Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 30
30
I DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980.
fMKCO Sfflttui
THE
CHAMP
Meistarínn
Spcnnandi og framúrskarandi
vel leikin ný bandarisk kvik
mynd.
AAalhlutverkin leika:
Jon Voight
Faye Dunaway
Ricky Schroder
Leikstjóri:
Franco /efTirelli.
Sýnd kl. 5,7,1 Oog 9,15
Hxkkað verð.
Simi IK9J6.
Simi 50184
Nýjaata
jTrinlty^nyndln": ■
Ég elska
flóðhesta
Sýnd kl. 9.
Ný, dularfull og
kyngimögnuö brezk-amerísk
mynd. 95 mlnútur af spennu
og í lokin óvæntur endir.
Aðalhlutverk:
Cliff Robertson og
Jean Simmons
Bönnuð innan 14óra
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Emmanuelle
Hin heimsfræga franska kvik
mynd sem sýnd var viö metað
sókn á sinum tima.
Aöalhlutverk: Sylvia Kristell,
Alain Guny, Marika Green.
Enskl tal.
Islen/kur texti.
Sýnd kl. 7,9 og 11.
Stranglega bönnuð innan 16
ára.
Nafnskirteini.
Mundumig
(Ramambar my
Namal
blcnzkur lcxtl.
Afar sérstæö, spennandi og
vel leikin ný amerisk úrvals-.
kvikmynd I litum. '
Leikstjóri
Alan Rudolph
Aöalhlutverk:
Geraldine Chaplin
Anthony Perkins
Moaes Gunn
Berry Berenson
Sýnd kl. 7
vegna fjölda
áskorana
\sr-mm
Mánudagsmynd
Xica Da Silva
STADIG DEfJ FESTUGSIE
RLM I BYBI
xAftanan Itllfymnrknfw TVi Hmontnlfnng.
t * /,
a?A$lL\í*
óvenju falleg og vel gerö
brasilisk mynd um ást
frelsis og frelsi til ásta.
★ ★ ★ ★ Ekstra bladet
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Bönnufl börnum.
til
AUSTUmiARRir,;
Bezta og frægasta mynd Steve
McQueen.
Bullitt
Hörkuspennandi og mjög vel
gerö og leikin, bandarísk
kvikmynd i litum, sem hér var
sýnd fyrir 10 árum við
metaösókn.
Aðalhlutverk:
Steve McQueen,
Jacqueline Bisset
Alvegnýtt eintak.
íslenzkur texti.
Bönnufl innan 12 ára
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
TÓNABIO
Sim* i 11 82
Óskarsverfllaunamyndin:
í nætur-
hitanum
(In theheat
of thenight)
Myndin hlaut á sinum tima 5
óskarsverðlaun, þar á meðal
sem bezta mynd og Rod
Steiger, sem bezti leikari.
Leikstjóri:
Norman Jewison
Aðalhlutverk:
Rod Steiger.
Sidney Poitier
Bönnuð innan 12 ára.
Endursýnd
kl. 5, 7.10 og 9.15.
-3* 16 444
JU.C GUINNESS
!t,«kCARL0 ■ KiiJOHNSONt
í
Kvenholli
skipstjórinn
Bráðskcmmtileg, fjörug og
meinfyndin ensk gaman-
mynd um fjölhæfan
skipstjóra. Myndin var sýnd
hér fyrir allmörgum árum, en
er nú sýnd með
íslenzkum texta
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
■ BORGAR-w
DíOiO
•MI0/0VX04 1 Köf SIMI4JS01
Stríðs-
félagar.
(Tbere la no placý' j *
Uke Hell) V '
Ný, spennandi amerlsk mýndl
um stríösfélaga, menn
böröust i hinu ógnvænlega!
•Viet Nam-striöi. Eru þejl',
negldir niður í fortíöinni og fý!
ekk> rönd viö reist er þeir
reyna aö hefja nýtt llf eftir
striðiö. .
Leikarar:" •- *r
- WUIiam Devgne j
Mkhael Morlarty
(lék Óorf í HOLOCAUST) *í
Arthur Kennidy
Mitchell Ryan
LeikstjórU --
'JMvin Sberin -
BönkHÍðfainan J6 ára
blén/kur textl
Sýndkl.7',9og*lí.|
Undrahundurinn {
Sýnd kl. 5.
íGNBOGJI
O ,9 OOO
- MlurA-
Hjónaband
Mariu Braun i
Spennandi, hispurslaus, ný
þýzk litmynd gerö af Rainer
Werner Fassbinder. Verð-;
launuö á Berlinarhátiöinni og
er nú sýnd i Bandaríkjunum
og Evrópu við metaösókn. I
,,Mynd sem sýnir aö enn xrj
hægt aö gera listaverk.
-New YorkTimes:
Hanna Schygulla
Klaus Löwitsch
I
íslenzkur texti.
Bönnufl innan 12 ára
Sýnd kl. 3,6 og 9.
- sakir
B-
Lifðu hátt, —
og steldu miklu
Hörkuspenmnandi litmynd,
um djarflegt gimstcinarán,
meö Robert Conrad (Pasquel
i Landnemar).
Bönnufl innan 12ára
Endursýnd kl. 3.05,5.05,
7.05,9.05 og 11.05
-sakji
c
Draugasaga
'Krwwtimiit
uImimuwiImiJ,
ftccking bvln'
Fjörug og skemmtileg gaman-
mynd um athafnasama
drauga.
íslenzkur texti
Endursýnd kl. 3.10, 5.10,
7.10, 9.10og 11.10
salur
D
Tfðindalaust
á vestur-
vfgstöðvunum
Hin frábæra litmynd eftir
sögu Remarque. Aöeins fáir
sýningardagar eftir.
Sýndkl. 3.15,6.15,9.15.
LAUGARAS
Simi 32075 >'
KARATI
PÁ
LKVocDðD
nmm
Karate upp á
Iff og dauða
Kung Fu og Karate voru vopn
hans. Vegur hans aö markinu
var fullur af hættum, sem
kröfðust styrks hans að fullu.,
Handritiö samið af Bruce Lee
og James Coburn, en Bruce
Lee lézt áöur en myndatakan
hófst.
Aöalhlutverk:
David Carradine og
Jeff Cooper.
Sýnd kl. 5 og7‘
Bönnufl innan 14 ára
íslen/kur textl.
Leiktu Misty
fyrir mig
Síðasta tækifærí aö sjá eina
beztu og mest spennandi
mynd sem Clint Eastwood
hefur leikið í og leikstýrt.
Endursýnd
kl. 9 og 11.
Bönnufl innan 16 ára.
m
Dagblað
án ríkisstyrks
GAMLAR KUSJUR
ÍNÝJUUÓSI
Kvlkmynd: Mebtarlnn (The Champ)
Lolkstjóri: Franco ZeffIroHi
Handrit: Waftor Newman (handrit byggt 6
aögu efdr Frencos Merion).
Tónllat Deve Grualn
Kvikmyndeteke: Fred J. Koenekamp
Meðel leikende: Jon Voight, Feye Dunewey,
Ricky Schroder
Sýningarstaflur: Gamia bió.
Ástin hefur ætíö verið vinsælt um-
fjöllunarefni í kvikmyndum og þá í
margvislegum tilbrigðum sem hafa
kannski, þegar allt kemur til alls,
ekki verið svo ýkja fráþrugðin hver
öðrum. Þriðji aöilinn birtist yfirieitt,
og eftir aö baráttu hvers og eins viö
sjálfan sig og aðra er lokið, stendur
einn — eða tveir — eftir í lokin og
hefur þá borið sigur — eða tap — úr
þýtum. Allt eftir atvikum. Og heldur
vilja þessar myndir verða ieiðigjarnar
til lengdar, sömu tuggurnar upp aftur
og aftur, jafnvei sömu tilsvörin koma
aftur og aftur úr munni sömu leikara
— eini munurinn sá að það gerist sitt
í hvorri myndinni.
En því er ekki að neita að það er
aö sumu leyti slegiö Ööruvisi á
strengina í mynd Franco Zeffirelli
sem Gamla bió hefur tekið til sýninga.
Atburðarásin er reyndar ekkert
ósvipuð því sem gengur og gerist.
Það sem telst nýstárlegt við þessa
mynd er öðruvísi skipan mála í því er
lýtur að hinum dramatísku átökum.
Tilfinningatengslin eru að þessu sinni
milli föður og sonar. Þriöji aðilinn,
sem birtist af tilviljun, er móðir
drengsins, sem hafði skömmu eftir
fæðingu drengsins skilið hann eftir f
höndum föðurins. Hann er fyrrum
hnefaleikakappi og hefur látið á sjá
síðan: veikur fyrir vini og fjárhættu-
spili. Varla nein sérstðk fyrrmynd i
uppeldisiegu tilliti, og á þannig
trauðla skilið þá samúð, sem hann
hlýtur engu aö síður, kannski fyrst og
fremst fyrir soninn, sem heldur
tryggð við hann gegnum þykkt og
þunnt — í blíðu sem stríðu.
Þegar faðirinn, sem leikinn er af
Jon Voight, kemst að því að móðir
drengsins kýs gjaman að hafa meiri
afskipti af afkvæminu bregst hann
hinn versti við. Uppfullur af
einstrengingshætti og þrjósku ætlar
hann sér að endurheimta foma
frægð i hnefaleikahringnum og
„verða eitthvað” í augum sonar síns.
Þannig skal stráksi gleyma henni
múttusinni.
Þegar hér er komið sögu hefði
myndin hæglega getað endað og
orðið hvorki betri né verri en
kúfurinn af álíka myndum. En það er
haldið áfram og það sem gerist eftir
þessa ákvörðun föðursins sker að
mínu viti úr um gæði myndarinnar.
Hnefaleikakappinn sigrar í
keppninni — en tapar öllu öðru. Það
má þó kannski nefna að mér fannst
endir myndarinnar full tilgerðar-
legur, jafnvel svo að jaðraöi við að
yfir markið væri skotið. En leikur
Ricky Schroder í hlutverki hinssjö ára
gamla T.J. yfirgnæföi hugsanlega
vankanta — og þaö er reyndar vel
þess viröi að sjá myndina eingöngu
hans vegna.Og Jon Voight og Faye
Dunaway í hlutverkum foreldra hans
skila hiutverkum sinum með prýði.
Það er þvi hiklaust óhætt að mæla
með því að menn „spandéri” kvöld-
stundi Gamla biói.
Hinn sjö ára gamli T.J. er bráðvel leikinn af Ricky Schroder — skyldi hér vera ný
barnastjarna á ferðinni?
Kvik m 9 «
e
„FRÍKAÐ FUPP”
Kvikmynd: í avælu og reyk (Up in smoke).
Loikatjóri: Lou Adier
Hendrit: Tommy Chong og Choech Marin
KvlkmyrtdaUka: Gene PoUto
Meflel ietttende: Tommy Chong, Cheech
Merin, Stacey Keech.
Sýningeretaflur. Háakólabió.
Það er stundum sagt um kvik-
myndir að menn skiptist i fullkom-
lega tvö horn í afstöðunni til þeirra:
annaöhvort faili þær vel eöa illa i
geð. Þetta er auðvitað afskapiega
teygjanlegur frasi og loðinn — má
ekki segja þetta um flestallt, sem
boöið er uppá, alls staðar? Engu aö
sfður hygg ég að sú sé raunin með
kvikmyndina sem Háskólabió sýnir
þessa dagana.
,,f svælu og reyk” segir 'frá
tveimur „léttfríkuðum gaurum” sem
kynnast af tilviljun og uppgötva von
bráðar að þeir eiga eitt sameiginlegt
áhugamál, sem er „gras” — öðru
nafni marihuana. Og aðvitað
sameinast þeir i svælu og reyk — og
ýmsum uppátækjum sem verða
smám saman það mörg aö nægir i
eina kvikmynd. Hún verður eðlilega
afskaplega losaraleg og laus í
reipunum, það er litiö hirt um að búa
til samfellda frásögn, en þess í stað
er atvikum raðað saman eftir þvi sem
við á. En þessi vinnubrögð verða
góðu heilli tii þess að þaö er ætíð eitl-
hvað nýtt að gerast, eitthvað óvænt
verður í sífeliu uppi á teningnum, og í
alvöruleysi þeirra kumpána veröur i
rauninni aldrei leiðigjarnt. Ég er
sumsé einn þeirra sem skemmti mér
ágætlega við að fyigjast með ævintýr-
um þeirra Cheechs og Chongs. Þessir
tveir bandarísku spéfuglar hafa þegar
Öölast mikla frægð fyrir húmor af
álíka tagi og þeir bjóða upp á i þess-
ari - kvikmynd sinni: alls kyns
„gaTenskab” um eiturlyf og eitur-
lyfjaneytendur — og mér fellur það
ágætlega i geð, þegar jafn ærlega er
slett úr klaufunum og þeir félagar
gera.
Ég hef orðið var við aö sumir, sem
hafa barið „í svælu og reyk” augum,
hafi viljað líta á myndina sem eina
samfellda auglýsingu fyrir eitur-
lyfjum: þau eigi, samanber myndina,
að vera forsenda þess að Hfið geti
verið skemmtilegt. Þetta hygg ég sé
að mörgu leyti varasamt viðhorf.
Grin og glens er ekki auglýsing i
sjálfu sér og sjálfum finnst mér
myndin ekki auglýsing fyrir eitt eða
neitt — tíl þess er hún of dásamlega
alvörulaus og ærslafengin.
En nóg um það. Það hefur litið
upp á sig að rekja söguþráð, í
rauninni er afskaplega litið i hann
varið. Leikur þeirra félaga, tilsvör og
viðbrögð, halda þessari mynd uppi,
og allt er það ágætlega hnyttið og
skemmtiiegt — að minnsta kosti svo
nægir til að athyglin helst vel vakandi
allan tímann, og það hreint ekki svo
sjaldan sem maður skellir upp úr og
hiæraf hjartans lyst.
Ef maður á annað borð fellur fyrir
húmor af þessu tagi.