan Verraszto á
57,92 sek. Dietmer Gohring, A-Þýzka-
landi, var með fimmta bezta tímann
58,02 sek. Ungverjinn Sandor Wladar
synti á 58,07 sek. og Ástralfumaðurinn
Mark Kerry varð i sjöunda sæti á 58,08'
sek. Úrslitin i sundinu verða i dag.
Dýfingar
og fimmtar-
þraut
Irena Kaiinina, Sovétrikjunum, tók
forustuna i gær i dýfingum kvenna á
ólympfuleikunum. Hlaut 478,86 stig.
öðru sæti var Zhanna Tsirulnikova, I
Sovétrikjunum, með 454,35 stig. Síðan -
komu tvær austur-þýzkar stúlkur, {
Martina Proeber með 450,99 stig og
Karin Guthke með 435,21 stig.
í nútima fimmtarþraut hafði Pólland
forustu — síðan komu Sovétrikin,
Tékkóslóvakia, Spánn og Ungverja-
land. Pólland var með 3208 stig, Sovét-
rfkin 3194 stig.
Sovézku
fimleika-
kapparnir
efstir
Sovézku fimleikamennirnir náðu
þriggja stiga forskoti i sveitakeppninni,
sem hófst á ólympiuleikunum í gær.
Engin önnur sveit virðist geta ógnað.
sigri þeirra i keppninni. Austur-Þjóð-
verjar voru i öðru sæti og sfðan komu
Ungverjar, heilum fjórum stigum á
eftir Þjóðverjunum. Heimsmeistarinn'
Alexander Dityatin, Sovétrikjunum,
náði forustunni i einstaklingskeppninni
— var 10/100 úr stigl á undan ólympiu-
meistaranum frá Montreal, Nikolai
Adrianov. Það var Adrianov, sem sórl
ólympiueiðinn fyrir hönd keppenda á
opnunarhátiðinni á laugardag. Í þriðja
sæti var Austur-Þjóðverjinn Roland
Bruckner og siðan kom Stoyan
Deltchev Búlgariu i fjórða sæti. Að
öðru leyti voru sovézkir keppendur fj
sjö efstu sætunum.
Þríðji tapleikur Fram
í röð í 1. deildinni
Akumesingar unnu stórsigur 4-0 á Fram í gær
Akurnesingar voru áberandi betri,
þegar þeir mættu bikarmeisturum
Fram i 1. deild á Akranesi. Sigruðu
með 4—0 og satt bezt að segja þá skil
ég ekki hvernig Fram hefur hlotið 12
stig á mótinu. Liðið hlýtur að hafa sýnt
allt annan leik fyrr í mótinu en það
gerði hér á Akranesi í gær. Það fór í
taugarnar á leikmönnum Fram að ekk-
ert gekk — liðiö fékk varla umtalsvert
tækifæri i leiknum — og þegar um tiu
mínútur voru til leiksloka var Pétri
Ormslev vísað af leikvelli fyrir orð, sem
hann lét falla. Hafði áður verið bók-
aður. Staðan var þá 3—0 fyrir Akur-
nesinga, svo brottvikning Péturs skipti
engu máli hvað úrslitum viðkom.
Akurncsingar unnu mjög sanngjarnan
sigur. Hins vegar töpuðu Framarar
þriðja leik sínum i röð i 1. deild.
Framan af leiknum var mikil barátta
— barátta um völdin á miðjunni. Gekk
þá á ýmsu og spenna var talsverð en
ákaflega lítið um færi. Loks á 40. mín.
var fyrsta markið skorað. Akurnesing-
ar fengu hornspyrnu, sem Kristján Ol-
geirsson tók. Hann gaf vel fyrir markið
og Siggi Donna (Sig. Halldórsson)
skallaði á mark Fram. Knötturinn fór í
Jón Pétursson og hrökk i markið.
Fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik
náði Framliðið sínum bezta leik og
ógnun var engin — en síðan fór að
renna i skapið hjá leikmönnum liðsins.
Virtust ekki ánægðir með dómara
leiksins, Guðmund Sigurbjörnsson.
Hann var ekki nógu ákveðinn að mínu
Tulsa fallið
í 3ja sætið
Tulsa Roughnecks, liðið, sem
Jóhannes Eðvaldsson leikur með í
Bandarikjunum, hefur gengið illa að
undanförnu i amerisku knattspyrn-
unni. Er nú fallið niður i þriðja sæti i
miðdeildinni á austurströndinni. Dallas
Tornado er efst með 100 stig. Minne-
sota Kicks er i öðru sæti með 92 stig og
síðan kemur Tulsa með 90 stig. t fjórða
og neðsta sæti er Atlanta Chiefs meö 49
stig. New York Cosmos sigraði Seattle
3—1 í gærkvöld og er langefst i austur-
deildinni með 152 stig. Toronto hefur
105 stig. Þrátt fyrir tapið er Seattle
langefst i vesturdeildinni með 172 stig.
Los Angeles Aztecs i öðru sæti með 124
stig. Mikil keppni er milli Florida-
liðanna Tampa Bay og Forth I.auder-
dale — bæði hafa 124 stig. Chicago
Stings er efst i miödeildinni með 157
stig.
mati. Hefði mátt dæma meira en leik-
menn Fram voru mun grófari i leik
sínum.
Á 59. mín. fengu Skagamenn auka-
spyrnu við hliðarlínu vitateigs Fram.
Kristján Olgeirsson tók spyrnuna og
sendi knöttinn beint í mark Fram við
stöngina nær án þess Guðmundur
markvörður Baldursson kæmi við
nokkrum vörnum. Sérlega fallegt
mark. Á 65. mín. var Kristján aftur á
ferðinni og kom Skagamönnum í 3—0.
Kristinn Björnsson lék þá með knöttinn
inn í vítateig Fram, renndi honum
framhjá Guðmundi markverði, en
þegar knötturinn virðist vera að fara
framhjá stönginni kom Kristján aðvíf-
andi og sendi hann í netið. Mikið harð-
fylgi það. Rétt á eftir munaði sáralitlu
að Skagamenn skoruðu á ný — Jón
Pétursson bjargaði á marklínu frá
Kristni Björnssyni.
Síðasta markið í leiknum skoraði
Siggi Donna á 82. mín. Fékk knöttinn!
inn i vítateig eftir langt innkast|
Guðjóns Þórðarsonar og spyrnti'
honum í netið.
Lið Akurnesinga lék oft vel í þessum*
leik og nýtti vel sin færi. Sterkur leikur
liðsheildarinnar. þar sem þeir Kristján,
|Guðjón, Árni Sveinsson og Siggij
Donna voru beztir. Hjá Fram bar mest
á Trausta Haraldssyni.
KP.
Tvö heimsmet austur-
þýzkra í sundkeppninni
Austur-þýzku sundkonurnar frægu
settu tvö ný heimsmet á ólympiuleikun-
um i gær — Barbara Krause, 21 árs,
náði beztum tima í riðlakeppninni i 100
m skriðsundi. Synti á 54,98 sek. sem er
nýtt heimsmet. Úrslit i sundinu veröa i
dag. Hún átti sjálf eldra metiö, 55,41
sek. sett 1978 en ólympiumet Korneliu
Ender, A-Þýzkalandi, frá 1976 var
55,65 sek. Þá sigraði austur-þýzka
sveitin i 400 m fjórsundi og setti nýtt
heimsmet. Synti á 4:06,67 min. og
hlaut gullverölaunin en keppt var til úr-
r. I t
slita í þessari grein í gær. I sigursveit-
inni syntu Rica Reinisch, Ute
Geweniger, Andrea Pollack og Caren
Metschuck.
Austur-þýzka sveitin var í algerum
sérflokki en úrslit urðu þessi:
1. A-Þýzkaland 4:06,67
2. Bretland 4:12,24
3. Sovétrikin 4:13,61
4. Svíþjóð 4:16,91
5. italía 4:19,05
6. Ástralía 4:19,90
7. Rúmenía 4:21,27
8. Búlgaria 4:22,28
Það vakti athygli að Karen Metschuk
synti lokasprettinn, 100 m skriðsundið,
fyrir A-Þýzkaland en ekki heimsmet-
hafinn Barbara Krause. Karen synti í
undanrásinni í 100 m skriðsundinu á
55,44 sek. sem er betri timi en eldra ól-
ympíumetið. Hún var þar í öðru sæti.
Aðrar, sem komust í úrslit í dag, voru
Ines Diers, A-Þýzkalandi, 56,83 sek.,
Natalya Strunnikova, Sovét, 57,43
Isek., Conny van Bentum, Hollandi,
57,51 sek., Olga Klevakina, Sovét,
■ 57,62 sek., Agneta Eriksson, Sviþjóð,
57,67 sek. og Guylaine Berger, Frakk-
landi, 57,80 sek.
Fjórír fyrstu lyftu
samtals 245 kílóum!
— en Sovétmaður sigraði þar sem hann var léttastur
Kanybek Osmonaliev, Sovétrikjun-
um, hlaut fyrstu gullverðlaunin i lyft-
ingum á ólympiuleikunum — sigraði i
fluguvigtinni, 52 kg flokki, eftir mjög
harða keppni. Sennilega þá jöfnustu,
%pm verður á leikunum þvi fjórir fyrstu
menn lyftu allir samtals 245 kg. Sá
sovézki hlaut hins vegar gullið vegna
þess að hann var léttastur fjórmenning-
anna.
Kanybek Osmonalivev varð i þriðja
sæti eftir snörunina á eftir Norður-
Kóreumönnunum Ho Bong Chol og
Gyong Si, sem báðir settu heimsmet.
Snöruðu 113 kg og bættu met Alex-
ander Voronin, Sovétríkjunum.sem var
112,5 kg.
í jafnhöttuninni breyttist staðan.
Osmonaliev var þar beztur með 137,5
kg en hins vegar mistókst þeim
kórönsku að lyfta 140 kg. Reyndu
báðir tvivegis við þá þyngd.
Osmonaliev hlaut því gullið, þar sem
hann var léttastur, og lyfti samtals 245
kg. Ho Bong Chol varð annar, Han
Gyong Si þriðji og í fjórða sæti var
Ungverjinn Bela Olah. Al|ir með|
245 kg samtals. 1 fimmta sæti varðj
Ungverjinn Ference Hornyak með[
237,5 kg og sjötti Francisco Casa-,
mayor, Kúbu, með 232,5 kg.
Ingi Þór Jónsson. Akranesi, efstur á vcrðla
55.8 sek. sem var bezta afrek mótsins.
S0VEZI
KAPPIf
— Sergei Fesenl
Sergei Fesenko, Sovétríkjunum, 21
árs stúdent frá Úkrainu, hlaut fyrstu
guilverðlaunin i sundkeppni ólympiu-
leikanna i Moskvu, sem hófst i gær.
Áhorfendur i troðfullri sundlauginni
nýju á ólympíusvæðinu hvöttu Fesenko
mjög og hann kom langfyrstur i mark.
Synti 200 m flugsund á hinum frábæraj
tima 1:59,76 min., aöeins hálfri sek-
úndu frá ólympiu- og heimsmetij
Michael Bruner, USA, 1:59,23 min.,1
sett i Montreal 1976, og Bruner hefur.
náð aðeins betri tima i ár. Hann var þvi'
fjarri góðu gamni i gær. i
Deventer
sigraði
Go Ahead Eagles frá Deventer í Hol-
landi varð sigurvegari á 4-liða mótinu í
Nijmegen í Hollandi í gær. Sigraði
Celtic 4—2 í úrslitaleiknum. Þeir van
Kooten, tvö, de Goey og Kristiensen
skoruðu mark Deventer en Schneider
sendi knöttinn i eigið mark og Halpin
skoruðu fyrir Celtic. Þá gerðu NEC og
Borussia Dortmund jafntefli i leiknum
um þriðja sætið 1—1. Abramczikj
skoraði fyrir Dortmund — Meyer
jafnaði fyrir Nijmegen-liðið.
Mukhina (
Sovézk yfirvöld viðurkenndu i fyrsta
skipti í gær, að heimsmeistarinn í fím-
jleikum kvenna, Jelena Mukhina, hefði
slasazt alvarlega á æfingu og gæti ekklj
tekið þátt i ólympiuleikunum. Hins
vegar mótmæltu þeir þeim fréttum að
Mukhina væri dáin. Það var Yuri
Titov, hinn sovézki forseti alþjóða-fim-
leikasambandsins, sem skýrði frétta-
mönnum frá þessu i Moskvu f gær.