Dagblaðið - 24.11.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980.
Furðulegur leikur tveggja Eyjapeyja:
N
5
SKÓGLUGGINN
OFLUG SPRENGING VIÐ LOG-
REGLUSTÖÐINA í EYJUM
— kom eins og högg á varðstjóra er inni voru. Ekarhurð sprakk inn og karmar losnuðu
Mikil sprenging kvað við í Vest-
mannaeyjum rétt fyrr klukkan eitt
aðfaranótt laugardags. Varð fjöldi
fólks um allan kaupstaðinn
sprengingarinnar var og datt sumum
í hug nýtt gos i Heimaey.
Sprengingin varð við suðurhlið húss
þess er lögregluvarðstofan er í og
tveir varðstjórar er einir voru í húsinu
vissu ekki í fyrstu hvaðan-á sig stóð
veðrið, en mikill loftþrýstingur fylgdi
sprengingunni. Kom sprengingin eins
og högg á þá báða. Sprengingin
hafði orðið við inngang til dómssalar
og til bifreiðaeftirlitsins í Eyjum. Var
svartur ruslapoki, sem í hafði verið
sprautað súrefni og gasi úr kútum og
síðan bundið fyrir, sprengdur við
útidyrnar. Var sprengingin svo öflug,
að útihurðin úr eik fór inn og
karmar dyranna losnuðu.
Pokinn með sprengiefninu hafði
verið sprengdur þannig, að hellt
hafði verið bensíni á frosna jörðina
frá pokanum nokkurn spöl, síðan
kveikt i og læsti eldurinn sig eftir
bensíninu á jörðinni að pokanum.
Tveir menn sáust hlaupa frá og
hverfa út í náttmyrkrið í bifreið.
Þessir menn fundust á laugardag og
reyndust vera 17 og 18 ára. Var
sprengingin framkvæmd í galsa og
ekki ætlun að valda tjóni. Höfðu
sömu menn sprengt þrjá poka áður,
með sama hætti, en sprengingar þær
verið minni og ekki valdið tjóni.
Súrefnið og gasið höfðu þeir
fengið úr kútum í hitaveituskurðum í
bænum, en þar höfðu kútarnir verið
óvarðir.
Piltarnir viðurkenndu brot sitt og
er málið til lykta leitt áfrumstigi.
-A.Sl.
Ofn sprakk af
misþrýstingi
— ogvatnið lak
niðuríapótekiö
Talsverðar skemmdir urðu hjá
apótekaranum í Eyjum um helgina af
vatnsflaumi. Sprakk ofn í íbúð á efri
hæð apóteksins, en slíkar ofn-
sprengingar hafa veríð alltiðar í Eyj-
um undanfarnar vikur. Er talið að
einhver misþrýstingur valdi ofn-
sprengingunum.
Vatnið sem út komst lak niður í
apótekið. Þó lyf skemmdust ekki er
um talsvert tjón að ræða.
-A.St.
Hrafnarnirurðuaf
ætinu:
Ótrúlega
harðger
rolla í Þing-
eyjarsýslu
Norðan úr Þingeyjarsýslu hafa
borizt fregnir af kind, sem þykir
ótrúlega harðgerð. Fannst hún nýlega í
Reykjahverfi hálf í kafi í snjó svo að
aðeins bláafturendinn stóð upp úr. Er
talið að hún hafi verið þannig í allt að
þrjár vikur.
.Þannig var mál með vexti, að í
nokkra daga nýlega hafði sést til hrafna
skammt frá Víðiholti og virtust þeir
vera að sverma fyrir æti. Þegar farið
var að athuga málið, fannst þar ær,
sem var að hálfu grafin í fönn, þannig
að aðeins afturendinn stóð upp úr, en
skepnan var afvelta. Miðað við snjóa-
lög er talið hugsanlegt að kindin hafi
verið í jDessari stellingu í allt að þrjár
vikur. Það merkilegasta var þó, að
kindin var enn á lífi — að visu ekki sér-
staklega hress.
í Víkurblaðinu á Húsavik segir að
Þingeyingum þyki harla ólíklegt, að
rolla úr annarri sýslu hefði sloppið lif-
andi úr slíkum háska. Segir blaðið að
þetta sé góð vísbending um þá gamal-
grónu hreysti og hetjulund, sem ein-
kenni menn og skepnur í Þingeyjar-
sýslum. -ÓV.
Góð orð duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu máli.
yUMFÉRÐAR
RÁD
ROADSXAE
'óla-útsa
Á BÍL STEREOTÆKJUM
RS-2920 Útvarp með lang- og miðbylgju. Takkaforval fyrir fastar
stöðvar. Segulband spilar báðar hliðar ón þess að spólan sé tekin út.
Tilboðsverð: 140.000 (var 157.330)
Nýkr. 1400 Nýkr. 1573,30
Greiðslukjör:
Útborgun 50.000 Nýkr. 500
eftirstöðvar á 2 mán.
SerlCÍUiílt lanCÍ
•*•£***■
VERSLIÐ I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SfMI 29800
RS - 2650 Spilar í báðar áttir. Hraðspólun fram og til baka.
Útvarp með lang- og miðbylgju. Tilboðsverð: 155.000 (var 174.900)
Nýkr. 1550 Nýkr. 1749
RS - 3120 Útvarp með lang- ög miðbylgju með rafeindaforvali á stöðvar.
Segulband spilar í báðar áttir. Hraðspólun fram og til baka.
Tilboðsverð: 140.000 (var 171.060)
Nýkr. 1400 Nýkr. 1710,60
Kuldaskór f rá
ARAUTO
Teg.6925. Stærðir 28-36
Litur: Brúnn
Verð frá kr. 29.670 Nýkr. 296,70
Teg. 6920 Stærðir 28-39
Litur: Rauflbrúnn
Verfl fré kr. 25.494 Nýkr. 254,95
Teg.6918 Stærðir 28-38
Litur: Brúnn
Verfl frá kr. 26.355 Nýkr. 263,55
Teg. 6886 Stærflir 22-23
Litun Blár
Verðfrákr. 22.293 Nýkr. 222,95
Útiskór
Góðir fyrir innlegg
Verð frá kr. 17.780
Nýkr. 177,80
Teg.6617
Stærðir 22—27
Litur: Brúnn
Teg.6762
Stærðir 22—30
Litur
PÓSTSENDUM
Skóglugginn h/f
Rauðarárstíg 16 Sími 11788.