Dagblaðið - 21.07.1980, Side 20

Dagblaðið - 21.07.1980, Side 20
20 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 1980. Um tvennt aö velja fyrir prest í sjávarplássi: Að einangrast í jilabeinstumi eða vinna með fólkinu - „Ég held, að á stað eins og þessum sé um tvennt að velja fyrir prestinn: að einangrast í einhverjum fílabeins- turni eða fara og vinna með fólk- inu,” sagði önundur Björnsson, guðfræðinemi, er blaðamaður DB segir Onundur Björnsson, guðfrœði- nemi sem þjónar Suðureyri við Súg- andafjörð í sumar. önundur var vU) vörumóttöku i vörugeymsJum Ríkisskips á Suðureyri er bleðamenn DB hittu henn að máii. DB-myndir: Sigurður Þorri. Suðurnesjameistari í diskódansi 1980 Þetta er Jenný Þorsteinsdóttir, ný- bakaöur Suðurnesjameistari í diskó- dansi. Keppnin fór fram fyrir um mánuði síðan í veitingahúsinu Berg- ási í Kefiavík og stóðu fyrir henni veitingahúsið og Ferðamiðstöðin í Reykjavík. Undanúrslit fóru fram á föstudags- kvöldi og var byrjað að dansa klukk- an 22. Dansað var viðstöðulaust til hádegis daginn eftir, en þá höfðu nokkrir hellit úr lestinni.Úrslitadans- inn var þreyttur um kvöldið. Þá sigraði Jenný en í öðru og þriðja sæti urðu þeir Emil Valsson og Sigmundur Halldórsson. Fyrstu verðiaun voru ferð frá Ferðamiðstöðinni til Benidorm á Spáni en önnur og þriðju verðlaun plötuúttektir frá Víkurbæ í Keflavík Fyririiði fjögurra manna dómnefnd- ar var Friðrik Ragnarsson. - ÓV Fœreyska blaðið 14. september: önundur Björnsson og Þórður Ágúst við kirkjuna að Stað en þar hefur Þórður Ágúst verið staðerráðsmaður siðan 1936 eða i tið fjögurra presta. fgegnir þar hinum fjölbreytilegustu jstörfum, svo sem við hitaveituna, umsjón með unglingaflokki og störf i ivörugeymslu Ríkisskips. Um Jónsmessuhátíðina stóð Önundur fyrir svokallaðri Jóns- messufjölskylduhátíð við gamla kirkjustaðinn að Stað. Hófst hátíðin, sem um 300 manns tóku þátt í, með guðsþjónustu og var gamla kirkjan þá troðin út úr dyrum. Að sögn Þórðar Ágústs, staðarráðsmanns að Stað, þótti hátíðin takast hið bezta og var þegar að henni lokinni skipuð nefnd er á að sjá til þess, að þessi hátíð yrði hér eftir árlegur viðburður í lífi Suðureyringa. - GAJ ’hitti hann að máli á Suðureyri við Súgandafjörð fyrir skömmu. önundur er þar á styrk frá biskupsembættinu og gegnir eins konar djáknastörfum á Suðureyri. Mun sumarið í sumar vera fjórða sumarið sem guðfræðinemar fá styrk frá biskupsembættinu til að gegna slíkum störfum úti á landi. önundur sagðist kunna mjög vel við sig á Suðureyri. Auk starfs síns, að safnaðar- og kirkjumálum er hann í starfi hjá Suðureyrarhreppi og r, rni —V 1 U mi L'' Ll\ „HAFÐU ÞÓKK, STEINGRtMUR” — Fœreyingar þakka þarfa áminningu Stein- gríms Hermannssonar í veizlurœðu í Fœr- eyjum Frændur okkar Færeyingar bera Steingrími Hermannssyni sjávarút- vegs- og samgönguráðherra gott orð. í færeyska blaðinu 14. september hinn 2. júli sl. er dálkur, sem nefnist Klippt og skorið og er þar getið góðra gesta er heimsóttu Færeyjar fyrir stuttu. Það voru þeir Steingrimur Hermannsson ráðherra og Jón Arnalds og konur þeirra. Þar segir m.a.: „Síöasta kvöldið sem þessir fjórir islendingar voru hér hélt Steingrímur ræðu á Hótel Hafnía í veizlu, sem landstjórn Færeyja hélt gestunum. Ræðan var framúrskarandi og vel lekið af veizlugestum. Þetta var ekki ein af þesum venju- legu veizluræðum sem við erum orðin svo vön frá mörgum þeim sem heim- sækja okkur. Steingr'unur sagði nefnilega sitthvað í ræðu sinni. Hann talaði fyrst í myndum og las kvæði eftir föður sinn, hinn þekkta islenzka stjórnmálamann Hermann Jónasson. Þar segir frá þvi að menn séu ham- ingjusamari frjálsir, jafnvel þó þeir séu svolítiö svangir, heldur en að vera annarra þjónar og heldur feitari.” Þetta var beinlinis áminning til okkar Færeyinga, segir blaðið. Því næst talaði Steingrímur um smáþjóð- irnar, fyrst og fremst Færeyinga og íslendinga og taldi að þær ættu frekar að efla samvinnu sín á milli í sameiginlegum hagsmunamálum, en leita hjálpar þeirra stóru. „Slík sannleiksorð heyrum við ekki frá hverjum útlendum manni sem kemur hingaö,” segir 14. sptem- ber. „Hafðu þökk fyrir, Stein- grim ur.” - JH Islðpt Góðir gestir Her fyri vitjaðu okkum góðii gestir úr íslandi. Tað vóru Steingrímur Hennamisson fiskimála- róðharri og stjóri í fiski- málaráðnum Jón Arn- alds — bóðir við konum sínum. Seinasta kvoldið, ið hesir fyra íslendingar vóru her helt Steingrím- ur roðu á samkomu á Hotel Hafniu, ið lands- stýrið helt fyri teimum. Har helt Steingrimur roðu — framúrskarandi roðu. Og var harní eisini væl fagnaður av teim- um, ið har vóru. Hetta var ikki ein av teimum vanligu veitslukendu roðunum, sum vit eru vorðin so von við at hoyia fró mongum av teimum, sum okkum vitja. Steingrímur segði nevniliga nakað í roðu síni. Hann talaði fyrist í myndum og las íslend- ska yrking (eftir pópa sín.hin kenda íslendska stjórmálamann Her- mann Jónasson). Inni- haldið í hesi yrking var tað, at tú livdi lukkulig- ari lív við at vera frælsur maður, tó kanska nakað soltin, enn at vera tæn- arí hjá oðrum, tó kanska nakað feitari. Hetta var beinleiðis áminning til okkum foroyingar. Har næst talaði Steingrímur um smótjóðimar — og hugsaði har fyrst og fremst um islendingar og foroyingar — og helt fyri, at smátjóðimar heldur óttu at leita sam- an í samvinnu og í sam- starvi um felagsóhuga- mól enn at Jéíta eftir hjálp hjá teimum stóru. Tað er ikki av hvorjum útlendskum manni, ið higar kemur at vit hoyra slík sannleiksorð. Tokk skal ti Steingrímur hava. Hjáhntýr og Margrát taka lagið saman: Lögðu Stokkhólm að DB-mynd: Sig. Þorri. Hjálmtýr syngur inn á plötu 99 Frúin syngur mér þrjú lög með „Nei, það er satt, þetta mátti ekki seinna vera,” sagði Hjálmtýr Hjálm- týsson um plötu sem hann hefur verið að syngja inn á undanfariö við undir- leik Gísla Magnússonar. Hjálmtýr hefur það að aðalstarfi að vísa fólki til bankastjóra Útvegsbankans en hefur auk þess sungið hvar og Ihvenær sem þess hefur verið nokkur kostur. Meðal annars i sjónvarpinu. |En þetta er fyrsta platan hans og þykir ugglaust mörgum sem of seint hafi verið á stað farið, Hjálmtýr hefði átt að vera búinn að syngja inn ,á margar. Upptaka plötunnar hófst í júní- byrjun þega Hjálmtýr kom frá Stokkhólmi. Þangað hafði hann farið með Lögreglukórnum i söng- ferð og er óhætt að segja að hann og kona hans Margrét Matthíasdóttir (lögregluþjóns) lögðu Stokkhólm að fótum sér með gullfallegum söng. Sérlega dáðu hinir norrænu söng- menn, sem á þau hlýddu, söng þeirra í laginu Kirkjuhvoll. Það er eitt af lögunum á hinni nýju plötu. „Frúin syngur með mér þrjú lög. Sjálfur syng ég svo bæði íslenzk lög og itölsk. Núna er verið að finpússa plötuna, sem maður segir, en ég er að mestu búinn að syngja inn á hana. Ég veit ekkert hvenær platan kemur út, ætli þaö verði ekki fyrir jólin,” sagði Hjálmtýr. Við getum ekki svo minnzt á Hjálmtý og Margréti án þess að geta dóttur þeirrar, Sigrúnar, sem þiö, les- endur góðir, þekkið sem Diddú og hafið þrisvar kosið söngkonu ársins. Segið svo bara að uppeldið hafi ekk- ertaðsegja. - DS

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.