Dagblaðið - 24.11.1980, Síða 18

Dagblaðið - 24.11.1980, Síða 18
18 1 Iþróttir Iþróttir DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980. Iþróttir Iþróttir I Uverpool bætti met Mill- wall og vann Aston Villa — Enn tapa Evröpumeistarar Nottingham Forest á heimavelli. Manchester-liðin í stuði á laugardag Englandsmeistarar Liverpool bættu frægt met Lundúnaliflsins Millwall fri sjötta áratugnum, þegar þelr léku sinn 60. deildaleik á laugardag án taps. Sigruðu þá Aston Villa á Anfield 2—1 og Kenny Dalglish skoraði sigurmark Liverpool á lokaminútu leiksins. Nokkur heppnisstlmpill var á sigri Liverpool. Millwall lék 59 heimaleiki án taps f 3. og 4. deild fyrir 13—15 árum, svo þar er varla samjöfnuður við árangur Llverpool, sem leikið hefur alla sina 60 leiki I 1. deildinni. Frábær árangur og eflaust á hið sterka lið Liverpool enn eftir að bæta leikjum við þetta met. Meistarar Liverpool baða sig nú i sviðsljósinu en Millwall er meðal fallliða 3. deildar, án fram- kvæmdastjóra og hefur boðið tvelmur — þekktum leikmönnum þá stöðu að und- anförnu. Fyrst Pat Rice, Arsenal — nú Watford — siðan Brian Pop Robson, Sunderland. Báðir höfnuðu. bað voru 48.114 áhorfendur á Anfield á laugardag, þegar Liverpool mætti efsta liðinu í 1. deild, Aston Villa, og bætti met Miilwall. Mesti áhorfendafjöldinn á Anfieid á leik- tímabilinu og munaði þar áreiðanlega einhverju, að Liverpool neitaði að sjónvarpsmyndir yrðu teknar af leikn- um við Villa. Liverpool hafði sitt fram, þar sem fjölmargir leikir liðsins í haust hafa verið sýndir í sjónvarpinu. Næstum hægt að reikna með því að Liverpool yrði á skjánum og ýmsir því talið ástæöulítið að leggja á sig langa ferð til Anfield. Forráðamenn Liver- pool hafa alvarlegar áhyggjur af lélegri aösókn og þegar aðsókn að deildaleik datt niður fyrir 27 þúsund var ákveðið að draga úr aðsókn sjónvarpsmanna aö Anfield. En nóg um það. Snúum ok^tur að leiknum við Aston Villa á laugardag. Gífurleg spenna var meðal áhorfenda og fljóðljósin strax sett á vegna dimmviðris. Villa lék með óbreyttu liði. Liverpool vantaði fyrirliðann, Phil Thompson, viðbeinsbrotinn, og Colin Irvine lék sinn fyrsta leik í aðalliðinu í langan tíma. Irvine var lengi að ná sér á strik í leiknum. Það setti mörk á varnarleik liðsins og leikmenn Villa voru mjög hættulegir i sóknar- aðgerðum sínum án þess þó að þeim tækist að skora í fyrri hálfleiknum. Liverpool lék undir getu í fyrri hálfleik. Þó varði markvörður Villa, Jimmy R. Kerkhof til Forest — Southampton og Man. City hafa samið um Phil Boyer Nottingham Forest stendur nú í samningum við hollenzka lands-j liðsmanninn _ (tæga, Rene van der Kerkhof — einn bezta útherja heims. Taldir miklir möguleikar á að Rene, sem leikur með PSV Eindhoven I Hollandl, farí tilj Nottingham. Southampton og Man. City náð náð samkomulagi um Phil^ 1 Boyer, markaskorarann mikla., Man. City vill borga 250 þúsund I stcrlingspunda fyrír hann en vegna mikilla meiðsla I liði | Dýrlinganna varð ekki af þvi, aö! Boyer færi til Manchester á föstudag og Jéki með City gegn i Coventrý. * Þá hefur David Giles, fram- vörðurinn snjalli I liði Swansea,: verið settur á sölulista félagsins I i að eigin ósk. Hann skoraði sigur- mark Wales gegn Tékkóslóvakíu f i HM-leik landanna sl. miðvikudag — og skoraði eltt af fjórum | j mörkum Wales i Reykjavik i júní sl. Einu mörkin, sem hann hefur | skorað fyrir Wales. -hsím. 7 Rimmer, vel frá David Johnson og- Kenny Dalglish. í heild veruleg vonbrigði með leHC liðanna í f.h. Annað var uppi á teningnum í þeim síðari. Rimmer slasaðist og voru sjúkraþjálfarar Villa þrjár minútur að stumra yfir honum áður en leikurinn hófst á ný. Og næstum strax á eftir skoraði Liverpool fyrsta mark leiksins. Það var á 66. mín. Dalglish skoraði fallegt mark eftir undirbúning Terry McDermott. Villa tókst að jafna á 80 mín. Miðvörðurinn sterki, Alan Eans, fór upp að vítateig Liverpool í auka- spyrnu. Fékk knöttinn og skoraði með föstu vinsri fótar skoti. 1 — 1 og það fór heldur betur um áhorfendur. Mundi Liverpool mistakast yiö metið? — Nei, það varð ekki og þrátt fyrir nokkur svitandi augnablik fór svo í lokin, að Liverpool náði báðum stigunum. Áður hafði þó Peter Withe komið knettinum í mark Liverpool. Var það dæmt af vegna brots annars leikmanns. Dalglish skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Þrátt fyrir tapið heldur Aston Villa enn forustu í 1. deild. Er þö aðeins tveimur stigum á undan lpswich og hefur leikið tveimur leikjum meira. Þá eru það úrslitin á laugardag. Ekki var leikið í 3. og 4. deild vegna 1. umferðar bikar- keppninnar. 1. deild Arsenai-Everton 2—1 Birmingham-Tottenham 2—1 Brighton-Man. Utd. 1—4 Liverpool-A. Villa 2—1 Man. City-Coventry 3—0 Middlesbro-Wolves 2-0 Norwich-Sunderland 1—0 Nottm. For.-lpswich 1—2 Southampton-Leeds 2—1 Stoke-C. Palace 1—0 WBA-Leicester 3—1 2. deild Bolton-Grimsby 1—1 Bristol Rov.-Derby 1 — 1 Cambridge-Bristol Cily 2—1 Cardiff-Luton 1—0 Chelsea-Sheff. Wcd. 2—0 Newcastle-Wrexham 0—1 Oldham-Orient 0—1 Preston-QPR 3—2 Shrewsbury-Nott. Co. 1—1 Watford-Blackburn 1 — 1 West Ham-Swansea 2—0 Enn tapa Evrópumeistararnir Það er slakt gengið hjá Evrópu- meisturum Nottingham Forest þessa dagana. Annað heimatapið í röð og nú gegn Ipswich, liði, sem Forest hefur gengið mjög vel gegn, síðan liðið ' komst aftur í 1. deild. Arsenal hefur hlotið II stig af 12 mögulegum gegn Anglíu-liðinu. En nú vann Ipswich sinn fyrsta sigur á Forest um langt árbil. Leikurinn var stórskemmtilegur. Spennandi augnablik við bæði mörk en það var ekki fyrr en á 37. mín. að skorað var. Eric Gates gaf vel á Alan Brazil, sem lék á Larry Lloyd og komst frír að markinu. Peter Shilton hljóp á móti honum en Brazil skoraði örugg- lega. í siðari hálfleiknum sótti Forest nær látlaust að marki Ipswich án þess að skapa verulega hættu. Butcher og Osmann voru frábærir í vörn Ipswich og það.sem á markið kom, varði Laurie Sivill. Meira að segja gnæfði þessi minnsti markvörður i ensku deildaliði oft yfir risana i vörn sinni. Forset fékk 15 hornspyrnur I leiknum gegn örfáum hjá Ipswich og eftir eina þeúta tókst Ian Wallace að jafna. sfljpní knettinum með hjólhesta- spyrnu i markið. Það var á 76. min. og áður hafði Wallace varla sézt í leiknum. En þremur mín. síðar hafði Ipswich náð forustu á ný. Franz Thjissen, Hollendingurinn snjalli, lék gegnum . vörn Forest og Frank Gray brá honum innan vitateigs. Vítaspyrna, og úr henni skoraði John Wark með miklum þrumufleyg. Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrr pressu Forest lokamínúturnar. Áhorfendur rúmlega 24 þúsund. Arsenal komst í fjórða sætið eftir Þcssir garpar voru i sviósljósinu á laugardag en lið þeirra töpuóu. Garth Crooks, lengst til vinstri, þá Peter Shilton, Ardiles og Viv Anderson. Á myndinni er Osvaldo Ardiles aö skora annað mark Tottenham i 0—3 sigrinum á Nottingham Forest fyrra laugardag. Ardiles skoraði einnig á laugardag en þaö nægði Tottenham ekki til að hljóta stig i Birmingham. sigur á Everton á Highbury — Arsenal án Willie Young. Leikurinn heldur dapur lengstum. Á 30. mín. náði Arsenal forustu með marki Brian McDermott, sem sendi knöttinn i net- möskva Everton eftir að mark- vörðurinn hafði varið skot frá John Holiins. McDermott var einn albezti maðurinn á vellinum í leiknum. Á 44. mín. komst Arsenal í 2—0. John Gidman ætlaði að gefa aftur til mark- varðar. Misheppnaðist hins vegar alveg spyrnan. Frank Stapleton náði knett- inum og skoraði. Á 55. mín. var dæmd vítaspyrna á Arsenal. Billy Wright, miðvörður Everton, tók hana en Pat Jennings varði. Hélt þó ekki knettinum, sem barst aftur til Wright og hann skoraði, 2—1. Eftir það sótti Everton mjög. Tókst þó ekki að jafna og verðskuldaði ekki stig eftir frammi- stöðuna framan af leiknum. Manchester-liðin í stuði Man. Utd. hélt niður á suður- ströndina og hafði sterkan Atlantshafs- vindinn í bakið í fyrri hálfleiknum á leikvellinum í Howe. Brighton með óbreytt lið eftir tvo sigurleiki í röð en fyrirliði Man. Utd. Lou Macari, lá í flensu. Buchan, McQueen og Wilkins ekki með frekar en áður. En Júgóslavinn Javanovic lék með á ný eftir meiðsli og Mike Duxbury gat því farið úr vörninni í stöðu Macari. Leik- menn United náðu strax undir- tökunum. Joe Jordan skallaði í mark Brighton á 13. mín. eftir snjalla sendingu Gary Birtles. Fréttamenn BBC sögðu Jordan sem nýjan leikmenn eftir að hann fékk Birtles sér við hlið. Samvinna þeirra að verða frá- bær. Enn hefur Birtles ekki skorað síðan hann var keyptur frá Forest, og varð að yfirgefa leikvöllinn á laugardag rétt fyrir hléið vegna meiðsla. Man. Utd. hafði þá skorað þrjú mörk. Jordan sitt annað á 38. mín. og Sammy Mcllroy hið þriðja á 44. min. Gjafamark McNab. í síðari hálfleikn- um minnkaði Andy Ritchie, miðherji Brighton, áður Man. Utd. muninn i 1—3 áður en Duxbury skoraði fjórða markið fimmmín. fyrir leikslok. Man. City byrjaði með miklum krafti á Maine Road gegn Coventry. Skoraði tvivegis á fyrstu sjö mínútunum. Fyrst Kevin Reeves, síðan fyrirliðinn Paul Power. í síðari hálf- leiknum skoraði Bennett þriðja mark City, sem þarna vann sinn fimmta heimasigur í röð undir stjórn John Bond. Man. City hefur nú sex lið eftir sérátöflunni. Southampton án Keegan, Watson og Williams sigraði Leeds. Charlie George, sem lék sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði, skoraði fyrsta mark leiksins á 10. mín. Arthur Graham jafnaði fyrir Leeds. Mike Channon skoraði sigurmarkið og í s.h. skoruðu liðin ekki. WBA lenti í nokkrum erfiðleikum með Leicester. Áhorfendur aðeins 17.715 og þeir urðu hissa, þegar Leicester sótti látlaust fyrstu mín. En. svo skoraði WBA í sínu fyrsta raunverulega upphlaupi. Brian Robson á 7. mín. Siðar í hálfleiknum fékk WBA víti en Wallington varði frá Gary Owens. í s.h. jafnaði Gary Lineker fyrir Leicester en leikmenn WBA tóku þá heldur betur kipp. Staðan orðin 3—1 tíu mín. síðar. Fyrst skoraði Moses — þá Owen úr annarri víta- spyrnu. Um aðra leiki er það að segja, að Birmingham halar jafnt og þétt inn stigin. Vann nú Tottenham. Cusbisley skoraði fyrsta markið á 44. mín. Os- valdo Ardiles jafnaði fyrir Tottenham Aberdeen heldur enn þriggja stiga forustu i skozku úrvaisdeildinni þrátt fyrír jafntefli á laugardag við botnliðið Kilmarnock 1—1 á útivelll. Rangers náði heldur ekki nema jafntefli á úti- velli, 0—0 i Edinborg við Hearts. Enn tapar Celtic. Nú á heimavelli fyrír St. Mirren 1—2. Morton vann Airdrie 3— en Allan Ainscow skoraði sigurmark heimaliðsins. Fyrirliði Middlesbrough, Tony McAndrew, var rekinn af velli gegn Úlfunum í s.h. en samt vann Boro auðveldlega með mörkum Craig Johnson og Dave Shearer. Steve Globle lék með Norwich á ný og skoraði. Það nægði til sigurs gegn Sunderland í Norwich. Þá hlaut Stoke bæði sigin, gegn Crystal Palace. Brendan O’CalIaghan skoraði eina mark leiksins. Efstu liðin að stinga af Þrjú efstu liðin í 2. deild, West Ham, Chelsea og Notts. County, hafa náð góðri forustu. West Han vann Swansea á heimavelli með mörkum David Cross — hans 19. á leiktíma- bilinu — og Goddard. 24.947 áhorf- endur voru á Stamford Bridge og sáu heimaliðið, Chelsea, sigra Sheff. Wed. 2—0 með mörkum Colin Lee og Clive Walker í síðari hálfleik eftir að lið Jackie Charlton hafði leikið mun betur- í fyrri hálfleik. Ekki tókst að skora í leiknum. Kappinn kunni, Duncan McKenzie, skoraði mark Blackburn i Watford, en Blissett jafnaði fyrir heimaliðið. Annar mikill marka- kóngur, Dixie McNeil, skoraði mark Wrexham í Newcastle. Staðanernúþannig: I. deild A. Villa 19 12 4 3 34- -17 28 Ipswich 17 10 6 1 29- -12 26 Liverpool 18 8 9 1 37- -19 25 Arsenal 19 9 6 4 30—20 24 Man. Utd. 19 6 11 2 26- -13 23 WBA 18 8 7 3 24- -16 23 Everton 19 9 4 6 31- -22 22 Nottm. For. 19 8 5 6 27- -21 21 Tottenham 18 7 6 5 32- -28 20 Birmingham 18 7 6 5 25- -21 20 Stoke 18 6 7 5 22- -26 19 Southamðton 19 7 4 8 33- -31 18 Middlesbro 19 7 4 6 28- -29 18 Sunderland 19 6 5 8 24- -23 17 Coventry 19 7 3 9 22- -31 17 Man. City 19 5 5 9 24- -31 15 Wolves 18 5 4 9 15- -25 14 Norwich 19 5 4 10 22- -36 14 Leeds 19 5 4 10 16- -32 14 Brighton 19Ú/4 4 11 21- -35 12 C. Palace 19 4 2 13 21- -37 10 Leicester 19 4 2 13 17- -33 10 2. deild West Ham 18 12 4 2 32- -11 28 Chelsea 19 11 5 3 37- -18 27 Notts. Co. 18 10 7 1 24- -13 27 Sheff. Wed. 19 9 4 6 25- -23 22 Orient 18 8 5 5 27- -20 21 Swansea 18 7 7 4 24- -18 21 Blackburn 19 8 5 6 23- -19 21 Cambridge 18 9 1 8 25- -27 19 Derby 18 6 7 5 24- -26 19 Newcastle 19 7 5 7 16- -26 19 Luton 19 7 4 8 21- -24 18 Preston 18 5 8 5 16- -20 18 QPR 19 6 5 8 26- -21 17; Cardiff 19 8 1 10 21- -27 17 Shrewsbury 19 4 8 7 18- -22 16 Wrexham 19 6 4 9 16- -21 16 Bolton 18 5 5 8 29- -26 15 Watford 18 6 3 9 22- -26 15 Grimsby 18 3 9 6 9- -16 15 Oldham 19 4 6 9 12- -19 14 Brist'ol City 19 3 6 10 14- -27 12 Bristol Rov. 19 1 9 9 16- -30 11 - hsim. 1 en Partick tapaði á heimavelli fyrir Dundee Ctd. 2—3. Aberdeen hefur 26 stig, Rangers 22, Celtic 20, Dundee Utd. 16, Partick 15, Airdríe 14, St. Mirren 12, Morton 11, Hearts 8 og Kilmarnock 5. Öll liðin hafa leikið 15 leiki. Aberdeen enn með 3ja stiga forustu

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.