Dagblaðið - 09.12.1980, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 9. DESHMBER 1980.
Fölsk og einföld
mynd dregin upp
Þorsteinn Gunnarsson kennari,
Egilsstöðum skrifar:
í Dagblaðinu 22. nóv. sl. birtist
geðvonskuleg bókmenntagagnrýni
um bók Eðvarðs Ingólfssonar
„Gegnum bernskumúrinn. Gagn-
rýnandinn Valdís Óskarsdóttir
dregur upp mjög neikvæða mynd af
bókinni, finnur henni allt til foráttu
og telur að höfundurinn haft „villst í
hringtorginu”, samanber fyrirsögn
ritdómsins.
Gagnrýni Valdísar á bók Eðvarðs
er í alla staði ómálefnaleg og ein-
kennist af töluverðri þröngsýni. Ég
ætla því að gefa lesendum Dag-
blaðsins aðra mynd af skáldsögu
þessari.
Bókin Gegnum bernskumúrinn er
skáldsaga um islenska unglinga. Hún
fjallar um viðhorf þeirra til
fullorðna fólksins og sérstaklega er
varpað fram þeirri spurningu um
hvað þetta unglingavandamál
raunverulega snýst, sem svo oft er
talað um i blöðunum.
Valdísi finnst Eðvarð setja upp
heldur svartsýna mynd af
þjóðfélaginu og hún vill að þvi
„verði stungið í tugthúsið áður en
það verður okkur íslensku þjóðinni
að fjörtjóni”. Hér hæðist Valdis að
félagslegum skýringum á stöðu
unglinga, en það er að minu mati
erki-afturhaldssöm afstaða. Þvert á
móti er nauðsynlegt þegar fjallað er
um stöðu unglinga eða annarra
aldurshópa í samfélaginu, að taka
mið af samskiptum þeirra við sam-
félagið. í framhaldi af þessu er Ijóst
að grundvallarágreiningur er á milli
hennar og höfundar um mótun
unglinga og hvað unglingavanda-
málið raunverulega er.
Eðvarð hefur bæði „góða” og
„slæma” unglinga í sögunni — sama
gildir um þá fullorðnu og heimili
þeirra. Að visu er ég á móti því að
tala um góða og slæma unglinga en
verð að gera það til þess að vera niður
á sama umræðuplani og Vigdís.
Höfundurinn er greinilega á bandi
„grúví unglinganna” eins og Valdís
nefnir þá, og þeir eru nokkurs konar
fyrirmynd hans. í ritdómi sínum
stendur Valdís greinilega með
„slæma” unglingnum. Hún álítur að
Eðvarð áfellist slíka unglinga fyrir
það eitt að þeir drekka, reykja, slást
og hafa slæmt orðbragð. Það er ekki
alls kostar rétt — hann reynir heldur
að útskýra af hverju þeir eru svona
og rekur það gjarnan til heimilis-
aðstæðna þeirra. Höfundur vill
meina að ef heimilin séu ekki i lagi,
þá eru meiri líkur á því að allt annað
sé í ólagi.
Valdisi finnst siðaboðskapur höf-
undar vera full einstrengingslegur.
Hún virðist vera á móti því að settar
séu hömlur á unglingana. Hún virðist
telja að reynsla sú sem þeir fá af á-
fengisneyslu, tóbaksneyslu og fleiru
sé sjálfsögð og engin ástæða til þess
að ræða hana. Eðvarð vill meina að
þessir hlutir séu ekki æskilegir og
þegar þeir eru orðnir rikur þáttur í
fari unglinganna — þá er ekki allt
með felldu. Staðreyndin er nefnilega
sú að unglingar í dag neyta áfengis í
miklu ríkari mæli en þeir hafa áður
gert. Jafnvel löngu áður en þeir eru
búnir að taka út líkamlegan og and-
legan þroska. í framhaldi af þessu
bendir höfundur á þá aðila, sem eru
búnir að gera unglinga að fram-
Eðvarð Ingólfsson, höfundur
bókarinnar Gegnum bernskumúrinn.
leiðsluvöru í þjóðfélaginu, svo sem
klámbóka- og blaðaútgefendur,
eiturlyfjasalar, fataframleiðendur og
jafnvel þeir blaðamenn sem alltaf eru
að halda nafninu „unglingavanda-
máli” á lofti. Alls kyns skrum er aug-
lýst og bersýnilega ætlast til að
unglingar fylgi vissunt straumum og
stefnum eftir. — Eðvarð vill að
unglingarnir brjótist undan þessum
öflum — fari sínar eigin leiðir, og
finni sig sem sjálfstæða einstaklinga
að svo miklu leyti sem það er hægt.
Hann bendir á að til þess að það sé
mögulegt þurfi margt að koma til,
svo sem aukinn skilningur uppalenda
— ef gagn-
rýnandier
upptekinn af
eigin
Iffsviðhorfum
á því mikilvæga hlutverki sem
heimilið gegnir í tilveru barna.
Valdís telur sig hafa komist að þvi
eftir lestur bókarinnaF að fullorðna
fólkið sé óhreinna í öllu sálarlífi og
hugsunarhætti „en unglingarnir sem
eru svo sannarlega vitnisburður
hreinleikans og réttlætisins”. — Hér
er farið rangt með heimildir. Það er
aldrei minnst á þetta í bókinni. Hins
vegar er minnst á að börnin séu það.
Hér kemur fram hjá Eðvarði algeng
siðfræðileg og félagsfræðileg
skoðun, að barnið fæðist eins og
óskrifað blað en byrji siðan að nema i
því umhverfi sem það elst upp í.
Unglingarnir eru semsagt ekkert
annað en það sem þjóðfélagið hefur
gert þá að og höfundi finnst full á-
stæða að minna lesendur sína á mikil-
vægi uppeldisins í þessu sambandi.
Grundvallaratriði til þess að ná
áttum í umræðum unt unglinga-
vandamál hlýtur að vera að rekja það
til þjóðfélagsbreytinga.
Án efa væri það til bóta og
sanngjarnara, ef Valdís legði það
framvegis á sig við greiningu bóka —
að sýna lesendum frani á hvað
höfundar eru að fara í verkum
sínum. Þá á ég við það. að ekki er
gott að vera svo upplekin af eigin lifs-
viðhorfum, að viljandi er dregin upp
fölsk og einföld mynd af þeim hug-
myndaheimi sem höfundur er að
túlka. Þá skírskota ég til þeirrar um-
fjöllunar sem skáldsaga Eðvarðs Ing-
ólfsonar fékk. — Bókmenntagagn-
rýnendur mega aldrei gleyma því að
alltaf eru til tvær hliðar á öllum mál-
um. Sú er meginástæðan að ég varð
að svara þessari gagnrýni . . .
AF HVERJU ÞARF AÐ HENDA
GERVASONIÚR LANDINU?
— það sama verður að ganga yf ir alla
Viktoria hringdi:
Það getur enginn borið virðingu
fyrir lögum sem ekki ganga jafnt yfir
alla og þá er sama af hvaða þjóðerni
maðurinn er.
Ef við á annað borð erum að taka
við fólki getum við alveg eins tekið
við einum fransmanni. Við höfum
tekið á móti vietnömskum flótta-
mönnum, við tókum við Rússanum
Kovalenko en sendum hann ekki i
sovézkt fangelsi.
Af hverju getum við ekki tekið við
Gervasoni? Af hverju þurfum við að
henda þessum eina manni úr landinu
sem aðeins hefur brotið það af sér að
vilja ekki gegna herþjónustu? Það
finnst mér ekki alvarlegt afbrot.
Mér finnst þetta mannúðarmál og
bæði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og
Guðrún Helgadóttir eru aðgera rétt.
Raddir
lesenda
Hvers vegna tökum við á móti
víetnömskum flóttamönnum en
hcndum Gervasoni úr landi? spyr
Viktoría.
DB-mynd: Hörður.
Spurnirm
dagsins
Hvað langar þig að fá
í jólagjöf?
Sigurður Árni Jósefsson, 4 ára: Plav-
mobil og sirkuskalla og leikfangahest.
Sigriður Björk Hannesdóttir, 4 ára:
Dúkku, hún á að vera gul og í kjól.
Daði Ingólfsson, 5 ára: Ég vil play-
mobil og matchboxbílabraut og
myndavél. Líka svona bil eins og er i
auglýsingunum þar sem billinn kevrir
yfir poll. Svo vil ég aksjón-mann.
Sigurður Guðni Jósefsson, 5 ára: Eg vil
fá stóra kalla með riffla.
Sjóðheitt kaffi
góðan daginn!
Það er notalegt að vakna á morgnana og fá
gott heitt kaffi og ristað brauð. Þessi frábæra
kaffivél og brauðristin valda þér ekki
vonbrigðum . . . nývöknuðum.
Kaffivélin er 45 sek. að hella upp á hvern bolla af frábæru
heitu kaffi. Þýsk gæða framleiðsla. Margar stærðir: 12,10, 8, 6 og
18 bolla. Einnig með innbyggðum hitabrúsa og tölvuklukku
(sjálfvirk uppáhelling eftir minni).
Verð frá: 38.000 kr.
og ristað brauð
Þessi brauðrist er með nýjum búnaði, lítilli tölvu sem tryggir að
brauðið sem þú glóðar, brennur ekki. Hljóðlaus brauðrist, tvær
sneiðar af brauði á 90 sek.
Verð: 37.000 kr.
mr
FALKIN WAeÚHái4te6i SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Hilmar Rannoz, 5 ára: Svona aksjón-
rnann með riffil. Og rafmagnsbila-
braut.
Arna Magnúsdóttir, 5 ára: Eg vil
ekkert fá.