Dagblaðið - 09.12.1980, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980.
.íúRíUJL
Jólamarkaður í
Breiðfirðingabúð
Ódýrar vörur verða seldar næstu daga í Breiðfirðingabúð.
t.d. sængurgjafir, barnabuxur, alls konar smábarnafatn-
aður, leikföng, jólatrésvörur, jólatrésskraut og margt,
margt fleira.
Samhjálp auglýsir:
Nýja
Samhjálparplatan
fæst í afgreiðslu
Samhjálpar
Hverfisgötu 42.
Opið kl. 13-18.
Sendum í póstkröfu um allt
land. Símar 11000 — 661481
Fleiri karlar en konur fremja sjálfsmorö I Danmörku, en munurinn er minni en áður var. Á siðastliðnu ári frömdu 804 karlar
sjálfsmorð i Danmörku og 514 konur. Liklegt er þó að mörg sjálfsmorð séu talin slys, þannig að i raun og veru séu þau mun
fleiri. Talið er liklegt að I ár muni um 10 þúsund Danir gera tilraun til sjálfsmorðs og rúmlega tíundi hluti sjálfsmorðstil-
raunanna heppnast.
Mikil fjölgun á
sjálfsmoroum
—Sjálfsmorðum í Danmörku fjölgaði um meira en hundrað
á síðastliðnu árí. Mikið atvinnuleysi ungs fólks og tvöfalt
álag á útivinnandi húsmæðrum talið meðal höf uðorsakanna
Fjöldi sjálfsmorða í Danmörku
hefur aldrei verið eins mikill og nú.
Talið er að orsök fjölgunar sjálfs-
morða sé mikið atvinnuleysi meðal
ungs fólks og tvöfalt álag á konum,
sem vinna utan heimilis auk þess sem
þær sinna húsmóðurstarfinu.
í skýrslum opinberra aðila um
þetta efni kemur fram að á síðast-
liðnu ári voru framin 1318 sjálfsmorð
í Danmörku og er það meira en
hundrað sjálfsmorðum fleira en árið
áður. Á árunum 1950—70 var fjöldi
sjálfsmorða 900—1000 á ári og fór
þeim fækkandi. Nú fjölgar sjálfs-
morðunum hins vegar mjög.
Prófessor N. Juel-Nielsen, sem
manna bezt er talinn þekkja til þess-
ara mála, segir að um jólin séu alltaf
framin mörg sjálfsmorð en einnig sé
það áberandi að á vorin séu margir
það niðurdregnir að þeir fremji
sjálfsmorð.
Prófessor Juel-Nielsen mun á
næstu árum stjórna samnorrænni
könnun þar sem reynt verður að
grafast fyrir um orsakir sjálfsmorða.
Sjálfsmorð eru algengust meðal fólks
á aldrinum 35—64 ára en einnig
fremur margt ungt fólk sjálfsmorð.
Áður frömdu tvöfalt fleiri karlar
sjálfsmorð en konur, en nú er bilið
mun minna. Ekkert er með nokkurri
vissu vitað um orsakir fjölgunar
sjálfsmorða og breytingar á skiptingu
kynja i hópi þeirra, sem gefast upp á
lífinu og fremja sjálfsmorð.
Prófessor Juel-Nielsen telur að mikið
atvinnuleysi og slæmar fram-
tíðarhorfur séu meginástæða þess að
fjöldi ungs fólks gefst upp. Þegar
konur treysta sér ekki til að lifa
lengur er ástæðan oft talin vera
tvöfalt álag á þeim. Þær leggja
heimilinu til peninga með því að
vinna úti, en öll vandamál heimilisins
hvíla eftir sem áður á þeim. Breyttar
tölur yfir sjálfsmorðstíðni kynjanna
gæti bent til jjess að á síðustu árunt sé
lif kvenna orðið erfiðara en líf karla
auðveldara.
Körfubíll til söhi
sem er Ford 300 D árg. '70
með 10,5 m lyftara. Tilboð
óskast. Uppl. í síma 51715.
Nei takk ...
ég er á bílnum
Nato-ráðherrar
SKYUR SER
BAKVK)
FORMANNINN
Jiang Qing, ekkja Maós Tsetung,
hins látna leiðtoga kínversku þjóðar-
innar, skýldi sér á bak við vald eigin-
manns síns er hún var yfirheyrð varð-
andi sekt hennar í dauða Liu Shaoqis,
fyrrum forseta Kína.
Jiang Qing réttlætti ofsóknirnar á
hendur Liu Shaoqi með því að vísa í
skjal frá miðstjórn kommúnistaflokks-
ins undir forsæti Maós þar sem fjallað
var um baráttu á hendur öllum þeim
sem leiðzt hefðu inn á brautir kapítal-
ismahs.
GÓÐ
VERÐ
LAUN
KAFFI
HLÉ
FRAMSÓKNAR
VIST
HÓTEL
HEKLU
í KVÖLD
KL. 20.00.
ræða um Pólland
ikæ
FEROAR
Harold Brown, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, og aðrir varnarmála-
ráðherrar ríkja Atlantshafsbandalags-
ins koma saman til fundar í dag til þess
að ræða þróun mála í Póllandi og
hugsanlegar afleiðingar hennar. Ráð-
herrarnir hittust á óformlegum fundi í
gær og munu hafa verið sammála um
að ekki væri heppilegt að Nato-ríkin
færu af stað með aukinn vígbúnað að
svo komnu vegna ástandsins í Póllandi.
Portúgal:
STJÓRNIN
FERFRÁ
Ríkisstjóm Portúgals baðst í gær-
kvöldi lausnar vegna sigurs Eanesar
forseta í forsetakosningunum.
Stjórnarfiokkarnir reyna nú að koma
sér saman um nýjan forsætisráðherra.
Hinn nýendurkjörni forseti segist
munu veita stjórnarflokknum nægan
tíma til að benda á nýjan forsætisráð-
herra. Forsetinn hefur samkvæmt
stjórnarskránni völd til að skipa for-
sætisráðherra. Mikil togstreita hefur
verið á milli stjórnarfiokkanna og for-
seta landsins.
Þó hefur verið skýrt frá þvi að sex
skipa fastafloti bandalagsins verði um
kyrrt í Norðursjó og muni halda þar
áfram æfingum í stað þess að fara heim
um jólin.
Ótti Vesturveldanna við hernaðar-
íhlutun Sovétmanna í Póllandi hefur
vaxið á ný eftir að ljóst er orðið, að
hernaðarundirbúningi Sovétmanna
hefur verið haldið áfram eftir fund
leiðtoga Varsjárbandalagsins í
Moskvu, þar sem talið var að niður-
staðan hefði orðið sú að Pólverjar
skyldu sjálfir finna lausn á sínum mál-
um.
Að sögn opinberra aðila í Bandarikj-
unum hefur hernaðarundirbúnings
orðið vart í rúmlega þrjátíu herfylkjum
Sovétmanna og Varsjárbandalagsins.
Hljómsveitin
Bakkabræður
og brœðurnir
Kertasníkir og
Skyrgámur
koma á jólatrésskemmtanir
með söng, hljóðfæraleik,
Ba glens og gaman.
|r
Upplýsingar hjá
auglýsingaþjónustu Dagblaðsins
í síma 27022 og í síma
31421 á kvöldin.
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER